Morgunblaðið - 27.02.1998, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1998 B 7
^OFP/AIOR?
V* * |v| 4»
HÓPURINN fór meðal annars tU Uppsala og skoðaði háskóla.
Villuprófaði Sartre
Sveinn segir aðspurður um áhuga
sinn á vísindum að hann geti ekki
fullyrt um hann lengra en fímm ár
aftur í tímann. „Ég fór snemma í
gegnum bækur vísindalegs efnis á
heimilinu og auk þess hef ég í gegn-
um tíðina litið í námsefni bróður
míns í stærðfræði, eðlisfræði og
tölvunarfræði, en hann lýkur há-
skólaprófi í vor.“
Októbermánuði eyddi Sveinn síð-
an í það að finna misræmi í frum-
sendum heimspekikenninga Sart-
res. „Ég legg ekki áherslu á raun-
greinar umfram annað. Meginá-
herslan er á tiltekna efnismeðferð,
eða vissa hugsun, það er notkun á
skilmerkilegum reikni- eða hug-
takalíkönum," segir hann.
Sveinn hefur í vetur gegnt emb-
ætti forseta Vísindafélags Mennta-
skólans í Reykjavík og reynt að
gera sitt til þess að auka áhuga
nemenda á vísindum, sem kvað vera
af skornum skammti. „Yfirleitt hafa
mætt um 20 manns á fyrirlestra fé-
lagsins, sem átt hafa sameiginlegt
undanfarin ár að vera í 6. bekk X,
Morgunblaðið/Kristinn
SVEINN B. Sigurðsson
fólksins og tekið sérstaklega fram
fyrir Bretana að í höllinni í Stokk-
hólmi væru fleiri herbergi en í
Buckingham-höll.
Víxlmælir og hönd úr plexigleri
Boðsgestirnir ungu voru flestir
að byrja háskólanám og segir
Sveinn að margir þeirra hafi verið
áhugaverðir og hafi sumir unnið til
verðlauna í heimalandinu fyrir
uppfinningar sinar. Fulltrúi Suður-
Afríku hafði tii dæmis unnið sér til
ágætis að smíða víxlmæli, sem er
tæki til þess að mæla ijóshraða, og
Hollend-
ingur í
hópn-
Syngjandi sleikjó
FÁIR eru búnir að gleyma sýndar-
gæludýrunum sem fóru sigurfor um
heiminn snemma á liðnu ári og því
má velta fyrir sér hvort barnagaman
næsta sumars, syngjandi sleikjó,
muni ná viðlíka útbreiðslu.
Vefútgáfa breska dagblaðsins
Telegraph greinir frá því að banda-
ríska leikfangafyrii-tækið Hasbro
hafi fengið leyfi til framleiðslu á
sleikipinnum sem spilað geta fjögur
lög. Uppfinning Davids Capper og
Andrews Filo er vernduð með einka-
rétti og hafa þeir þegar selt Hasbro
framleiðsluréttinn.
Sleikjóinn syngjandi er byggður á
„nýrri og byltingarkenndri" tækni
sem mikil leynd hvílii' yfir að sögn
uppfinningamannanna. Um er að
ræða brjóstsykurspinna með
tölvukubbi sem titrar þegar hann er
soginn eða í hann er bitið.
Sveiflan berst síðan með tönnum
neytandans og eftir kjálkabeininu
beint upp í innra eyrað sem nemur
tóna.
Hver sleikjó getur spilað fjögur
sex sekúndna lög sem hægt er að
velja með því að ýta á Iítinn takka og
kosturinn sá að sá heyrir einn lögin
sem er með hann upp í sér.
Sala hefst vestanhafs í júní og
miðað við að hver sleikjó muni kosta
um 70 krónur. hke
um smíðaði hönd úr plexigleri, sem
knúin var með rafhreyflum.
Ymsir í hópnum sldptust á net-
fóngum þegar samvistum lauk og
segir Sveinn vilja svo einkennilega
til að sér hafi ekki tekist að hafa upp
á nokkrum manni eftir heimkomuna.
Ferðin var jafnframt lærdómsrík
þótt hann geti ekki tíundað nákvæm-
lega í hverju lærdómurinn hafi helst
verið fólginn. „Skömmu eftir að ég
er búinn að ná einhverju tek ég ekld
lengur eftir því að það sé lært. Ég
get því ekki sagt til um það.“
Sveinn segist ekki vilja binda sig
við tiltekið áhugasvið í vísindum eða
öðrum greinum því hann hafi meiri
áhuga á því að setja upp kerfi og
líkön. „Þá á ég fremur við hugtaka-
og reiknilíkön en eiginleg líkön úr
pípulögnum. Slíkt má færa yfir á
flestar greina vísinda, einkum eðlis-
fræði og verkfræði. Ég stefni á
framhaldsnám í rafmagns- og tölvu-
verkfræðiskor í Háskóla Islands í
haust,“ segir hann.
Hópurinn hitti nýja nóbelsverð-
launahafa og sótti fyrirlestra af
ýmsu tagi og segist Sveinn hafa átt
best með að halda sér vakandi undir
eðlisfræðinni, efnafræðin hafi verið
í tyrfnara lagi. „Þetta voru tvímæla-
laust merkilegustu fyrirlestramir.
Einnig vom haldnir aðrir minni fyr-
irlestrar og ég varð til dæmis vitni
að erindi Darios Fo sem flutt var á
ítölsku og þýtt jafnóðum yfir á
sænsku. Eg hef ekki hugmynd um
hvað hann var að segja. Þá voru er-
indi um rafhlöður, tækni sem bygg-
ir á fjölliðum og sagt frá Rudbeck
sem taldi sig meðal annars hafa
sýnt fram á að Trója væri í Sví-
þjóð,“ segir hann.
þeim bekk sem ég er í núna.“
Annað verkefni sem Sveini hefur
ekki tekist að ljúka varðar gíga-
myndun á víðavangi en hugmyndin
var sú að hafa samband við verk-
takafyrirtæki og fá sérfræðing í
sprengingum í lið með hópi fjór-
menninga með stór áform. „Aður en
hægt var að ganga í það vildi ég
framkvæma tilraun smærri í snið-
um. En tækifærið gekk mér úr
greipum þegar mér varð á að nefna
saltpétur í sömu andrá og ég vildi
festa kaup á brennisteini í Lyfja-
verslun íslands," segir hann. Vildu
piltar í skólanum reyna sprengingu
án elds með rafskautum í grennd
við höfuðborgina að Sveins sögn.
„Sprengigígaverkefnið var eitt af
kosningaloforðum mínum og því
stefni ég á að standa fyrir því, þótt
síðar verði,“ segir Sveinn B. Sig-
urðsson að lokum.
hke
Nýjar vörur
Eldhúslína
Diskamottur, 515 kr. stk. • Pottaleppar, 290 kr. stk.
Stólasessur, 1.410 kr. stk.
'Ogu<
gluggatjaldadeild, Skeifunni 8