Morgunblaðið - 12.05.1998, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR12. MAÍ 1998 B 5
Bjpofnn/m
FOLK
■ GUÐJÓN V. Sigurðsson, leik-
maður Gróttu/KR sem valinn var í
A-landsliðhópinn á móti Japan, fór
ekki austur með liðinu. Ákveðið var
hann að myndi æfa með 20 ára
landsliðinu í Reykjavfk undir stjóm
Borisar Bjama um helgina enda
mikilvægir leikir frmundan hjá því
liði í undankeppni EM.
■ ÓSKAR Óskarsson, sem var að-
stoðarþjálfari Valsmanna sl. vetur,
aðstoðaði Boris Bjaraa við æfingar
20 ára landsliðsins um helgina. Að-
alþjálfari liðsins er Þorbjöm Jens-
son, sem stjómaði A-landsliðinu á
Austfjörðum um helgina. Hann tek-
ur við stjóm 20 ára liðsins í dag og
stýrir því æfingaleik gegn Japan á
Hvolsvelli í kvöld.
■ FRIÐRIK Guðmundsson, er far-
arstjóri hjá japanska landsliðinu
meðan það dvelur hér á landi. Hann
var á heimavelli á laugardaginn er
liðin léku í Neskaupstað enda er
hann fæddur þar og uppalinn og
gatt frætt forvitna Japani um stað-
inn.
■ GEIR Sveinsson, Júlíus Jónas-
son og Dagur Sigurðsson fóm í
gær í sumarfrí til Flórída í Banda-
ríkjunum ásamt íjölskyldum sín-
um. Þar ætla þeir að dvelja í tvær
vikur.
■ ÍSLENSKA landsliðið missti af
flugvélinni sem átti að flytja það til
Egilsstaða á laugardag. Liðið mætti
út á Reykjavíkurflugvöll kl. 9 en
flugvélin fór klukkan 08.30. Liðið
varð því að bíða eftir næstu vél til
Egilsstaða sem fór um hádegið.
■ SVERIIIR Bjömsson, leikmaður
KA-manna, hefur verið orðaður við
Aftureldingu.
■ SIGURÐUR Gunnarsson, sem
þjálfaði Hauka sl. vetur, hefur verið
ráðinn þjálfari Víkings í 2. deild
næsta tímabil. Frá þessu var gengið
um helgina.
■ JÚLÍUS Jónasson og félagar
hans í St. Otmar vora slegnir út í
undanúrslitum af Winthertur í
svissneska handboltanum - tapaði
báðum leikjunum. Winthertur
fagnaði síðan meistaratitlinum.
■ JÚLÍUS & eitt ár eftir af samn-
ingi sínum við svissneska félagið.
„Það er öraggt að ég kem heim til
íslands eftir næsta tímabil,“ sagði
hann.
■ RÓBERT Rafnsson, handbolta-
maður sem lék með Kristjansand í
norsku 1. deildinni í vetur, hefur
ákveðið að leika með Gróttu/KR
næsta vetur. Hann lék með Gróttu
áður en hann fór til Noregs.
■ MAGNÚS A. Magnússon, sem
lék með Stjörnunni sl. vetur, hefur
gengið til liðs við Gróttu/KR. Eins
er talið að Einar Baldvin Áraason
verði með liðinu í vetur, en hann lék
einnig með Stjörnunni í vetur.
■ RÓBERT Sighvatsson gerði
fimm mörk fyrir Dormagen í 24:21
sigri á Schutterwald í fyrri úrslita-
leik Iiðanna um sæti í efstu deild.
Héðinn Gilsson gerði þxjú mörk.
Síðari leikurinn fer fram á heima-
velli Schutterwald um næstu helgi.
SÓKNAR- ces
NÝTING
Fáskrúðsfirði 10. mai
12 21 57 F.h 13 22 59
8 22 36 S.h 5 22 23
20 43 46 Alls 18 44 41
8 Langskot 4
1 Gegnumbrot 2
1 Hraðaupphlaup 5
4 Hom 2
4 Ltna 1
2 Víti 4
KÖRFUKNATTLEIKUR
Chicago, Los Angeles, Utah og Indiana standa vel að vígi í NBA-deildinni
Bestu liðin
að skera
sig úr
Reuters
RON Harper hjá Chicago Bulls skýtur afl kðrfu Charlotte
f fyrri leik félaganna f Charlotte um helglna. Vlade Divac
og Dennis Rodman fyigjast mefl. Harper og samherjar
sigruðu f bæðl skiptin.
