Morgunblaðið - 03.03.1998, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 03.03.1998, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 B 7 FRJÁLSÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/RAX JÓN ARNAR Magnússon tókst að gleðja sjálfan slg og aðra, hann stðkk 5,10 m, sem er 15 cm hærra en hann hefur áður gertf keppni í sjöþraut eða tugþraut. Hér er hann á lelðinnl yflr rána. Á litlu myndinnl sést þjálfari hans, Gfsli Sigurðsson, brosa. íslandsmetinu. í raun ekki slæmur árangur út frá því sjónarmiði, en flestir aðrir keppendur gerðu bara betur. Fyrir grindahlaupið fékk Jón 974 stig og var því samtals kominn með 4.417 stig. Var hann eftir sem áður í fjórða sæti, Lobodin var þriðji með 4.498 stig og hafði heldur skilið í milli þeirra frekar en hitt. Chmara var sem áður fyrstur með 4.595 stig og Dvorák annar, hafði 4.536. Ekki var útlitið bjart því næsta grein, stangarstökk, hefur aldrei verið sú grein sem Jón hefur unnið á kepp- endur sína í. Þvert á móti hefur stangarstökkið reynst honum Akki- lesarhæll. Skemmst er að minnast heimsmeistaramótsins í París í fyrra en slakur árangur gerði vonir um gullverðlaun að engu, von sem var fyllilega raunhæf ef... Akkilesarhælnum sparkað Þegar menn búast við litlu fá þeir oft meira, ellegar að árangurinn kemur meira á óvart, sú varð raunin er röðin kom að stangarstökkinu. Þar loks tókst Jóni að gleðja sjálfan sig og aðra, hann stökk 5,10 m, sem er 15 cm hærra en hann hefur áður gert í keppni í sjöþraut eða tug- þraut. „Þetta var eina greinin sem var góð og ég náði þeim árangri sem ég var að vonast eftir fyrir keppnina," sagði Jón. Jón byrjaði á 4,50 m og fór létt yfir, eins var með 4,70 og 4,80 og 4,90 lyfti hann sér yfir í annarri til- raun. Fimm metra slétta, 5,10 stökk hann yfir í þriðju tilraun. Þar með fékk Jón 941 stig, 31 stigi meira en Lobodín, sem stökk 5,00 m, og 122 stigum meira en Dvorák, er varð að gera sér að góðu 4,70 m. Jón var kominn upp í 3. sæti með 5.358 stig, en Dvorák og Szabo voru aðeins þremur stigum á eftir. Lobodin var eftir sem áður í öðru sæti, hafði 5.408 stig, og Chmara stefndi hrað- byri að nýju Evrópumeti, hafði smalað saman 5.567 stigum. Hann stökk yfir 5,20,10 cm lægra en Sza- bo. Rússinn Alexander Aberbuck fór hins vegar allra manna hæst, 5,60 m. Von um verðlaun Þegar ein grein var eftir var ijóst að fjórir voru í baráttunni um silfur og brons, Jón Amar, Lobodin, Dvr- orák og Szabo. Nokícrir klukkutím- ar liðu þar til röðin kom að 1.000 m hlaupi. Aldrei þessu vant voru allir íþróttamennimir þrettán látnir hlaupa í einu, og það átti eftir að draga dilk á eftir sér fyrir Jón. Til þess að eiga möguleika á silfri þurfti Jón að vera á undan Szabo og Dvorák og vera a.m.k. 5 sekúndum á undan Lobodin. Fjöldi keppenda í hlaupinu bauð hættunni heim að barist yrði um brautirnar strax í upphafi og það gerðist. Jón og Indrek Kaesorg lentu í árekstri og féllu strax við á fyrstu metrunum. M.a. hlupu tveir yfir Jón. Hann lét fallið ekki aftra sér heldur stóð á fætur og hijóp á fleygiferð í átt að hópnum og náði fljótlega 4. sæti og hélt því vel á undan Lobodin og Dvorák. Þegar 400 m voru eftir fór Jón að gefa eftir og síðustu 200 m voru erfiðir. Fór svo á síðustu 100 m að Dvorák, Szabo og Lobodín sigldu fram úr. Fallið og orkan sem fór í að ná hinum sagði til sín í lokin. „Ég get vel kennt fallinu um, og vissu- lega hefði verið gott að eiga orkuna í lokin í stað þess að eyða henni í upphafi, en við því er ekkert að segja,“ sagði Jón. „Þarna átti sér stað óhapp sem gat gerst og hver gat orðið fyrir sem tók þátt.