Morgunblaðið - 13.03.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.03.1998, Qupperneq 2
2 B FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Ljósmynd/Magnús Ólafsson. Þjóðmiiyasafn íslands Kuldinn ekki til vandræða VETRINUM 1918 eyddi Guðmund- ur Jónsson, þá 16 ára, í Hólaskóla í Skagafírði og lagði stund á búnað- arfræði en hann fæddist árið 1902 á bænum Torfalæk rétt hjá Blönduósi. „Það gat verið nokkuð kalt hjá okkur piltunum í skólan- um en ekki þó til neinna vandræða enda höfðum við gott húsaskjól," segir Guðmundur sem lengi var skólastjóri Bændaskólans á Hvann- eyri en dvelur nú á Hrafnistu í Hafnarfirði. Erfiðast við frosthörkurnar fannst Guðmundi að ferðast milli byggðarlaga en reglulega fór hann til Sigluljarðar, meðal ann- ars á skemmtanir, og nokkrum Daglegt líf í sveitinni segir hann hafa gengið sinn vanagang þennan vetur, fólk var lítið kvartandi og kveinandi heldur gerði einfaldlega það besta úr hlutunum. Norðurljósin aldrei fallegri „NORÐURLJÓSIN sem menn lesa um í kvæðum voru öll á himninum fyrir norðan frostaveturinn 1918,“ segir Arni Krisljánsson tónskáld og fær glampa í augun. Stillan var svo falleg og ljósin að slíkt hef ég aldrei séð hvorki fyrr né síðar.“ Ámi dvelur nú á Landakoti en hann fæddist árið 1906 á Akureyri og man vel eftir kuldanum 1918. „Þennan vetur lagði sjóinn í Eyja- firði, allt út að Hrisey. Skipin fóru MIKLI janúar 1918. Menn að höggva árangurs lítið í ísinn milli skipa og vélbáta. lifði þessa köldu tíma. FROSTAVETURINN 1918: Hvítábimir ganga á land- margir drepnir," segir í fyrirsögn í Öldinni okkar frá árinu 1918. „Gífurlegar frosthörkur," segir þar ennfremur, „meiri en elztu menn muna, í janú- ar var flesta daga yfir 20 stiga frost í Reykjavík, 28 stig á ísafirði, 33,5 á Akureyri og 36 á Grímsstöð- um. Innfirðir allir eru nú lagðir ísi. Allur Kollafjörður er ein íshella og gengt er til Engeyjar og Viðeyjar... ...A Reykjavíkurhöfn er ís orðinn svo þykkur, að skip verða naumast söguð eða höggvin úr höfninni.“ Heldur eru þetta hráslagalegar lýsingar enda líklega einsdæmi í Islandssögunni -eða skyldi kulda- kastið undanfama daga eiga eitt- hvað sameiginlegt við vetrarhörk- umar fyrir 80 árum. Er kannski von á ísbjömum? Ekki er það nú svo að mati Trausta Jónssonar veð- urfræðings. „Veturair tveir eru gjörólíkir, að því leyti meðal ann- ars að haustið 1917 var mjög kalt en haustið 1997 var með mildara móti. Kuldarnir undanfarið eru líka smámunir samanborið við fyrstu mánuði ársins 1918. Frostið fór þá. mest í 38 stig fyrir norðan á Gríms- stöðum á Fjöllum og í Möðrudal og hefur það met ekki enn verið sleg- ið.“ Kuldi stanslaust í 3 vikur Veðurósköpin hófust strax í byrjun janúar þegar hafís lagði að landi sem hafði í för með sér kulda- kast sem stóð linnulítið í um 3 vik- ur sunnanlands en lengur fyrir norðan. Frostinu fylgdi hvassviðri til að byrja með og gerði tvisvar mjög vond veður, að sögn Trausta en síðan lygndi. Norðanlands þessa daga var hins vegar blindbylur til að byrja með en síðustu daga janú- armánaðar var veður bjart og lyngt. I kjölfarið kom fremur