AÐEINS sex lið hafa náð að
vinna leikseríur f sögu úrslita-
keppni NBA-deildarinnar eftir
að hafa tapað þremur af fyrstu
fjórum leikjunum. New York,
Charlotte, Seattle og San Ant-
onio standa nú frammi fyrir
þessari stöðu eftir leiki helgar-
innar gegn fjórum bestu liðun-
um í deildinni.
Leikur helgarinnar var í Madison
Square Garden í New York á
sunnudag í fjórða leik New York og
Indiana. New York
Gunnar vann þriðja leik lið-
Valgeirsson anna á laugardag í
skrífar frá endurkomu Patricks
Bandaríkjunum Ewings á heimavelli
og í fjórða leiknum benti allt til hins
sama, enda heimaliðið með 8 stiga
forystu þegar tæpar fimm mínútur
voru eftir. New York liðið er hins
vegar þekkt fyrir að klúðra upplögð-
um tækifæram í leikjum og Indiana
saxaði smám saman á forskotið. Það
var síðan sjálfur Reggie Miller, sem
oft hefur leikið New York grátt í Ma-
dison Square Garden, sem jafnaði
leikinn fimm sekúndum fyrir leikslok
með þriggja stiga körfu eftir mikinn
barning, 102:102. Indiana átti síðan
framlenginguna og sigraði öragg-
lega, 118:107.
Þessi sigur tryggir Indiana næsta
örugglega farseðilinn í undanúrslit-
in, enda hefur liðið unnið New York í
fimm af sjö leikjum liðanna á keppn-
istímabilinu. Miller var frábær með
38 stig, en lykilmaðurinn hjá Indiana
var Hollendingurinn Rik Smits, sem
skoraði 14 stig í fjórða leikhlutanum
(þar af 12 í röð á einum kafla). „Ég
sá í augunum á þeim að allur kraftur
var úr þeim eftir að ég jafnaði leik-
inn. Við getum þakkað Rik (Smits)
fyrir að halda okkur á floti í fjórða
leikhlutanum," sagði Miller þegar
hann var spurður um lokasekúndur
leiksins.
Meistarar Chicago létu ósigur í
öðram leiknum gegn Charlotte lítið á
sig fá. Þeir sigruðu öragglega í leikj-
unum tveimur í Charlotte með 14
stigum, 103:89 á fóstudag og 94:80 á
sunnudag. Michael Jordan skoraði
58 stig um helgina, Scottie Pippen
lék firnagóða vöm og Dennis Rodm-
an tók alls 34 fráköst. Liðið er smám
saman að komast í form og miðherj-
inn Luc Longley leikur betur með
hverjum leik eftir að hann hóf að
leika að nýju eftir meiðsl. Scottie
Pippen þakkaði vöminni sigurinn á
sunnudag. „Þegar við spilum vömina
eins vel og í dag er ekki mikið sem
lið geta gert gegn okkur í sókninni."
Þess má geta að þeir Jordan, Pippen
og Rodman vora allir kosnir í fimm
manna besta varnarliðið í deildinni.
Chicago klárar þetta dæmi næsta ör-
ugglega í fimmta leiknum í vikunni.
I frægri bandarískri hryllings-
mynd er eftirminnileg setning: „Be
afraid, be very afraid." Já, liðin sem
komast í undanúrslit ættu öll að vera
hrædd við Los Angeles Lakers, og þá
sérstaklega Shaquille O’Neal. Liðið
yfirspilaði gott lið Seattle SuperSon-
ics í tvígang í The Forum um helgina.
f báðum leikjunum var sömu sögu að
segja. Enginn gat stöðvað O’Neal
undir körfunni og Eddi Jones setti
nýtt persónulegt met í stigaskorun í
leik í úrslitakeppninni. A fostudag
var Jones með 29 stig og O’Neal með
30, og á sunnudag var Jones með 32
stig og O’Neal með 39. Seattle hefur
ekkert svar við O’Neal undir körf-
unni og lið Lakers hefur Ieikið best
allra liða undanfarna viku. Nái liðið
að halda þessu áfram er erfitt að sjá
hvemig nokkurt lið geti haldið aftur
af því.
Eftir sigurinn á fóstudag, 119:103,
sagði Jones að hann hefði gert það
upp við sig að hann þyrfti að vera að-
gangsharðari að körfu andstæðing-
anna og það var hann svo sannar-
lega. O’Neal var eins og skriðdreki á
vígvelli á sunnudag (sigur, 112:100).
„Eg fékk góða hjálp í sókninni og
það skapaði mikið pláss fyrir mig.
