Morgunblaðið - 03.03.1998, Síða 16
Níu þúsund keilur féllu
að lokum munaði einni
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
KAMPAKÁTIR íslandsmeistarar, Elín Óskarsdóttir og Ásgeir Þór Þórðarson. Elín var að vinna l'slands-
meistaratitilinn í sjötta sinn og Ásgeir Þór í annað sinn.
ÞRÁTT fyrir að hver keilari
hefði skotið niður um 9.000
keilur á íslandsmótinu í keilu,
sem iauk í Keilunni í Mjóddinni
á laugardaginn, kom það fyrir
lítið því úrslit réðust á einni
keilu í kvennaflokki og þremur
í karlaflokki. Þar varði Elín
Óskarsdóttir úr KFR titil sinn í
kvennaflokki en Ásgeir Þór
Þórðarson úr ÍR endurheimti
sinn titil eftir árs bið.
Keppnisfyrirkomulagið er þannig
að spilað er á þremur mótum á
sitthvorum keilustaðnum og að lok-
■■■■■■I um verða þrír stiga-
Stefán hæstu keilarar eftir í
Stefánsson úrslitum. Þar situr
sknfar ,
stigahæsti keppand-
inn hjá en hinir tveir
bítast um að takast á við hann og er
þá spiluð tvöfóld umferð. Að þessu
sinni hófu 54 karlar þátttöku og 20
konur.
í karlaflokki var Ásgeir Þór
stigahæstur svo að Bjöm Birgisson
og Steinþór Geirdal Jóhannsson
börðust um að fá að eiga við hann.
Þar hafði Bjöm sigur með 191 stigi
á móti 179 Steinþórs en jafnt var
fram að níunda ramma. Úrslitaleik-
urinn var mjög jafn og þegar Bjöm
hafði skotið sínu síðasta skoti hafði
hann 442 stig - þaraf felldi hann sjö
keilur í síðasta skotinu. Asgeirs
Þórs beið því ekkert annað en að ná
fellum - öllum keilunum í fyrsta
skoti - í öllum skotum og það gerði
hann með fjórum fellum í röð, sem
gaf honum þegar upp var staðið
samtals 445 stig.
Kvenfólkið bauð uppá enn meiri
spennu. Islandsmeistarinn Elín,
sem kosinn var keilari ársins í fyrra
og hefur oftast hampað íslands-
meistarabikamum, hafði öragga
•w 9? ^/^999
FOLK
■ ÓLAFÍA Sigurbjömsdóttir úr
KFR sigraði 1. flokk kvenna á ís-
landsmótinu í keilu um helgina og var
með yfir 200 stig að meðaltali, sem er
mjög gott. Ólafíá, sem er á sextugs-
aldri, er mikil keppnismanneskja og
spilaði golf áður fyrr en tók sér hvfld
frá öllum íþróttum fyrir tveimur ár-
um. Nú er hún komin á ról á ný og
sagði: „Ég get bara ekki hætt.“
■ STEINÞÓR GEIRDAL Jóhanns-
son frá Keflavík hlaut brons í meist-
araflokki en hann er aðeins 17 ára og
á því framtíðina fyrir sér. Steinþór á
þrjú íslandsmet í 1. flokki pilta, 859 í
fjórum leikjum, 1.050 í fimm og 1.263
í sex leikjum.
■ MEIRA hékk á spýtunni í meistara-
1 flokkunum en bara íslandsmeistara-
titillinn því sigurvegarar fara í boði
Keilusambandsins á Evrópubikarmót
einstaklinga, sem fram fer í Kaup-
mannahöfn í haust.
■ JÓN HELGI Bragason, íslands-
meistari á síðasta ári, komst ekki í úr-
slitin.
forystu í úrslitum svo að hún sat hjá
og horfði á Jónu Gunnarsdóttur
hafa 224:212 sigur á Sólveigu Guð-
mundsdóttur á síðasta ramma. Úr-
slitaleikurinn var afar spennandi og
þegar kom að tíunda ramma höfðu
Elín og Jóna báðar 333 stig. Jóna
lék fyrst, fékk fellu en síðan 19 stig
úr næstu skotum. Elín þurfti því að
fá 20 stig og hún náði fellu í fyrsta
skoti, síðan níu keilum úr næsta svo
að hún var búin að jafna en ein keila
og eitt skot eftir. Þar brást Elínu
ekld bogalistin, hún hitti keiluna og
tryggði sér íslandsmeistaratitilinn.
Þrefalt
hjá Norð-
mönnum
Kristinn og Arnór
fóru báðir út úr í fyrri
umferð
Norðmenn stálu senunni í svigi
heimsbikarsins sem fram fór í
Yong Pyong í Suður-Kóreu á sunnu-
dag. Þeir áttu menn í þremur efstu
sætum og silfurhafinn frá ólympíu-
leikunum, Ole Christian Furaseth,
þar fremstur í flokki. Kristinn
Bjömsson og Amór Gunnarsson vora
meðal keppenda en fóru báðir út úr í
fyrri umferð.
Fyrir svigið á sunnudag hafði
Furaseth ekki unnið heimsbikannót í
tæp þrjú ár og margir á því að hann
væri á niðurleið og ætti ekki eftir að
standa á efsta þrepi framar. En þessi
31 árs skíðamaður sýndi að hann á
mikið eftir enn. Hann náði langbesta
tímanum í fyiTÍ umferð og þurfti að-
eins níunda besta tímann í síðari um-
ferðinni til að tryggja sér gullið. „Það
hefur alltaf gengið vel hjá mér í Aust-
urlöndum. Eg vann fyrsta heimsbik-
armótið mitt í Japan og síðan silfur-
verðlaun á ÓL í Naganó. Ég átti þó
ekki von á sigri. Ég er kominn með
heimþrá eftir svona langa vera hér í
austrinu og það var kannski þess
vegna sem ég fór svona hratt - vildi
komast fyrr heim,“ sagði Furuseth.
