Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLABIÐ Enn von hjá Víkingum Vfldngar halda enn í þá von að halda sæti sínu í 1. deild eftir nauman sigur á HK í gærkvöld. Þröstur Helgason var Borgar Þór hetja Víkinga í leikn- Einarsson um, skoraði 12 mörk skrifar og lék ljómandi vei: „Við verðum að nýta okkur þau tækifæri sem okkur gefast ef við eigum að halda sæti okkar í deildinni. Við sýndum það í kvöld að við eigum enn möguleika á því. Ég fann mig vel í kvöld og það er gaman að spila á rauða gólfínu hér í Digra- nesi,“ sagði Þröstur að leik loknum. Leikmenn Víkings komu greini- lega vel stemmdir til leiks og skoruðu fjögur fyrstu mörkin. Varnarleikur- inn var sterkur, með Birki öflugan í markinu, og sóknin gekk eins og vél. Eftir níu mínútna leik misstu Víking- ar þrjá menn út af á sömu mínútunni, þar af Steinar Birgisson með rautt spjald, og í kjölfarið náðu HK-menn að saxa á forskotið. Strax í upphafi síðari hálfleiks tóku Víkingar leikinn í sínar hendur og náðu 4 marka forskoti á ný. Talsverð harka færðist í leikinn og voru dómar- ar leiksins, Egill Már Markússon og Lárus Lárusson, duglegir við að senda menn af leikvelli. HK náði með skynsamlegum leik að minnka forskot Vfldnga á nýjan leik og lokamínútur leiksins voru æsispennandi. Víkingar náðu tveggja marka forystu þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka en HK náði að jafna þegar 16 sekúnd- ur voru eftir. Víkingar geystust þá í sókn og eftir mikið fát og fum stökk Birgir Sigurðsson inn af línunni, greip knöttinn og skoraði fram hjá Hlyn í markinu, lokatölur 26:26. Leikmenn HK komust aldrei veru- lega í takt við leikinn. Ahugaleysi var einkennandi í upphafí og sóknarleik- urinn ekki burðugur. HK-menn hresstust þegar á leið en þó var eins og metnaðinn til sigra skorti. Hlynur Jóhannesson, markvörður, var einna bestur í liði HK. Víkingar voru vel að þessum sigri komnir. Leikmenn sýndu mikinn sig- urvilja og virtust gera sér fulia grein fyrir mikilvægi leiksins. Vömin var feiknarlega sterk og Birkir ívar Guð- mundsson varði mjög vel á köflum. Sóknarleikurinn var í raun borinn uppi af einum leikmanni, Þresti Helgasyni, þótt aðrir hafi vissulega staðið fyrir sínu. Þröstur gerði alls tólf mörk í leiknum og stjórnaði spili Víkinga af röggsemi. Arni Indriða- son, þjálfari Víkings, var ánægður með sigurinn: „Við vorum búnir að setja upp ákveðna vörn fyrir leikinn og náðum að byrja mjög vel. Þegar lið standa frammi fyrir því, að það er að duga eða drepast verður pressan stundum of mikil en þessi staða hafði góð áhrif á leik okkar í kvöld.“ Hörmulegir FH-ingar Þrátt fyrir 24:19 sigur FH-inga á Breiðabliki á sunnudagskvöldið í Kaplakrika geta heimamenn ekki borið ■■■■■■ höfuðið hátt. Þeir fáu Hörður Hafnfirðingar sem Magnússon mættu á leikinn urðu vitni að einhverjum versta leik FH í áraraðir. Fimm marka sigur gegn Blikum er einfaldlega ekki nógu gott fyrir lið sem tekur sig alvar- lega. Staðan í hálfleik var 12:7 og því héldu gestimir jöfiiu í síðari hálfleik og voru reyndar óheppnir að vinna hann ekki. Sigur heimamanna var reyndar aldrei í hættu en hefði ekki komið til góðrar markvörslu Lee í marki heima- manna hefði munurinn hugsanlega orðið enn minni. Blikamir börðust all- an tímann og eiga hrós skilið fyrir það. Þeir fengu reyndar að hanga á boltan- um of lengi án þess að dómaramir dæmdu á þá. Suk Hyung Lee og Hálfdán Þórð- arson voru einu leikmenn FH sem komust frá leiknum með einhverri sæmd, aðrir mega hugsa rækilega sinn gang. Hugmyndasnauður sókn- arleikur, kæmleysi í vöm og oft og tíðum slakar sendingar einkenndu leik liðsins. Ahorfendur sem komu til að sjá stórsigur, falleg tilþrif og glæsileg mörk urðu svo sannarlega fyrir vonbrigðum. í gamla daga tóku Kristján