Morgunblaðið - 12.05.1998, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 12. .MAÍ 1998
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Keflvíkingar meistarar meistaranna eftir sigur á ÍBV
Sigur
okkar
sann-
færandi
„ÚRSLITIN komu í sjálfu sér
ekkl á óvart nema þá hvað sig-
ur okkar var sannfærandi,"
sagði Gunnar Oddsson, þjálfari
og leikmaður bikarmeistara
Kefivikinga, eftir að lið hans
hafði sigrað ÍBV á sannfærandi
hátt, 3:1, í Meistarakeppni KSÍ
og Heklu í Keflavík á laugar-
daginn. Leikurinn átti að fara
fram í haust og er uppgjör bik-
ar- og íslandsmeistaranna en
erfitt reyndist að koma leikn-
um á og var honum því
frestað.
Flestir hafa eflaust veðjað á Eyja-
menn færu með sigur og þeir
voru sterkari til að byrja með. En
■■■■■■ skjótt skipast veður í
Bjöm lofti og það var nokkuð
Blöndal gegn gangi leiksins
skrifar þegar heimamenn
náðu forystunni með
marki Adolfs Sveinssonar á 20. mín-
útu. Markið var fallegt og virtist
koma flatt upp á Eyjamenn. Þetta
efldi hins vegar heimamenn og þær
náðu að bæta við öðru marki á 45.
mínútu. Markið var nánast endur-
tekning á íyrsta markinu nema
hvað nú sendi Adolf boltann í gagn-
stætt horn.
Þriðja mark Keflvíkinga kom síð-
an í upphafi síðari hálfleiks þegar
Guðmundur Steinarsson sendi bolt-
ann í netið af stuttu færi. Eina
mark Eyjamanna gerði Ólafur Sig-
urvinsson um miðjan síðari hálfleik,
en það kom of seint til og náði ekki
að kveikja þann neista sem skorti
hjá Vestamannaeyingum.
„Þeir voru einfaldlega betri en
við og áttu sigurinn fyllilega skil-
inn,“ sagði Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Eyjamanna, eftir leikinn.
Bjami sagði að það hefði vantað
eina 5 fastamenn í liðið en það
breytti ekki því að lið hans hefði
leikið illa og að þeir hefðu verið
jafnmargir og Keflvíkingar. „Fyrsti
leikur okkar í íslandsmótinu er eftir
viku og það er greinilegt að við
verðum að taka okkur saman í and-
litinu fyrir þann leik,“ sagði Bjami.
Morgunblaðið/Þorkell
KRISTINN Guðbrandsson, fyrirliðl Kefiavíkurliðsins, með meist-
arabikar KSÍ eftir öruggan sigur á íslandsmeisturum ÍBV.
„Við ætlum okkur svo sannarlega
að vera með í toppbaráttunni í sum-
ar og þessi sigur sýnir vonandi að við
höfum verið að gera rétta hluti og
emm með liðið á réttu róli,“ sagði
Gunnar Oddsson, þjálfari og leik-
maður Keflvíkinga. Keflvíkingar
gátu heldur ekki stillt upp sínu
sterkasta liði og má þar nefna Gunn-
ar Má Másson og Karl Finnbogason.
Seinni leikurinn gefur
aukið sjálfstraust
Islenska kvennalandsliðið í knatt-
spymu lék tvo vináttuleiki við
Bandaríkin ytra um helgina.
Bandarísku ólympíumeistaramir
unnu 6:0 í Indianapolis á föstudag
en 1:0 í Betlehem á sunnudag.
„Þetta var allt annað en í fyrri
leiknum," sagði Vanda Sigurgeirs-
dóttir þjálfari við Morgunblaðið
eftir seinni leikinn. „Eg er mjög
ánægð og í fyrsta sinn sem ég tala
um stórsigur þrátt fyrir tap.“
í fyrri leiknum stillti Vanda upp
samkvæmt leikkerfmu 4-5-1 en
breytti í 5-4-1 í seinni leiknum.
„Byrjunarliðið var eins en ég færði
Katrínu Jónsdóttur aftur á sunnu-
dag og breytingin skilaði sér. Við
sóttum meira enda sagði þjálfari
bandaríska liðsins að við hefðum
alveg getað „stolið" sigrinum.“
Reyndar segir tölfræðin annað,
Bandaríkin áttu 22 skot að marki
en ísland þrjú.
Vanda sagðist ekki hafa séð
betra knattspyrnulið kvenna en
bandaríska landsliðið og lið sem
hefðu aðeins tapað 1:0 fyrir því
væm teljandi á fingram annarrar
handar. „í fyrri leiknum réðum við
ekkert við hraðann - þær voru á
fleygiferð úti um allan völl. Þetta
er mun meiri hraði en við eigum að
venjast í deildinni heima og við
þurftum fyrri leikinn til að átta
okkur. Þá voram við of langt frá
mótherjunum og gáfum þeim of
mikinn tíma en í seinni leiknum
vorum við í skottinu á þeim allan
tímann."
Islenska landsliðið mætir Spán-
verjum ytra 30. maí og heima 14.
júní. „Þetta var frábær undirbún-
ingur fyrir Evrópuleikina," sagði
Vanda. „Það þarf sterk bein til að
láta ekki bugast eftir 6:0 og það er
styrkleiki að fara úr 6:0 í 1:0.
Seinni leikurinn gefur stelpunum
aukið sjálfstraust, því það er mjög
gott að ná svo góðum úrslitum.
