Morgunblaðið - 17.02.1998, Síða 6
6 C ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Suöurlandsbraut 16
108 Reykjavik
l S: 588-0150
Sigurður Óskarsson
lögg. fasteignasali
Viðar Örn Hauksson
sölumaður
854 6654
Sveinn Ó. Sigurðsson
sölumaður og auglýsingar
Sími 5880150
Eftirspurn • Eftirspurn
J Ung hjón: Hilmar og Bára leita að sérbýl. Þar sem Hilmar er með lít-
inn atvinnurekstur þarf hann mikið geymslupláss fyrir áhöld og taeki. Bílskúrinn
þarf að vera stór eða góð geymsla með góðu aðgengi til viðbótar. Þau eiga 4
herb. íbúð sem þau vilja setja uppí kaupverð, og milligjöf gæti verið staðgreidd.
j Verðhugm. allt að 15 millj.
Sigríður er að leita að 200 fm húsi + bílskúr. Húsið má vera
j tveggja íbúða en samgangur eða möguleiki á samgangi verður að vera. Staðsetning er
I opin en Suðurhlíðar Kóp, Garðabær og miðsvæðis í Rvík er ofarlega á óskalistanum.
! Hjón komu við og eru að leita að 3-4ra herb íbúð (helst hæð) með
j bilskúr. Þarf að vera lámark 80 fm og verðið má ekki fara yfir 9,5 millj.
! Hjón sem eru búin að selja bráðvantar gott einbýii eða raðhús
j i Fossvogi, Gerðum eða Leitum. Heimar, Teigar og Sund koma lika til greina.
’ Verðhugmynd frá 10 millj. til 17 millj.
Enn og aftur vantar okkur 2ja, 3ja og 4ra íbúöir í Teigum, Heim-
’ um og Sundum. Fjöldi kaupenda á skrá, skoðum samdægurs. Hafðu samband!
Landið
nvtt
Laufskógar Hveragerði fm 3ja
herb. hús. Á lóð er lítið jarðhýsi. Áhv.
2,1 m.V. 3,7 m. 1071
Heiðarbrún Hveragerði 188 fm raðhús
með bílskúr. V 8,8 Áhv. 5.3 m. Á sama stað
til sölu hesthús 10-12 hesta V. 500þ. 1072
I smíðum
Klukkurimi 195 fm parh. sem vert að
skoða. Áhv. 4,8 m. V. 10,9 m. Lyklar á skrif-
stofu Eignaval. 8635
Fjallalind 166 fm párhús. Afhend-
ist fullbúið að utan en fokhelt að innan.
4 svefnherb., garðskáli og gert er ráð
fyrir heitum potti í garði. 9664
Austurbær - Vogar. Afar faiiegt
190 fm hús við botnlangagötu með 44 fm
atvinnuhúsn. og bilsk. Allt nýlega uppgert
og i frábæru ástandi. Kjallari, hæð og ris.
Fallegur garður. Gróið hverfi. Allt tipp
topp! Ekki missa af þessu frábæra tæki-
færi. V. 17,9 m. 1063
Einbýli
Logafold Til sölu glæsil. 265 fm 6
herb. einbýli með 56 fm innb. bílsk. Lokuð
gata og fráb. útsýni. Draumaeign. Skoðið
og sannfærist! Áhv. 2 m. V. 18,3 m. 9648
Rauðagerði 320 fm 2ja hæða einb.
með öllu. Húsið og allt umhverfi 1. flokks.
Garðskáli og sólríkar verandir. Marghátt-
uð skipti koma til greina, s.s. 120 til 140 fm
einbýli á góðum stað í Rvk. Áhv. c.a. 6 m.
V. 19,9 m. 9084
Sæbólsbraut í Kóp. 226 fm ein-
býlishús á sjávarlóð! Sérstakleg skemtilegt
og vel staðsett hús, 2 baðherb. og 5 svefn-
herb. Möguleiki á aukaíbúð með sér inn-
gangi i kjallara. Innbyggt í húsið er bíl-
skúr/bátaskýli. 1029
Stelkshólar Snyrtil. 89 fm íb. á 3. h.
með 24 fm bílsk. Áhv. 4,4 m. V. 7,9 m.
6204
Austurberg Góð 89 fm. og 4ra herb.
íb. á 3. h. með suðursvölum og 18 fm. bil-
sk. Áhv. 2,5 m. V. 7,7 m.
Eyjabakki 88 fm falleg íbúð. Nýtt
parket á stofu og eldhúsi og ný eldhúsinnr.
Áhv. 4 m. V 6,9 m. 1054
Rað- og parhús
Engjasel 220 fm raðh. með 34 fm bílg.
