Morgunblaðið - 15.03.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.03.1998, Blaðsíða 8
8 E SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ KENNARAHÁSKÓL1 ÍSIANDS Laus staða lektors í íþróttum Meginverkefni lektorsins, aukkennslu og rann- sókna, er að hafa yfirumsjón með skipulagn- ingu námskeiða í eftirfarandi knattleikjum: blaki, handknattleik, knattspyrnu og körfuknatt- leik. Lektorinn þarf að geta kennt minnst eina af þessum íþróttagreinum. Æskilegt er að um- sækjendur búi yfir góðri þekkingu á sviði þjálf- fræði hópíþrótta. Staðan ervið íþróttaskor Kennaraháskóla íslands á Laugarvatni og er húsnæði þar í boði. Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi á sínu sviði hið minnsta eða hafa jafngilda þekkingu og reynslu að mati dómnefndar. Æskilegt er að þeir hafi lokið prófi í uppeldis- og kennslufræði eða á annan hátt aflað sér nægilegs kennslufræðilegs undirbúnings. Auk þess er æskilegt að þeir hafi á einn eða annan hátt komið að þjálfun íþróttafólks í umræddum greinum, hafi kennslureynslu og kynni af skólastarfi. Umsóknum skulu fylgja greinargóðar skýrslur um námsferil, fræðistörf og kennslureynslu umsækjenda ásamt námsvottorðum og grein- argerð um fyrirhuguð áform í fræðistörfum ef til ráðningar kemur. Þá skulu umsækjendur leggja fram þau rit, birt eða óbirt, sem þeir óska eftir að verði tekin til mats dómnefndar áfræðilegri hæfni sinni. Umsækjendurskulu einnig láta fylgja umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því sem við á. Umsóknarfresturertil 15. apríl nk. og ergert ráð fyrir að staðan verði veittfrá 1. ágúst 1998. Laun og kjör eru samkvæmt kjarasamningi Kennarafélags Kennaraháskóla íslands við fjár- málaráðuneytið. Ekki er um að ræða sérstök umsóknareyðublöð en umsóknum og umsóknargögnum skal skila á skrifstofu Kennaraháskóla Islands v/Stakka- hlíð, 105 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðum um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um stöðuna gefur Erlingur Jóhannsson, skorarstjóri íþróttaskorar, í síma 486 1110. Sölumaður Óskum eftir að ráða sölumann til starfa við sölu á SHARP skrifstofutækjum. SHARP selur Ijósritunarvélar, faxtæki, reiknivélar, sjóðvélar, skjávarpa, handtölvur o.fl. SHARP er einn fremsti framleiðandi heims á sínu sviði og framarlega í vöruþróun og nýjungum. Um er að ræða sölu til umboðsmanna og end- urseljenda og heimsóknirtil fyrirtækja sem nota ofannefnd tæki. Reynsla í sölumennsku er nauðsynleg og einhver þekking á vöruflokk- um þessum væri æskileg. Sölumaðurinn þarf að sýna frumkvæði og vera sjálfhvetjandi. Skipulagning á söluherferðum með beinum bréfum er mikilvægur þáttur starfsins. Launakjör samkvæmt samkomulagi. Bræðurnir Ormsson ehf. selja fjölbreytta vöru- flokka í sjálfstæðum deildum. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 60 starfsmenn. Skriflegar umsóknir sendist framkvæmdastjóra með helstu upplýsingum um menntun og fyrri j störf. Umsóknarfrestur ertil 20. mars. R Æ Ð U R N I R ^JORMSSONHF Iðnaðarverkfræðingur/ Framleiðslustjóri 36 ára, óskar eftir vinnu. Hefur að baki mikla starfsreynslu við margskonar iðnaðarfyrirtæki erlendis og hérlendis. M.a. matvæla-, flugvéla-, bíla- og lyfjaframleiðslu. Opinn fyrir alls kyns nýjungum. Upplýsingar í síma 561 1515. Grunnskólar Akureyrar Lausar eru til umsóknar: Stöður skólastjóra og aðstoðarskólastjóra við Lundarskóla. í Lundarskóla eru í vetur um 350 nemendur í 1.-7. bekk en mun á næstu árumfjölga í u.þ.b. 480 nemendurí 1.-10. bekk vegna breytinga á skólafyrirkomulagi sunnan Glerár. Jafnframt verður byggt við skólann. Við leitum að stjórnendum sem eru tilbúnir að taka þátt í að móta þessa breytingu, helst með reynslu af stjórnun skóla með 8.-10. bekk. Upplýsingar um starfið gefa skólastjórar, í síma 462 4888. Staða skólastjóra við Brekkuskóla. í Brekkuskóla eru í vetur um 700 nemendur í 1.-10. bekk og er skólinn safnskóli fyrir 8.-10. bekk. Á næstu árum mun nemendum fækka í u.þ.b. 500 í 1. -10. bekk vegna breytinga á skólafyrirkomulagi sunnan Glerár. Við skólann er verið að þróa fjarkennslu á grunnskólastigi. Við leitum að stjórnanda sem ertilbúinn að halda áfram uppbyggingu einnar stofnunar á hefðum tveggja eldri, þ.e. Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar. Upplýsingar um starfið gefa skólastjórar, í síma 462 4241. Á vegum skólanefndar Akureyrar er nú verið að vinna að heildstæðri stefnumótun fyrir mál- efni Grunnskóla Akureyrar. Stefnumótunin er unnin eftir leiðsögn Rannsókanastofnunar Háskólans á Akureyri. í vetur er sjónum einkun beint að starfsmannastefnu, fjárveitingum og fjármálastjórnun, stoðþjónustu og úrræðum, skólahúsnæði og aðbúnaði og mati á skóla- starfi. Einnig veitir skólafulltrúi Akureyrarbæjar upp- lýsingar um störfin í síma 460 1450. Upplýsing- ar um kaup og kjör veitir starfsmannastjóri Ak- ureyrarbæjar í síma 462 1000. Umsóknum skal skila til starfsmanna- deildar á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 8. apríl 1998. Starfsmannastjóri. Framkvæmdastjóri Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirdi óskar að ráða fram- kvæmdastjóra. Helstu verkefni framkvæmdastjóra eru: • Stjórnun • Félagsstörf • Uppmælingar • Kostnaðaráætlanir • Tilboðsgerð • Útgáfumál • Umsjón með fasteignum • Ráðgjöf Leitað er að byggingatæknifræðingi með iðnmenntun eða sambærilegt, sem hefur áhuga á stjórnunarstarfi. Einnig er nauðsynlegt að viðkomandi sé sjálfstæður, hafi ánægju af sam- skiptum og sé þjónustulundaður. Góð framkoma, tölvukunnátta og skipulagshæfileikar er skilyrði. Starfið er fjölbreytt, mjög krefjandi og hentar drífandi og dugmiklum einstaklingi. Upplýsingar um starfið veita einungis Katrín S. Óladóttir og Eyrún M. Rúnarsdóttir hjá Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. Skrifleg umsókn ásamt mynd með ítarlegum upplýsingum um starfsferil og reynslu óskast send til Ráðningar- þjónustu Hagvangs hf, fyrir 25. mars n.k. Rétt þekking 6 róttum tfma -fyrír rótt fyrirtœki HAGVANGUR RAÐNINGARÞJÓNUSTA Coopers & Lybrand Hagvangur hf. Skeifan 19 108 Reykjavík Sfmi 581 3666 Brófsfmi 568 8618 Netfang radningar@coopers.is Veffang http://www.coopers.is Bifvélavirkjar Nemar í bifvélavirkjun Þekkt þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar að ráða til sín bifvélavirkja eða nema í bifvélavirkjun. Starfssvið: Vinna á verkstæði og smurstöð fyrirtækisins. Hæfniskröfur: Áhugasamur og ábyggilegur bifvélavirki eða nemi sem vantar samning. Nánari upplýsingar veitir Þóra Brynjúlfsdóttir í síma 588 3309. Vinsamlegast skilið umsóknar- eyðublöðum ásamt mynd til Ráðningarþjónustunnar. RÁÐNINGAR SbC ÞJÓNUSTAN !...ávallt réttur maður I rétt starf. Einkennandi fyrlr alla starfsemi Ráönlngar- þjónustunnar er eftirfarandi: ♦ Gæði ♦Góð Þjónusta ♦Hagstætt verð ♦Vönduð ráðgjöf ♦ Reynsla ♦Trúnaöur ♦ Þekking ♦Öryggi RÁÐNINGAR ÞJÓNUSTAN Háaleitlsbraut 58-60 108Reykjavfk Sími: 588 330 Fax: 588 3659 Netfang: radning@radning.is Veffang: http://www.sWma. is/radning/ esiiEHHK iiiimift Háskóli íslands Frá námsbraut í sjúkraþjálfun Á skrifstpfu námsbrautar í sjúkraþjálfun viö Háskóla íslands er laust til umsóknar starf há- skólamenntaðs starfsmanns, þ.e. skrifstofu- stjórastarf. Um er aö ræða 100% starf (eða eftir samkomu- lagi). Starfið felst einkum í daglegri stjórnun og rekstri skrifstofunnar, sem og þjónustu við kennara og nemendur. Leitað ereftir þjónustuliprum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt. Til greina kemur að ráða sjúkraþjálfara. Reynsla af skrifstofustörfum er nauðsynleg. Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags háskólakennara. Umsóknarfrestur er til og með 30. mars nk. Umsóknum skal skila til starfsmannasviðs Há- skóla íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefurverið tekin. Nánari upplýsingar gefa Svandís Sigurðar- dóttir, formaður námsbrautarstjórnar í sjúkraþjálfun, í síma 525 4006, netfang svand- is@rhi.hi.is, og Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir, deildarstjóri á starfsmannasviði, í síma 525 4273, netfang gosa@rhi.hi.is. Bakari óskast til starfa í góðu bakaríi í Vestmannaeyjum sem framleiðirfyrir eigin verslun, matvöruverslanir og eigin konditori sem tekur 30 manns í sæti. Sérgrein: Helst kökur og skreytingar. Góð íbúð í 5 mínútna göngufæri frá vinnustað fylgir. Upplýsingar gefur Bergur í símum 481 2664 og 481 2466. Vilberg kökuhús. Sumarvinna Óska eftir starfskrafti með þýsku og/eða frönskukunnáttu til starfa sem leiðsögumaður næsta sumar úti á landi. Meirapróf æskilegt. Umsóknirsendisttil afgreiðslu Mbl. merktar: „Sumarvinna — 3826" fyrir 25. mars nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.