Morgunblaðið - 04.01.1998, Page 28
28 B SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ný stjórn
Tékklands
NÝR forsætisráðherra Tékklands,
Josef Tosovsky, sór embættiseið á
. Jostudag. Sagði Tosovsky að stjóm
nann myndi einbeita sér að því að
setja aukinn kraft í efnahagslegar
umbætur og einkavæðingu og berj-
ast gegn glæpum og spillingu.
Tosovsky er fyrrum seðlabanka-
stjóri og tekur stjóm hans við af
stjóm Vaclavs Klaus, sem varð að
fara frá í kjölfar hneykslismáls er
tengdist fjármögnun flokkstarfs
eins stjómarflokksins.
Tosovsky sagði að stjóm hans
yrði engin „bráðabirgðastjóm" og
að ítarleg stefnuskrá yrði kynnt
innan 30 daga. Hann sagðist hafa í
"•hyggju að halda áfram aðildarvið-
ræðum við Evrópusambandið auk
mikillar áherslu á efnahagsmál.
Reuters.
Á myndinni má sjá Tosovsky (annar frá vinstri) og samráðherra hans við athöfn í
forsetahöllinni ásamt Vaclav Havel forseta á föstudag.
Heilsuræklm
TOSCA
ER EKKI AÐEINS ÓPERAN FRÆGA, HELDUR
NÝ HEILSURÆKTARSTÖÐ í HAFNARFIRÐI
VIÐ OPNUM MÁNUDAGINN 5. JANÚAR KL. 10:00, |
VELKOMIN I ÓKEYPIS LEIKFIMI OG LJÓS DAGANA 6. 7. OG 8. JANÚAR.
OPIÐ FRÁ KL. 9TIL19.
Stundataflan liggur frammi alla þessa daga.
VIÐ BJÓÐUM UPP Á:
► SPINNING
► LEIKFIMI
► TÆKJASAL
► LJÓSABEKKI
► GUFUBAÐ
► NUDD
► HÖFUÐBEINA-
OG SPJALDHRYGGSJÖFNUN
► SVÆÐANUDD
► JÓGA
► ÞOLMÆLINGAR
► RÁÐGJÖF
► EINKAÞJÁLFUN
► BARNAGÆSLU
Frá og meö mánudeginum 12. janúar
spilum viö svo Toscu í botn
og hefjum heföbundna
heilsuræktardagskrá viö allra hæfi.
BÆJARHRAUNI 4, 220 HAFNARFIRÐI,
SÍMI 555 3637, FAX 565 3638.
Netfang: www.tosca.is
II''»
CBS fær
rétt á nýrri
Bond-mynd
Hollywood. Reuters.
CBS hefur samþykkt að greiða
MGM að minnsta kosti 20 milljónir
dollara fyrir einkarétt til að sjón-
varpa 18. James Bond kvikmynd-
inni, Tomorrow Never Dies.
Hærra verð hefur ekki verið
greitt fyrir sjónvarpsrétt á Bond
mynd og MGM fær verulegar auka-
greiðslur, ef andvirði seldra að-
göngumiða fer . yfir 100 milljónir
dollara.
Miðasölutekjur af síðustu Bond
myndinni, Goldeneye, 1995 námu
106 milljónum dollara í Bandaríkj-
unum og myndin var seld NBC fyr-
ir um 12 milljónir dollara.
Samkeppni um sjónvarpsrétt á
kvikmyndum hefur harðnað á und-
anfomum tólf mánuðum. CBS
tryggði sér rétt til að sjónvarpa
Tomorrow Never Dies eftir 15
milljóna dollara tilboð frá USA
Network and TNT.
Tuttugu milljónir dollara voru
hæsta verð fyrir kvikmynd þegar
ABC keypti Mission: Impossible
1996. Siðan hefur Fox greitt 80
milljónir dollara fyrir The Lost
World: Jurassic Park og NBC
greiddi rúmlega 50 milljónir dollara
fyrir Men in Black.
Metaðsókn að nýju myndinni
Metaðsókn var að nýju Bond-
myndinni, Tomorrow Never Dies,
þegar sýningar á henni hófust í
Bretlandi og nam andvirði seldra
aðgöngumiða 6,1 milljón dollara á
þremur dögum. Pað voru meiri
miðasölutekjur en af Goldeneye en
heldur minni en af Mission:
Impossible.
Tekjur af nýju Bond-myndinni í
Bretlandi voru meiri fyrstu helgina
þegar hún var sýnd en af af níu öðr-
um söluhæstu myndunum í Bret-
landi sömu daga.
Friöarsam-
komulag
á Filipps-
eyjum
Manila. Reuters.
FILIPPSEYSKA stjómin og næst-
stærstu skæruliðasamtök landsins
hafa náð samkomulagi um að undir-
rita friðarsáttmála til bráðabirgða
fyrir 30. janúar næstkomandi. Jose
de Venecia, forseti filippseyska
þingsins greindi frá þessu á dögun-
um.
Sagði de Venecia að hann og A1
Haj Murad, einn leiðtoga íslömsku
frelsisfylkingarinnar á Mindanao-
eyju, væru við að ná bráðabirgða-
samkomulagi sem tryggja ætti frið
á eyjunni en það á að undirrita áður
en Fidel Ramos, forseti Filippseyja,
lætur af völdum undir lok janúar.
Þá á fullbúið friðarsamkomulag að
vera frágengið fyrir 30. júní.
Stjómvöld og íslamska frelsisfylk-
ingin sömdu um vopnahlé í júlí sl. og
hófu þá þegar að undirbúa friðarvið-
ræður, sem hófust fyrir þremur vik-
um. Fylkingin hefur staðið fyrir
árásum og ofbeldisaðgerðum á
Mindanao frá því á fyrrihluta átt-
unda áratugarins. Er talið að hún
hafi um 8.000 manns undir vopnum.