Morgunblaðið - 13.03.1998, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1998 B 5
DAGLEGT LÍF
fellur hraðast á kvöldin og fari
maður að sofa um það leyti sefur
maður best. Sá sem vakir í sólar-
hring og fer að sofa um miðjan dag
þegar hiti líkamans er hvað hæstur
sefur illa. Þetta vita þeir sem hafa
verið í vaktavinnu. Hið sama á við
um þá sem fljúga yfir mörg tíma-
belti. Þegar á áfangastað kemur
fara þeir að sofa á vitlausum stað í
dægursveiflunni sem gerir að verk-
um að svefninn er léttur og ófull-
nægjandi. Það tekur líkamann um
það bil fimm til sjö daga að laga sig
að nýjum aðstæðum," segir hann.
Stundum eðli-
legt að sofa illa
Júlíus segir
eðlilegt að sofa
illa stundum, til
dæmis ef einstak-
lingur á við erfið-
leika að etja, er
lasinn og finnur
fyrir verkjum.
Syfja yfir daginn
er hins vegar oft-
ast merki um að
nætursvefn hafi
ekki verið nægi-
lega góður en
getur stundum
átt sér aðrar or-
sakir. „Níutíu
mínútna sveiflan
sem setur af stað
draumsvefn að
næturlagi gerir
líka vart við sig á daginn með
reglulegu millibili. Hæfni okkar og
geta til þess að leysa ýmis verkefni
er mest á 90 mínútna fresti og þvi
ekki óeðlilegt að við verðum mörg
hver pínulítið syfjuð öðí'u hverju,“
segir hann.
Bryndfs segir flestum eiginlegt
að fara að sofa rétt fyrir miðnætti
og vakna klukkan sjö en láni fólks
er þó misskipt í þeim efnum. Sumir
eru nátthrafnar, aðrir morgunhan-
ar og meira í takti við skrifstofu-
tíma.
Þau Júlíus segja að flestir séu
með innbyggða dægursveiflu sem
sé örlítið lengri en 24 tímar og geti
því vakað þegar á þarf að halda og
sofið út þegar tækifæri gefst. En ef
dægursveiflan er 29 tímar eins og
þekkist lendir manneskjan öðru
hverju í vandræðum þegar líkams-
klukkan stemmir ekki við sólar-
hringinn.
Klukka líkamans er óskeikul
segir Júlíus og bendir á að það
orð fari af Islendingum að þeir
fari seinna á fætur og seinna að
sofa en aðrar þjóðir. „Sumir hafa
viljað túlka þetta sem leti og
ómennsku en
ástæðan er að
mínu mati fyrst og
fremst sú að klukk-
an okkar er vitlaus
miðað við sólar-
gang. Við erum á
Greenwich-meðal-
tíma en ættum að
vera einum og hálf-
um tíma á eftir.
Hádegi hjá okkur
er í raun klukkan
hálftvö.
Ef við tökum- tillit
til þessa sjáum við
að við förum ekki
seinna á fætur en
áðrir. Klukkan okk-
ar er vitlaust stillt
en líkamsklukkan
rétt. Svo vilja ýmsir
furðufuglar gera
þetta enn vitlausara, búa til sumar-
og vetrartíma og hafa hádegi
klukkan hálfjmjú eða hálffjögur,“
segir hann.
Loks segja Bi-yndís og Júlíus að
þeir sem kvarta vegna svefnleysis
eða truflana eigi við raunverulegan
vanda að etja. „Ég hef ekki hitt
einn einasta mann á undanfömum
15 árum sem kvartað hefur undan
svefntruflunum að ástæðulausu.
Maður á alltaf að taka slíka
kvörtun alvarlega," segir Júlíus
Björnsson að lokum.
Svefninn
sfjórnast
af inn-
byggðri
klukku og
þegar ald-
urinn fær-
ist yfir tek-
ur hún að
flýta sér
dálítið.
BRYNDÍS og Júlíus benda á
nokkrar einfaldar leiðir til þess
að stemma stigu við svefntruflun-
um. Þeim sem eiga í vanda er
bent á að reyna að koma eins
mikilli reglu á líf sitt og kostur er
og að forðast allt sem spillt getur
möguleikum á góðri hvíld. „Við getum ekki stjóm-
að því hvenær við sofnum en okkur er í lófa lagið
að stýra því hvenær farið er á fætur. Ef við festum
fótaferðartímann, líka þegar við 'eigum frí, get-
um við treyst því að verða alltaf syfjuð um sama
leyti eftir smá tíma. Reglan styrkir dægur-
sveifluna,“ segir Júlíus.
Einnig þurfum við að gæta okkar á því að
ekkert í umhverfinu sé að trufla okkur og
vera viss um að heilsan sé í lagi. Spenna og
streita hafa slæm áhrif, sérstaklega rétt fyr-
ir svefn, ekki bara á það hvernig maður sofn
ar, heldur líka hvemig maður sefur
bendir Júlfus jafnframt á. Hann
mælir ekki með því að fólk
sem á í svefnvandræðum
sofl fram eftir degi um
helgar því það geti gert
illt verra. Svefnþörfin
nær hámarki um ell-
efuleytið að kvöldi
og segir Júlíus að
svefn langt
frain á dag eyði
fyrirfram af
eðlilegri svefn-
þörf.
