Morgunblaðið - 15.03.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.03.1998, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MIKLAGLJUFUR GRAND CANYON stækkafl j j l. svæöi Jarðfræði Kortið sýnir upphleðslu jarðlaga i Miklagljúfri og skiptingu þeirra eftir gerð og aldri. Einnig má sjá þykkt þeirra og hvaða umhverfis- aðstæður voru ríkjandi, þegar jarðlögin mynduðust fyrir milljónum ára. /' '' T, V v. Setmyndunar- umhverfi Þykkt (metrar) Aldur (milljón ár) Jarðsögulegur tími SJÓR 90-155 250 SJÓR 75-140 260 Mið Perm EYÐIMÖRK 15-110 270 Q FLÓÐSLÉTTA 75-305 280 —1 FENJASVÆÐI 290-415 300 Neðra Perm c/) LL- SJÓR 140-215 330 Kol z rr 10-305 370 Efra Devon o ° SJÓR 15-305 530 SJÓR 60-140 540 Kambrium 30-90 550 Neðra Kambríum SJÓR 4.600 800-1.200 Efra Forkambríum cd MYNDBREYTT SJÁVARSET 1.700 Neðra Forkambríum s S [ INNSKOT o U- INDÍÁNARNIR sem komu yfir hásléttuna að barmi Miklagljúfurs horfðu á þetta undur náttúrunnar og fannst lýsa því best að kalla það „fjöll á hvolfi“. Hvergi nema í Miklagljúfri er hægt að lesa mótun jarðarinnar tvo milljarða ára aftur í tímann, nær helming jarðsögunnar. Eitt sinn lá haf yfir þar sem nú er háslétta og í árþúsundanna rás hafa ár sorfið jörð- ina, landris og jarðskjálftar skælt hana og undið. Klettaveggirnir sýna að eitt sinn voru þama fjöll á hæð við Himalaya-Qöllin. Colorado áin hefur mótað gijúfrið síðustu milljónir ára. Á botni þess hafa jarðfræðingar fundið ævaforn- ar, steingerðar lífverur sem minna á marglyttur og eftir því sem ofar dregur er hægt að rekja þær breytingar sem oröið hafa á jörðinni. Frá syðri að nyrðri brún Miklagljúfurs eru 800 metrar þar sem gljúfrið er þrengst, tæpir 30 kflómetr- ar þar sem það er breiðast og farvegur Colorado-ár- innar um það telst alls um 446 kflómetrar. Frá norð- urbrún gljúfursins em allt að 1,9 kflómetrar niður á botn, en frá syðri brúninni um Vk kílómetri. Við Miklagljúfur em sex loftlags- belti, allt frá eyðimörkinni á botni gljúfursins að snævi þöktum tindum San Francisco fjallanna suður af Miklagljúfursþorpi. Það er því ekki undarlegt þótt ferðalangar, sem hrylla sig í morgunkulinu á barmi gljúfursins, eigi bágt með að áttíi sig á hitanum þegar neðar dregur. Flóðunum stjórnað Rennsli Colorado breyttist árið 1964, þegar stíflan f Glen gljúfri komst í gagnið og griðarlegt uppistöðu- lón, Powell-vatnið, myndaðist fyrir ofan hana. Stíflan, sem er um 230 metra há, hefur komið í veg fyrir hin miklu flóð, sem byltust niður gljúfrið. Þessi breyting olli að vísu nokkrum áhyggjum, því flóðin höfðu áhrif á lífrfldð í ánni. Áður hafði framburður árinnar verið uin hálf milljón tonn á sólarhring, en er nú aðeins tíundi hluti þess. Til að vega upp á móti þessum breytingum hefur gríðarlegu vatnsmagni verið hleypt í gegnum stífluna af og til, til að líkja eftir flóðunum. Minni flóð, sem orsakast af miklum rigningum á afmörkuðum svæð- um, æða enn ofan smærri gljúf- ur. Fyrirvarinn er nánast eng- inn. Fyrir þremur árum lést hópur