Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Jón Arnar Magnússon náði sér aldrei á flug á Evrópumeistaramótinu
Norðuriandamet
ið var ekki nóg
Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi
úr Tindastóli setti Norðurlandamet í sjö-
þraut á Evrópumeistaramótinu í Valencia
um helgina, fékk 6.170 stig. Eigi að síður
náði hann aðeins að hafna í 5. sæti af 13
keppendum sem komust klakklaust í gegn-
um þrautina, sem var lakara en hann hafði
vonast eftir. ívar Benediktsson blaðamað-
ur og Ragnar Axelsson Ijósmyndari fylgd-
ust með Jóni í keppninni um helgina.
Morgunblaðið/RAX
JÓN ARNAR hafði ekki heppnina með sér í síðustu greininni - 1000 m hlaupi. Jón, sem er aftastur
til vinstri, og Indrek Kaesorg lentu í árekstri og féllu strax við á fyrstu metrunum. M.a. hlupu tveir
yfir Jón. Hann lét fallið ekki aftra sér heldur stóð á fætur og hljóp á fleygiferð í átt að hópnum og
náði fljótlega 4. sæti, en undir lokin varð hann að gefa eftir.
Mikill hugur var í Jóni áður en
þrautin hófst, æfingar höfðu
gengið vel og engin meiðsli höfðu
komið uppá í vetur. Það var því
bjartsýnn maður sem hóf keppni
snemma á laugardagsmorguninn.
Þegar upp var staðið var ánægjan
blendin, þrátt fyrir metið, enda
hafði markið verið sett hærra. Jón
var bronsverðlaunahafí á síðasta
Evrópumeistaramóti fyrir tveimur
árum og sem slíkur vildi hann bæta
verðmætari málmi í safnið, en aðrir
sjöþrautai-menn stóðu honum fram-
ar að þessu sinni. Fyrir síðustu
grein var von um silfur, en einnig
gat sú von orðið að engu og sú varð
raunin og Jón varð að sætta sig við
að fara tómhentur úr hitanum í Va-
lencia í frostið norður á Sauðár-
króki og halda áfram að safna kröft-
um fyrir næstu raun. „Eg verð bara
að sýna þessum köppum næst hvar
Davíð keypti ölið,“ sagði Jón í móts-
lok.
Eins og vant er þá hófu sjöþraut-
arkapparnir keppni í 60 m hlaupi og
þar var Jón í öðrum riðli og eftir að
þjófstartað hafði verið tvisvar tókst
loks að koma Jóni og félögum hans
af stað. Jón var á áttundu braut,
sem er ekki besti staðurinn til þess
að vera á. Viðbragðið var bærilegt,
hann var fímmti upp úr blokkunum
og byrjaði frekar rólega. Síðari 30
metrarnir voru hins vegar betri og
hann náði 2. sæti á eftir Rússanum
Lev Lobodin. Jón hlaut tímann 6,90
sek., sem var þriðji besti tíminn sem
keppendurnir flmmtán náðu.
Lobodin var á 6,83 en Grikkinn
Korizizoglou var fótfráastur á tím-
anum 6,69. Jón var með 918 stig,
sem var á sama róli og á EM fyrir
tveimur árum er hann hljóp á 6,89.
„ÞAÐ var bara ein grein góð hjá
mér, það var stangarstökkið," sagði
Jón Arnar Magnússon. „Mér
mistókst í ýmsu og því fór sem fór.
Ég sætti mig ekkert við þetta, en
það þýðir ekki að gefast upp við
það.“
Hann segir að langstökkið hafí
tekið á taugarnar, eftir að hafa gert
ógilt í fyrstu tilraun og átt mis-
heppnaða atrennu í öðru stökki.
„Hástökkið hafði gengið vel og ég
felldi enga hæð fyrr en 2,02, þannig
að fram að því var ég að vonast til
þess að gera betur. Grindahlaupið
var síðan það annað besta á ferlin-
um ef litið er til tíma en tæknilega
Er hann setti íslandsmet sitt á HM
í París í fyrra, hljóp Jón á 6,85 sek.
og fékk 936 stig. Hann var því í
þriðja sæti eftir fyrstu grein.
Því næst snéru menn sér að lang-
stökkinu þar sem talsverðar vænt-
ingar voru um að nú myndi íslands-
methafinn loks sýna sitt rétta andlit
í langstökkskeppni í fjölþraut. En
það fór á annan veg. Fyrsta stökkið,
sem var langt, reyndist vera ógilt
og þá um leið voru taugai-nar famar
að titra, enda ekki leyft að stökkva
nema þrisvar sinnum. Allir tóku
keppendurnir því rólega í fyrstu
umferð og lengst stökk Lobodin,
7,35 m. Enn var atrennan eitthvað
að plaga Jón í öðru stökkinu því það
fór allt í vaskinn og mældist aðeins
6,48 m, eflaust eitthvað það stysta
sem hann hefur stokkið í keppni síð-
an á unglingsárum. Taugamar voru
því þandar til hins ýtrasta er að
þriðja og síðasta stökkinu kom, færi
það einnig í súginn var keppninni
svo að segja lokið hjá Jóni, a.m.k.
vonirnar um verðlaun. Ábúðarmikill
gekk Jón fram á sviðið til stökksins,
réri sér fram og til baka nokkrum
sinnum, lagði síðan í atrennuna og
stökkið tókst vel. Það mátti sjá mik-
inn létti í andliti Gísla Sigurðssonar
þjálfai'a er Jón lenti í sandinum,
þungu fargi var létt af honum og
Jóni. Stökkið var gott, miðað við að
um björgun var að ræða, 7,48 m og
þriðja lengsta stökkið í keppninni.
Dezso Szabo stökk tveimur senti-
metrum lengTa, en Sebastian
Chmara sýndi styrk sinn og stökk
7,65 m. Jón fékk 930 stig til viðbótar
og var annar með 1.848 stig, þrem-
ur stigum á eftir Grikkjanum fót-
fráa. Lobodin var síðan þriðji með
1.842 stig, en það var stutt í Tomas
var það slakt eins og kúluvarpið
sem mislukkaðist nú alveg.“
Hvað gerðist í þúsund metra
hlaupinu þegar þú dast?
„Ég hljóp fram fyrir menn, þá
steig einhver á hælinn á mér og ég
steinlá og einn steig á bakið mér.
Þetta var bakslag og einhver hluti
einbeitingarinnar fór út í veður og
vind við þetta skakkafall. Síðan hef
ég farið of geyst af stað og hljóp
fyrsta hringin1’ á 25 sekúndum til
þess að vinna upp þær fimm sek-
úndur sem fóru í súginn við fallið."
Þegar upp er staðið getur þú
vart verið sáttur við útkomuna
þrátt fyrir Norðurlandametið.
Dvorák heimsmeistara í tugþraut,
Ungverjann Szabo og Pólverjann
Chmara.
Kúluvarpið misheppnað
„Ég hafði búist við að hann stykki
tuttugu til þrjátíu sentimetrum
lengra í langstökkinu," sagði Gísli
þjálfari. „En þegar fyrsta stökkið
bregst vill alltaf koma upp hræðsla
við að gera ekki gilt og úr því sem
komið var held ég að stökkið hafi
verið góð björgun.“
Kúluvarpið hefur verið ágæt
grein hjá Jóni og hann verið örugg-
ur um að kasta 15,50 metra.
Snemma varð ljóst að hann yrði
helst að ná þeim árangri. Fyrsta
kastið var 15,19 m og gaf fyrirheit
um meira, þar sem margt hafði
mislukkað. En vonimar rættust
ekki, annað kastið var slakt, aðeins
14,73 m og þriðja lítið skárra og
ógilt. Ástæðan fyrir slökum árangri
„Ég er alls ekki sáttur þótt ég
geti hins vegar ekki verið óánægð-
ur með alla niðurstöðuna. Það er
helst stangarstökkið sem ég er
ánægður með og veitir mér sjálfs-
traust að geta verið með í þeirri
keppni á jafnréttisgrundvelli. En
ég er ósáttur við hvernig þrautin
gekk upp í heildina. Ég verð bara
að æfa meira og sýna þeim hvar
Davíð keypti ölið næst þegar við
mætumst."
