Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Frelsið lifir í öllum Gróskan er mikil undir yfirborði tónlistar- markaðarins; þar þrífst neðanjarðarmenn- ing. Marteinn Örn Óskarsson varpar fram spurningunni um hvað slík menning er og segir hana alltaf vera brautryðjandi. INN MESTI misskiln- ingurinn varðandi tón- list nú á dögum mun örugglega vera skil- greining margra á svokölluðu „und- ergroundi“ eða neðanjarðartónlist eins og margir kjósa að segja. Oftast er þetta orð notað yfír tónlist sem er lítið vinsæl hjá fjöldanum, oft aðeins seld í plötubúðum eins og Hljómalind og Þrumunni og er þá aðallega átt við danstónlist. Oftast hafa tónlistarstefn- ur verið neðanjarðar í nokkur ár áður en þær spretta upp á yfírborðið á stórmarkaðnum. Þetta þekkja aðilar eins og verslun- in Hljómalind sem undanfarin 6 ár hefur kynnt á íslenskum tónlistar- markaði hljómsveitir eins og Blur, Future Sound Of London, Smashing Pumpkins, Stereo MC’s, Primal Scr- eam, Soundgarden, Aphex Twin, Pulp, Underworld, Howie B og fleiri. Stórverslanir eins og Skífan versla beint við Hljómalind til að halda sér inni í því sem er ferskast í dag og l£k- legast myndu þær dragast langt aft- urúr ef þær gerðu það ekki, því Hljómalind, ásamt Þrumunni, hefur verið frumkvöðull í tónlist lengi vel. Markmið beggja búðanna er nefnilega að finna nýtt og ferskt efni sem ann- ars myndi aldrei komast hingað. Síðasta vetur reyndu ónefndir ís- lenskir tónlistarmenn að búa til Drum’n Bass lög fyrir breiðskífur sín- ar, aðeins vegna þess að sú tónlistar- stefna var byrjuð að verða vinsæl. Það sem þessir einstaklingar vissu ekki var að þeir voru að reyna að kópera stíl sem hafði verið í um 10 ár að þró- ast. íslensk neðanjarðartónlist hefur meira að segja fylgst með þessari þró- un dável, þá með hjálp plötubúðarinn- ar Undirganganna sem Aggi Agzilla og Leon áttu árin 93-94. Reyndar átti Agzilla stóran þátt í að gera Drum’n Bass vinsælt er hann var með plötu- búðina Elf 19 árin 96-97 ásamt því að á sama tíma byrjaði Skýjum ofar, einn af aðeins þremur sérþáttum sem hafa verið um Drum’n Bass og undanfar- andi tónlistarstefnur. Ömurlegast í þessu öllu er það að það sést svo greinilega að áðumefndir tónlistar- menn eru að herma eftir í stað þess að gera það sem kemur frá þeim sjálfum, en neðanjarðarmenning, „und- erground“, snýst um það að gera það sem þú vilt án hugsunarinnar um á hveiju megi græða. Eflaust spyrja margir hvað sé að því að græða, en spumingin er frekar um hvort þú græðir á því sem þú vilt gera. Peningar eru nefnilega ekki þungamiðja alheimsins heldur er það að vera trúr sjálfum sér og gera það sem maður víll. Til er fólk sem er hamingjusamt og fátækt og líka ríkt og líður ömurlega. Það er bara stað- reynd að fólk vill alltaf það sem það á ekki og þess vegna vilja flestir meiri pening. „Underground er frelsi,“ segir Anis Ómar Arnarson eigandi Þmmunnar. „Underground er það sem fær að þró- ast í sínu eigin umhverfi án spillingar peninga," segir ísar Logi Amarson hjá Undirtónum. „Underground er það sem minnihlutinn filar í dag en meirihlutinn á morgun," segir Krist- inn Sæmundsson, Kiddi, eigandi Hljómalindar. Það er reyndar kaldhæðnislega rétt hjá Kidda því að þegar vondu strák- arnir hlustuðu á Rolling Stones hlust- uðu pabbamir á Bítlana en í dag hlusta pabbamir á Rolling Stones en yngra fólkið á Wu-Tang. Og ein af staðreyndunum sem hefur einnig ver- ið í gegnum tíðina er sú að það sem yngra fólkið hlustar á er alltaf for- dæmt af eldra fólki og yngra fólkið rífst á móti, síðan eftir 15 ár þá er sama fólkið sem var að verjast for- dæmingu farið að dæma sjálft. Þetta sýnir bara hvað þjóðfélagið reynir alltaf að verjast nýjungum og halda stöðugleika í lífinu og þá er það reynd- ar mest áberandi í tónlistinni. Reyndar er einnig rétt það sem An- is og ísar Logi segja; að „und- erground" sé frelsi, en þó í þeirri merkingu að þú sért að gera tónlist sem kemur frá þér án spillingar pen- inga. Peningar em oft mikið