Morgunblaðið - 15.03.1998, Blaðsíða 1
ATVINNURAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR15. MARZ1998 BLAÐ E
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Læknir á Fjórðungs-
sjúkrahtísinu
STAÐA deildarlæknis á geðdeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri er laus til umsóknar frá 1. júní. Læknirinn fær
í starfí sínu leiðsögn og kennslu hjá þrem geðlæknum
deildarinnar auk námskeiða í geðlæknisfræði í Reykjavík.
Einnig er laus staða yfiriðjuþjálfa frá 1. júlí. Með iðju-
þjálfa starfar annar iðjuþjálfí sem aðallega sinnir sjúkling-
um í dagvist og aðstoðarmaður í hálfu starfí.
Bakari í Vestmanna-
eyjum
BAKARI óskast til starfa í góðu bakaríi í Vestmannaeyj-
um sem framleiðir fyrir eigin verslun, matvöruverslanir og
eigið konditori sem tekur 30 manns í sæti. Sérgrein: helst
kökur og skreytingar. Upplýsingar gefur Bergur í síma
4812664 og 4812466.
Starf hjá margmiðl-
unarfyrirtæki
MARGMIÐLUNARFYRIRTÆKIÐ Gagarín ehf. óskar
eftir að ráða tímabundið eða til lengri tíma forritara með
kunnáttu og reynslu í forritun og vinnslu í Macromedia
Director. Grunnþekking í gagnagrunnavinnslu og forritun
í Java eða C++ æskileg en þó ekki nauðsynleg.
RAÐAUGLÝSINGAR
Hugmyndir vegna
ræktunarátaks
STEFNT er að því að á sumri komanda verði auknar gróð-
ursetningar innan borgarhverfanna í Reykjavík. Leitað er
• eftir ábendingum frá borgarbúum um verkefni fyrir
Vinnuskóla Reykjavíkur við ræktun í hinum ýmsu hverf-
um borgarinnar.
Rannsókn á arfgengi
psoriasis
NÝLEGA hófst hér á landi rannsókn á því hvemig húðsjúk-
dómurinn psoriasis erfist. Nú vantar fleiri sjálfboðaliða og
_ báða foreldra þeirra. Ekki skiptir máli hvort foreldramir
hafa psoriasis. Nánari upplýsingar fást í síma 560 1960 milli
kl. 16 og 18 frá mánudeginum 16. mars til 20. mars.
SMÁAUGLÝSINGAR
Myndakvöld hjá
Ferðafélaginu
FERÐAFELAG Islands minnir á myndakvöld frá
Færeyjum og Skotlandi nk. miðvikud. kl. 20.30 í Mörkinni
6. Kristján M. Baldursson og Ingi Sigurðsson sýna.
Samkoma hjá Klett-
inum
KLETTURINN auglýsir Krakkakirkju kl. 11.00 og al-
menna samkomu kl. 20.00. Predikun: Jón Þór Eyjólfsson.
Beðið fyrir sjúkum. Bænastund miðvikudag kl. 20.00.
UNGA fólkið á Selfossi og nágrenni er meðvitað um mikilvægi umhverfisverndar og endurvinnslu á pappír.
Góður árangur í pappírs-
söfnun hjá Sorpstöð Suðurlands
Selfossi - Umhverfismál ýmiss konar hafa mikið
verið til umræðu á seinustu misserum. Viðhorfs-
breyting gagnvart sorpmeðhöndlun og endur-
vinnslu hefur orðið til batnaðar sem og umhverfis-
vitund almennt. Þar hafa Sunnlendingar ekki látið
sitt eftir liggja.
Á Suðurlandi hefur verið mót-
taka á pappír til endurvinnslu í tæp
tvö ár. Móttaka var í fyrstu bundin
við stærri þéttbýliskjarna en síð-
astliðið sumar bættust átta sveitar-
félög í hóp þeirra níu sem buðu
þessa þjónustu fyrir. Femusöfnun
bættist við í júlí sl. en söfnunin er
samvinnuverkefni Mjólkurbús
Flóamanna og Gámaþjónustunnar
og hefur árangur af þeirri söfnun
verið mjög góður, að sögn forsvars-
manna Sorpstöðvar Suðurlands.
Eyrbekkingar standa sig best af
Sunnlendingum, en þar skila íbúar
18,4 kg af femum og pappír pr.
mann á ári. Rétt á eftir Eyrbekk-
ingum koma Selfyssingar og Hvol-
hreppur er síðan í þriðja sæti.
Árangur Eyrbekkinga og Selfyss-
inga er sá besti á landinu, sam-
kvæmt upplýsingum frá Guðmundi
Tryggva Olafssyni, starfsmanni
Sorpstöðvar Suðurlands, og til
samanburðar má geta þess að á
Egilsstöðum og nágrenni hafa
safnast 8 kg pr. mann á ári.
Byggðastofnun
Höfuðstöðvarnar til Selfoss
SAMTÖK sunnlenskra sveitarfélaga og Atvinnu-
þróunarsjóður Suðurlands hafa lagt til að höfuð-
stöðvar Byggðastofnunar verði fluttar til Selfoss.
Bent er á breytingar sem undanfarið hafa verið
gerðar á Byggðastofnun og lítinn hlut Suðurlands í
starfsemi stofnunarinnar. Samþykkt stjóma Sam-
taka sunnlenskra sveitarfélaga og Atvinnuþróunar-
sjóðs Suðurlands fer hér á eftir.
,Á fundi sínum 4. og 11. mars sl.
samþykktu stjórnir Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga og Atvinnu-
þróunarsjóðs Suðurlands eftirfar-
andi ályktun samhljóða:
Að undanförnu hafa róttækar
breytingar verið gerðar á skipulagi
Byggðastofnunar. Samþykkt hefur
verið að þróunarsvið stofnunarinnar
flytjist á Sauðárkrók og einnig að
útibú stofnunarinnar á ísafirði,
Sauðárkróki og Egilsstöðum verði
lögð niður og sameinuð starfsemi
atvinnuþróunarfélags á hverju
svæði.
Á Suðurlandi hefur ekki verið
starfandi útibú Byggðastofnunar en
hins vegar hefur verið rekinn hér
öflugur atvinnuþróunarsjóður, AÞS,
um langt árabil. Sjóðinn hafa sveit-
arfélögin byggt upp með því að
leggja í hann á hverju ári sem nem-
ur einu prósenti af tekjum sínum.
Starfsemi hans hefur Byggðastofn-
un styrkt eins og starfsemi hlið-
stæðra sjóða og félaga annars stað-
ar á landinu, nú síðast með samn-
ingi sem gerður var 1996 og gerði
AÞS kleift að fjölga starfsmönnum
og auka starfsemi sína.
Með hliðsjón af þeim breytingum
á Byggðastofnun sem að ofan getur
og litlum hlut Suðurlands í starfsemi
Byggðastofnunar hingað til leggja
stjómir Atvinnuþróunarsjóðs Suður-
lands og Samtaka sunnlenskra sveit-
arfélaga til við stjóm Byggðastofn-
unar að höfuðstöðvar stofnunarinnar
verði fluttar til Selfoss. Slíkur flutn-
ingur væri í fullu samræmi við þá
stefnu sem stjóm Byggðastofnunar
hefur markað og ef flutningur rílás-
stofnana út á land er yfirleitt talinn
æskilegur hlýtur Byggðastofnun að
koma þar hvað helst til álita vegna
eðlis starfseminnar.“