Áttir þú von á að Sebastian
Chmara yrði jafn sterkur og raun
barvitni um?
„ANeg eins, hann hefur verið að
taka miklum framfórum og sjö-
var m.a. sú að hann náði ekki að
lyfta kúlunni nógu vel, hún fór lá-
rétt út í stað þess að fara í boga.
Þrátt fyrir vonbrigðin í kúluvarp-
inu tókst Jóni að halda þriðja sæt-
inu með 2.649 stig, sem var 105 stig-
um lægra en er hann setti íslands-
metið er hann varpaði kúlunni 16,27
m. Dvorák komst í fyrsta sætið,
varpaði kúlunni lengst 16,47 m, en
öll hans köst voru yfir 16 m. Dvorák
var með 2.707 stig og Lobodin hélt
öðru sætinu með 2.669. Chmara var
kominn í humátt á eftir Jóni með
2.645 stig, eftir að hafa varpað kúl-
unni 15,70 m. Lobodin varpaði 15,60
m.
í fjórðu og síðustu grein fyrri
dagsins stökk Jón aðeins 1,99 m og
átt tvær góðar tilraunir við 2,02 m
en felldi naumlega í bæði skiptin.
Hástökkið er mjög „dýrmæt" grein
líkt og stangarstökkið, hver senti-
metri gefur 10 stig. Jón og Gísli
þrautin virðist passa honum betur
en tugþraut, því hann er frekar
slakur í 1.500 m hlaupi, kringlu-
kasti og spjótkasti. Ánnars gat
hver sem var af okkur fimm efstu
hitt á þraut sem þessa sem Chmara
náði, sem sú er önnur besta sem
Evrópubúi hefur náð. Dvorák hefur
sennilega ekki verið sáttur við út-
komu sína.“
Þú stefndir á verðlaunasæti, ekki
satt?
„Ég lagði upp með það fyrir þús-
und metra hlaupið, en síðan var
vaðið yfir mig á skítugum skónum
og ég varð að gera mér fimmta sæt-
ið að góðu.“
þjálfari hans hafa unnið mikið í
stökkgreinunum í vetur og höfðu
báðir vonast til þess að sú vinna
myndi að einverju leyti skila sér að
þessu sinni, en sú varð ekki raunin
að þessu sinni í hástökkinu. Helstu
andstæðingar Jóns stukku svipað
og hann. Dvorák og Lobodin
komust einnig aðeins yfir 1,99 m en
Sebastian Chmara var hins vegar
með sýningu. Hann hristi af sér alla
keppendur og lét ekki deigan síga
fyrr en að hafa lyft sér yfir 2,17 m
og fá 963 stig, 169 stigum meira en
keppinautarnir. Þessi glæsilegi ár-
angur færði honum fyrsta sætið í
keppninni er annar dagur var að
baki, með 3.609 stig. Dvorák skrap-
aði saman 3.501 stig og var annar
og Lobodin þriðji með 3.463, 20
stigum meira en Jón sem hafði
3.443. Á HM í París stökk Jón 2,04
m í hástökki og lauk deginum með
3.594 stig og árið áður á EM í
Gautaborg voru stigin 3.575 að
loknum fyrri keppnisdegi.
„Það er ekkert launungarmál að
ég hefði viljað fá meira út úr þess-
um degi í þremur greinum, en
heppnin er ekki alltaf með okkur þó
hún hafi verið það stundum," sagði
Gísli þjálfari er hann og Jón voru að
búa sig undir að fara á hótel sitt til
hvíldar. „Kannski var röðin komin
að öðrum,“ bætti hann við.
Eins og vant er hófst síðari
keppnisdagurinn á 60 m grinda-
hlaupi, grein sem reyndist Jóni
óþægur ljár í þúfu á EM 1996. Nú
var hann í öðrum riðli með sterkari
keppendum. Eftir tvö þjófstört
héldu keppendurnir af stað loks við
þriðja hanagal. Viðbragðið var ekki
gott hjá Jóni og í raun leit svo út all-
an tímann að hann gæti betur. Jón
rak lestina í sínum riðli á 8,03 sek-
úndum, sem er 4 hundruðustu frá
Ég sætti mig ekkert við þetta