Morgunblaðið - 27.02.1998, Síða 5

Morgunblaðið - 27.02.1998, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1998 B 5 Morgunblaðið/Jón Svavarsson Garðar Guðmundsson, Mjöll Hólm, Óðinn 'orsteinn Eggertsson, Þór Nielsen og Ragnar Rokkarnir eru þagnaðir, var eitt sinn raulað, en íslenskir rokkarar hafa síður en svo sungið sitt síðasta lag. A Broadway á Hótel Islandi fara nú fjórtán rokkstjörnur á kostum, koma áheyrend- um í banastuð og fylla þá lífsgleði. Hvers vegna er rokkið svona lífseigt? Hvað dró stjörnurnar upp á sviðið á sínum tíma, hvernig var líf þeirra, og hvað hefur drifið á dagana eftir að þær hættu að skemmta landanum kvöld eftir kvöld? Kristín Marja Baldursdóttir tók þrjá frumherja rokksins á eintal, þá Skapta Olafs- son, sem er aldursforset- inn í hópnum, Þór Niel- sen og Stefán Jónsson, Lódó og Stefán, Artta, M.o„ ina. Þeir hættu að spila reglulega saman fyrir fimmtán árum, en leika nú stundum fyrir árshá- tíðagesti. „Við höfum spilað saman í nær fjörutíu ár fjórir af okkur félögunum, þannig að tengsl okk- ar eru orðin náin. Þetta var góður tími og maður kynntist mörgu skemmtilegu fólki. Að vísu gat þetta oft verið erfitt, sérstaklega þegar maður var að spila í miðri viku og var ekki kominn heim fyrr en hálf tvö á næturnai'.“ Og þótt sveiflan í danshúsum hefði verið mikil var hún kannski ekki að sama skapi holl. „Það var mikið um það í gamla daga að áfenginu væri haldið að okkur, menn voru með heilu bokkurnar undir borðum og vildu endilega deila innihaldinu út. Loftræsting í þessum eldri húsum var mjög léleg, húsin voru reykmettuð og margir tónlistarmenn hafa fengið krabba- mein í lungu þótt þeir hafi aldrei reykt. En það hafa orðið mikil framför hvað loft- ræstingu snertir síðustu árin.“ Stefán, sem er kvæntur og á tvö upp- komin börn, segir að fjölskyldulífíð hafi þó samt gengið nokkuð vel þrátt fyrir dag- og næturvinnu. „Kannski er gaman að segja frá því að flestallir sem hafa verið með mér í bandinu hafa verið giftir sömu konunum í þrjátíu til fjörutíu ár. Því má líklega þakka þolinmæði eiginkvennanna!" Tónlistin er aðaláhugamál Stefáns. „Svo gerir maður hitt og þetta. Við hjónin förum alltaf utan á sumrin, nú og svo búum við í einbýlishúsi og eitthvað þarf víst að gera í garðinum.“ En áður en garðvinnan hefst syngur Stefán með frumherjum rokksins við mikinn fógnuð áheyrenda á Broadway. „Það er ekki undarlegt þótt rokkið höfði til allra aldurshópa. Rokkinu fylgir lífsgleði. Og það er gleðin sem gerir það að verkum hversu lífseigt það er.“ STEFÁN JÓNSSON: Eitthvað þarf víst að gera í garðinum. n ÞÓR NIELSEN: Ég byrjaði að veiða á flugu fimmtán ára. Morgunblaðið/Þorkell ÞÓR NIELSEN Svaf á haustin ANÆR fjörutíu ára hljómlistarferli hefur Þór Nielsen sungið og spilað í tuttugu og fimm hljómsveitum og því ekki undarlegt þótt honum finnist það ánægjulegt að hitta gömlu rokkarana á Broadway, bæði á sviði og í sal. „Ég þekki annan hvem mann. Og ég sé ekki betur en að unga fólkið kunni líka að meta rokkið. Enda þekkir það lögin, það er alltaf einhver laglína í rokkinu." Þór segist hafa verið gaulandi frá því hann var smágutti, enda átti hann ekki langt að sækja tónlistaráhugann, amma hans spilaði á píanó og afi á fiðlu. Þau voru dönsk, afi hans, Emil Nielsen, var fyrsti framkvæmdastjóri Eimskips. En ævintýrið byrjað í Silfurtunglinu á sunnudegi árið 1959. „Þá var þar rekstrasjón milli klukkan þrjú og fimm og ég fór reglulega til að hlusta á hljómsveitina Fimm í fullu fjöri. Ég var búinn að læra eitt lag, „Kansas City“, sem ég syng einmitt á Broadway núna, og fékk að taka þetta lag með hljómsveitinni. Viku síðar var mér boðið að syngja með hljómsveitinni „City sextett", sem ungh- strákar höfðu stofnað, og við spiluðum í Ingólfscafé og í Iðnó. I fyrstu var ég eingöngu söngvari en síðar fór ég að leika á gítai- með.“ Leiðin lá svo í Vetrargarðinn þar sem hann lék um tíma með Flamingó, og svo stofnaði hann eigin hljómsveit sem hét að sjálfsögðu Þórsmenn. Of langt mál yrði að telja upp allar þær hljómsveitir sem Þór hefur leikið með á löngum ferli, en með hljómsveitinni Asum spilaði hann í ein tíu ár, aðallega í Glæsibæ, og einnig minnist hann stunda með hljómsveit Gissurar Geirssonar frá Selfossi. Hann segir að skemmtilegasti tíminn á tónlistarferlinum hafi líklega verið með þessum tveimur hljómsveitum. „Eg spilaði með þeim á Spáni og á Gullfossi, og það var auðvitað ógleymanlegt. Það var svo gaman að ferðast og spila, einkum úti á sjó. Ég spilaði á Gullfossi í tvö ár og fór með honum síðustu ferðina. Þarna voru oft mörg fræg andlit og skemmtileg stemmning. Og ekki spillti að eiginkonan var með í ferðum. Við spiluðum líka í fleiri löndum, tókum eitt sinn lagið með hljómsveit í Hollandi og gerðum mikla lukku. Þeir voru alveg hissa á hvað svona jólasveinar gátu og vildu helst ekki sleppa okkur. Hann var líka skemmtilegur tíminn þegar ég var að byrja í bransanum. I þá daga voru menn fínir í tauinu þegar þeir voru að spila. Það voru ekki gallabuxumar og bolh-nir þá.“ Þór hefur mesta ánægju af lögum Fats Dominos. „Ég þekkti hann líka persónulega. Ég kynntist honum þegar hann kom í fyrra skiptið til landsins og skemmti á Broadway. Þetta er indælis maðui’. Ég var þarna með honum á hverju kvöldi og svo kom að hann vildi láta mig syngja með bandinu. Ég vildi það ekki, vai' eitthvað feiminn. En það hefði auðvitað verið æðisleg upplifun að syngja „Jambalaya“ með sextán manna hljómsveit.“ Þór var atvinnumaður í músík í þrjátíu ár og hefur spilað með hljómsveitum þar til fyrir ári að hann hætti. „Ég greip oft í önnur störf með spilamennskunni, vann meðal annars hjá Brynjólfsson og Kvaran um tíma, og síðastliðin ellefu ár hef ég starfað sem laugarvörður. En spilamennskan var fullt starf, maður æfði á daginn og spilaði á kvöldin. Það fylgir því - « Hfiómsveitin Flammgo vom menn fínir J ^“sTeinn^Oddgeirsson, Julms ’íið 1%1. Rafn Signrðsson, N3all Sigurðsson. „ og Wr „ALLTAF tómt rúmið, horfinn karlinn." Á Þingvöllum 1983. auðvitað sérstakt líferni að vinna á skemmtistöðum og menn þurfa að vera mjög staðfastir, einkum fjölskyldumenn. Þór, sem er kvæntur og á fjóra syni, segir að það hafi oft verið þreytandi að vera í eilífri næturvinnu. „Eftir að ég hætti vissi ég ekki hvað ég átti af mér að gera um helgar, maður var jú vanur að fara að „sjæna“ sig svona seinnipartinn.“ En hér með er ekki öll sagan sögð. Við eftirgrennslan kemur í ljós að Þór gerði ýmislegt annað um helgar en að spila. Á sumrin veiðh' hann og á veturna kennh' hann fluguhnýtingar, enda talinn með þeim bestu í þeirri grein. „Ég byrjaði að veiða á flugu fimmtán ára gamall. Fékk að sitja aftan á vörubflum inn að Elliðavatni, þar sem maður stalst svo í ána. Þegar ég var að spila í Glæsibæ kom ég oftast heim klukkan fjögur að nóttu og var svo farinn klukkan hálf fimm austur á Þingvöll til að veiða. Ég veiddi allan daginn, fór svo heim, skipti um föt og var kominn á sviðið klukkan átta. Konan mín var alveg hissa því að ég var aldrei í rúminu á morgnana. Alltaf tómt rúmið, horfinn karlinn. Þetta gerði ég helgi eftir helgi, öll sumur. Þurfti bara að sofa á haustin. Það vai- mitt líf og yndi að koma austur á Þingvöll á morgnana þegar allt var að vakna, fuglarnir og náttúran. Nú bíður maður bara eftir vorinu." En meðan veiðimaðurinn bíður vorsins, syngur hann á Broadway lagið sem varð upphaf að löngum tónlistarferli, og rokkar svo að sýningu lokinni við undirleik hljómsveitai- sem sonurinn leikur í.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.