Morgunblaðið - 04.01.1998, Page 23

Morgunblaðið - 04.01.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 B 23 Því má halda fram með gildum rökum að Quake sé helsti leikur áratugarins, ef ekki fyrir leikinn sjálfan heldur fyrir allt það sem fylgt hefur í kjölfaríð. Margur beið því spenntur eftir Quake II og hann brást ekki vonum. Sérstaklega er hann skemmtilegri fyrir einstak- lingsleik og grafíkin er hreint ótrú- leg í 3Dfx-skjákorti. Curse of Monkey Island Þriðji skammtur af ævintýrum Guybush Threepwoods kom út eftir áralangt hlé og var hreint út sagt frábær. Grafíkin var lifandi og skemmtileg, hljóðrásin góð og þrautimar hæfilega erfiðar. Von- andi verður framhald á enda hefur leikurinn elst afskaplega vel. Stafakarlannir Þar kom að íslendingar gerðu fyrirmyndarleik. Öll börn hrífast af Stafakörlunum og fullorðnir hafa flestir ekki síður gaman af að renna sér í gegnum leikinn og skerpa á lestrarkunnáttunni í leiðinni. Hnökrar á frágangi og umbúðum draga ekki úr ánægjunni. Dungeon Keeper Það þurfti breska hönnuði til að smíða annan eins leik og Dungeon Keeper sem er líkast til frumlegasti leikur ársins. Hann gengur út á að stýra dýflyssu harðri hendi, refsa og pína með vænum skammti af biksvartri kímni. Diablo Á yfírborðinu er Diablo ekki ýkja flókinn leikur; viðkomandi brýtur sér leið í gegnum hvem hellinn af öðrum allt niður til heljar og drepur allt og alla sem á vegi hans verða. Þegai- í leikinn var komið varð þó ekki auðveldlega staðið upp frá tölv- unni aftur fyrr en sjálfur djöfsi lá í valnum. Age of Empires Microsoft-mönnum em mislagðar hendur í leikjasmíðinni en þegar þeir settu saman Age of Empires gerðu þeir allt rétt. Sá sem leikur tekur við frumstæðum þjóðflokki og er ætlað að miða honum á hærra menningarstig. Fleiri en ein leið er að markinu, ýmist má berjast til sigurs eða einfaldlega kaupa sig áfram. Sala og útgáfa á tölvuleikjum jókst gríðar- lega á síðasta ári. Árni Matthíasson spáði í helstu leikina fyrir PC-tölvur og Ingvi M. - — - ■ — - Arnason fyrir leikjatölvur. Quake II Crash Dandicoot 2 Jedi Knight LucasArts-liðar sendu frá sér tvo framúrskarandi leiki á árinu. Áður er getið Bölvunar Apaeyjunnar, en einnig sendi fyi-irtækið frá sér Star Wars-leiki og einn þeirra, framhald Dark Forces, og kallaðist Jedi Knight, var framúrskarandi. Leik- urinn minnir um margt á hefð- bundna skotleiki er sagan á bak við hann ljær honum dýpt og margfald- ar notagildið. Hercules Leikurinn um þrautir Heraklesar frá Disney risanum er sá besti sem þaðan hefur komið. Leikurinn byggir á samnefndri kvikmynd en ekki þarf að sjá hana til að geta skemmt sér við að glíma við kentára, mínótára og kýklópa. Interstate 76 Á pappímum virðist Interstate 76 ekkert ýkja merkilegur; ekið er um á þungvopnuðum bílum og allt kvikt skotið. Við nánari skioðun kemur aftir á móti í ljós að ekið er um á glæsikerrum frá 1976, allir er sér- deilis flottir í tauinu og músíkin er frábær fónktónlist. Blade Runner Blade Runner byggði á merki- legri bók og eftirminnilegri kvik- mynd. Væntingarnar voru því mikl- ar en leikurinn er eins vel heppnað- ur og raun ber vitni fyrir það að hann fór nýstárlega leið að markinu. Ándrúmsloftið var drungalegt og spennan mikil. Tomb Raider 2 er framhald af geysivinsælum og frábærum leik. Framhaldið gefur forveranum ekk- ert eftir og ræður þar mestu af- bragðs grafík, góður söguþráður, bætt vopnabúr og stanslaus spenna. Einnig verður