Morgunblaðið - 13.03.1998, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.03.1998, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1998 B 3 DAGLEGT LÍF voru þó einnig notuð svokölluð Tjörneskol sem ungir menn á Akur- eyri sóttu og síðan seldu. Þetta voru framfaratímar að mörgn leyti, að mati Árna. „Venju- lega er það nú þannig að neyðin skapar líf. Menn voru að uppgötva ýmislegt og fínna upp sjálfir sem þeir annars hefðu ekki gert. Já, þetta var fjörugt líf.“ Svaf með húfa og vettlinga í MÍNUM huga er minnisstæðast stafalognið og að sjóinn lagði svo langt, að fólk gat gengið að Engey. Ég hætti mér þó aldrei út á ísinn en bjó samt ekki langt frá,“ segir Klara Bramm sem var á þrettánda ári þennan vetur og bjó á Lindar- götu 7. „Svo man ég ekki eftir nein- um með kvef í nös enda var maður í prjónuðum ullarfötum, leistum og hvað eina. Þegar farið var að sofa klæddi maður sig í rúmið, setti upp vettlinga og húfu. Enginn hiti var í herberginu minu en ennþá á ég kolaofn sem keyptur var árið 1918 og var hafður inni f stofu.“ Klara fæddist á ísafirði en hefur verið búsett í Reykjavík undanfarin áttatíu ár. I sama húsinu á Skóla- vörðustíg hefur hún haft heimili frá því húsið var byggt árið 1936. Hún sýnir Ijósmyndir af öllum bömunum og barnabörnunum og rifjar upp að eitt sinn var hún á leið í Barnaskól- ann um frostaveturinn. Þegar út var komið fannst henni heitt í veðri og kallaði því á mömmu sma sem skoðaði hitamælinn og sá að það var 16 gráðu frost! í minningu Klöru var fremur dauft yfir Reykjavík þennan vetur og flest böm héldu sig sem mest inni, fyrst vegna kuldanna og svo um haustið var það spánska veikin sem heijaði og lagði fjölda manns í rúmið. Flestir lágu í húsinu hennar Klöm og sjálf varð hún mjög veik. „Þetta var Ijóta ástandið. Ég fékk flensuna og fleiri á heimilinu en móðir mín slapp. Veikin lýsti sér með miklum hita, ég man að mamma var að búa til súpu og sendi í næstu hús. Ég fann fyrir þreytu og var mæld með 39,6 stiga hita. Um tíma var ég meðvitundarlaus og svo gat ég ekki talað. Læknar vom mik- ið á fartinni og náð var i einn af götunni handa mér. Eftir nokkum tíma rénaði sóttin og við tók betri tíð. Ég var þó aldrei hrædd við að deyja heldur bara forvitin." Klöm rekur einnig minni til Kötlugossins í október, hún man vel eftir stómm strók í fjarska og mcrguninn eftir var sporrækt í Reykjavík. / Ovart sett í tossabekk „ER HESTUR hófdýr eða klauf- dýr,“ spurði skólastjórinn. „Ég sagði klaufdýr og var sett í tossa- bekk. Eftir nokkra daga sagði kennarinn við skólasfjórann: „Hún á ekki heima í þessum bekk. Hún er allæs.“ Siðan fermdist ég um vor- ið.“ Þórann Kolfinna Ólafsdóttir er kát og skemmtileg og ekki var hún í nokkmm vandræðum með að rifja upp veturinn 1918, árið sem hún fermdist og var óvart sett í tossa- bekk. „Ótal margt kom upp í hug- ann. „Þetta var mjög viðburðaríkt ár. ísland fijálst og fullvalda meira að segja.“ Þórunn Kolfinna er nú vistmaður á dvalarheimili á vegum Reykjavík- urborgar og lætur fara vel um sig þar. Hún ólst upp í Hafnarfirði ásamt fjórum bræðrum en faðir hennar var trésmiður. „Við bjugg- um fremur þröngt í timburhúsi á Vesturgötu 28. Eg man afskaplega vel eftir þessum vetri, þá fór ég gangandi til Reykjavíkur í logni og um 25 stiga frosti. Konurnar sem vora með mér voru í peysufötum og með slegið þykkt sjal og á sauð- skinnsskóm. Þegar komið var á Skólavörðuholtið setti ég í mig hár- borða eins og vanalega og fór í betri skó. Maður vildi gera sig fín- an fyrir Reykjavík. Það var kalt og buxur vora ekki komnar í móð og stundum var svo hvasst að pilsin fuku upp fyrir haus. Sjóinn lagði við höfnina í Hafnarfirði og ísinn var mannheld- ur en ekki hætti ég mér nú út á hann.