á fallegum stað. Húsið þarfnast lagfæringa
og tillit tekið til þess í verði. Skipti á minni
íbúð koma til greina.
Tilboð! Hafðu samband og fáðu upp-
lýsingar. 8607
Hæðir
Þinghólsbraut-Kóp. 3ja herb. 72
fm sérh. í tvíb. á góðum stað. Margháttuð
skipti koma til greina á eign í Vesturbæ
Rvk. V. 5,8 m. 7312
Laugarnesvegur Snotur 2ja-3ja
herb. risfb. í þríb. Losnar fljótlega. Áhv.
Veðdl. 3,2 m. V. 6,3 m. 7307
Árbær eða nágrenni
Ákveðnir kaupendur að sérbýli
með stórum bilskúr, 4ra herb íbúð
uppi og millgjöf staðgreidd. 1053
Seljavegur
ngar-
sjóðslán) 67 fm íbúð á 1. hæð í
litlu fjölbýli. Suðaustursvalir. Sameign
nýlega gegnumtekin. Áhv 3.8 m. bygg-
sj. V. 6,6 m. 1067
Norðurmýri 84 m hæð ásamt 25.2 fm
bílskúr. Parket á gólfum og geymsluris yfir
íbúð. Áhv. 3,8 m. Byggsj. V. 8,2 m. 1058
Álfhólsvegur - Kóp. Rúmi. 100
fm neðri sérhæð. Eign á góðum stað í
fallegu hverfi. Sér þvottah. Bílskúr 20 fm
V. 7,1 m. 1014
Alfhólsvegur . Falleg 104 fm neðri
sérhæð í tvíbýli. 25 fm bílskúr. Endumýjað
og vel byggt hús. Sóistofa. Áhv. hagst. lán
5,3 m. V 9 m. 7314
4ra til 7 herb.
Kóngsbakki vei skiþuiögð ibúð á 2
hæð, þvotthús innan íbúðar. Baðherb. ný-
lega flisalagt, og parket á herbergjum.
Áhv. 4m.V. 7,1 m. 1033
Hraunbær Frábær 119 fm íb. á 1.
hæð í góðu fjölbýli. Áhv. byggsj.lán 3,1 m.
V. 8,9 m. 6939
Eiðistorg 106 fm 4ra herb. íb. á 1.
hæð með einkagarði og 35 fm aukaíb. á
kjallarahæð. Áhv. 4,3 m. Verð aðalíb. 8,8
m., aukaib. 2,9m. 6933
Hlíðar 58 fm mjög skemmtileg 3ja
herb. risíbúð, stór stofa og 2 rúmgóð
svefherb. Allt nýtt á baði. Áhv. 3.6 m.
V. 5,7 m. Hagstæð lán. 1052
Vesturbær 70 fm íbúð á 1. hæð í
fjölbýli. V. 6,8 millj. Áhvílandi 3 millj.
1024
2ja herb.
Lautasmári 60 fm ibúð á 1. hæð
rúml. tilbúin undir tréverk. Þvottahús innan
íbúðar. 1043
Vesturbærinn 39 fm íbúð á 1.
hæð. Nýtt gler og gluggar. Húsið er í
góðu standi og nýjar teikningar til af
skípulagi. V. 3,8 m. 1004
Krummahólar Falleg 44 fm 2ja herb.
íb. með sér stæði i bílag. Áhv. 2,8 m. V. 4,2
m. Lækkað verð! Lausjjótl. 5972
Dvergabakki 86 fm ágæt íbúð og
hús nýlega viðgert. Suður- og norðusvalir
(frábært útsýni) V. 6.8 m. 1044
Reykás Vorum að fá í sölu mjög vel
skipulagða 131 fm íbúð á 2 hæðum. Góð-
ar innrétt., parket og flísar á flestum gólf-
um. Þvottahús innan íbúðar. Áhv. 6 m. V.
10,7 m. 1032
3ja herb.
Álftamýri 76fm falleg íbúð, parket á
gólfum og ný eldhúsinnrétting. Mjög
smekkleg eign. Áhv. 2 m. V. 6,8 m. 1039
ið verð! Laysjj'
Frábær einstaklingsíbúð f
Ljósheimum. 55 fm íbúð með
frábæru útsýni í húsi sem hefur verið
klætt og fullviðgert. íbúðin er á 9. hæð
(efst í lyftuhúsi) og gengt úr henni út á
30 fm svalir. Ávh. 2.6 m. V. 5.2 m. 1034
Snorrabraut 50 fm kj.íb. lítið niðurgr.
Áhv. 2,5 m. V 4,1 m. 5231
Kríuhólar. fbúð fyrir unga parið!!
