Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 7
+ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR12. MAÍ1998 B 7 KNATTSPYRNA Rangers vill 720 milljónir króna Simone bestur í Frakklandi ÍTALSKI miðherjinn Marco Simone hjá París Saint Germain var valinn Ieik- maður ársins í Frakklandi í kjöri leik- manna og franski miðheijinn David Trezeguet hjá Mónakó sá efnilegasti. Joel Muller, þjálfari Metz, sem varð í öðru sæti frönsku 1. deildarinnar, var kjörinn þjálfari ársins. Simone gerði 13 mörk í deildinni auk þess sem hann skoraði bæði í úrslitaleik bikarkeppninnar og deildabikarkeppn- innar en PSG sigraði í báðum leikjun- um. Simone, sem áður var hjá AC Milan í heimalandinu, náði aldrei að festa sig í sessi á þeim bæ enda mikið af frábær- um framherjum þar fyrir, en leikmað- urinn hefur gengið í endurnýjun líf- daga eftir að hann kom til Frakklands og leikið nyög vel i vetur. Brasilíumaðurinn Sonny Anderson var kosinn besti leikmaðurinn í fyrra, þegar hann lék með Mónakó, en hann er nú með Barcelona á Spáni. Trezeguet var yfirleitt varamaður á fyrri hluta tímabilsins en varð næst- markahæstur í deildinni með 16 mörk; sló algjörlega í gegn seinni hluta keppnistúnabilsins og nú er svo komið að mörg af stórliðum Evrópu hafa sýnt þessum frábæra miðheija mikinn áhuga. Reuters ÁHANGENDUR Kaiserslautern voru í sviðsljósinu á Volkspark Stadion í Hamborg, en 30.000 stuðningsmanna nýbakaðra meistara fylgdu sínum mönnum 600 kílómetra leið frá Kaiserslautern norður f land. Reuters tskur meistari í knattspyrnu. Liðið tryggði irðinni gegn Auxerre á útivelli. + Yohan Lachor var hetja Lens þegar liðið gerði jafntefli við Auxerre á útivelli um helgina og tryggði sér þar með franska meist- aratitiUnn í fyrsta sinn. Sabri Lamouchi, fyrirliði Auxerre, skoraði eftir 13 mínútur en þá var staðan 1:0 fyrir Metz á móti Lyon og titillinn því í höndum Metz. Vinstri bakvörð- urinn Laehor, sem er 22 ára, jafnaði fyrir Lens á 53. mínútu og það nægði. „Ég gleymi þessu aldrei," sagði Lachor. „Eg er frá Lens og hef klifrað upp stigann hjá félaginu undanfarin 10 ár, leikið með öllum flokkum." Þetta var fyrsta jafntefli Lens á útivelli á tímabilinu en liðið sigraði í níu útileikjum og tapaði sjö. „Ég á ekki til orð til að lýsa líðan minni,“ sagði Gervais Martel, formaður fé- lagsins. „Við vorum með í barátt- unni allan tímann þó að enginn hefði veðjað eyri á okkur í byrjun. Á þess- Fimm lið í baráttu um annað REAL Madrid tapaði 1:0 fyrir Espanol en á ennþá mögu- leika á öðru sætinu í spænsku deildinni. Fjögur lið til viðbót- ar eru í keppni um sætið og rétt í Meistaradeild Evrópu í haust en deildinni lýkur á föstudag. Athletic Bilbao hefði tryggt sér annað sætið með sigri en varð að sætta sig við marka- Iaust jafntefli við Merida og er í öðru sæti með tveimur stigum meira en Real Madrid, Real Sociedad og Mallorca og þremur stigum meira en Real Betis. Bilbao mætir Real Zaragoza í síðustu umferð. Atletico Madrid vann meist- ara Barcelona, 5:2, í mjög góðum leik. Oft hefur verið mikið skorað í leikjum liðanna og áhorfendur fengu að sjá sjö mörk að þessu sinni. Bras- ilíumaðurinn Rivaldo braut ís- inn eftir 11 