Morgunblaðið - 12.05.1998, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐÍÐ
ÍÞRÓTTIR
lánta Ponsa
Mallorca
gi-10. mal
>4.-60. sæti
SPANN
Molas
) jSardiníu
'S3S2.-5. aprfl
Nfö'mst ekki áfram)
Agadir
Marokkó
2..f5.mars
S8. sæti
Fílabeinsstr.
og árangur Hanj til
Skorkort Birgis Leifs Haf
á Opna spænska meistaramótinu
í Evrópumótaröðinni í golfi
Kevropu
I mótaröðin
1
Askorenda
mótaröðin
■ STEINAR Adolfsson í ÍA var val-
inn í landsliðið í knattspyrnu sem fór
til Frakklands í gær. Hann kom í
staðinn fyrir Auðun Helgason hjá
Viking í Noregi sem er meiddur.
■ HERBERT Arnarsson og félagar
hans í AP Antwerpen töpuðu fyrsta
leiknum í úrslitum um belgíska
meistaratitilinn í körfuknattleik um
helgina fyrir Charleroi, 75:81, á
heimavelli.
■ SIGURLAUG Áma dóttir í
Skautafélagi Reykjavíkur varð í ní-
unda sæti á opnu móti á listskautum
sem var haldið í Oxford á Englandi
fyrir helgi.
■ LINDA Viðarsdóttir úr Skautafé-
lagi Reykjavíkur varð í 14. sæti í
sama fiokki og Sigurlaug en 22
keppendur voru í flokknum. Þetta er
í fyrsta sinn sem keppendur frá
Skautafélagi Reykjavíkur taka þátt
í opnu móti erlendis.
■ ÞÓRA Helgadóttir úr Breiðabliki
lék fyrsta landsleik sinn í knattspyrnu
á sunnudag þegar Bandaríkin unnu
ísland 1:0. Þóra, sem er 17 ára, kom
inn á sem varamaður undir lokin.
■ LAUFEY Ólafsdóttir úr Val lék
fyrstu tvo knattspymulandsleiki sína
um helgina, kom inn á sem varamað-
ur á móti Bandaríkjunum ytra.
Laufey verður 17 ára eftir mánuð.
■ EDDA Garðarsdóttir í KR, sem
verður 19 ára í júh', var í byrjunarlið-
inu í báðum leikjunum og hefur þar
með leikið þrjá landsleiki.
■ GUÐRUN Jóna Kristjánsdóttir í
KR fékk lungnabólgu og fór heim til
Islands á laugardag.
■ MARTINA Hingis, sem er efst á
styrkleikalista Alþjóðatennissam-
bandsins, varð meistari á Opna
ítalska mótinu í fyrsta sinn en hún
vann Venus Williams 6-3, 2-6, 6-3 í
úrslitum.
■ TIGER Woods sigraði á golfmóti í
Bandaríkjunum um helgina og end-
urheimti efsta sætið á alþjóða styrk-
leikalista kylfinga.
■ STEFAN Effenberg, fyrirliði
Gladbach, fer aftur til Bayem
Miinchen í sumar en hann lék með
liðinu 1990 til 1992. Effenberg gerði
samning til þriggja ára og er kaup-
verðið undir 10 milljónum mai’ka, að
sögn Ulis Höness, frainkvæmda-
stjóra Bayern.
■ GLADBACH slapp við fall í þýsku
deildinni á síðustu stundu en það
breytti engu um ákvörðun Effen-
bergs, sem er 29 ára miðjumaður og
hefur leikið 33 landsleiki.
■ BRASILÍSKI miðherjinn Jardel
gerði fimm mörk þegar Portúgals-
meistarar Porto unnu Salgueiros
7:2 í portúgölsku deildinni um helg-
ina. Jardel er kominn með 24 mörk í
deildinni.
■ STEPHANE Carnot er genginn
til liðs við Auxerre sem greiddi
Mónakó 20 millj. franskra franka
fyrir hann. Carnot skipti í Mónakó
frá Guingamp í fyrra en var aðeins
sjö sinnum í byrjunarliðinu í vetur.
Hann gerði samning til fimm ára.
■ HEINER Brand, landsliðsþjálfari
Þjóðveija í handknattleik, er þessa
dagana með landslið sitt við æfingar
til undirbúpings lokakeppni Evrópu-
mótsins á Ítalíu sem hefst í lok mán-
aðarins. Um helgina léku Þjóðveijar
tvo landsleiki við Ungverja á heima-
velli, sigruðu 23:19 í fyrri leiknum en
töpuðu 23:21 þeim síðari. í framhaldi
af leikjunum valdi Brand 16 manna
hóp til þess að taka þátt í lokaundir-
búningnum.
