Morgunblaðið - 17.02.1998, Síða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGN AFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARDAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
JRttfigtiiiiritafrifr
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 17. febrúar 1998
Blað C
Breyttur
markaður
STÓRAR og dýrar /búðir eru
farnar að seljast aftur á höfuð-
borgarsvæðinu, segir Grétar J.
Guðmundsson í Markaðnum.
Margt hefur batnað og það á
ekki síður við um íjármagns-
markaðinn. En ekki er víst, að
allt sé til bóta. / 2 ►
'■ 11 *■ ú ji
Evrópu-
staðlar
ÝMSAR spurningar hafa komið
fram um Evrópustaðla á sviði
bygginga og mannvirkjagerðar.
Hafsteinn Pálsson verkfræðingur
ljallar um samræmdar kröfur á
þessu sviði í Evrópu og hvaða
áhrif þær muni hafa á íslenzkan
byggingariðnað. / 23 ►
U T T E K T
Sérhannað
atvinnu-
húsnæði
VIÐ Dalveg í Kópavogi
eru Kraftvélar ehf. að
reisa nær 2.000 ferm.
byggingu, sem verður að ýmsu
leyti óvenjuleg, bæði að því er
varðar útlit og hönnun. Bygg-
ingin er steinsteypt og á tveim-
ur hæðum, en það sem einkum
gefur henni óvenjulegan og
skemmtilegan svip er stór gler-
skáli, sem kemur eins og út úr
neðri hæðinni.
„Þennan hluta köllum við
Demantinn, en þar er sýningar-
salur og aðstaða fyrir sölu-
menn,“ segja arkitektamir
Finnur Björgvinsson og Hilmar
Þór Bjömsson, sem hannað
hafa bygginguna. „f hinum
hlutanum á neðri hæðinni er
stórt verkstæði með mikilli loft-
hæð. Þar verður unnið að því
að gera við skurðgröfúr, ýtur,
lyftara og önnur stórvirk tæki.“
Lögun og útlit hússins vekja
óneitanlega athygli að öðm
leyti, en það er bogalaga.
Veggir hússins em einangraðir
að utan með steinull og síðan
klæddir með bánijárni. Þakið
er úr Iímtré, en síðan er það
líka klætt með bárajámi.
Að sögn Ævars Þorsteins-
sonar, framkvæmdastjóra
Kraftvéla, verður byggingin
eins og „klæðskerasaumuð11
fyrir starfsemina, en hún felst í
innflutningi og viðgerðaþjón-
ustu á Komatsu-vinnuvélum,
Toyota-Iyfturum og Tamrock-
borvögnum auk fjölda annarra
þekktra vömmerkja.
„f þessu nýja húsi verður eitt
fullkomnasta verkstæði sinnar
tegundar á landinu,“ segir
Ævar Þorsteinsson. / 18 ►
Hátt fermetraverð í
fjölbýli í Kópavogi
VERÐ á íbúðum í fjölbýlishúsum er
áfram heldur hærra í Kópavogi en í
Reykjavík og í Hafnarfirði eins og
fram kemur á meðfylgjandi teikn-
ingu, sem sýnir meðalverð á fer-
metra í húsnæði, sem skipti um eig-
endur í þessum bæjarfélögum á tólf
mánaða tímabilinu nóvember 1996
til október 1997.
Fermetrastærðir eru séreignar-
fermetrar og sameignarfermetrar
ekki taldir með. Dýrast er fer-
metraverðið í 2ja herb. íbúðunum,
en fer síðan lækkandi eftir því sem
íbúðirnar eru stærri.
I Kópavogi var fermetraverð í
tveggja herb. íbúðum að meðaltali
82.697 kr., en 79.696 kr. í Reykjavík
og 78.919 kr. í Hafnarfirði. í þriggja
herb. íbúðum var fermetraverðið
74.850 kr. í Kópavogi en 74.696 kr. í
Reykjavík og 72.828 kr. í Hafnar-
firði.
Samkvæmt þessu er meðalverð á
fermetra um 4% hærra í 2ja herb.
íbúðum í Kópavogi en í Reykjavík,
nær sama í 3ja herb. íbúðum og um
2% hærra í 4ra herb. íbúðunum. í
fimm herb. íbúðum er það aðeins
lægra í Kópavogi.
Þessar fjárhæðir miðast við stað-
greiðslu og eru meðalverð. Frávik
frá þeim geta því verið mikil. Ibúð-
arhúsnæði er ekki staðlað og mis-
jafnt, hve mikið er í það borið, hvort
sem það er gamalt eða nýtt.
Hvergi er hlutfallslega meh’a
byggt af nýju húsnæði en í Kópa-
vogi og það kann að vera skýringin
á hinu háa fermetraverði þar, en
fermetraverðið er að sjálfsögðu
hæst í nýjum íbúðum. Byggingarað-
ilarnir byggja til þess að selja og
hlutfall nýrra íbúða, sem skipta um
eigendur, er því sennilega hvergi
hærra en í Kópavogi.
Jafnframt er verð á nýjum íbúð-
um á eftirsóttustu nýbyggingastöð-
unum í Kópavogi eitthvað hærra en
á nýjum íbúðum annars staðar t. d. í
í Grafarvogi, enda þótt það sé senni-
lega ekki einhlít regla. Þetta kann
einnig að leiða til hærra meðalverðs
í Kópavogi.
79.695
REYKJi
HAFNARFJÖRl
^■1«
REYKJAVÍK*
HAFNARFJORÐUR
REYKJAVIK
Húsnædisverð í fjölbýli í Reykjavík
Kópavogi og Hafnarfirði
Meðalverð á hvern fermetra í húsnæði sem sélt var
fránóv. 1996 til okt. 1997
Tveggja herbergja
\
REYKJAVIK
jKOPAVOGUR
HAFNARFJORÐUR
i KOPAVOGUR
HAFNARFJORÐUR
74.850
72.828
KOPAVOGUR
KOPAVOGUR
.582
úla 13A • Sími 515 1500 • Fax 515 1509 • www.kaupthing.is
Verið velkomin í afgreiðsluna að Ármúla 13A
eða hafið samband við ráðgjafa okkar í sima 515 1500.
Við höfum opið alla virka daga frá 9.00-16.00
KAUPÞING HF