Arason og félagar svona lið og settu á þá 40 mörk og hver var við stjómvölinn þá? Núverandi þjálfari Breiðabliks, Geir Hallsteinsson. Morgunblaðið/Ární Sæberg VÖRN Eyjamanna var sterk á sunnudaginn og hér taka þeir Robertas Pauzuolis (nr. 10) og Haraldur Hannesson (nr. 9) á á móti Guðmundi Helga Pálssyni. Eyjamenn stöðv- uðu Framara EFTIR að hafa sigrað í átta deildarleikjum í röð á heimavelli urðu Framarar að játa sig sigraða í Safamýrinni á sunnudag- inn. Það voru Eyjamenn sem voru í heimsókn og þeir sigruðu 24:23 í mjög kaflaskiptum leik og átti Sigmar Þröstur Óskars- son, markvörður liðsins, ekki lítinn þátt í sigrinum. Hann varði 24 skot og lokaði markinu löngum stundum í síðari hálfleik enda gerðu Framarar ekki mark í tæpar 14 mínútur og fyrstu 23 mínúturnunar og 45 sekúndurnar gerðu heimamenn að- eins þrjú mörk. Gestirnir komust í 3:1 áður en Framarar hrukku í gang og komust í 9:5. Eyjamenn lögðu þó ■■■■■■ ekki árar í bát og Skúli Unnar minnkuðu muninn í Sveinsson eitt mark fyrir hlé og jöfnuðu síðan með fyrsta marki síðari hálfleiks. Fram gerði næstu tvö mörk áður en þrjú komu í röð frá gestunum og er tíu mínútur voru liðnar var staðan 17:17. Þá skellti Sigmar Þröstur í lás og það var ekki fyrr en síðari hálfleikur hafði staðið í 23,45 mínút- ur að Framarar gerðu fjórða mark sitt í hálfleiknum, en á meðan höfðu gestirnir gert fimm. Staðan var því 22:17 fyrir ÍBV og flestir héldu að Eyjamenn væru búnir að tryggja sér sigur. Af svip Þorbergs Aðalsteinssonar, þjálfara Eyjamanna, mátti þó ráða að hann var ekki viss í sinni sök. Og það kom á daginn, eða næstum því. Með mik- illi baráttu tókst Fram að gera lokamínúturnar spennandi, gerði fjögur mörk í röð, á aðeins þremur mínútum, og þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir var staðan 21:22. Svavar línumaður Vignisson skoraði af harðfylgi fyiir ÍBV og Oleg Titov svaraði hinum megin. Svavar var aftur á ferðinni fyrir Eyjamenn og tíminn of naumur fyrir Fram að skora tvívegis. Reynir Þór Reynisson varði mark Fram vel og Oleg Titov var sterkur á línunni. Vörn Fram var ágæt á köflum en átti þó í vandræðum með öflug skot Robertas Pauzuolis í fyrri hálfleik, en þá skoraði hann mörg glæsimörk lengst utan af velli. Sóknin var ekki sannfærandi, en þó sáust ágætir kaflar. Sigmar Þröstur var maður leiks- ins og það segir ef til vill mikið um hann að menn voru að ræða um að hann hefði verið slakur í fyrri hálf- eik, en þá varði hann 9 skot, þaraf eitt vítakast. í þeim siðari lokaði hann markinu um tíma. Pauzuolis átti mjög góðan leik, bæði í vörn og sókn og það sama má segja um Guðfinn Kristmannsson. Svavar línumaður stóð fyrir sínu þó ekki sé hann hávaxinn, var duglegur að reyna að opna fyrir félaga sína og nýtti færi sín vel. Zoltan Beláný var ekki ógnandi, en hann var öruggur á vítalínunni. Lokaflautið Enn einu sinni undirstrikuðu Valsmenn að leikur er ekki bú- inn fyrr en dómari hefur flautað ■■■■■■ hann af þvi Daníel S. Stefán Ragnarsson skoraði Stefánsson sigurmark Vals þegar fjórar sekúndur voru til leiksloka gegn Stjörnunni á sunnudaginn. Með 24:23 sigri vipp- uðu Valsmenn, sem hafa ekki tapað í 11 leikjum í röð, sér því upp í fjórða sæti deildarinnar en Stjörnu- menn þurfa að halda vel á spilunum ef þeir eiga að halda sæti sínu í úr- slitakeppninni. Garðbæingar hófu leikinn af krafti með sterkri vörn og fyrir aft- an hana stóð Jónas Stefánsson á milli stanganna og varði vel. Vals- menn létu það ekki slá sig af laginu, voru að vísu lengi í gang en um miðjan hálfleik sneru þeir við blað- inu með því að gera sjö mörk á móti einu Garðbæinga auk þess sem Guðmundur Hrafnkelsson í marki þeirra byrjaði að verja og það skil- aði liðinu í 12:9 forystu. Stjörnu- menn gáfust ekki upp en