Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 6 13
ÞESSIR éta ekki meira um dagana.
Frá sild til
mýflugna
ÞAÐ hefur komið mörgum á
óvart að læra að laxar éti ekki í
ánum og umræða um át í hafínu
hefur mikið til snúist um hvort
laxinn éti þorskseiði og öfugt,
þ.e.a.s. hvort þorskurinn éti
laxaseiði. Rannsóknarverkefni
á vegum Veiðimálastofnunar á
löxum sem veiddust í sjó í Hval-
firði, Hraunsfirði og í Jökul-
fjörðum bendir hins vegar ekki
til þess að nytjastofnar séu í
hættu þegar laxinn er annars
vegar, einnig að það skiptir
meginmáli hvort lax er á ætis-
eða hrygningargöngu hvort
mikið, lítið eða ekkert er að
finna í laxamögum. Þá
er einnig
ljóst af rann-
sóknunum að
laxinn er
mikill tæki-
færissinni.
Það var
Jóhannes
Sturlaugsson
sem var verkefnisstjóri þessara
rannsókna og í skýrslu sem
hann hefur sent frá sér kemur
fram að rannsakaðir hafi verið
106 laxar úr Hvalfirði 1994,118
laxar úr Hvalfirði 1995,100 lax-
ar úr Hraunsfirði í júlí 1994 og
21 tO viðbótar í september
sama ár, 16 laxar úr Aðalvík
Sumarið 1994 og 38 laxar úr
Jökulfjörðum í júlí 1995. Fæðu-
tegundir voru margvíslegar,
þannig hafði 81 lax étið 1-10
fiska af sandsílaætt og 13 laxar
voru með 1 til 13 síldar í mag-
anum. 6 laxar voru með 1 til 52
fiska af mjónaætt í maganum
og einn lax fannst sem hafði ét-
ið marhnút.
Krabbalirfur voru mikilvæg-
ar, 13 laxar höfðu étið slíka
fæðu og voru einstakir fiskar
með allt frá einni lirfu upp í 782
lirfur í maganum. Aðrir 13 lax-
ar höfðu étið ljósátu, 1-104
stykki hver. 3 laxar höfðu étið 1
til 22 sviflægar marflær og 6
laxar 1 til 311 botnlægar mar-
flær. Tveir laxar höfðu étið
hvor sinn burstaorminn og
svona til að tíunda enn frekar
hversu víða er leitað fanga,
hafði einn lax fengið sér eina
mýflugu í ábót.
Innlitin sönnuð
í umræðum um hvort laxar
eigi það til að skoða árósa fleiri
áa en sinna heimaslóða, og þá
hvort hafbeitarstöðvar hafi
e.t.v. verið að veiða laxa úr öðr-
um ám í gegnum tíðina, fékkst
áþreifanleg sönnun fyrir slíku á
meðan á ofangreindum athug-
unum stóð. Áður hafði komið í
ijós við athugun á hreistri og
örmerkjum laxa í Hraunsfirði
að allmargir voi'u úr nærliggj-
andi laxveiðiám. I sjávarlögn í
Hvalfirði veiddist síðan lax sem
vai- með flugu stangaveiði-
manns í kjaft-
vikinu og
þurfti varla
frekari vitn-
anna við að sá
hafði gengið
aðeins upp í ranga á áður
en hann kveikti á perunni og
hélt aftur til hafs að leita að
sínu rétta heimili.
Niðurstaða
Jóhannesar
í samantekt í lok skýrslu
sinnar segir Jóhannes Stur-
laugsson m.a. eftirfarandi: -
Veiðarnar gáfu mikilvægar
upplýsingar um gönguhegðun
lax á hrygningargöngu með
ströndum. Þau gögn sýna hve
náið þær göngur tengjast
strandlínunni og yfirborði sjáv-
ar. Fjölbreytni fæðunnar hjá
laxi sýnir að hann er tældfæris-
sinni í fæðunámi sem er í reynd
nauðsynlegur eiginleiki vegna
þeirra fjölbreytnu aðstæðna
sem mæta honum á langferðum
hans. Því má segja að laxinn éti
flest það sem að kjafti kemur.
Þegar litið er til helstu nytja-
tegunda okkar er ljóst að laxinn
heggur ekki stór skörð í þá
stofna á leið sinni um
strandsævið. Vegna göngutíma
og gönguhegðunar er ólíklegt
að þeir komist í tæri við seiði
nytjastofna í miklum mæli,
nema í undantekningartilvik-
um.
Verslunarskóli Islands
Oldungadeild
Lœrið hjá þeirn sem þekkja þarfir viðskiptalífsins
A
A vorönn 1998 verða eftirtaldar námsgreinar í boði:
Bókfærsla
Enska
Forritun
íslenska
Líffræði
Ritvinnsla
Saga
Skattabókhald
Spænska
Stærðfræði
Tölvubókhald
Tölvunotkun
Þjóðhagfræði
Þýska
Gjaldfyrir hvern áfangafer eftir fjölda kennslustunda.
Bókhalds- og tölvunám (208 kennnslustundir)
Kennsla á vorönn hefst 12. janúar.
Innritað verður á skrifstofu skólans, Ofanleiti 1,
103 Reykjavík 5.-8 janúar nk.
Enn á ný býður Ræktin
líkamsræktarkort á ótrúlegu verðil
12 mánaða kort kr. 19.990-
6 mánaða kort kr. 14.990-
teygjur
Útsalan
hefst á mánudag kl.
10.
Tískuverslunin
Stórar stelpur
Hverfisgötu 105, Reykjavík,
sími 551 6688.
Hafnarstræti 97, Akureyri,
sími 461 1680.