Morgunblaðið - 06.03.1998, Side 1

Morgunblaðið - 06.03.1998, Side 1
LÍFSHÁTTUM/4 ■ MEÐ AUGUM LANDANS/7 ■ ERNA KOMIN HEIM FRÁ SVISS/7 inn burt ukinn senn liðin tíð? ■ HVER HEFUR SÍNA LUND AÐ LAGA/2 ■ 1968-1998 LEITIN AÐ NÝJUM ■ FIÐRILDI SEM NAFNSPJALD/7 ■ FORGANGSRÖÐUN Á BIÐLISTUM/8 ■ UNGT fólk á árunum í kring- um 1968 var í byltingarhug og farið var í mótmælagöngur gegn siðum og venjum. Frið- ur, ást og hamingja voru lyk- ilorðin. Á bls. 4 og 5 í Daglegu h'fi í dag eru reifaðir gamlir tímar og ungt fólk í dag spurt álits á hvað hafi áunnist. TANNVIÐGERÐIR EF þú brosir framan í heiminn, brosir heimurinn framan í þig,“ segir „næstum“ orðrétt í valin- kunnum texta eftir Megas. Nú er sannarlega ástæða til að brosa, það er komin fram ný aðferð til þess að gera við tennur í fólki án þess að það þurfi að bora í tennur þess. Það eru Svíar sem eiga heiðurinn af þessari aðferð, en upphafsins er að leita í Bandaríkjunum. Sérstakt gel, Carisolv, er borið á tennurnar og það leysir upp skemmda vefinn í tönnunum svo hægt er að skafa hann burtu, aðferðin er oftast sárs- aukalaus en ekki alveg einhlít, stundum þarf að nota borinn ef skemmdin er illa staðsett. Þessi nýja aðferð var kynnt í Sví- þjóð og hægt er að nota hana bæði á fullorðins- og bamatennur, en sennilega verður hún notuð mest við tannviðgerðir á bömum og ung- lingum og eins segja framleiðendur að þessi aðferð gæti komið sér mjög vel í vanþróuðum löndum þar sem tannviðgerðartæki em af skomum skammti. Fréttir um þetta nýja tannviðgerðagel komu fram íýrir um einu ári, framleiðslan átti að vera leyndarmál en einn af sjúkhng- unum sem gelið var reynt á sagði frá tilraununum. Fyrst átti fólk bágt með að trúa þessum fréttum en í ljós kom að þær vom sannar. Hópur fagmanna frá háskólunum í Gautaborg, Stokkhólmi og Málmey og tækniháskóla í Gautaborg hefur þróað gelið og nú getur hver sem er fengið slíka meðferð og hún er ekki dýrari en þær gömlu, segir í grein sænska blaðsins Expressen frá september sl. Samkvæmt upplýsingum Daglegs lífs kosta túpurnar tvær, hverra innihald gelið er blandað úr, um fimmtán hundrað íslenskar krónur, en hver blanda dugar á eina tönn. Rannsóknir á tvö hundrað sjúkling- í TÚPUNUM tveimur eru efnin sem blandað er saman svo úr verður gelið Carisolv. Dropi af efninu er settur ofan í skemmdu tönnina og gelið leysir svo upp hinn skemmda tannvef. Skemmdin er því næst skafin burtu og fylling sett í. um hafa sýnt að meðferðin dugar í öllum tilvikum. í umræddri grein segir að skemmdin sé skafin var- lega burt, uppleyst í gelinu, og svo lengi sem skemmdur vefur finnst er geldropinn borinn á og látinn vinna á skemmdinni og skafinn af og þannig koll af kolli. Heilbrigður tannvefur skaðast hins vegar ekki neitt þótt gelið sé borið á hann. Engar þekktar hliðarverkanir era af þessari meðferð. Minni blæðingar og fjárfestingar Carisolv samanstendur af m.a. natriumhypoklorit og aminosýrum. Notkun þess er sögð hafa ýmsa kosti, svo sem að heilbrigður tann- vefur skaðast ekki og mun sjaldnar þarf að nota bor við tannviðgerðir eins og íyrr sagði, minna fer af tönn- unum við svona viðgerð heldur en þegar borað er og þess vegna verða fyllingamar mun minni. Blæðingar verða minni úr tannholdi, og aðferð- in krefst ekki mikilla fjárfestinga í t.d. vélum. Enn sem komið er vilja framleiðendur, Medi Team, ekki selja gelið úr landi, heldur hafa feng- ið nemendur viða að sem haft hafa áhuga á að kynna sér og nota þessa aðferð, sem mun vera mjög auðveld í framkvæmd. Þetta á að breytast árið 1999, þá á að taka til við að selja Carisolv utan Svíþjóðar. fslenskur tannlaeknir sótti námskeið í meðferð gelsins Daglegu lífi er kunnugt um að einn íslenskur kventannlæknir sótti námskeið i meðferð gelsins Carisolv í janúar. Þar sem hún vildi ekki tjá sig um málið undir nafni vegna ákvæða í lögum tannlæknafélags- ins, var leitað til til Sigfúsar Þórs Elíassonar prófessors við Tann- læknadeild Háskóla íslands sem kvað Carisolv ekki vera neitt nýtt, „Þetta á kannski framtíð fyrir sér en er ekki komið á það stig að hægt sé að nota það i almennum tann- lækningum nema að takmörkuðu leyti, þetta fjarlægir ekki fyllingar t.d. þá þarf að bora.“ Upphaflega byrjuðu Bandaríkja- menn á að nota svipað efni og Carisolv í tengslum við vél eina mikla, til þess að leysa upp skemmdir í tannrótum, aðferðin var nefnd Caritex. Vélin var hins vegar svo þung í vöfum að notkun hennar var hætt. Svíarnir tóku hugmyndina og þróuðu Carisolv, sem inniheldur m.a. fleiri aminósýr- ur og meira af natriumhypoklorit, og hafa nú fengið einkaleyfi á fram- leiðslu þessa efnis. Carisolv hefur þegar verið kynnt í Þýskalandi, Bretlandi og mörgum fleiri löndum og vakið mikla athygli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.