áttu í mesta basli með að vinna upp mun- inn. Það tókst þó á 12. mínútu síðari hálfleiks en Valsmenn höfðu ekki sagt sitt síðasta orð og náðu tveggja marka forystu, 22:20. Þreytan og spennan fór að segja til sín og harka hljóp í leikinn en Valsmenn voru alltaf markinu á undan. Þegar rúm mínúta var eftir kom Valgarð Thoroddsen Val í 23:22 með víta- skoti en Hilmar Þórlindsson jafnaði þegar mínúta var eftir. Valsmenn hófu sókn og biðu fram í blálokin eftir að taka eitt skot - og það var mark. Stjörnumenn voru afar vonsvikn- ar eftir leikinn enda að minnsta kosti stig innan seilingar. Liðið lék oft góða vöm og í sóknarleiknum gerði það góða hluti en var refsað fyrir slöku kaflana. Jónas í markinu varði mjög vel til að byrja með, Valdimar Grímsson var drjúgur í horninu og Magnús A. Magnússon á línunni lét hafa fyrir sér þrátt fyrir að vera tekinn óblíðum tökum. „Þetta var mjög erfítt hjá okkur eins og sést á lokatölunum en við erum mjög sáttir við úrslitin því við höfum ekki unnið hér í Garðabæn- um í mörg ár,“ sagði Sigfús Sig- urðsson, varnarjaxl úr Val, sem var sterkur á línunni og átti sérlega góðan leik í vörninni - varði til dæmis fyrir hlé fleiri skot en mark- vörðurinn. Davíð Ólafsson átti einnig stórleik þegar hann smeygði sér áreynslulítið í gegnum vöm heimamanna og Daníel S. Ragnars- son, Valgarð og Ingi R. Jónsson áttu góða kafla. FOLK ■ BJARKI Sigurðsson og fjölskylda mættu frá Drammen í Noregi til Skövde, til að sjá fyrri félaga sína hjá Aftureldingu leika. „Strákarnir geta miklu betur en þeir gerðu hér. Ef allt hefði verið eðlilegt áttu þeir að fara í undanúrslit en ekki leik- menn Skövde," sagði Bjarki. ■ ÞÓR Björnsson, annar mark- varða Fram, og fyrirliði liðsins, lék ekki með á sunnudaginn. Hann er með brákaðan fingur á vinstri hendi, sagði að kvarnast hefði upp- úr bátsbeini en bjóst við að verða tilbúinn í næsta leik. Njörður Árna- son tók við fyrirliðastöðunni í hans stað. ■ INGVAR Ragnarsson aðalmark- vörður Stjörnunnar lék ekki með félögum sinum gegn Val á sunnu- daginn því hann meiddist á auga og verður frá í viku til viðbótar. ■ EINAR BALDVIN Árnason úr Stjörnunni verður einnig að bíða um sinn þar sem bakmeiðsl hrjá hann. ■ JÓN Kristjánsson þjálfari og leik- maður Vals var á leikskýrslu gegn Stjörnunni á sunnudaginn en kom ekkert inná þar sem hann hefur enn ekki jafnað sig af flensunni. ■ JÚLÍUS Gunnarsson lék heldur ekki með Val þar sem hann er fing- urbrotinn en reiknar með að vera tilbúinn í slaginn þegar kemur að úrslitakeppninni. ■ GUÐMUNDUR Hrafnkelsson markvörður Vals reyndist Valdi- mar Grímssyni erfiður í vítaskotun- um. Valdimar skoraði úr iyrsta en Guðmundur varði næstu tvö - greip meðal annars annað þeirra. „Skot- menn- irnir afkasta- miklir“ „ÉG átti ekki von á svo stórum sigri, reiknaði jafnvel ekki með að við kæmumst áfram,“ sagði Jan „Proppen“ Karlsson, þjálf- ari Skövde. „Við byrjuðum mjög vel, skotmenn okkar voru afkastamiklir og Johan Green varði vel í markinu. Það kom mér á óvart hvað leikmenn Aft- ureldingar voru óöruggir," sagði Karlson. „Allt gekk upp“ „Þetta var einn af þessum leikjum, þar sem allt gengur upp. Við náðum mjög góðum leik, mótspyman var minni en ég reiknaði með,“ sagði Andre- as Angerbom, sem skoraði níu mörk fyrir Skövde. „Það er frábært hjá okkur að vera komnir í undanúrslit og von- andi fáum við Vigo frá Spáni sem mótherja. „Góð byrjun“ „Við náðum mjög góðri byrj- un og um leið að slá leikmenn Aftureldingar út af laginu. Þegar við vorum búnir að vinna upp sjö marka forskotið vissi ég að það yrðum við sem færam áfrarn," sagði Janny Hiltunen, sem fór oft illa með vöm Aftureldingar og skoraði sjö mörk með Iangskotum og gegnumbrotum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.