Morgunblaðið - 23.01.1998, Side 2
2 B FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
N etspjall
við íslenskunema í Texas
Móðurmálið okkar hefur heillað
Texasbúann lengi. „Það er eitthvað
svo framandi og því spennandi,"
segir hann. Ekki kveðst hann vera
mikill tungumálamaður, íslenskan
er eina málið sem hann virkilega
langar til að læra. Til að byrja með
fylgdist hann með spjalli íslending-
anna á rásunum en þá er alla jafna
að fínna á tveimur rásum, Ieeland
og Iceland 18 +. Eftir nokkurn tíma
taldi hann í sig kjark, gaf sig á tal
við nokkra og bað um hjálp við
tungumálanámið. „Flestir tóku mér
mjög vel og voru reiðubúnir að að-
stoða mig og þannig hefur þetta
tekist smám saman.“
Oft á tali í Hlunna-
voginum
Drjúgur tími fer í netspjall dag
hvern hjá þeim Maríu og Corley
Erfurd. „Við tilheyrum hópi hinna
allra hörðustu,“ segir María sem
situr dægrin löng, um þrjá til fjóra
tíma hvert kvöld, fyrir framan
tölvuskjáinn og talar við netvinina.
„Það telst nú bara nokkuð gott,
margir eru mikið verri en ég. Fyrst
eftir að ég keypti tölvuna og fór í
netáskrift, sat ég stundum sex tíma
hvern dag fyrir framan skjáinn."
Þar sem Corley Erfurd vinnur og
starfar við tölvur, hefur hann spjall-
rásirnar opnar alla daga og kíkir
inn reglulega.
Morgunblaðið/Júlíus
MARÍA Edwardsdóttir eyðir löngum stundum á spjallrásum Netsins.
Á myndinni er einnig Kolbrún dóttir hennar sem er tveggja ára.
Samdi íslenskt þýðingarforrit
Til þess að auðvelda sér námið
samdi Corley Erfurd íslenskt þýð-
ingarforrit sem hann geymir á
heimasíðu sinni. Forritið sem þýðir
íslensk orð yfír á ensku, telur nú um
fjögur þúsund orð og enn bætist í
safnið. „Þetta var nú bara til gam-
ans gert en fjöldi fólks hefur sýnt
forritinu áhuga svo nú sel ég að-
gang að því fyrir einn dollar sem er
um sjötíu íslenskar krónur,“ segir
Corley Erfurd. Heimasíða hans er
rituð bæði á ensku og íslensku en
þar er m.a einnig að finna tölvuleik
með íslenskum víkingum og ljóðum.
Netfangið er http://web 2. air-
mail.net/corley.
Corley Erfurd hefur verið í sam-
bandi við um 60 Islendinga á spjall-
rásinni, Iceland 18+. „Mest hef ég
lært af því að tala við þá en María
sendi mér um daginn íslensk/enska
orðabók sem hefur hjálpað mér
mikið. Ég kann mjög vel við íslend-
inga því þeir eru bæði opnir og vin-
samlegir," segir hann. Um tíu Is-
lendinga telur hann til bestu vina
sinna og þá ætlar hann að heim-
sækja í sumar ásamt eiginkonu
sinni, Stephanie. „Ætlunin er að
koma í júní og dvelja í um tíu daga,
ferðast um landið og hitta félag-
ana.“
Margir íslendingar á
spjallrásum
„Á spjallrásunum hvílir nafn-
leynd og notast því flestir við dul-
nöfn,“ segir María og bendir á lang-
an lista af alls kyns furðunöfnum;
Bangsa, Dog, Freud, Elgur og
Durgur. Yfirleitt hittast María og
Corley á Iceland 18 + en færa sig
síðan yfir á tveggja manna rás.
Samfélag íslendinga á spjallrás-
unum er fremur stórt en reglulega
BINDI sem
anda léttar.
BRÚ milli heima karla og
kvenna.
F ataverslun
þar sem fólk skemmtir sér
Corley Erfurd hefur lært íslensku með
aðstoð vina á íslenskri spjallrás. Net-
vinkona hans María Edwardsdóttir bauð
Hrönn Marinósdóttur í heimsókn o^
saman sátu þær við tölvuna og ræddu á
móðurmálinu við Bandaríkjamanninn.
FÖTIN eru aðalatriðið og þau
verða að sjást,“ segir Sævar
Karl Ólason kaupmaður um
hugmyndaíræðina bakvið nýja 800 m2
verslun við Bankastræti 7 þar sem
Samvinnubankinn var áður til húsa.