kald- ur febrúarmánuður og mjög um- hleypingasamur. Mars var örlítið hlýrri en í meðalári en síðan gerði kuldakast sem stóð langt fram í maí. Kola- og vatnsskortur Vetrarharðindin vom mörgum afar þung í skauti. Eldiviðarskort- ur var víða um land, kolabirgðir að mestu þrotnar þar sem heimsstyrj- öldin fyrri geisaði og samgöngur vora erfiðar. Auk þess var vatns- skortur algengur en vatnspípur og leiðslur í húsum sprangu í fjölda tilfella vegna frostanna. „Víða um bæinn var krökt af fólki með fötur og bala að sækja vatn til ann- arra...Um tuttugasta janúar sagði einn húsráðandi, að í hús sitt hefði verið látlaus straumur í 3 sólar- hringa frá morgni fram á rauða nótt,“ kemur fram í bókinni Arin sem aldrei gleymast. Island og fyrri heimsstyijöldin. Sífelldir kuldar í margar vikur höfðu í för með sér atvinnuleysi og matarskortur var víða. Á ísafirði þörfnuðust um 1.000 manns opin- berrar aðstoðar sem var um það bil helmingur bæjarbúa. í Reykjavík var einnig atvinnuleysi og matar- skortur og úthlutað var máltíðum til fátækra. Þá var skólum lokað, Kuldabí beit fastar þá en nú Frost og funi, flensa og fullveldi ein kenndu söguríkt árið 1918. Isbirnir gengu á land og selir fengu lungnabólgu. Hrönn Marinósddttir blaðaði í sögubók- um, ræddi við veðurfræðing og fólk sem Nýkomið ítalskt fleece Gæðaefhi Litir: Rautt, dökkblátt, svart, gult, hermannagrænt og beinhvítt. Smásöluverð 1.195 kr. metrinn. UÖ-búðirnar sinnum á ári fór hann í heimsókn til foreldra og systkina að Torfa- læk, meðal annars fyrir jólin, um vor og um haust. Yfirleitt fór Guð- mundur fótgangandi en þess á milli ríðandi. Fótgangandi fór hann aldrei einsamall heldur alla jafna við þriðja mann og segir hann það hafa tekið 3-4 daga að komast á tveimur jafnfljótum að Blönduósi með næturviðkomu á Siglufirði og á fleiri stöðum eftir hentugleika. „Þótt kalt hafi verið í veðri létum við það ekki aftra okk- ur frá heimahögum, heldur fórum yfir fjöll og firnindi." Skólapiltarnir létu frostið held- ur ekki spilla fyrir útileikjunum; fótbolti, skíði og skautar voru vin- sæl dægrastytting á Hólum. Guð- mundur viðurkennir þó að oft hafi verið erfitt að læra í kuldanum. Eg lét það ekki á mig fá og sama gerðu hinir. Við reyndum bara að búa okkur sem allra best.“ því að Salteyri og þaðan voru flutt- ar vörur til Akureyrar," rifjar hann upp. Fyrir drengi var veturinn Iíka ævintýraheimur. „Hægt var að fara yfir fjörðinn fótgangandi og veiða úr vök á ísnum, sumir fóru yfir með segl á bakinu, létu sig reka yfir Eyjafjörðinn. Aðrir fóru í jaka- hlaup, hoppuðu á milli ísjaka, marg- ir urðu meistarar en aðrir næstum drukknuðu. Stundum var líka snjó- koma og þá snjóaði upp á efstu hæðir. Eg man að mamma vafði treflinum svo um háls minn að ég varla sá út. Túnamir voru Iíka öðruvísi að öllu leyti sé miðað við nútímann; engir bflar, bara hestvagnar og engin götuljós.“ Arni man einnig eftir miklum eldiviðarskorti og segir menn hafa notast við mó eða torf til að brenna í húsum en erfitt var að fá kol á stríðsárunum. Við sérstök tækifæri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.