mínútur, skoraði frá miðju. Margir stuðnings- menn Atletico voru með borða þar sem þjálfaranum Radomir Antic voru þökkuð góð störf hjá félaginu í þijú ár. „Áhang- endurnir hafa kvatt hann með sæmd og ég færi honum hjart- anlegar þakklætiskveðjur," sagði Jesus Gil, eigandi Atlet- ico. Arrigo Sacchi, fyrrver- andi þjálfari AC Milan, tekur við liðinu. Real Sociedad gerði jafn- tefli, 1:1 heima við Tenerife og sömu úrslit urðu í leik Salamanca og Mallorca en Real Betis tapaði 2:0 heima fyrir Racing Santander, sem er í fallbaráttu. Real Madrid hefur ekki sigrað á útivelli í sex mánuði en hefur leikið 13 útileiki á tímabilinu. „Það er eins og við gefumst upp við það að lenda undir,“ sagði Lorenzo Sanz, eigandi félagsins, en áréttaði stuðning við þjálfarann Jupp Heynckes. „Hins vegar væri fáránlegt að fórna þjálfara við þessar aðstæður." helja ari stundu er hugurinn hjá frábær- um stuðningsmönnum okkar sem eiga titilinn skilinn.“ Lens sigraði í sjö leikjum í röð áð- ur en kom að síðustu umferðinni en tapaði reyndar bikanlrslitaleiknum fyrir viku og óttuðust margir að tap- ið sæti í mönnum, ekki síst eftir að hafa fengið mark á sig. En þeir stóð- ust álagið og urðu meistarar á hag- stæðari markatölu en Metz. „Við getum verið hreyknir af frammistöð- unni,“ sagði Sylvain Kastendeuch, fyrirliði Metz. „Þetta er besti árang- ur liðsins í sögu félagsins." Auxerre missti af Evrópukeppni félagshða en Lyon, Mónakó, Olymp- ique MarseiUe og Girondins Bor- deaux vara í UEFA-keppnina í haust. Hins vegar fer Auxerre í Get- raunadeildina eins og í fyrra en ár- angurinn þar fleytti liðinu áfram í UEFA-keppnina þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Lens Brian Laudrup, danski landsliðs- maðui-inn frábæri í knatt- spyrnu, sagði á sunnudag að til greina kæmi að hann hætti við að fara til Chelsea í London frá Glas- gow Rangers ef félögin kæmust ekki að samkomulagi um félaga- skiptin innan tíðar. Danski miðherjinn taldi sig vera lausan allra mála hjá Rangers en fé- lagið vill fá sex milljónir punda, um 720 millj. kr„ fyrir hann. „Ef félagið heldur þessu til streitu verð ég að endurskoða ákvörðun mína um að flytja til Englands. Ekki kemur til greina að vera áfram hjá Rangers og ég sætti mig ekki við framkomu félagsins. Svona á ekki að koma fram við leikmann eftir fjögurra ára starf.“ Rangers segir að þó að Laudrup sé samningslaus eigi að koma gjald fyrir hann fari hann til félags innan Bretlands en Laudrup er ekld á sama máli. yngsti Fram Reykja- víkuimeistari FRAM vann Val 2:0 í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu sem fór fram á æfingagrasvellinum að Hlíðarenda á laugardag. Þorvald- ur Ásgeirsson gerði fyrra markið með góðu skoti frá vítateigslínu eftir sendingu frá Baldri Bjamasyni á 10. mínútu og Baldur bætti öðru marki við 10 mínútum fyrir leikslok, fékk boltannn inn fyrir vöm Vals frá Frey Karlssyni og skoraði af öryggi fram- hjá Lárasi Sigurðssyni í marki Vals. Liðin sköpuðu sér nokkur góð marktækifæri en aðeins fyrrnefnd tvö færi nýttust og þar við sat. Á myndinni er fyrirliði Fram, Jón Sveinsson, með Reykjavíkurbikar- inn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.