ferðauianna, sem var á göngu í litlu gljúfri með lygnu vatni þegar risastór fióðbylgja kom á móti þeim eíns og veggur, fyllti gljúfrið og hreif allt með sér í aurlitað vatnið. Fyrstir á ferð fyrir 11 þúsund árum Fyrir rúmum 11 þúsund árum voru fyrstu indianarnir á ferli við Miklagljúfur. Aðrir ættbálkar fylgdu í kjölfar- ið. Árið 1932 fiindust Iitlar dýramyndir úr viðartágum faldar f sprungum klettaveggjanna og reyndust vera fjögur þúsund ára gamlar. Árið 500 bjuggu Anasazi-indfánar við Miklagljúfúr. Þeir voru fyrst og fremst veiðimemi, en fengu síðar við- umefndiö „körfugerðar-Anasazi" þjá fomleifafræðmg- um, sem fundu ýmis ummerki um þá list ættbálksins. Cohonina-ættbálkurinn bjó þar ekki ljarri og virtust þessi tveir ættbálkar lifa svipuðu lífi í sátt og sam- lyndi. Menning Anazasi-indfána stóð með mestum blóina á 12. öld. Þeir voru farnir að stunda ýmis konar akur- rækt, gera leirmuni af list og áttu mikil viðskipti við aðra ættbálka, bæði þar na-iTÍ og allt að Kyrrahafs- ströndiimi. Heimur þeirra hmndi í kjölfar langvarandi þurrka og þeir fluttu sig um set, að Rio Grande. Um 150 árum síðar settist annar ættbálkur, Cerbatar, að við suðurbrún Miklagljúfúr. Afkomendur þeirra eru Hualapai og Havasupai-indíánar, sem nú búa á vemdar- svæðum við vesturhluta gljúfursins. Um svipað leyti sett- ust Paiutar að við norðurbrúnina. Síðastir í röð ættbálka indfána, sem settust, að við Miklagljúfur, vom Navajo-indíánai', náskyldir Apache- indfánum. Þeir voru veiðimemi, en fljótir að tileinka sér akurrækt. Síðar byggðu þeir hús að hætti spænskra landnema og hófu sauðfjárrækt. Vegna aðlögunarhæfn- innar ríktu þeir yfir svæðinu og em nú stærsti indfána- ættbálkur Norður-Amerfku. Vemdarsvæði þeirra nær yfir allan austurhluta Miklagljúfurs og þar búa þeir, litlu færri en íslendingar allir, eða um 250 þúsund. Á verndarsvæðunum við Miklagljúfur búa nú fimm ætt- bálkar, Navajo, Hopi, Havasupai, Paiute og Hualapai. Þeir lifa af Iandbúnaði, ferðaþjónustu og listmuna- gerð. Hrikalegur farartálmi Þeir fáu hvítu menn sem komu að Miklagljúfri á fym hluta sfðustu aldar stöldruðu stutt við, enda töldu þeir ekki eftir neinu að slægjast. Gljúfrið var hrika- legasti far- artálmi sem á leið þeirra varð og yfir það koinst engimi nema fúglinn fljúgandi, eða sá sem þekkli stíga indfána. Á sfðustu áratugum uftjándu aldar fór hvftum mönnum að fjölga við gljúfrið, enda höfðu þeir þá uppgötvað kopar, sink og blý í kletta- veggjunum. Vinnslan var hins vegar injög erfið og fljót- lega komu menn auga á arðbærari atvinnuveg. Ferða- þjónustu. Árið 1905 var fyrsta hótelið á suðurbarmi Miklagljúfurs opnað og stendur þar enn. Til allrar ham- ingju báru upphafsmenn ferðaþjónustu og allir spor- göngumenn þeirra gæfu til að raska umhverfinu sem minnst og gæta þess að byggingar féllu sem best að því. Gljúfrið var friðað og varð þjóðgarður árið 1919. Þjóð- garðurinn stækkaði um helming árið 1975, þegar mikið svæði við gljúfrið var lagt undir hann. Þangað koma nú