Ekki liggja uppí!
„Þeir sem eiga í erfiðleikum
með að sofna Iiggja oft uppi í
rúmi og bíða þess með mikilli
óþreyju að geta sofnað. Það er
hins vegar það versta sem mað-
ur gerir. Sá sem telur sig vera
andvaka er oft að smá sofna,
þótt ekki sé nema í tíu sekúnd-
ur í einu, sem gerir bara illt
verra. Eina ráðið er að fara á
fætur og finna sér eitthvað að
gera þar til þreytan segir til
sín,“ segir hann.
Mælt er með því að fólk sofí nógu mikið
til þess að því líði vel næsta dag en ekki
lengur. Styttri vera í rúminu
tengist góðri hvíld en löng rúm-
lega lélegum svefni sem truflanir
verða á. Þá kemur of langur svefn
niðurá svefninum næstu nótt.
Dagleg híkamleg áreynsla yfir
langan tíma leiðir til dýpri svefns
en tilviljanakenndar líkamsæfíngar seint á kvöldin
hafa engin áhrif eða slæm á svefn næstu nótt
benda þau á. Einnig hefur sjaldgæfur eða óvenju-
legur hávaði í umhverfinu slæmar afleiðingar
þótt maður muni hann ekki næsta dag. Of
mikil birta hefur jafnframt truflandi
áhrif á svefninn.
Mikilvægt er að rétt hitastig sé í
svefnherberginu, hvorki of heitt né
kalt, því hitastjórnun líkamans starfar
ekki í draumsvefni og hættan sú að fólk
vakni í svitabaði eða skjálfandi af kulda
ef hitinn er ekki við hæfi. Hungur truflar
líka svefninn og létt máltíð tveimur
klukkustundum fyrir háttinn hjálpar
mörgum að festa blund.
Loks er bent á að nota svefn-
herbergið ekki til annars en að
sofa ef svefnvandamál gerir
vart við sig. Það er ekki rétti
staðurinn fyrir tölvuna,
hljómflutningstækin eða
önnur heimilistæki undir
slíkum kringumstæðuin..
„Samkvæmt ferli
náttúrunnar er okkur
eiginlegt að vera í rökkri
e í nokkra klukkutíma áður
f en við förum að sofa. Við er-
um hins vegar með sjónvarp-
ið og útvarpið í botni, í skærri
rafmagnsbirtu með allt á fullu
rétt fyrir svefninn. Síðan ætl-
umst við til að lognast út af jafn
skjótt og slökkt er á tækjunum.
Við erum ekki gerð fyrir svona
umhverfi. Það tekur tíma að róa
sig niður,“ segir Júlíus loks.
HÆGT er að rannsaka svefn
með tölvu sem mælir heilalínu-
rit, augnhreyfingar, spennu í
vöðvum, öndun, hjartslátt og
fleira.
Einfaldar
leiðir til að
bæta svefn
/
LAUGARDAGINN 14. OG SUNNUDAGINN 15. MARS
ÁÐGANGSEYRIR ER KR. 250 FYRIR FULLORÐNA
EN AÐGANGUR ER ÓKEYPIS FYRIR BÖRN.
Tískusýningar, sýningabásar og tækifæri til að vinna kvöldverð
FYRIR TVO í PeRLUNNI.
BrÚÐARSÝNINGIN í PeRLUNNI, LAUGARDAGINN 14.
S
P E R L A N OG SUNNUDAGINN 15. MARS ER OPIN FRA KL. 13-18
(t
STOÐ-2
<30 LlSTAGALLERl
SMÍÐAR OG SKART
SKÓLAVÖRDUJIÍG 16A • 101 RHYigA\4K ■ SÍMI561 «90
HaNS FeTERM
Háaleitisbraut 68 Reykjavík
LJOSMYNOARINN
ÞARABAKKI3 - SÍMI557 9550 U
. ÆsrsfJkssYyb/rs/fxýss Sy&e/fa/
—'s Álfabakka 14a, Reykjavík.
ur oy ,'iÁar/yrýb/r - Jfáuyaoey/ 6/
BLÓM, UNDIR STIGAMJM
Guðlaugur A. Magnússon
Laugavegi 22a, Reykjavík.
ICELANDIC
JVlODELS Skeifunni 7, Reykjavík.
hrtO/Hmuj
S K^í P H O LTH 5 0 D
SÍMI 5 6 2 0 1 0 2
Miðvangi 41 Hafnarfirði
Sigga &Tiwo
G U L L S M í Ð I
STRANOGÖTU 19 • SfMI 565 4854
® TOYOTA
P. Samúlesson ehf. Nýbýlavegi 4-8, Kópavogi.
f^r&rkjókG&fyóni
Faxafeni 9, Reykjavík.