Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 24
24 B SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ TANNLÆKNISFRÆÐI/ Hvað veldur skerandi sársauka í tönn eða tönnum vegna áreitis frá einhverju köldu eða sætu? Hvers vegna verða tannhálsar viðkvœmir? Á MYNDINNI má sjá hvernig tannhold hefur hopað frá tannkrónum mið- og hliðarframtannar öðrum megin í efra gómi vegna rangrar að- ferðar við tannburstun. MATARLIST/ Erum við á lífi? Aramótaheit hverja stund GLEÐILEGT ár 1998 kæru lesendur. Vonandi hafa sem flestir haft það náðugt yfir hátíðamar, hitt fjölskyldu og vini yfir góðum mat og upp- byggilegu spjalli. Visareikningurinn vona ég að komi fólki síðan ekki í opna skjöldu í febrúar með svimandi háum tölum sínum á stundum. Ef það gerist hugsið þá og látið hughreystast af hinu fornkveðna íslenska bjartsýnisslagorði „þetta reddast". VIÐKVÆMNI getur komið fram í tönnum þegar tannhold hörfar ffá tannkrónunni og tannrótin berast. Þetta lýsir sér gjaman sem sker- andi sársauki í tönn eða tönnum vegna áreitis frá einhverju köldu ■> eða sætu svo sem köldu vatni, mat eða lofti. Allur sársauki sem finnst í tönnum er vegna áreitis af ein- hverju tagi á tannkvikuna. GLERUNGURINN sem er um 96% steinefni og 4% lífrænt efni veitir tönninni mikla vemd fyrir utanaðkomandi áreiti. Tann- krónan er þakin glemngi og við eðlilegt ástand þekur tannholdið tannhálsinn að glemngsmörkun- um. Tannrótin er hins vegar þakin örþunnu lagi af svokölluðum steinungi en undir honum og glemngnum er sjálft tannbeinið. Tannbeinið er um það bil 70% steinefni og 30% lífrænt efni og því ekki eins hart og glemngur. Tann- beinið er þannig uppbyggt að það er alsett örfínum vökvafylltum píp- um sem liggja frá yfirborðinu og inn í kviku tannarinnar. Ef tann- hold hörfar frá glemngsmörkunum berast tannhálsinn (rótin) og vegna þess hve steinungurinn sem þekur * rótina er þunnur eyðist hann að jafnaði fljótt svo eftir stendur nak- ið tannbeinið. Talið er að við þær aðstæður að tannháls sé ber geti utanaðkomandi áreiti svo sem kuldi, hiti, snerting og sætindi valdið því að hreyfing komi á vökvann inni í tannbeinspípunum. Þessi hreyfing vökvans hefur áhrif á taugaenda inni í sjálfri tannkvik- unni þannig að verkur finnst í tönninni. Margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að tannhold hörfi og tann- hálsar berist. Tannholdsbólgur og meðferð við þeim geta valdið þessu. Einnig er þeim sem hafa . f þunnt kjálkabein og þunnt tann- hold að jafnaði hættara en öðmm. Algeng orsök er talin vera of kröft- ug og röng tannburstun, einkum þar sem notaður er stífur tann- bursti. Fari það síðan saman með notkun grófkorna tannkrems getur það valdið hraðri eyðingu tann- beinsins við tannhálsinn. Berir tannhálsar em algengt fyrirbrigði en leiða alls ekki alltaf til þess að tennur verði viðkvæmar. Talið er að u.þ.b. 15% fullorðinna hafi einkenni frá tannhálsum og virðist tíðnin aukast að 40 ára aldri en lækka úr því. Þess ber að geta að ýmsar aðrar ástæður geta verið íyrir einkennum svipuðum og frá bemm 'tannhálsum og má þar nefna tannskemmdir, ofálag í biti, djúpar fyllingar og mikið slit á tönnum. Mikilvægt er því að tann- læknir greini og meðhöndli orsök einkenna sem fyrst því í sumum til- vikum kann erting á tannkviku að lokum að verða svo mikil að bólga og/eða sýking myndist í henni og leiði til dreps. Þeim breytingum fylgir að jafnaði sá mikli verkur sem þeir upplifa sem fá slæma tannpínu. I einstaka tilvikum er með skurðaðgerð hægt að færa til tann- hold og þekja þannig aftur tann- háls sem hefiir berast vegna rým- unar tannholdsins. Róttækasta meðferðin við viðkvæmum tann- hálsum er sú að fjarlægja kviku tannarinnar og rótfylla tönnina