“ Jón fékk tímann 2.45,65 mín., sem er annar besti árangur hans í 1.000 m hlaupi í sjöþraut. Niðurstaðan varð 5. sætið, sem var slæmt, en ljósu punktarnir voru stangarstökkið og Norðurlandamet- ið í samanlögðu, 6.170, 35 stigum hærra en gamla metið. En ljóst má vera að takist Jóni að virkja kraft- ana að fullu, getur hann náð enn lengra, spurningin er bara sú hvenær tekst það. Chmara vann, fékk 6.415 stig og var aðeins 3 stigum frá Evrópumeti Christian Plaziat, Frakklandi. Um leið setti Chmara pólskt met. Szabo varð annar með 6.249 stig, sem er ungverskt met, og Lobodin var þriðji, önglaði saman 6.226 stigum og bætti rússneska metið. Þó von- brigðin væru einhver hjá Jóni, voru aðal vonbrigðin hjá heimsmeistar- anum í tugþraut, Dvorák, hann hlaut 4. sætið, ætlaði sér gullið, en líkt og Jón fór hann tómhentur heim. Jón er i goðn æfingu „ÉG geri ekki lítið úr Norður- landametinu, en það er Ijóst að Jón þurfti að gera enn betur til þess að ná í verðlaun og við vonuðum að það tækist áður en keppnin byrjaði,“ sagði Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns Am- ars Magnússonar. „Við stefnd- um að því að ná framförum og halda þeim sess sem við höfum náð á undanfómum mótum, þ.e.a.s. verðlaunum, en það tókst ekki. Framfarimar era hjá öllum efstu mönnum nema Dvorák." Gísli segir að Jón hafi verið heppinn á stórmótum inn- anhúss á sl. áram og því hafi hann oft verið að geta betur en líkamlegt ástand sagði til um. „Hvað sem hver segir þá er Jón í góðri æfingu og það kom fram þótt ekki næðust öll þau mark: mið sem við settum okkur. í vetur höfum við mikið verið að vinna í stökkgreinunum. Hvorki langstökkið né hástökk- ið skiluðu því sem við vorum að vonast eftir, en stangarstökkið gerði það svo sannarlega og segja má að metið og stangar- stökkið séu ljósu punktamir. En Jón er í góðri æfingu, það sá hver sem vildi um helgina." Gísli sagðist hafa viljað sjá Jón leggja harðar að sér í 1.000 m hlaupinu en raun var á. „Við fallið virtist hann missa taktinn og einbeitinguna. Fyrstu 400 til 500 metramir voru í lagi en síð- an tók að draga af honum.“ Vonbrigðin voru langstökkið og hástökkið, að mati Gísla. „Ég hefði viljað sjá hann fara 30 til 35 cm lengra í langstökk- inu og yfir 2,02 til 2,05 í há- stökki, en því miður varð það ekki. En við höldum okkar striki við óbreyttar æfingar. Jón verður að bæta sig í lang- stökki, hástökki og stangar- stökki, framhjá þeirri stað- reynd verður ekki horft, en það tekur tíma og getur tekið á þol- inmæðina." Gísli segir ennfremur að þetta verði notað til þess að breyta áherslum í æfingum og er þá verið að hugsa til framtíð- ar. Meira af ýmiss konar hoppæfingum. Verði ekki árið í ár notað verði það ekki gert fyrir Ólympíuleikana í Sydney, það vinnist einfaldlega ekki tími þess. En allar framfarir taka tíma. „Það hefur komið skýrt fram í samtölum manna við mig að þeir eru óánægðir með í hvernig æfmgu Jón er, en ég er ekki sammála. Hann er í góðri æfingu, það sjá þeir sem það sjá, en vissulega hlusta ég á alla komi þeir fram með rök fyrir öðru og nú er tími til þess að loknu þessu stórmóti." Gísli sagðist ennfremur ekki reikna með þvi að breyta æfingaáætl- un ársins, eftir þetta.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.