um fímm milljónir ferðamanna árlega. VIÐ ókum hlykkjóttan veg á milli hávaxinna trjáa og veltum því fyrir okkur hvenær við kæmum á áfangastað. Við höfðum þegar ekið um hlið þjóðgarðsins og miðað við vegalengdina sem við höfðum lagt að baki áttum við að vera komnar að gljúfrinu. Skyndi- lega sáum við stórt bílastæði á hægri hönd þar sem fjölda bíla var lagt. Ferðalangar stóðu við brún stæðisins og mændu eitthvert út í buskann. Við stöðvuðum bflinn, gengum út og í átt að fólkinu. Þarna var það þá, eitt af undrum heimsins, gríðarlegt gljúfur svo djúpt, stórskorið og mikilfenglegt að okkur skorti orð. Miklagljúfur. Grand Canyon. Litli bílaleigubfllinn hafði erfiðað upp á við allan daginn, allt frá því að við ókum inn í Arizona frá Kali- forníu eftir hinum fræga þjóðvegi Route 66. Við höfðum svosem ekki leitt hugann neitt sérstaklega að puði bflsins og í raun átti ég von á að koma að fjallagörðum við Miklagljúfur. Eg hafði aldrei ímyndað mér að standa á sléttri brún og horfa niður á öll ósköpin. En þetta er jú gljúfur, ekki fjall- lendi. Miklagljúfursþorp Við komum að suðurbrún gljúf- ursins, eins og flestir ferðamenn sem þangað leggja leið sína. Þarna hefur risið Miklagljúfursþorp, eins og heimamenn kalla það, en þorpicf er fyrst og fremst hótel og gisti- heimfli. Þess er hins vegar vand- lega gætt að mannvirki verði ekki of áberandi á skógi vaxinni bnin- inni; flest eru hótelin í mesta lagi tveggja hæða timburbyggingar, sem falla vel inn í skóglendið. Eng- ar hamborgarabúllur eða kókvélar. Við gistum í Yavapai Lodge og fengum þar mjög rúmgott her- bergi. Við komum að Miklagljúfri síð- degis á miðvikudegi, svo það var út- séð um að við færum mikinn könn- unarleiðangur þann daginn. Frá hótelinu var hins vegar stuttur gangur um skóglendi, þar sem gæf dádýr rölta á milli trjánna, að suð- urbrún gljúfursins. Frá brúninni sést vel niður á botn, þar sem Colorado-áin er eins og örmjór silf- urþráður. Stígurinn meðfram gljúfrinu sjálfu er þokkalegur spotti og ótrúlegt að sjá hvernig þverhníptur klettavegurinn tekur við fyrir utan girðingu eða hlaðinn steinkant. Engin furða að fólk fari sér að voða ef það álpast út fyrir stíginn. Við ákváðum að ganga daginn eftir niður í gljúfrið, eftir svokölluð- um „Bright Angel“ stíg. Þá leið fundu Indíánar fyrr á öldum, en hvítir sáu sér leik á borði síðar meir, endurbættu stíginn, lögðu hann undir sig og kröfðust tolls af STIGUR hins skínandi engils liggu Indíánagan é||| VEÐUR skipast skjótt í lofti í Iandi Miklagljúfurs, hvenær ársins seni er. Á sumrin er heitt og þurrt í Miklagljúfursþorpi, en stórfengleg þrumuveður geta skollið á nánast fyr- irvaralaust og hitastigið hríðfallið. Að vetrarlagi er heljarkuldi og snjó- koma, en þó sérstaklega á norðurbrúninni, sem er allnokkru hærri en sú syðri. Á sumrin er ekki óal- gengt að hitastigið á brún sé frá 20 gráðum á celcius, en á sama tíma er allt að 40 gráðu liiti við gljúfurbotn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.