Morgunblaðið - 27.02.1998, Blaðsíða 8
8 B FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Ofbeldi tengt
bætiefnaskorti
DEILUR um ástæður ofbeldis hafa
löngum spunnist um hvort um sé
að kenna erfðafræði eða uppeldi,
segir í desemberhefti Psychology
Today. Dr. William Walsh við
Heilsurannsóknastofnunina í Illin-
ois í Bandaríkjunum og starfs-
systkini hans telja að sökudólgur-
inn geti verið líkamlegs eðlis, það
er vegna bætiefnaskorts.
Walsh skoðaði blóðsýni 135
árásargjarnra karla og bar saman
við samskonar sýni úr 18 kyn-
bræðrum sem ekki höfðu orðið
uppvísir að ofbeldi. I Ijós kom að
minna var af sínki og meira af
kopar í blóði hinna ofbeldis-
hneigðu, miðað við samanburðar-
hópinn, og árásarhneigð þeirra
jókst jafnframt eftir því sem mis-
munurinn milli þessara tveggja
efna í blóðinu var meiri.
Dr. Ronald Isaacson starfsbróðir
Walsh segir tengsl sínks og ofbeld-
is ekki ljós „en vitað er að sínk
gegnir mikilvægi hlutverki í heila-
starfseminni og þar af leiðandi í
geðheilsu," segir hann jafnframt.
Þá hefur hátt koparhlutfall verið
bendlað við ofvirkni og geðklofa.
„Orsakir ofbeldishneigðar eru
auðvitað flóknari en svo að þær
megi einvörðungu rekja til blóðs-
ins og hlutfalls af kopari og
sínki,“ segir Isaacson enda hugs-
anlegt að erfðir og umhverfi eigi
hlut að máli, auk fleiri efnafræði-
legra þátta. Hins vegar kom í ljós
að dró verulega úr ofbeldishneigð
hjá ungum karlmönnum
sem fengu viðeigandi meðferð
vegna sinkskorts og of mikils
kopars.
Þátttakendur í rannsókninni
voru látnir taka stóra skammta af
bæti- og steinefnum „því matar-
æði eitt og sér nægir ekki til þess
að breyta hegðunarmynstri þess-
ara einstaklinga," segir Isaacson.
Steinefnaskortur af þessu tagi er
sjaldgæfur að hans mati en þó hef-
ur komið á daginn að lítið sink sé
eitt einkenna á mataræði Banda-
ríkjamanna, sem borða mikið af
unnum matvælum.
Því megi hinar friðsömustu sálir
eiga von á betri líðan auki þeir
neyslu á kjöti, mjólk, eggjum,
belgjurtum og heilkorna brauði,
sem allt er ríkt af sinki.
er vinsael af Un,
Morgunblaðið/Þorkell
JENNÝ Sigfúsdóttir tók sig til og opnaði heilsulind í Ármúlanum.
Hávaðalítil
Jenný hefur ekki áður komið ná-
lægt rekstri líkamsræktarstöðvar en
betra er seint en aldrei, segir hún.
„Ég hafði lengi unnið sem skrifstofu-
maður en ákvað fyrir áramótin að
láta til skarar skríða og opna heilsu-
lindina en stað sem þennan hefur
lengi vantað i flóruna hérlendis. Til
að mynda geri ég ekki ráð fyrir að
eldra fólk sæki mikið líkamsrækt
annars staðar í borginni þar sem er
þessi yfirþyrmandi tónlistarhávaði."
Jenný er eigandi húsnæðisins í
Ertu með bjúg á fótum, er bakið
slæmt eða viltu slaka á? Ótal tegund-
ir af nuddi eru einnig í boði í Fínum
línum svo sem Lomi lomi nui sem er
nuddtækni frá Hawaii, slökun-
arnudd, sogæðanudd, heildrænt
nudd eða svæðameðferð, höfuðbeina-
og spjaldhryggsmeðferð, dansnudd
og Shiatsu, sem er japönsk þrýsti-
punktameðferð. Nuddarar eru
nokkrir á staðnum svo og sjúkra-
þjálfari og sjúkranuddari.
hm
heilsulind fyrir eldri
KÍNVERSKA leikfimin
en vinsæl hjá ungum körl-
um ekki síður en konum en
æfíngabekkina hefur kven-
þjóðin eingöngu sótt hingað
til.“ Svo mælir Jenný Sig-
fúsdóttir, eigandi heilsulind-
arinnar Fínna lína, sem ný-
lega var opnuð í Armúla 30.
Fínar línur er líkamsrækt-
ar- og heilsustöð fyrir fólk á
öllum aldri, konur jafnt sem
karla sem vilja stunda rólegai
íþróttir; jóga, gólfæfingar eða
kínverska leikfimi og fara jafn-
vel í nudd og snyrtingu af ýmsu
tagi eða sækja tíma í leikrænni tján-
ingu. „Þetta er allt að smella saman,
segir Jenný, „gufuböðin verða sett
upp væntanlega um helgina og ljósa-
bekkirnir íljótlega. Markmiðið er að
hafa þetta rólegan og notalegan stað
þar sem fólk getur stundað æfíngar
en jafnframt hvílt sig frá daglegu
amstri."
Eldri borgarar fá afslátt
Eldri borgarar fá afslátt hjá Fín-
um línum en reynt hefur sérstaklega
að höfða til þessa aldurshóps. „Meðal
annars höfum við í boði æfingabekki,
svokallað sjöbekkjakerfi sem eldra
fólk getur vel notið góðs af. Bekkirn-
ir eru að sjálfsögðu fyrir bæði kynin
þótt karlarnh- hafi ekki gert mikið að
því að spreyta sig enn sem komið er.
Kerfið er til dæmis kjörið fyrir alla
sem hafa stífa vöðva eða eru með
Wðagigt."
í fyrsta sinn í slíkum rekstri
sem yngri
Armúlanum en leigði lengi vel að-
stöðuna Lindu Pétursdóttir sem rak
þar Baðhúsið. „Við tókum allt hér í
gegn, í hólf og gólf. Nú er húsnæðið
því nánast óþekkjanlegt frá því sem
áður var.“
Snyrtistofa með hljóðbylgjuvél
„Það er voðalega gaman að breyta
til,“ segir Jenný sem stundað hefur
jóga undanfarin ár og ætlar að gera
meira að því í nýju stöðinni. Hún
leigir aðstöðu í Armúlanum ýmsu
fagfólki en sér sjálf um skrifstofu-
vinnuna.
I heilsulindinni er einnig snyrti-
stofa Maríu Marteinsdóttur sem
býður alls konar andlitsböð, meðal
annars með hljóðbylgjuvél sem vinn-
ur bug á hrukkum, æðasliti, bólum
og þess háttar. Þá er einnig í sama
húsnæði rekin hand- og fótaaðgerða-
stofa og hárgreiðslustofa.
Mjög fjölbreytt nudd
SYND I HASKOLABIOI OG
_ LAUGARÁSBÍÓI
■M MEÐ ÍSLEMSKU TCVLI
LAUGA
HÁSKÓLABÍÓ