atriði í skrefinu sem tónlistarmenn taka við að fara frá minni markaðinum yfir á stærri markaðinn með hjálp stórra plötufyrirtækja því munurinn á minni markaðnum eða neðanjarðarmarkaðn- um og stórmarkaðinum er sá að þegar þú ætlar að gefa út lag í neðanjarðar plötufyrirtæki hlusta þeir á það og borga aðeins fyrir góð lög en gera enga samninga því það er aldrei að vita nema þú hættir að gera góða tónlist. Ef þú ferð aftur á móti til stórfyrir- tækja, sem vita oftast ekkert um góða tónlist, þá færðu greitt fyrirfram fyrir lög sem þú átt eftir að gera og þá er verið að tala um virkilega stórar fúlg- ur. Með þessu er áhættan að þú verðir kærulaus og gerir bara eitthvað til að láta fyrirtækið fá miklu meira því þú þarft ekki lengur að leggja neitt á þig til að fá borgað. Á þennan hátt hafa stórfyrirtæki oft spillt tónlistarmönnum og eyðilagt orðspor tónlistarstefna. Þó eru margir sem ráða við þetta eins og t.d. Prodigy og Chemical Brothers. Báðar þessar hljómsveitir hafa skrifað undir stór- samninga fyrir fjöllin af peningum en eru samt að gera sinn eigin stíl og setja það fram á sinn hátt og þó að einstaka meðlimir líkt og Keith í Prodigy fái mikilmennskubijálæði þá er Liam, sá er gerir öll lög hljómsveit- arinnar, sallarólegur og heldur sínu striki. Hann horfir aðeins á þetta sem tækifæri til að vinna með fleira fólki sem hann langar að vinna með. U2 gæti nokkumveginn verið flokk- uð undir neðanjarðarsveit því þeir hafa ætið verið að gera það sem þeir vijja gera. Aðrir stórtónlistarmenn ráða fæstir við þetta og reyna hvað sem þeir geta til að halda sér ferskum UR ÞRUMUNNI. Morgunblaðið/Golli ÍSAR Logi Arnarson og Snorri Jónsson, útgefendur Undirtóna. þótt þeir sitji ætíð eftir með sárt ennið eftir misheppnaða eftirhermu líkt og David Bowie gerði nú fyrir skömmu með lagi sínu Little Wonder. Þar „samplaði“ hann taktalykkju úr Drum’n Bass lagi sem heitír Renega- de Snares (foul play remix) en það lag varð einmitt eitt vinsælasta Hardcore- Drum’n Bass lagið á neðanjarð- armarkaðnum árið 1994. Með þessu undirstrikaði hann það hve örvænt- ingarfullir sumir popptónlistarmenn eru orðnir við að reyna að halda sér inni í nútímanum. Plötusnúðamir Plötusnúðar nútímans eru eiginlega eins og bflskúrsböndin áður fyrr. í stað þess að reyna að redda sér gítar, trommu eða hljómborði, eru margir að reyna að fá sér tvo plötuspilara, mix- er, bunka af plötum og reyna að mixa þær og skanka þeim til. Til að passa upp á misskilning vil ég útskýra hver munurinn er á diskótekara og plötu- snúði. Diskótekari skiptir um lög en plötusnúður mixar öll lögin saman svo þau mynda eina heild. Plötusnúða- menningin hér á landi hefur verið að byggjast upp jafnt og þétt í um 10 ár og er nú orðin ótrúlega öflug. Kjam- ann skipa menn eins og Margeir, Am- ar, Frímann, Grétar, Ámi E, Kári, Maggi Legó, Þórhallur og fleiri góðir en uppkomandi kynslóðin, sem er Geiri, Frikki, Reynir, Matti, Nökkvi jr, Bjarki og fleiri, á vel eftir að ráða við markaðinn í framtíðinni. Mikið er um ungt fólk sem er að fikta við plötu- snúðastörf í félagsmiðstöðvum og skólum og plötusnúðakeppnin sem haldin er árlega af öllum félagsmið- stöðvunum sýnir vel gróskuna á þess- um markaði. íslensk danstónlistar- neðaiyarðarmenning Undanfarin 10 ár hafa ýmsir tón- listarmenn þróað íslenska danstónlist- ar-neðanjarðarmenningu. Mikilvægur í þeirri þróun er Þórhallur Skúlason. Hann var einn fyrsti íslendingurinn tíl að gefa út dansplötu hér á landi, endurgerð lags eftir Bubba Morteins árið 1989. Nokkmm árum seinna stofnaði hann hijómsveitína Ajax með Bjössa vini sínum. Þeir gáfu út tólftommuna Ruffige sem varð vinsæl bæði hér á landi og í Bretlandi og seldist reyndar upp. Þó að hún hafi aðeins verið gefin út 1 2.500 eintökum þótti gott að geta selt svo mikið. Ekki má gleyma því að þetta var fyrsta platan sem Goldie kom nálægt því hann gerði einmitt nokkur tal- sömpl fyrir plötuna. í dag, nokkrum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.