Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 12. .MAÍ 1998
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Handboltahátíö á Austfjörðum
Morgunblaðið/Helena
RÚMLEGA helmingur bæjarbúa á Fáskrúðsfirði mætti á leik íslands og Japan á sunnudaginn. Krakkarnir skemmtu sér konunglega,
mörg máluð í fánalitunum og stemmningin var góð; stúlkan fyrir míðri mynd sló t.d. taktinn af miklum myndarbrag.
Jákvætl að gefast ekki upp
íslenska landsliðið í
handknattleik lék
tvo vináttuleiki við
Japani á Austfjörðum
um helgina. Valur B.
Jónatansson brá sér
austur og fylgdist með
tveimur sigurleikjum
„Strákanna okkar“
sem virkuðu þreyttir
eftir veturinn.
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik vann Japani í tveimur
vináttulandsleikjum á handbolta-
hátíð á Austfjörðum um helgina.
„Strákamir okkar“ eins og þeir
eru oft nefndir gerðu aðeins það
sem þurfti til að sigra og ekkert
umfram það. Fyrri leikurinn í
Neskaupstað á laugardag endaði
23:19 og sá síðari á Fáskrúðsfirði
á sunnudag vannst með tveggja
marka mun, 20:18. Mikill áhugi
var fyrir austan á leikjunum og
vöktu leikmennirnir verðskuldaða
athygli hvert sem þeir fóru. Það
er vel til fundið hjá HSÍ að spila
landsleiki utan höfuðborgarsvæð-
isins og leyfa þannig landsbyggð-
arfólki að komast í meiri snert-
ingu við íþróttamennina og íþrótt-
ina.
Ferðaþreyttir Japanir
Norðfirðingar mættu í íþrótta-
hús sitt á laugardaginn minnugir
þess að íslenska liðið tapaði fyrir
Dönum í fyrsta landsleiknum á
Austfjörðum í sama húsi í desem-
ber. Þeir ætluðu ekki að láta það
endurtaka sig og komu því með öfl-
uga sveit stuðningsmanna sem létu
vel í sér heyra. Hvort það var sá
stuðningur sem gerði gæfumuninn
skal ósagt látið, en alténd varð ís-
lenskur sigur, 23:19.
Islenska liðið náði strax undir-
tökunum og hafði yfir í hálfleik,
12:9. Eftir hlé gaf Þorbjöm þjálfari
yngri leikmönnunum, Gunnari
Berg, Sigfúsi, Daða og Reyni tæki-
færi og skiluðu þeir sínu hlutverki
vel enda sat ferðaþreyta í japanska
liðinu, sem var ekki líklegt til af-
reka. Mestur var munurinn fimm
mörk, 20:15, þegar tíu mínútur
voru eftir og aldrei spurning hvort
liðið færi með sigur af hólmi eftir
það.
Valdimar og Patrekur fóru fyrir
íslenska liðinu, gerðu samtals 14
mörk. Vömin var ágæt á köflum og
Reynir varði vel í síðari hálfleik.
Liðinu var fyrirmunað að skora úr
vítaköstum - Valdimar misnotaði
tvö þeirra, Patrekur eitt og Gunnar
Berg eitt. Japanska liðið lék flata
6-0-vöm og kom það nokkuð á
óvart því vananlega hefur það leik-
ið vömina mun framar, eins og það
gerði reyndar í síðari leiknum.
Það var mikil eftirvænting meðal
Fáskrúðsfirðinga á sunnudag, enda
SÓKNAR- DCHB
NÝTING ^
12 22 54 F.h 9 23 39
11 24 46 S.h 10 24 42
23 46 50 Alls 19 47 40
8 Langskot 5
3 Gegnumbrot 1
4 Hraðaupphlaup 3
2 Hom 4
5 Lína 2
1 Víti 4
fyrsti landsleikurinn sem þar fer
fram. Rúmlega helmingur bæjar-
búa, 400 áhorfendur, mætti til að
berja handboltastrákana augum.
Yngri kynslóðin fékk að ræða per-
sónulega við landsliðsmennina og
eignast eiginhandaráritanir.