„Markmiðið er auðvitað þjónusta en
svo er líka hitt, hvernig hægt er að
gera fötin og umhverfið skemmtilegt
svo viðskiptavininum þyki gaman að
koma hingað,“ segh' hann.
Sævar Karl flutti með karlmanna-
fótin í nýja húsið um miðjan desem-
ber á liðnu ári og nú er verið að inn-
rétta fyrir kvenfataverslun á sama
stað að hans sögn. Bankastræti 7 var
umtumað og lá leiðin meðal annars til
Sikileyjar í marmaraleit þar sem
arkitektinn, Guðjón Bjarnason, vildi
hafa samskonar efni á stiga niður í
kjallara og var fyrir á gólfi bankans.
Þá fékk hann gullsmið til þess að
smíða forláta hurð á húsið úr kopar.
Miðað er við að breytingum verði
lokið 1. tnai’s og verður viðskiptavin-
um verslunarinnar í framtíðinni boðið
upp á léttar veitingar auk kaffis. I
húsinu verður líka leikherbergi fyrir
börnin, vatnsskúlptúr og brúuð tjörn
með fiskum og öðrum dýmm. Að
ógleymdu tviskiptu gallerí þar sem
Jón Óskar sýnir í augnablikinu mál-
verk sín af harlekín.
Hvað skyldi svo vaka fyrir mannin-
um með svo umfangsmiklu og dýra
tiltæki? Sævar Karl nefnir til skýr-
ingar að verslun sín sé hluti af sam-
tökunum International Menswear
Group, 13 fyrirtækja í fataverslun, og
að hann hafi bara viljað skjóta kolleg-
um sínum ref fyrir rass hvað glæsi-
leika varðar.
„I hópnum eru ýmsir þekktir karl-
Morgunblaðið/Kristinn
SÆVAR Karl Ólason og Bankastræti 7.
ar sem eiga flottar búðir og ég vai’
einfaldlega staðráðinn í því að gera
betur. Það eina sem við höfum að
bjóða er góð þjónusta og gott úrval og
þvi þurfum við að skapa umhverfi sem
hefur aðdráttarafl.
Þeir komu í heimsókn til mín í gömlu
búðina og spurðu af hverju væri ekki
meira af mér sjálfum í henni. Skrif-
stofan þín er miklu fallegi'i, sögðu
þeir, en þú ert aldrei þar. Síðan hef
ég haft þetta í huga,“ segir hann.
Inn og út um gluggann
Sævar Karl bætir við að þótt gamla
búðin hafi haft vissa töfra hafi hún
verið plásslítil og gamaldags og að fá-
ir hafi lagt leið sína þangað aðrir en
þeir sem áttu beinlínis erindi. „Hérna
eram við með allt annað umhverfi, til
dæmis 18 metra glugga, og þeir sem
labba Bankastrætið sjá hvað er að
A SPJALLRASINNI urðu
/\ fagnaðarfundir. „Hvernig
Á JLgekk í prófinu? og hvað á að
gera í kvöld?“ Corley Erfurd í
Dallas og María Edwardsdóttir í
Hlunnavoginum töluðu lengi og inni-
lega saman, að hætti bestu vina.
Kynni þeirra hófust á Netinu fyrir
um einu ári og hafa þau spjallað þar
mikið saman síðan, nánast upp á
hvern einasta dag. Aldrei hafa þau
þó hvort annað augum litið.
„Corley gaf sig á tal við mig einn
daginn, eins og hver annar irkari,“
rifjar María upp. „Hann vantaði ein-
hvern til að kenna sér íslensku, við
fórum að tala saman og urðum fljót-
lega góðir vinir.“ María hefur verið
einn helsti aðstoðarmaður hans við
íslenskunámið undanfarið en um tvö
ár eru liðin síðan Corley Erfurd
kynntist Islendingum á Net-
inu og hóf tungumálanámið.
Áhuginn kviknaði á barnsaldri
Hvernig er annars veðrið í Texas?
spyrjum við. „Það er sólskin og um
12 gi’áður á Celsíus,“ svarar hann að
bragði. En hvernig skyldi áhugi
hans á Islandi hafa kviknað? „Þegar
ég var strákur las ég mér til um
landið í skólabókum og fannst
spennandi að lesa um víkingana, eld-
fjöllin og fleira. Tækifæri gafst hins
vegar ekki til að kynnast landi og
þjóð fyrr en á Netinu."
Corley Erfurd er 28 ára gamall og
starfar sem tölvuforritari í úthverfi
Dallas í Texasfylki en nýlega hóf
hann nám í tölvunarfræði við tækni-
háskóla, var einmitt að taka próf
daginn sem við áttum spjall saman á
Netinu.