Falleg parketiögð 40,9 fm íbúð á 3.
hæð. Ný eldhúsinnrétting. Stórar aust-
ursvalir. Verð 3,8 m. Lyklar á skrifstofu.
Flétturimi Snotur 67 fm og 2ja til 3ja
herb. íb. á 3. h. í notalegu fjölb. Áhv. 4 m.
V. 6,8 m. 5958
Krummahólar 55 fm ibúð, parket á
stofu og herbergi. V 5,4 m. Áhv. 1,2 m. 5251.
Furugrund. Glæsileg 56 fm íbúð í fal-
legu nýklæddu húsi. Stórar vestursvalir.
Nýtt parket á öllu. Lágt húsgjald. Áhv. 1,6
m. V.5,4 m. 1050
Álfhólsvegur . Gullfalleg 2ja herb. íb.
á jarðhæð með sérinng. Ekkert áhv. V. 4,4
m. Laus strax. 1049
Einstaklingsíbúðir
Fífusel 28fm studioibúð, parket á
gólfum og góð eldhúsinnrétting. Bað-
herb. rúmgott. V 2,4 millj. Áhvíl.
800.000 kr. 1073
Flétturimi 76 fm mjög falleg og
skemmtileg íbúð á 1. hæð með sérafgirtum
garði. Innréttingar í eldhúsi og baði sérstak-
lega skemmtilegar. Áhv. 4,5 m. V. 6.950 m.
1059
Þangbakki 38 fm íbúð á 2. hæð.
Stofa er parketlögð, og sér svefnhólf. Bað-
herb. rúmgott og eldhús sér. Áhv. 1,5
millj. V. 4,2 m. (Laus strax). 1070
Ibúðir i sérflokki
Langholtsvegur 3 íbúðir 53fm,
82fm og 57fm ásamt bílskúr. 1030
Með byggingarsjóðsláni!!
Björt og góð íbúð i litlu fjölbýli við Engihjalla
í Kóp. Parket á gólfum, flísar á eldhúsi og
baði. Hús hefur verið klætt og viðgert.
Áhv. 3 m. byggsj. + 1 m. önnur lán. V. 6,5
m.1045
Hrísrimi Aðgengi fyrir hjólastól! Fal-
leg 96 fm íb. á 1. h. í snyrtil. fjölb. Bil-
geymsla. Áhv. 4,8 m. V. 8,5 m. 5361
Jarðir nVTT
Fyrir hestamanninn. Nýkomin í
sölu 150 ha jörð á Suðurlandi, 70 km. frá
Reykjavík. Góður húsakostur. Samkomulag
um tæki um tæki og kvóta. Hentar sérlega
vel tveim aðiium, Upplýs. á skrifstofu. 1080
Velkomin(n) á heimasíóu Eignavals www.eignaval.is
TVyggingafélögin verða að breyta
um stefnu í vatnstjónamálum
Lagnafréttir
Þess eru mýmörg dæmi, að gefízt er upp
eftir „skóbótarviðgerðir“ á lögnum og all-
ar lagnir endurnýjaðar, segir Sigurður
Grétar Guðmundsson. Afleiðinffln er tvö-
faldur kostnaður.
AÐ væri að bera í bakkafullan
lækinn að fara að tíunda einu
sinni enn hve gífurlegir fjármunir
fara í ginnungagap vatnsskaða
vegna skemmdra lagna í húsum og
ekki þarf að búast við því að úr
þeim dragi á næstu árum. Það er
neikvæð uppskera af því sem til var
sáð fyrir tveimur til þremur ára-
tugum, skaðinn er þegar skeður
eða er að ske.
Af hverju stafa þessir miklu
vatnsskaðar á lögnum hérlendis?
Það er ekki úr vegi að fara um
það nokkrum orðum, það hefur
margt verið um það skrafað og
skeggrætt og oftar en ekki nokkuð
yfirborðskennt, jafnvel með
sleggjudómum.
Helstu orsakir þessara miklu
skemmda, sem verða á lögnum, eru
rangar lagnaleiðir og það dauða-
hald sem haldið hefur verið í lagna-
hefðir. í fyrsta lagi heíúr sú hefð,
að troða öllum hita- og neysluvatns-
lögnum inn í veggi, verið okkur dýr.
í öðru lagi sú aðferð, sem kom fram
á flestum lagnateikningum um
miðjan sjötta áratuginn að leggja
fyrrnefndar lagnir í gólfraufar í
neðstu plötu, þær lagnir eru víða að
grotna í sundur.