BIKAR
Um kvöldmatarleytið í gær
barst tilkynning frá móta-
nefnd Knattspyrnusambands ís-
lands þess efnis að úrslitaleikur
deildabikarkeppni KSÍ færi firam
á gervigrasvellinum í Laugai-dal í
kvöld. Aður hafði veiið ákveðið að
leikiuinn færi fram á Varmárvelli
í Mosfellsbæ, sam-
kvæmt ósk forráða-
manna vallarins, en í
gærmorgun fékkst
ekki grænt ljós á hann.
Þá var athugað með
Ásvelli í Hafnarfirði en
gervigrasið þar var ekki strikað.
Að lokum stóð valið á millí elsta
gervigrasvallar landsins og
Tungubakkavallar í Mosfellsbæ.
Æfingavöllurinn vai- látinn víkja,
fyrst og fremst með aðstöðu fyrir
áhorfendur og sjónvarp í huga.
Deildabikarkeppni karla var
komið á fyrir tveimur ánim.
Fyrsti úrslitaleikurinn fór fram á
Kaplakrikavelli í Haínarfirði en í
fyrra var leikið á Valbjarnarvelli í
Laugardal. I reglugerð KSÍ um
keppnina segir m.a. að úrshta-
leikurinn skuli „fara fram á gras-
velli, ef aðstæður leyfa, en annars
á malar- eða gervigrasvelli á höf-
uðborgarsvæðinu". Ennfremiu-
kemur fram að úrslitakeppni
skuli lokið fyrir upphaf íslands-
móts.
Hugmyndin með keppninni var
að koma á móti í stað æfinga-
leikja, alvðrukeppni með tilheyr-
andi úrslitaleik. Gott s\'o langt
sem það nær en þegar kemur að
grasvöllum í maí getur málið
vandast. Iðagrænt gras á höfuð-
borgarsvæðinu í byijun maí er
óskhyggja sem stundum rætist
en alls ekki alltaf og þegar viður-
kenndir keppnisvellir með yfir-
byggðum stúkum fyrir áhorfend-
ur eru ekki tilbúnir er í engin hús
að venda. Varavöllur með fyrr-
nefndum búnaði er ekki til í höf-
uðborginni. Ekki er hægt að stóla
á að aðstæður fyrir úrslitaleik í
maí séu fyrir hendi. Ekki síðan
Melavöllurinn var rifinn.
„Það verður leikið á grasi,“
sagði ónefndur sjópvarpsmaður
þegar formaður KSÍ sagði að ís-
lenska knattspyrnan yrði sýnd í
Ekki hægt að treysta
á völl á höfuðborgar-
svæðinu í maí
sjónvarpi í sumar. í næstu viku
hefst íslandsmótið í knattspyrnu.
Forráðamenn félaganna í efstu
deild hafa beðið um milt veður að
undanfórnu og virðist ætla að
verða að ósk sinni á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Þvi bendir flest til
þess að keppnin í efstu deild hefj-
ist á grasi eins og áhersia er lögð
á í reglugerð. Annað er heldur
ekki sæmandi elstu keppni lands-
ins, sem fór fyrst fram 1912.
Gervigras er ekki sama og gras
og gervigrasvöllurinn í Laugardal
heíúr ekki heillað bestu knatt-
spyrnumenn landsins. Þeir forð-
ast hann.
Rætt hefur verið um að gera
deildabikarkeppnina enn veiga-
meiri með því t.d. að sigurvegar-
inn öðlíst þátttökurétt í Evrópu-
keppní. SMk umræða er út í hött
þegar val um leikstað úi-slitaleiks-
ins stendur á milli Varmárvallar,
Ásvalla, Tungubakkavallar og
gervigrassins í Laugardal. Úr-
slitaleikur deildabikarkeppninnar
verður hvorki fugl né fiskur fyrr
en tryggt er að hann fari fram á
grasvelli þar sem áhorfendur
geta látið fara vel um sig í yfir-
byggðri stúku. Og leikmenn spil-
að knattspyrnu eins og þeir best
geta við bestu aðstæður.
Steinþór
Guðbjartsson
Hvert stefnir Evrópumeistarinn AUÐUNN JÓNSSON eftir sigurinn í Finnlandi?