en það er örþrifaráð sem ekki er beitt fyrr en ljóst er að óafturkræfar sjúklegar breytingar hafi átt sér stað í tannkvikunni. I langflestum tilvikum miðar meðferðin að því að reyna að loka pípunum í tannbein- inu með ýmiskonar efnum sem ætl- að er að kristallast á rótaryfirborð- inu og setjast inn í pípumar. Þess- um efnum eins og t.d. strontíum- klóríði og kalíumnitrati hefur verið bætt í tannkrem sem sérstaklega er ætlað að vinna gegn einkennum frá bemm tannhálsum. Flest tann- krem innihalda auk þess flúor sem talinn er geta hert yfirborð tanna. I erfiðum tilfellum grípa tannlækn- ar stundum til þess ráðs að þekja tannhálsinn með plasthúð eða plastfyllingum. Tannkvikan getur reyndar varið sig sjálf að nokkra leyti með því að mynda óreglulegt tannbein inni í kvikunni og lokað pípunum þeim megin frá. Þetta er líklega skýringin á því að tíðni ein- kenna fer lækkandi eftir 40 ára aldur. Munnvatnið er mettað af stein- efnum þegar það kemur út úr munnvatnskirtlunum og þessi steinefni herða beran tannhálsinn þegar frá líður ef tönninni er haldið hreinni. Sitji hins vegar óhreinindi utan á henni getur það valdið súru umhverfi á yfirborðinu sem aftur leiðir til þess að steinefni losna af yfirborðinu og tönnin verður enn viðkvæmari. Gullna reglan er því sú að halda tönnunum hreinum án þess að skaða þær eða tannhold, nota frek- ar mjúkan tannbursta en harðan, leita ráða hjá tannlækni um tann- burstaaðferð, forðast mjög súran mat og súra drykki og stuðla þannig að jákvæðum steinefnabú- skap á yfirborði tannanna. MARGIR hafa vafalaust strengt einhver áramótaheit á borð við: Eg ætla að vera meira heima með fjölskyldunni - Eg ætla hætta að stríða Didda feita og Guggu glerauga - Ég ætla að hætta að halda framhjá - Ekki meira kólesteról - Engar fleiri af- sakanir - Ég ætla að rækta sjálfan mig meira o.s.frv. En af hverju ætla flestir að verða svona góðir í byrjun nýs árs? Astæðan er sú að við tengjum byrj- un nýs árs við nýtt upphaf, nýja fæðingu, nýtt tækifæri, ár fullt af fyrirheitum. Það er eins og menn hugsi að þetta sé gott tækifæri til að kasta synd- um sínum bakvið sig, skilja þær eftir í 1997 stjömuhvolfinu og ganga ferskur og syndlaus til móts við nýja tíma. Þetta er mjög skilj- anleg hefð og allt gott og blessað um hana að segja í sjálfu sér. Okkur hættir hins vegar til að gleyma í hinu daglega lífi og þegar líða tekur á árið og hin fögra fyrir- heit fara að skolast til i amstri hversdagsins, að hver dagur er nýtt upphaf, hver klukkustund, hver mínúta, að við deyjum mörg- um sinnum á mínútu þegar við öndum frá okkur í vöku jafnt sem svefni, og þegar við öndum inn drögum við lífið að okkur á ný að sama skapi. Þannig getum við hugsað hvem andardrátt eins og áramót þar við getum orðið betri manneskjur með hverjum andar- drætti, en þurfum ekki að bíða eftir að næsta ár hefjist til þess að við getum bætt ráð okkar. Flestir era ætíð að leita með- eða ómeðvitað að hamingjunni, oft ef til vill á vitlaus- um stöðum, til dæmis í búðum sem er afar skrýtinn staður fyrir ham- ingjuleit. Fólk leitar og leitar, það vill finna hamingjuna áður en það verður gamalt, a.m.k. áður en það deyr, eignast fínt hús, bíl, fara margar utanlandsferðir helst, gefa dýrar jólagjafir sem sýna hve ást þeirra til viðkomandi er djúp og sterk. En veltið því nú fyrir ykkur, það eina sem við vitum öll fyrir víst í þessu lífi er að við fæðumst og við deyjum, en hvenær veit enginn, samt era flestir hræddir við dauð- ann þó svo hann sé það eina sem við göngum að sem vísu í lífinu og best sé að sætta sig við sem fyrst. Þegar dauðinn svo knýr dyra, hvað gagnar þá að vera ríkur uppfyrir haus af veraldlegum auðæfum, það getur einungis leitt til angistar í augliti við hið óumflýjanlega. En þessi hræðsla margra við dauðann er einnig hræðslan við lífið því þetta tvennt er svo samtengt. Það sem er óumflýjanlegt er best að sætta sig við strax, helst um leið og maður veit hvað dauðinn er, því þá öðlast maður svo mildð frelsi og gleði til að njóta lífsins, sem hins vegar er ekki óumflýjanlegt en sumir flýja í sífellu á mismunandi hátt. Fólk sem syrgir eða sem lendir í miklum heilsubresti eða fjár- hagskröggum, endurmetur oft lífið og fær raunveralegt gildi þess gjarnan beint í æð, eftir að hafa misst t.d. móður, maka, barn osfrv. Allt verður hjóm eitt við hliðina á slíkri reynslu, maður verður svo þakklátur fyrir að hafa elskað svo mildð, því annars myndi maður náttúrlega ekki syrgja, maður þakkar margfalt fyrir alla sem maður á að og sjálfan sig og að geta sinnt sínu osfrv. Maður vill bara hafa það sem maður „þarf ‘ í kringum sig, annað verður svo lít- ilmótlegt. ennþá lítilmótlegra en það var fyrir. En það ætti ekki að þurfa stóráfóll til að menn íhuguðu líf sitt og gildismat, lífið er núna, og það er núna sem strengja þarf áramótaheitin og það er núna sem þarf að framkvæma þau og um aldir alda. Hættum að liggja í dvala því lífið er ekki bara um helgar, á jólum , páskum og um áramót. Það er, en það er ekki ár- legt uppgjör í tilfinninga- og fjár- málum þó svo að alltaf sé gott að taka reglulega púlsinn á sínum málum. Veram því með á okkar eigin nótum alla daga. Nú vík ég mínu kvæði í kross frá efti Sigurjón 4 Arnlougsson efh'r Álfheiði Hönnu Friðriksdóttur TÆKNI/ Er hægt að draga úr gróðurhúsahrifum ? Getum við dœlt söku- dólgnum niður íjörðina? SVARIÐ er einfaldlega: Já. Það er nú þegar farið að gera það. Vita- skuld er hér átt við aðalsökudólg- inn hvað gróðurhúsahrifin varðar, þ.e. koltvíildið, C02. Norska risaol- íufélagið Statoil hefur þegar frá haustinu 1996 dælt koltvíildi sem varð til við gasbrennslu niður í jörðina á ný. Magnið sem um ræð- ir er svo mikið að það hefur vera- leg áhrif á heildarbókhaldið þegar gera á upp stöðu Noregs gagnvart alþjóðaskuldbindingum kenndum við Ríó og Kyoto. Miklar vanga- veltur hafa verið um hvort ekki mætti losna við koltvíildi í stórum stíl, t.d. með því að fleygja því í sjóinn í háþrýstigeymum, en dýrt er að koma því við, nema því að- eins að umbúðirnar standist ekki tæringu sjávarins í nokkur þúsund ár. Slíkt verður að teljast ónóg. Við myndum ekki hugsa fallega til „framstæðra" forvera okkar sem hefðu eyðilagt umhverfi vort með heimskulegum aðgerðum sínum fyrir 5000 áram. Þannig eiga af- komendur okkar kannski eftir að hugsa til okkar. AÐ ER einmitt sá hluti koltví- ildisframleiðsiunnar sem fellur til við olíuvinnslu sem sérlega að- velt er að losna við. Einmitt á olíu- vinnslusvæðun- um era geymam- ir, þeir era þeir sömu og oh'an er unnin úr. Það þarf gleyp jarð- lög kalksteins eða sandsteins til að geyma koltvíildið, en þar yfir þétt- ari jarðlög til að loka það inni. Þetta era einmitt þau sömu skil- yrði og olía geymist við. Jafnframt eykur dæling loftsins þrýstinginn í berglögunum, sem aftur gæti orðið til að meiri oha yrði vinnanleg úr þeim. Sem stendur fer þessi starf- Gasið frá Sleipnissvæðinu inniheldur 9% koltvíildi. Þrír fjdrðu af því eru skildir frá með dýrum skiljuútbúnaði og þeim dælt aftur kflómetra niður fyrir hafsbotn. semi fram á Sleipnissvæðinu vest- an Alasunds, en í heild era tök á að koma fyrir óskaplega miklu magni koltvíildis, bæði í norska berggranninum og undir öðram hlutum Norðursjávarins. Framtíðarhugsjónin er vitaskuld sú að því koltvíildi sem fellur til frá iðnaði, bflakstri og húsahitun verði komið fyrir á sama veg. Orsökin til

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.