Fyrirfram var búist við meiri
mótspymu frá japanska liðinu en
daginn áður og sú var raunin. ís-
lenska liðið byrjaði með látum og
fyrstu þrjár sóknirnar enduðu með
marki og staðan þá 3:1. í stöðunni
6:7 fyrir Japan meiddist Valdimar
Grímsson og varð að hætta leik.
Við það missti íslenska liðið flugið.
Daði Hafþórsson var settur í
hægra homið fyrir Valdimar og
misnotaði nokkur færi og Japanir
gengu á lagið og náðu þriggja
marka forskoti, 7:10 og 10:13. Þá
sýndi Daði að hann getur bragðið
sér í gervi homamanns og setti inn
tvö mörk í röð og staðan í hálfleik,
12:13.
„Hingað og ekki lengra“
Patrekur jafnaði í 13:13, en þá
kom afleitur kafli hjá íslensku
strákunum. Þeir klúðraðu tíu sókn-
um í röð á tíu mínútna kafla og
misnotuðu m.a. víti. Þegar síðari
hálfleikur var hálfnaður var staðan
14:17 fyrir Japani og allt útlit fyrir
sigur þeirra. Þá sagði Þorbjörn
„hingað og ekki lengra“ - vömin
samall saman og liðið gerði fjögur
mörk í röð án þess að gestimir
næðu að lauma einu marki, 18:17,
og lokatölur 20:18.
íslenska liðið sýndi andlegan
styrk í lokin með því að vinna upp
mun gestanna og sigra. Sóknar-
leikurinn olli hins vegar vonbrigð-
um lengst af og þreytumerki vora
á leikmönnum. Liðið átti í vand-
ræðum með að komast í gegnum 5-
1-vöm Japana eins og svo oft áður.
Patrekur var bestur, tók af skarið
er á þurfti að halda og gerði sex
mörk, öll með langskotum. Sigfús
var einnig góður þann tíma sem
hann var inni á og er þar kominn
verðugur arftaki Geirs fyrirliða.
Ólafur Stefánsson var ekki eins og
hann hefur getu til og munar um
minna. Þá gat Dagur Sigurðsson
ekkert leikið vegna meiðsla og kom
það niður á leik liðsins í báðum
leikjunum.
orbjöm Jensson landsliðsþjálf-
ari sagðist vera sáttur við leik-
ina á móti Japan. „Við vorum komn-
ir í frekar miklar ógöngur í síðari
hálfleik á Fáskrúðsfirði, þremur
mörkum undir, en höfðum samt
getu til að snúa leiknum okkur í
hag. Það eitt finnst mér alltaf já-
kvætt, að gefast ekki upp þó á móti
blási. Náðum tökum á því sem við
vorum að gera vitlaust,“ sagði Þor-
björn.
Hann sagði að fyrri leikurinn sem
fram fór í Neskaupstað hefði verið
auðveldari og kannski ekki alveg að
marka hann því japanska liðið var að
koma beint úr erfiðu ferðalagi. „Við
náðum flótlega góðri forystu og réð-
um vel við þann leik. Við þurfum á
verkefnum að halda til að undirbúa
okkur fyrir haustið. Þetta verkefni
var meira í þeim dúr að sinna þörf-
um Japana. Þeir vildu fá tvo lands-
leiki og ef þetta hefði ekki komið upp
hefði ég ekki haft neitt verkefni
núna. Eg held eftir á að hyggja að
þetta hafi verið mjög gott.“
JAPANSKI þjálfarinn, Seimei
Gamo, var ánægður með landsleik-
ina á Austfjörðum. „Ég er mjög
ánægður og þakklátur að hafa feng-
ið þessa leiki á Islandi. Þeir eiga eft-
ir að nýtast okkur vel og eru góð æf-
ing fyrir okkur. Við eram með ungt
lið sem ég er að byggja upp fyrir
Ólympíuleikana í Sydney árið 2000.