Finn Christian Jagge var annar og
heimsmeistarinn í svigi, Tom Stian-
sen, þriðji og komst þar með í fyrsta
sinn á verðlaunapall frá því hann varð
heimsmeistari í Sestriere í fyrra.
Ólympíumeistarinn ungi, Hans-Pettr
er Buraas, fór aðeins þrjú hlið í fyrri
umferð og þar með er möguleiki hans
um að vinna svigbikarinn úr sögunni.
Nú þegar aðeins eitt svigmót er eftir
er ljóst að það verður annað hvort
Thomas Stangassinger eða Thomas
Sykora sem vinnur svigbikarinn. Það
munar aðeins 12 stigum á þeim félög-
um. „Eg var nokkuð taugaóstyrkur
því ekkert má út af bera ef ég ætla að
ná markmiðinu, að vinna svigbikar-
inn,“ sagði Stangassinger.
Einvígi Maiers og Von Griinig-
ens um stórsvigsbikarinn
Svisslendingurinn Michael Von
Grunigen sigraði í stórsvigi heims-
bikarsins í Yong Pyong í Suður-
Kóreu á laugardag og skaut þar m.a.
Christian Mayer og ólympíumeistar-
anum Hermanni Maier aftur fyrir
sig. Þetta var þriðji sigur Svisslend-
ingsins í vetur.
Von Griinigen var með næstbesta
tímann eftir fyrri umferð, en fór síð-
ari umferðina mjög vel þó svo að að-
stæður hafi verið erfíðar - vindur og
þoka. „Það hefur verið mikið rætt um
góða tækni Hermanns Maier og ann-
arra í austurríska liðinu, en nú var
það ég sem hafði betur. Markmiðið
var að sýna og sanna að ég gæti unnið
með minni aðferð. Ég hef allt annan
stfl en Austurrfldsmennimir og nú
var það minn stfll sem hentaði betur,“
sagði Von Granigen, sem vann þar
með 14. heimsbikarmótið á ferlinum.
Nú þegar aðeins eitt stórsvig er
eftir í heimsbikamum eru aðeins
tveir sem geta unnið stórsvigsbikar-
inn, Von Grunigen og Hermann Mai-
er, sem er nánast búinn að tryggja
sér sigur í heildarstigakeppninni. „Eg
held að það nái mér enginn úr þessu,“
sagði Maier.
Ertl fékk uppreisn æru
Þýska stúlkan Maitina Ertl sigraði
í svigi kvenna í heimsbikamum sem
fram fór í Hinterglemm í Austurrfld á
sunnudag. Hún fékk þar með upp-
reisn æra eftir að hafa lent í flórða
sæti bæði í svigi og stórsvigi á Ólymp-
íuleikunum í Nagano í síðasta mánuði.
Þetta var 12. sigur hennar í heimsbik-
amum. Trine Bakka frá Noregi, sem
var með besta brautartímann í fyrri
umferð, varð önnur og Kristina Kozn-
ick frá Bandaríkjunum þriðja.
Einn erfiðasti
úrslitaleikurinn
„ÞETTA var einn af erfiðustu úr-
slitaleikjum sem ég hef spilað því
ég var alltaf á eftir en náði að
hafa sigur á síðasta skotinu. Það
má segja að reynslan hafi spilað
inní því ég hef verið í keilunni í
tíu ár og svo sem lent í þessari
stöðu áður en það þarf líka til
þrotlausar æfingar," sagði Ásgeir
Þór Þórðarson íslandsmeistari
eftir mótið en hann vann einnig
fyrir tveimur áram. „Þá lenti ég í
svipaðri stöðu, vann með einum
pinna og þar sem þeir vora þrír
núna má segja að þetta sé allt á
uppleið hjá mér. Annars var
þetta mjög erfitt mót. Það var
spilað í þremur sölum, sem þýðir
þrenns konar aðstæður og ég er
því sáttur við ágætt meðaltal hjá
mér.“
Tekur
á taugarnar
Svona mót tekur á taugarnar og
það þarf að vera í góðri spilaæf-
ingu og hafa kollinn í lagi. Samt
held ég að ástæðan fyrir því að
við Björn komumst í úrslit sé að
fyrir rúmum hálfum mánuði vor-
um við í viku á æfingum hjá
Svía, sem reyndar er landsliðs-
þjálfari núna, og þar lærðum við
mikið.“
„Þó að ég hafi unnið þennan
titil sjö sinnum undanfarin tíu ár
verð ég að segja að þetta hafi
verið einn erfíðasti úrslitaleikur-
inn,“ sagði Elín Óskarsdóttir,
sem varði íslandsmeistaratitil
sinn í meistaraflokki kvenna.
„Mótið var samt ekki erfitt því ég
var alltaf vel á undan keppinaut-
um mínum. Ég vissi alltaf hvar
ég var stödd í röðinni svo að það
má segja að ég hafi beðið eftir úr-
slitaleiknum en þá fór líka stress-
ið að segja til sín.“
ENGLAND: 111 2X2 1X1 X111 ÍTALÍA: 1 2 1 1 1X 1X2 2XX1