í þriðja lagi eru frárennslislagnir
í grunnum eldri húsa, flestar úr
steinrörum, unnvörpum að gefa sig
í dag. í fjórða lagi eirlagnir í húsum
á höfuðborgarsvæðinu, þær eru
víða skaðvaldur.
Hvers vegna?
Það er engin furða að margur
húseigandinn spyrji; hvernig gat
þetta gerst að menn veldu rangar
lagnaleiðir, svo sem að troða lögn-
um í gólfraufar í kjallaraplötum ár-
um saman? Er enginn ábyrgur?
Eina afsökunin er sú að menn
vissu ekki betur þegar verkin voru
unnin en þetta væru ágætar aðferð-
ir. Það vill einnig brenna við að þótt
illur grunur fari að læðast að mönn-
um um ágæti þess sem gert er, þá
er mjög erfitt að fá ráðandi valda-
menn og hönnuði til að breyta um
stefnu.
Við höfum aldeilis nærtækt dæmi
sem er framkomnar aðvaranir um
að varasamt sé að nota galvan-
iseruð stálrör í neysluvatnslagnir
vegna tæringarhættu, en því hefur
jafnvel verið mætt með skætingi af
valdsmönnum.
Þó leyft hafi verið um árabil að
leggja heimæðar fyrir kalt vatn úr
plasti á höfuðborgarsvæðinu eru
menn neyddir til að leggja síðasta
legginn inn og upp úr sökkli úr
galvaniseruðum stálrörum. Þegar
yfirmenn kaldavatnsmála eru
spurðir hvers vegna ekki megi
leggja heimæðina úr plasti alla leið
er svarið ekkert eða „af því bara“
eins og hjá krökkunum.
Annað dæmi er yfirgengileg
íhaldssemi byggingayfirvalda í
Reykjavík, sem árum saman hafa
bannað alla framþróun í lagnaefn-
um á sínu svæði.
Tryggingafélögin
borga og borga
Það ei'u geysimiklir fjármunir
sem tryggingafélögin greiða á
hverju ári vegna vatnstjóna. Það er
stundum verið að kasta hnútum að
HEILDARLAUSNIR verða oft-
ast ódýrari en smáskammtavið-
gerðir.
tryggingafélögunum fyrir að þau
reyni að koma sér undan greiðslu-
skyldu, en sannast sagna er að þau
teygja sig oft æði langt til að koma
til móts við sína viðskiptavini,
greiða örugglega og fljótt það sem
þeim ber og vel það.
Hins vegar þurfa tryggingafélög-
in nauðsynlega að taka allar sínar
starfsaðferðir vegna vatnstjóna til
gagnrýninnar endurskoðunar og
þau ættu að hlusta á góð ráð. I dag
er það meginregla að ef fi-am kem-
ur leki í húsi sem tryggt er, sendir
viðkomandi tryggingafélag pípu-
lagningameistara á vettvang með
þeim fyrirmælum að gera við lek-
ann sem hann og gerir, trygginga-
félagið borgai* viðgerðina. Það sem
nánast alltaf er gert er að brjóta
upp gólf eða veggi, gera við
skemmdu leiðsluna og hylja að
nýju.
Því miður gerist þetta aftur og
aftur í sama húsinu, því auðvitað er
staðreyndin sú oft og tíðum að
lögnin í húsinu er ónýt með öllu.
Þetta er sama aðferðin og notuð
var við gömlu góðu gúmmiskóna í
sveitinni í gamla daga; við hvert
nýtt gat var sett á ný bót þangað til
þeir duttu endanlega í sundur, þá
varð að kaupa nýja.
Kjarni málsins er sá að það verð-
ur að hætta þessum „skóbótarað-
ferðum" sem tryggingafélögin fyr-
irskipa, því miður.
Þegar leki kemur fram í húsi,
sem er aldarfjórðungs gamalt og
eldra, er ekki vit í öðru en byrja á
því að meta ástand lagna í húsinu
áður en byrjað er að brjóta og
bramla.
Oftar en ekki mun þá niðurstað-
an verða sú að skynsamlegasta
lausnin sé að „gleyma“ gömlu lögn-
unum og leggja nýjar lagnir úr
bestu fáanlegum lagnaefnum nú-
tímans og velja þannig lagnaleiðir
að hugsanlegir lekar eftir hálfa öld
komi fljótt í ljós og auðvelt sé að
ráða bót á þeim án rasks á veggjum
og gólfum.
Það eru mýmörg dæmi þess á
undanförnum árum að loksins þeg-
ar búið hefur verið að verja and-
virði nýrra lagna í „skóbótarvið-
gerðir" er gefist upp og allar lagnir
endurnýjaðar.
Afleiðingin er tvöfaldur kostnað-
ur.