Morgunblaðið - 13.03.1998, Síða 8
' 8 B FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
ÁSDÍS lærði að hrista ním handa níu ára fram úr erminni.
DÓROTHEA hefur gaman af því að vinna með spýtur.
SVANHILDUR Kristjánsdóttir fagmannleg við vélsögina.
Smíðað
af lífi og sál
ÞÆR smíða það sem þeim
flýgur í hug,“ segir Magn-
ús Ólafsson iðnkennari
stoltur af nemendum sín-
um, átta konum á ýmsum aldri á
kvöldnámskeiði í trésmíðum.
Magnús hefur kennt konum að
smíða í tíu ár í hjáverkum, fyrst
. hjá Tómstundaskólanum og nú í
húsakynnum Iðnskólans.
Nemendur hljóta 24 kennslu-
. stunda leiðsögn eitt kvöld í viku og
byrjað er á byrjuninni þótt kon-
umar treysti sér greinilega í hvað
sem er. Fyrst er að teikna hlutinn
og gera sér grein fyrir því hvers
konar efni er hentugt og hvaða
þykkt er æskilegt að nota segir
Magnús. „Eg gef þeim ráð við inn-
kaupin en þær fara og útvega efnið
sjálfar. Eftir það er hafist handa
við smíðina."
Magnús kennir líka undirstöðu-
atriði við notkun trésmíðavéla,
bæði varðandi öryggi og hvernig á
að bera sig að. Þá er farið út í með-
ferð sandpappírs, límingar og ein-
földustu aðferðir við yfirborðsmeð-
höndlun með olíu og lakki.
,l; Einnig kennir hann nemendum
sínum að fræsa íyrir festingum og
hvernig á að skrúfa saman með
þeim tækjum sem í boði eru í dag.
„Mér finnst þetta alltaf jafn
gaman. Hugmyndirnar sem fram
koma eru skemmtilegar og kon-
urnar hafa búið til mjög merkilega
hluti,“ segir hann. Hafa þær líka
yfirleitt mikinn áhuga á þvi að
smíða úr tré, einkum nytjahluti
eins og sófaborð, eldhúsborð,
skápa, hillur, rám og allt hvaðeina.
Magnús hefur verið iðnkennari í
20 ár. Hann kennir á daginn í tré-
iðnadeild Iðnskólans og segir
stelpurnar flinkar við smíðarnar.
„Þær velta myndum af fallegum
hlutum í blöðum fyrir sér og leggja
mikla vinnu í undirbúninginn. Þær
leggja mikið upp úr fallegri hönn-
un og eru mjög kröfuharðar. Ann-
MAGNÚS og Ásta í bollaleggingum um skóskáp.
Morgunblaðið/Kristinn
SELMA er meira fyrir diskarekka en blómasdlur. Magnds er á gægjum.
Prs
■■■■
'
ANDLITSVORUR SEM DEKRA VIÐ HUÐINA!
"
ars er þetta allt spurningin um
áhuga og hugmyndaflug.“
Sex herbergja fuglahús
Hugmyndirnar láta heldur ekki
á sér standa því ein á námskeiðinu
er að sögn að velta því fyiir sér að
smíða sex herbergja fuglahús þar
sem hver fugl hefur sérinngang.
Mikið af vinnunni fer fram
heima við eldhúsborðið segir
Magnús svo stutt námskeiðið nýt-
ist sem best og konurnar mæta í
skólann til þess að framkvæma. „I
fyrsta tíma set ég þeim fyrir að út-
búa efnislista og teikna hverja ein-
ingu þannig að þegar hingað er
komið er búið að smíða hlutinn í
huganum. Það er mikill kraftur í
þeim og maður þyrfti helst að vera
í þrennu lagi stundum til þess að
anna þessu,“ segir hann.
Atta konur voru í smíðanámi á
önninni sem var að ljúka, sumar í
fyrsta skipti, aðrar i hið fjórða eða
fimmta. Ekki sást nokkur byrj-
endabragur á þeim þegar skóla-
stofan var heimsótt og lá mikið við
að klára smíðagripina þar sem
þetta var síðasta kvöldið.
Dórothea Einarsdóttir, smíða-
nemi í fjórða sinn, var að leggja
síðustu hönd á homskáp sem
smíðaður er úr panel frá æsku-
heimili hennar í Tungunum. Meðal
fyrri verka eru glasaskápur, orgel-
stóll með áklæði sem hún saumaði
og hilla í vinnuherbergi.
„Eg hef gaman af því að vinna
með spýtur,“ segir hún og viður-
kennir að bömin séu voða stolt af
smíðahæfileikunum. Þá á hún
reyndar ekki langt að sækja þar
sem faðir hennar smíðaði gamla
bæinn, frekar en hin systkinin sem
öll munu vera dugleg í höndunum.
Skemmtilegt og
ekki of erfitt
Ásdís Einarsdóttir var á sínu
fyrsta námskeiði og lét sig ekki
muna um að smíða rám handa níu
ára syni sínum. Asdís sá námskeið-
ið auglýst og ákvað að eigin sögn
að slá til enda sérstaklega áhuga-
söm um smíðar á yngri áram. Þá
hefur hún alltaf haft áhuga á hand-
verki. „Þetta er skemmtilegt og
ekki of erfitt,“ segir hún og flýtir
sér að klára rúmið sem beðið er
eftir með mikilli eftirvæntingu
heima.
Selma Antonsdóttir er að smíða
diskarekka í eldhúsið og segir að
sig hafi lengi langað til þess að
vera á smíðanámskeiði þar sem
hún fengi að ráða sér sjálf. Selma
er enginn nýgræðingur í hand-
verki þar sem hún hefur fengist
við að gera upp húsgögn en segist
fá mikið út úr námskeiðinu. „Eg
hef sjaldan gert nokkuð jafn
skemmtilegt. Það er sko ekki verið
að búa til neinar blómasúlur hér,“
segir hún og horfir íbyggin á
diskarekkann sem senn tekur á sig
endanlega mynd.
Ásta Ásmundsdóttir er á sínu
fyrsta smíðanámskeiði en hefur
fengist við að smíða húsgögn
heima fyrir fjölskylduna því það er
ódýrara en að kaupa að hennar
sögn. „Þetta er mjög gaman og ég
vildi gjarnan gera meira. Mig
langar til dæmis að smíða sófa-
borð,“ segir hún og lætur sér
nægja að smíða skóskáp frá grunni
að þessu sinni.
hke