Morgunblaðið - 15.03.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
I
I
I
I
I
1
)
J
(
3
i
i
.
1
I
I
I
.
Síðasta
vígið
fallið?
TEKIST á við lax í Skriðuhyl í Svalbarðsá í Þistilfirði.
ÞAÐ má segja að síðasta vígið sé
fallið. Flugan skæða Frances náði
síðasta sumar að verða veiðnasta
flugan í Laxá í Aðaldal. Er það í
fyrsta sinn, því Frances hefur ekki
verið til þessa tiltakanlega skæð
fluga í Laxá þótt hún hafi borið höf-
uð og herðar yfir aðrar flugur í
flestum öðrum ám. Bláar flugur
hafa til þessa gefið best.
Það var Þórður Pétursson sem
tók þetta saman. Af 788 löxum sem
veiddust á svæðum Laxárfélagsins
veiddust 270 á flugu og þar af
veiddust 47 á Frances. Flugan
Dimmblá, sem er ein af gersemum
Þórðar og verið hefur efst síðustu
sumur, varð önnur með 21 lax og
gamla brýnið Laxá blá, sem einok-
aði efsta sætið árin fyrir daga
Dimmblá, var nú þriðja með 19
laxa. Þá kemur gamalt uppáhald
margra í Laxá, Night Hawk, með
11 laxa og Black Sheep með 9
stykld.
Batnandi horfur
Þórður hélt helst að þessi breyt-
ing í fluguvali laxins kunni að hafa
stafað af einkennilegum og óvenju-
legum litarhætti Laxár síðasta
sumar, en áin var með sterkum
grænum lit vegna óvenjumikillar
útskolunar lífrænna efna úr Mý-
vatni.
Þórður sagðist vera eftir atvikum
bjartsýnn með sumarið sem senn
fer í hönd. Eftir nokkurra ára lægð
og stöðuga niðursveiflu hafi mátt
merkja viss batamerki í Laxá í
fyrra. „Það var talsvert af eins árs
fiski og það veit venjulega á gott ár
í tveggja ára fiski árið eftir. Þá
verðum við að vona að fiskifræðing-
arnir hafi rétt fyrir sér með smá-
laxaspárnar fyrir sumarið," sagði
Þórður.
Norðausturhomið er jafnan
nokkuð í umræðunni. Þar eru
sveiflur hvað mestar í laxveiðinni.
í flestum af þessum ám var slök
veiði í fyrra og voru Þistilfjarðar-
árnar sýnu lakastar. Nú horfir til
betri vegar og fiskifræðingar spá
góðri smálEixaveiði með reytingi af
stærri laxi í bland. Sigurður Guð-
jónsson, framkvæmdastjóri Veiði-
málastofnunar, nefndi líklega veiði-
tölu úr viðkomandi ám í samtali við
Morgunblaðið, og byggði hana á
seiðabúskap, ástandi á gönguseið-
um í fyrra og almennu ástandi í
hafinu, en vildi ekki láta hafa hana
eftir sér þar sem „fæst orð hefðu
minnstu ábyrgð“. Við látum nægja
að nefna, að ef Sigurður getur
nærri um veiðina þá verður líflegt í
Þistilfirði og trúlega Vopnafirði og
Aðaldal einnig, því þessar ár hald-
ast yfirleitt í hendur. „Ég hef heyrt
þetta og vonandi stenst það. Það
má alveg fara að koma aftur upp-
sveifla í Þistilfjörðinn," sagði Jör-
undur Markússon, leigutaki Sval-
barðsár, í samtali við blaðið.
Þeir voru til stórir
Enn styttist í upphaf sjóbirtings-
vertíðarinnar. Stórir fiskar hafa
veiðst síðustu ár, en til marks um
að enn vænni fiskar voru á ferðinni
fyrr á árum væri ekki úr vegi að
vitna aðeins í viðtal sem Sigmar
Ingason tók við Steingrím Skúlson
í Mörtungu í nýjasta félagsblaði
Stangaveiðifélags Keflavíkur.
Steingrímur segir: „Það komu oft
mjög stórir fiskar í þessa netstubba
okkar. Sá stærsti sem ég man eftir
var hrygna sem kom í net í Réttar-
hylnum. Ég man nú ekki með vissu
hvað hún var þung, en hún var yfir
100 sentimetrar að lengd ...“
SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998 B líf*
Aöalfundur Granda hf.
verður haldinn föstu
3. apríl 1998, kl. 16:
í matsal fyrirtækis
Norðurgarði, Reykjavík.
DAGSKRA
1 • Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegartillögur, svo og
ársreikningur félagsins munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aöalfund.
Atkvæðaseölar og fundargögn veröa afhent
á fundarstaö.
Óski hluthafar eftir að ákveöin mál veröi
tekin til meöferöar á aöalfundinum, þarf
skrifleg beiöni um þaö að hafa borist
félagsstjórn með nægjanlegum fyrirvara,
þannig aö unnt sé aö taka máliö á dagskrá
fundarins.
Hluthafar, sem ekki geta mætt á fundinn,
en hyggjast gefa umboö, þurfa aö gera
þaö skriflega.
STJÓRN GRANDA HF.
GRANDI HF. NORÐURGARÐI, 101 REYKJAVÍK
Kaupmannahöfn aðeins 27.440 kr.
Osló - aðeins 28.000 kr.
Stokkhólmur aðeins 26.720 kr.*
Til Norðurlanda
á frábæru verði
Ferðir skulu famar á túnabilinu 1. mars til 8. maí (síðasti brottfarardagur.)
Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags og hámarksdvöl er 1 mánuður.
Böm 2ja -1 lára greiða 67%. Böm yngri en 2ja ára greiða 10%.
Hafið samband við söluskrifstofur okkar,
ferðaskrifstofumar eða símsöludeild Flugleiða í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 8 -19 og á laugard. kl. 8 -16.)
Vefur Flugleiða á Intemetinu: www.icelandair.is
Netfang fyrir almennar upplýsingar: info@icelandair.is
18. MAÍ
’ Innifalið: ilug og flugvallarskattar
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskurferðafélagi