Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 21
I MORGUNBLAÐIÐ , Annar tveggja stofn- , enda Sony látinn Tdkýó. Reuters. MASARU IBUKA, hinn nafntogaði stofn- andi Sony Corp, sem mótaði þróun segul- bandstækja, ferðaút- varps og Trinitron sjónvarpstækja, lést | nýlega. Ibuka var annar j tveggja stofnenda Sony og hann var aðalráð- gjafí fyrirtækisins þeg- ar hann lézt af hjarta- bilun, 89 ára að aldri. „Ibuka sáði fræjum þeirrar einlægu sann- færingar að vamingur okkar verði að færa fólki gleði og ánægju,“ sagði forstjóri Sony, Nobuyuki Idei, í tilkynningu. „Sony hefði ekki jafnhæfum stjórnendum á að skipa og nú, ef fyrirtækið hefði ekki notið góðs af lífsspeki hans,“ sagði Idei. Ibuka stofnaði Tokyo Telecomm- unications Engineering Corp, sem síðar var nefnt Sony Corp, 1946, ásamt Akio Morita, sem er heiðurs- formaður stjórnar Sony. Þróun segulbandsins Sérþekking Ibuka, sem hann hafði aflað sér þegar hann starfaði á ljósefnafræðistofu, leiddi til þróun- ar segulbandsins hjá Sony í 1949. Ari síðar þróaði fyrir- tækið og markaðssetti fyrsta segulbandstækið í Japan. Ibuka, sem var upp- haflega ákafur útvarps- áhugamaður, stjórnaði þróun fleiri nýjunga hjá Sony. Þar var framleitt fyrsta transistortækið í Japan 1955 og fyrsta transistorsjónvarp heims 1960. Árið 1967 stjómaði Ibuka rannsóknar- og þróunarstarfi, sem leiddi til smíði Trinitron litsjónvarpskerfísins. Stofnandi Honda, Soichiro Honda, og stofnandi Matsushita Electric Industrial Co, Konosuke Matsushita, og Ibuka Sony-forstjóri urðu frægir í Japan fyrir að breyta litlum fjölskyldufyrirtækjum í al- þjóðleg risafyrirtæki í fremstu röð. Fyrirtæki þeirra urðu helzta táknið um efnahagsbata Japana á hinum dimmu árum eftir stríð. Ibuka hafði mildnn áhuga á barnafræðslu og stjórnaði ýmsum samtökum, sem unnu að því að efla menntun í raungreinum í barna- og framhaldsskólum. Gabelli með aukinn hlut í Viacom New York. Reuters. MARIO GABELLI, hinn kunni fjár- festir, vii-ðist telja að verð hlutabréfa í Viacom fjölmiðlarisanum fari hækkandi. Fyrir jól tilkynnti fjárfestingar- sjóður Gabellis eftirlitsnefndinni á bandaríska verðbréfamarkaðnum, SEC, að hann ætti 6,7 milljónir hlutabréfa Viacoms, eða 9,7%, af 69,5 milljónum útistandandi hlutabréfa fjölmiðlarisans. Samkvæmt gögnum SEC hófu fjárfestingarsjóðir Gabellis kaup á hlutabréfum í Viacom fyrir 31,65 dollara á bréf 12. nóvember og héldu áfram að kaupa þegar verðið hækk- aði í 37,67 dollara 22. desember. Lokaverð bréfa í Viacom hækkaði um 37,5 sent 26. desember í 38,75 dollara eftir 44 senta hækkun 24. desember. Gabelli, sem hefur bækistöð í Rye, New Yorkríki, er talinn einn áhrifa- mesti fjárfestir Wall Street í fjöl- miðla- og skemmtiiðnaðarfyrirtækj- um. Hlutur hans í Viacom getur dregið aðra stofnanafjárfesta að fyr- irtækinu. Orðstír hefur aukizt Orðstír Viacoms hefur aukizt í Wall Street vegna kynningar fyrir- tækisins á árlegri PaineWebber fjölmiðlaráðstefnu fyrir skömmu. Tom Dooley, annar æðsti maður Viacom, sagði fjárfestum að Viacom kynni að selja útgáfustarfsemi sína. í Wall Street er einnig vonað að Vi- acom selji bágstadda myndbands- deild, Blockbuster Video, á árinu 1998. Áhugi á Viacom hefur einnig aukizt vegna metaðsóknar að Titanic í Norð- ur-Ameríku. Fyrstu tíu dagana sem hún var sýnd nam andvirði seldra að- göngumiða 88,6 milljónum dollara. j Vilja ekki einokun á íþróttaefni í Þýzkalandi Bonn. Reuters. LEIÐTOGAR hinna 16 fylkja Þýzka- lands hafa komið sér saman um lista með vinsælum íþróttaatburðum, eins og heimsmeistarakeppninni í knatt- spymu og Ólymíuleikunum, sem banna skuli að greiðslusjónvarps- stöðvar fái einkarétt á að sýna frá. Forsætisráðherrar fylkjanna sögðu eftir fund í Bonn að þeir mundu leggja fram frumvörp, sem koma mundu í veg fyrir að sjón- varpshorfendur yrðu að borga fyrir að horfa á útsendingar frá vinsælum íþróttaviðburðum. „Ég held að allir knattspymu- áhugamenn verði hrifnir af þessu,“ sagði Heide Simonis, forsætisráð- herra sósíaldemókrata (SPD)í Slés- vík:Holstein. Ákvörðunin er einn eitt áfall fyrir nýtilkomið stafrænt greiðslusjón- varpskerfí Þýzkalands. Á sama tíma segir Evrópusambandið að það muni líklega rannsaka stafrænt sjónvarpsbandalag fjölmiðlajöfurs- ins Leos Kirchs, fjölmiðlafyrirtæk- isins Bertelsmanns og símafélagsins Deutsche Telekom. SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 B 21 Innritun er hafin! FRA TOPPITIL TAAR i Námskeið sem hefur veitt ótalmörgum konum frábæran árangur. Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum, sem beijast við aukakílóin. Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar í viku, sjö vikur í senn. Góður matarkúr sem fyigt er eftir daglega með andlegum stuðningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um mataræði og hollar lífsvenjur. Heilsufundir þar sem farið er yfir förðun, klæðnað, hvernig á að bera líkamann og efla sjálfstraustið. FRA TOPPITIL TAAR n - framhald Námskeið fyrir þær sem vilja halda áfram í aðhaldi. Tímar 3x í viku Fundir lx í viku í 7 vikur. •r ■ f • Eitt blað fyrir alla! Hlorflinvblnbib - kjarni málsins! k Matvöruverslun Hagkaups Kringlunni opin í Aðrar matvöruverslanir Hagkaups eru lokaðar vegna vörutalningar. HAGKAUP NtfePo$fM$

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.