Þegar svo er getur enginn stöðvað
mig,“ sagði hinn brosmildi O’Neal
eftir leikinn á sunnudag. Seattle er
ekki enn úr leik, en Gary Payton er
eini maðurinn í liðinu sem getur bor-
ið höfuðið hátt þessa dagana. Liðið
hefur barist vel en það hefur ekkert
svar við O’Neal undir körfunni. Ge-
orge Karl, þjálfari Seattle, viður-
kenndi það á blaðamannafundi eftir
sunnudagsleikinn. „Shaq hefur gert
okkur lífið leitt og við verðum að
finna svar við þvf í næsta leik ef við
viljum ekki fara í sumarfrí."
San Antonio Spurs átti gott tæki-
færi á að jafna leikseríuna gegn
Utah á sunnudag eftir góðan sigur á
laugardag, en leikreynsla Utah kom
enn vel í jjós í góðum sigri, 82:73, í
fj'órða leik liðanna. Utah hefur því
3:1 forystu, en hefur verið heppið.
Utah tók forystu strax í upphafí í
leiknum á sunnudag, en San Antonio
náði að minnka forystuna í þrjú stig
þegar tæpar þrjár mínútur vora eft-
ir. Karl Malone svaraði fyrir Utah
með tveimur körfum að utan og sig-
urinn var aldrei í hættu eftir það.
Utah skoraði aðeins 64 stig í leik lið-
anna á laugardag og miklar vanga-
veltur vora um hvort liðið gæti svar-
að fyrir sig í leiknum á sunnudag.
Karl Malone var spurður hvort leik-
menn hefðu verið áhyggjufullir eftir
laugardagsleikinn. „Við horfðum
ekkert á sjónvarpið í gærkveldi og
létum það sem íþróttafréttamenn
höfðu að segja ekkert hafa áhrif á
okkur. Við þurftum bara að ná
nokkrum undirstöðuatriðum réttum
og við einbeittum okkur að því í
dag.“
Indiana og Chicago stefna í úrslit í
Austurdeild og Utah og Los Angeles
í Vesturdeild.
KAPPAKSTUR / FORMÚLA 1
Hakkinen siglir hrað-
byri á heimsmeistaratitil
Mika Hákkinen sýndi það og
sannaði í formúlu-1
kappakstrinum í Barcelona á
sunnudag, að hann er
Ágúst sá ökuþór sem aðrir
Ásgeirsson verða að leggja að
skrifar yelli til þess að eiga
einhverja von um
heimsmeistaratign ökuþóra í ár.
Hákkinen hafði fádæma yfir-
burði í Spánarkappakstrinum og
var aldrei ógnað. Vann hann sinn
þriðja sigur á árinu og fjórða frá
upphafi. Hann sagði að sigurinn
hefði ekki verið eins auðveldur og
sýnst hefði því mikil orka færi í að
halda einbeitingunni og slaka ekki
á, en um leið og það væri gert væri
hættan mikil á að menn gerðu mis-
tök sem kostuðu að þeir kæmust
ekki í höfn.
Keppnin um heimsmeistaratitil-
inn virðist ætla að verða einvígi
McLaren-ökumannanna því félagi
Hákkinen, David Coulthard, varð
annar í mark. Hefur liðið 66 stig í
keppni bílsmiða, Ferrari er í öðra
sæti með 35 og þriðju era bílsmiðir
síðustu ára, Williams, með aðeins
14 stig og virðast möguleikar
þeirra á að verja titilinn úr sög-
unni.
Hákkinen hefur 36 stig í stiga-
keppni ökuþóra, Coulthard 29 og
Michael Schumacher, hjá Ferrari,
24. Jean Todt, keppnisstjóri Ferr-
ari, sagði í gær að keppninni um
heimsmeistaratitilinn væri engan
veginn lokið. I farvatninu væra
ýmsar endurbætur á Ferrari-bíln-
um og ný tegund af dekkjum frá
Goodyear, en barðar þeirra hafa
staðið dekkjum Bridgestone langt
að baki í ár. Þá sagði Todt að
margar af brautunum sem eftir
væri að keppa á hentuðu keppi-
nautum McLaren miklu betur en
Barcelonabrautin. Yrði keppnin
miklu tvísýnni í Mónakó eftir tvær
vikur.
Hörð keppni var um önnur sæti
en þau fyrstu og vakti góð frammi-
staða Stewart-liðsins athygli en þar
ók Rubens Barichello með endur-
bættri vél upp í fimmta sæti og
vann fyrstu stígin fyrir liðið á ár-
inu. Daninn Jan Magnussen ók og
sínum Stewart-bíl vel og hefur lag-
að stöðu sína en hann hefur verið
við það að missa sæti í liðinu.