Allar stelpurnar fengu að spila og
þær léku glimrandi vel í Betlehem
enda fengu þær góða dóma.“
Seinni leikurinn var í beinni út-
sendingu sjónvarps en áhorfendur
voru tæplega 5.800 og um 5.100 á
fyrri leiknum. „Við höfum aldrei
spilað fyrir framan svona marga
áhorfendur og það var gaman.
Eins var þetta mikið ævintýri því
bandarísku stúlkurnar eru miklar
hetjur sem allir þekkja og allir
vilja fá eiginhandaráritanir hjá.
Það er nýtt fyrir okkur að spila
við svona þekkt lið og það var
gaman.“
Brehme
kvaddi á
toppnum
Nýliðar Kaiserslautem bratu blað
í sögu þýsku deildarinnar með
því að verða meistarar en nýliðar
hafa aldrei náð svo langt. TitOlinn
var í höfn fyrir síðustu umferð og
því mættu meistaramir afslappaðir
til Hamborgar en samt ætluðu þeir
ekki að tapa þó ekki væri nema
vegna þess að Andreas Brehme lék
kveðjuleik sinn. Miðherjinn Olaf
Marschall sá til þess að Brehme
lauk ekki ferlinum með tapi, jafnaði
1:1 úr vítaspyrnu fjórum mínútum
fyrir leikslok, 21. mark hans á tíma-
bilinu.
Það var vel við hæfi þvi Andreas
Brehme, sem er 37 ára og einn dáð-
asti knattspymumaður Þýskalands,
tryggði þjóð sinni heimsmeistaratit-
ilinn 1990 með marki úr vítaspyrnu í
úrslitaleiknum við Argentínu, en
hann lék alls 86 landsleiki. Brehme
hefur oft verið varamaður á tímabil-
inu en Fyrir leikinn á móti HSV tók
hann við bikamum. „Ef einhver á
þennan heiður skilið er það hann,“
sagði Egidius Braun, forseti Knatt-
spyrnusambands Þýskalands sem af-
henti honum sigurlaunin. Þetta var
301. leikur hans í deildinni og honum
var boðið að vera fyrirliði í tilefni
tímamótanna en hann afþakkaði.
„Ég hef aðeins leikið sjö leiki frá
fyrstu til síðustu mínútu á tímabil-
inu. En þetta var gott eins og það
var og mjög tilfinningaþrungin stund
fyrir mig vegna þess að ég fæddist í
Hamborg.“
Þegar leikmenn Kaiserslautern
gengu inn á Volkspark leikvanginn
gáfu gestgjafamir þeim blómvendi,
sem þeir fóru rakleitt með til trygg-
ustu stuðningsmana sinna en um
30.000 áhangendur fylgdu þeim að
heiman, um 600 km leið.
Pólski miðherjinn Jacek Demb-
inski skoraði fyrir heimamenn í byrj-
un seinni hálfleiks en markið vakti
gestina til lífsins og þeir jöfnuðu
fimm mínútum fyrir leikslok. Síðustu
fimm mínútumar hylltu allir 58.000
áhorfendurnir meistarana með
bylgjum og söng, eftirtektarverð
framkoma mótherja og svo sannar-
lega til eftirbreytni. „Þetta var ekki
besti leikurinn í deildinni en tímabil-
ið hefur verið langt og erfitt,“ sagði
Frank Pagelsdorf, þjálfari hjá HSV.
„Leikmenn liðanna voru þreyttir og
það fór ekki framhjá neinum.“
Fyrmefndir stuðningsmenn Ka-
iserslautem voru ekkert að flýta sér
í burtu eftir að flautað var til
leiksloka heldur gáfu sér góðan tíma
og sungu „Otto er sá besti" þar til
Rehhagel kom aftur út og þakkaði
fyrir sig. „Minnisstæðu tímabili er
lokið,“ sagði þjálfarinn sem stýrði
liðinu til sigurs í 2. deild í fyrra. „Ef
einhver hefði sagt fyrir tveimur ár-
um að við yrðum í þessum sporum
nú hefðu allir hlegið að sögumanni."
Otto konungur eins og hann er
gjarnan nefndur tók við Werder
Bremen á sínum tíma og gerði
smáliðið að Þýskalandsmeistara í
tvígang og Evrópumeistara bikar-
hafa 1992. Nú hefur hann enn náð
merkum áfanga. „Árangurinn verður
í hávegum hafður og fólk á eftir að
tala um hann um ókomin ár,“ sagði
þjálfarinn sem var látinn fara frá Ba-
yem Miinchen fyrir tveimur árum.
„Hins vegar höfum við ekki mikinn
tíma til hátíðarhalda því við þurfum
að byrja strax að byggja á árangrin-
um. Það kostar mikla vinnu og mikla
peninga."
Karlsruhe og Köln féllu
Stuttgart og Schalke tryggðu sér
sæti í Evrópukeppni félagshða í
haust en Karlsruhe og Köln féllu
með Bielefeld. Stuttgart vann
Werder Bremen 1:0 og endaði í
fjórða sæti en verði liðið Evrópu-
meistari bikarhafa fer Hansa
Rostock, sem varð í sjötta sæti, í
UEFA-keppnina. Rostock vann
Karlsruhe 4:2 en Schalke vann Bi-
elefeld 2:1 og hafnaði í fimmta sæti.
Köln náði aðeins jafntefli, 2:2, við
Leverkusen á heimavelli en Glad-
bach bjargaði sér á síðustu stundu
og vann Wolfsburg 2:0. Bayern
Munchen, sem var öruggt í öðru sæti
fyrir síðustu umferðina, lauk keppni
með 4:0 sigri á Dortmund.
STUDNINGSMENN Lens fögnuðu vel og lengi eftir að liðið varð frar
sér titilinn með því að gera jafntefli, 1:1, í sfðustu umfc