Það er í góðri líkamlegri æfingu en
þarf meiri leikæfingu og þess vegna
eram við hér,“ sagði hann. Meðal-
aldur leikmanna er um 22 ár.
Hann valdi liðið um áramótin og
hafði það tvívegis komið saman í
vikutíma áður en það kom hingað.
Hann sagði að það vantaði fjóra
sterka leikmenn í hópinn en þeir eru
meiddir. Liðið verður í æfingabúð-
íslenska liðið kemur saman aftur
8. júní og verður saman til 10. júlí.
„Það stóð til að fara í æfingaferð til
Egyptalands á þessum tíma, en
mótinu var seinkað um viku og þá
erum við búnir að missa atvinnu-
mennina okkar til Þýskalands. Við
ætlum því að finna okkur önnur
verkefni í júní og þá er ég að líta til
landsleikja við Svíþjóð og Noreg.“
Japanski þjálfarinn telur að ís-
lenska liðið sé orðið of gamalt, hvað
segir þú um það?
„Ég er ekki sammála því. Það
era aðeins þrír til fjórir leikmenn
sem eru orðnir gamlir. Hinir í
kjarna liðsins eru mjög ungir og
nefni ég siráka eins og Dag,
Patrek, Björgvin, Ólaf og Reyni.
Þetta era allt strákar sem era
komnir með mikla reynslu en eru
samt ungir. Ég treysti mér til að
vera með þessa leikmenn áfram.
Þeir era að spila í bestu deild í
heimi og eru framarlega þar. Með-
an þeir eru að spila þar erum við
með besta mannskapinn sem við
um víða í Evrópu næstu vikurnar og
spilar m.a. við Júgóslavíu og Grikk-
land og félagslið í Frakklandi og
Þýskalandi. Evrópuferðinni lýkur
með því að landsliðshópurinn fylgist
með fyrstu leikjunum í Evrópu-
keppninni á Italíu. „Þar ætlum við
að læra og sjá það besta sem er að
gerast í handboltanum."
Hvað fínnst þér um íslenska liðið?
„íslenska liðið hefur verið skipað
nánast sömu leikmönnunum undan-
farin sjö til tíu ár og er á niðurleið að
mínu mati. Það spilar grófan varn-
arleik og fer langt á því. Við eram
hins vegar að byggja upp til framtíð-
ar og því meira að marka styrk okk-
ar liðs á móti 20 ára landsliði ykk-
ar.“
höfum. Þá eigum við mestu mögu-
leikana á að ná árangri. Ég hef það
alltaf í bakhöndinni að endurnýja í
einstakar stöður í liðinu. En ég fer
rólega í það - skipti ekki bara til að
skipta."
Valdimar
meiddist
VALDIMLAR Grímsson meidd-
ist á kálfa í fyrri hálfleik í leikn-
um á Fáskrúðsfirði á sunnudag.
Hann taldi að vöðvi hefði rifnað
og gat því ekki leikið meira eftir
það. Hann hafði töluverðar
áhyggjiu- af meiðslunum vegna
þess að hann á eftir að standast
iæknisskoðun áður en hann
skrifar undir samning við
Wuppertal í lok mánaðarins.
Dagur Sigurðsson var með
landsliðshópnum á Austfjörðum
en horfði á báða leikina vegna
meiðsla. Hann meiddist á hné í
næstsíðasta leiknum með
Wuppertal í Þýskalandi.
Fyrsti lands-
leikurínn á
Fáskrúðsfirði
FYRSTI landsleikurinn í hand-
knattleik á Austfjörðum fór
fram í Neskaupstað í desember
í fyrra, en þá komu Danir í
heimsókn. ísland tapaði stórt
og lögðu Norðfirðingar því
óherslu á að fá annan leik og
það fengu þeir á laugardaginn
og nú gátu þeir fagnað sigri.
Síðari leikurinn á móti Japan
fór fram á Fáskrúðsfirði í nýju
og glæsilegu íþróttahúsi sem
var tekið í notkun í loks síðasta
árs. Þetta var fyrsti landsleik-
urinn sem þar fer fram.
Undirbúningur
fyrir ÓL í Sydney