I fremstu röð
á HM í haust
„ÉG er rétt að átta mig á þessu núna,“ sagði Auðunn Jónsson
kraftlyftingamaður er Morgunblaðið náði tali af honum í Finn-
landi í gær. Hann varð á sunnudaginn Evrópumeistari í kraftlyft-
ingum í 125 kg flokki, lyfti samtals 950 kg á móti sem fram fór í
bænum Sotkamo. Auðunn lyfti 22,5 kg meira en heimamaðurinn
Pasi Martkainen sem hreppti silfur. Bronsverðlaunin komu í
hlut Rússans Evgeny Birum, sem lyfti 910 kg. Auðunn lyfti 360
kg í hnébeygju, 230 kg i bekkpressu og 360 kg í réttstöðulyftu.
„Þetta er það þyngsta sem ég hef lyft á alþjóðlegu móti, en ég
hef gert betur á mótum heima,
Auðunn er annar íslendingurinn
sem verður Evrópumeistari í
kraftlyftingum, hinn er Magnús
Ver Magnússon, en
EWr hann vann sinn
ívar þyngdarflokk á mót-
Benediktsson unum 1989 og 1991.
Auðunn er 26 ára ráð-
gjafí hjá Stuðlum, meðferðarheimili
fyrir unglinga í Grafarvogi. Hann
hefur æft kraftlyfingar frá 12 ára
aldri og keppti fyrst 14 ára. „Eg hef
haft áhuga á Jyftingum frá því ég
var bam. Þegar ég var tólf ára bjó
ég rétt við líkamsræktarstöð í
Engihjalla. Þar æfðu þeir bestu,
s.s. Jón Páll Sigmarsson, Magnús
Ver Magnússon og Hjalti Árnason.
Ég leit inn á æfingu og var strax
vel teldð og boðið að æfa með þeim.
Jón Páll var að sjálfsögðu fyrir-
myndin, enda stórkostlegur
íþróttamaður og góð fyrirmynd.
sagði Auðunn.
Frá þessum tíma hef ég lagt hart
að mér og er nú loks að uppskera
laun erfiðisins."
Hefur þú lengi stefnt á gull á
stórmóti?
„Svo sannarlega, en herslumun-
inn hefur oft vantað. I tvígang hef
ég hafnað í öðru sæti á EM ung-
linga og jafnoft á HM unglinga. Þá
varð ég í þriðja sæti á HM fullorð-
inna en þetta var í fyrsta skipti sem
ég tek þátt í EM fullorðinna. Ég
lagði því allt í sölurnar að þessu
sinni þar sem ég vissi að ég yrði í
baráttunni um gullið.“
Var þetta eins öruggur sigur og
úrslitin gefa til kynna?
„Fyrir síðustu greinina, rétt-
stöðulyftu, hafði ég góða forystu,
en ég hef oft átt það til að reyna að
taka meiri þyngdir en nauðsynlegt
hefur verið. Fyrst lyfti ég 330 kg,
því næst 350 og loks 360 kg, en að-
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
AUÐUNN Jónsson hefur oft verið nærri gulli á stórmótum i
kraftlyfingum. Um helgina tókst honum loks að klófesta það.
alkeppinautur minn fór aðeins upp
með 342 kg.“
Hvað er næst á dagskránni hjá
þér?
„Það er heimsmeistaramótið
sem fram fer í Úkraínu í haust og
þessi sigur er vissulega gott vega-
nesti. Ég fann á mótinu um helgina
að ég á nokkuð inni því ég gerði
nokkur mistök, bæði í hnébeygj-
unni og í bekkpressunni. Þau
þýddu að ég þurfti að endurtaka
lyftur og það kostaði kraft. Nú er
bara að leggja harðar að sér við
æfingar og bæta við sig líkams-
þyngd. Nú er ég 116 kg og því
nokkuð frá hámarksþyngd í flokkn-
um.“
Hviið æfir þú mikið?
„Ég æfi allt að fimm sinnum í
viku og að jafnaði fjóra klukkutíma
í hvert sinn.“
Verður ekki meiri mótspyi-na á
HM?
„Það þarf ekki að vera, því sterk-
ar þjóðir sem láta mikið að sér
Ipæða á EM, eins og Rússar og
Úkraínumenn, eru einnig með á
HM. En vissulega eru keppendur
frá fleiri þjóðum á meðal keppenda
á HM. Ég hef sett stefnuna á bar-
áttuna á HM og að vera þar í
fremstu röð.“
Hefur stefnan síðan verið sett á
að feta í fótspor Jóns Páls og
Magnúsar í kraftakeppni viðsvegar
um heiminn eftir nokkur ár?
„Að því hef ég ekki leitt hugann
vegna þess að ég er ekki tilbúinn að
hætta keppni í kraftlyftingum
nærri strax. En það er aldrei að
vita hvað framtíðin ber í skauti
sér.“