“ f 34 ár var Þórunn Kolfinna búð- arkona í Verslun Kristínar Sigurð- ardóttur sem seldi pelsa, kápur og vefnaðarvörur sem hefðu sjálfsagt komið að gagni í mestu kuldunum 1918 en verslunin var ekki opnuð fyrr en nokkrum árum síðar. Þór- unn Kolfinna man að faðir hennar keypti kol fyrir 300 krónur tonnið sem var mikið fé. Kolin vora því spöruð mikið og drýgð með mó en aldrei man hún eftir að kvartað hafi verið undan kulda. Jafnvel fá- tækt fólk vai' ekki með barlóm. „í dag er fólk í fullri vinnu og við góða heilsu en samt síkvartandi, Auk þess sem sjaldan er vetur nú til dags fyrr en um jól, í það minnsta hér í Reykjavík." Þórann minnist einnig spönsku veikinnar þótt hún hafi lítið borist til Hafnarfjarðar. Mágur hennar var Helgi Helgason líkkistusmiður í Reykjavík og hafði hann nóg fyrir stafni, jarðarfarir á hverjum degi og oft heilu fjölskyldurnar. Barnaskólinn í Reykjavík var lok- aður í heila viku vegna kuldanna og messur féllu niður. I Öldinni okkar er svo frétt þess efnis að í ágúst þetta árið hafi sehr drepist úr lungnabólgu m.a. 20 á einni viku í Ófeigsfirði. „Séra Jón Brandsson sá einn sel drepast. Kom hann syndandi inn af skeri og inn að Kollafjarðamesi. Hóstaði hann þá ákaft og þunglega á sund- inu þar til hann drapst.“ Isbimir fylgu hafísnum og gengu þeir víða á land og nokkur bjarndýr voru lögð að velli. í Reykjavíkurblaði mátti sjá auglýsingu: „Bjamdýrs- feldur, fallegur og ógallaður, af ný- skotnu dýri, fremur stóra, með höfuðleðri og hauskúpu til sölu. Þeir sem kynnu að vilja kaupa feld- inn, sendi hæsta tilboð sitt í lokuðu umslagi, merkt: „Bangsi.“ I harðindunum féll einnig fugl í umvörpun og kreppti mjög að hvöl- um, sáust þeir í vökum bæði í Húnaflóa og Eyjafirði. Um sumarið kom í ljós að jörð var mjög spillt af frostunum og klaki var lengi í jörðu. Tún kól svo mikið og víða, að talið var að þriðj- ungur þeirra væri ónýtur. Spretta var því afar slæm og fékkst víða ekki nema tíundi hluti af töðu mið- að við meðallag. Ekki öll sagan sögð Þar með er þó ekki öll sagan sögð. Arið er talið eitt af þeim söguríkustu þessarar aldar og ekki að ósekju. Um haustið gaus Katla hressilega í þrettánda sinn eftir 58 ára þögn með þeim afleiðingum að bæir og jarðir eyðilögðust og fén- aður fórst. Grasbrestur frá því í kuldatíðinni kom hvað verst niður á bændum sunnanlands og í októ- ber fengu þeir yfir sig öskuna úr Kötlu. Gosið var því til að bæta gráu ofan á svart. Fyrri hluta nóvembermánaðar reið svo yfir einn mesti hörmung- artími sem yfir Reykjavík hefur gengið; spánska veikin, skæður in- flúensufaraldur sem lagði fjölda manns í gröfina, um 260 manns í Reykjavík að því að talið er. Þegar mest lét var einungis um þriðjung- ur bæjarbúa á fótum. Drepsóttin herjaði aðallega í Reykjavík en breiddist þó út til næstu byggða- laga. ísland frjálst í lok ársins, þann 1. desember var nýr sáttmáli gerður milli ís- lands og Danmerkur og sambands- lögin gengu í gildi. Endir var bund- inn á hörmungamar í bili og ísland varð fjálst og fullvalda ríki. HORNBAÐKÖR Mótuð úr akrýli, níðsterk, hita- og efhaþolin og auðveld að þrífa. Fást með eða án nuddkerfa Verð frá kr. 59.313 Ennfremur sturtubotnsbaðker frá kr. 36.000 TreQar ehf. Hjallahrauni 2, Hafn. S: 555 1027 Heimasba www.ttn.is/trefjar li^ElSE) Með því að nota TREND naglanæringuna færðu þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo þær hvorlti klofna né brotna. jjkjT [SH TREND handáburðurinn með Duo-liposomes. Ný tækni í framleiðslu —■: :gBBM .....BM® teygjanlegri, þéttari húð. Sérstaklega græðandi. EINSTÖK GÆÐAVARA Fást i apóteltum otj • I snyrlivöruverslunum um land allt. Ath. naglalökk frá Trend fást í tveimur stærðum ST7í Wboð VlvW Otsein Uppþvottavél kr. 42.900 stgr. • Tekur borðbúnað eftir 12 manns • 4 þvottakerfi • 2 hitastillingar 55/65° • Sparnaðarstilling • Tvöfalt flæðiöryggi • Sjálfhreinsandi örsía • Þrefalt aðalsigti úr rústfríu stóli • Mjög hljóðlát • Stillanleg efri grind • Vatnsnotkun 22 lítrar • Rafmagnsnotkun l,6 kW/klst. VERSLUN FYRIR ALLA ! RAÐCfíEIÐSL UR Við Fellsmúla • Sími 588 7332 OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, iaugard. kl. 10-14 EUHOCflHD raögreiðslur NATEN 100% hreint náttúrue&ii og þú þarfoast engra annarra vitasnína cða feeðubótarefna Hlutföllin og frábær samvirkni efnanna gerir Naten einstakt. AuOur Hugrún Jónsdótttr, skrtfstqfiistjóri óg ketjisjfrœðtngur: „Síðan ég fór að taka NATEN hefur moigunslenið horfið og úthaldið aukist um allan helming. Almenn líðan er öll betri og ég er í meira jafnvægi en áður.“ Útsötustaðir: Hagkoup, BlómavalAkureyri og ReykjaiHk, apótekin, versUuúrKÁ ojl Dreifing: NIKO ebf • sími 568 0945

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.