maður og stoppa og hugsa. Eini gallinn er stjórnunin sem skemmir mikið fyrir; oft er maður að skjóta án þess að sjá fram fyrir sig og hlaupa áfram horfandi til hliðar. Coolboapdens 2 Coolboarders 2 er framhald af leik sem var vinsæll á meðal aðdá- enda snjóbrettaíþróttarinnar en því miður ekki margra annarra. Fram- haldið býður upp á mjög bætta grafík, fleiri brautir og palla og það sem mörgum þótti sérstaklega vanta í fyrri leikinn: keppni tveggja leikmanna. Einnig eru fjölmargar nýjar hreyfíngar. Actua Golf 2 Afbragðs golfleikur fyrir áhuga- menn um íþróttina og líka þá sem hafa gaman af vel gerðum leikjum. Fjölmargar brautir eru í leiknum og hann er ánægjuleg tilbreyting frá fyrsta leiknum þar sem mikið vant- aði upp á í grafík og nákvæmni. Ace Combat 2 Ace Combat 1 var hvarvetna tal- inn með bestu flugleikjum og var fyrir stuttu gefíð út framhald. Hann er endurbættur að öllu leyti og er þar á meðal bætt það helsta sem var að fyrri leiknum, þ.e. hversu erfitt var að stjórna honum, en nú er hægt að velja um 2 tegundir stjórn- unar. Resident Evil Resident Evil er án vafa besti Sega Saturn leikur ársins. Ekki er nóg að ganga um og drepa eins og til að mynda í leikjum eins og Du- ke3D og Quake, heldur verðurðu einnig að hugsa til að komast áfram. Inn í þetta blandast svo nær stans- laus óhugnaður sem er setur þenn- an leik í hóp mest spennandi leikja sem greinarhöfundur hefur prófað. Söguþráðurinn er reyndar ekki merkilegur en bætir það 100% upp í óhugnaði og spennu. Enemy Zepo Enemy Zero gerist í geimnum einhvertímann í framtíðinni og er samblanda af svokölluðum þrauta- leikjum (eins og Myst) og skotleikj- um eins og doom. Líklega hefði hann komist í efsta sætið ef ekki væri fyrir leiðinlegar ráðgátu senur sem koma inn í hann við hvert tæki- færi. Hann bætir það þó nær alveg upp með spennu og flottri grafík. Quake Leikurinn sem var valinn besti skotleikur seinasta árs er nú kom- inn á Sega Saturn og gefur hann PC-útgáfunni ekkert eftir nema kannski í grafík. Quake er leikur þar sem h'tið þarf að hugsa, bara þá óteljandi óhugnaði sem vilja drepa þann semn leikur. Galli á leiknum er sérkennilegt fyrirkomulag á hvernig leikurinn er vistaður en ekki virðist vera hægt að vista á minniskorti. Wípeout Undarlegt er að Wipeout skuli ekki hafa verið gefínn út fyrr á Sega því langt er síðan hann var gefinn út fyrir PlayStation. Wipeout er kappakstursleikur þar sem keppt er á nokkurs konar svifbílum. Grafíkin er með því besta sem sést hefur á Sega Satum, en þó er hann ekki eins skemmtilegur á Satum og á Pla- yStation. Wipeout er frábær leikur engu að síður og með flottustu tón- list sem heyrst hefur í leikjatölvu. Duke Nukem 3D Duke Nukem 3D var líkt og Qu- ake uppranalega gefinn út fyrir PC. Flutningurinn á milli hefur ekki tekist jafn vel, ekki virðist vera hægt að fljúga upp né niður með eldflaugum Duke og sama vanda- mál er með að vista leikinn á minniskort. Engu að síður er leikur- inn frábær og grafíkin hefur jafnvel batnað við flutninginn. Bandicoot olli miklu fjaðrafoki þegar hann kom út fyrir rúmu ári og nú er komið framhald sem inniheldur meiri spennu, hrað- ari brautir og mun betri grafík. Leikurinn hefur þó ekki breyst of mikið þannig að þeir sem höfðu gaman af fyrri leiknum geta verið vissir um að hafa gaman af þessum; þrívíddar pallaleikur sem á sér í raun fáa líka. Tomb Raider 2 % * «4-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.