Morgunblaðið - 12.05.1998, Qupperneq 12
KNATTSPYRNA
Guðni Bergsson ekki með landsliðinu gegn Saudi-Arabíu í Cannes
Get vonandi tekið
upp þráðinn í haust
GUÐNI Bergsson meiddist í leik
Bolton og Chelsea í ensku úrvals-
deildinni á Stamford Bridge í fyrra-
dag, var skipt út af skömmu síðar og
fór ekki með íslenska landsliðinu til
Cannes í Frakklandi þar sem það
mætir Saudi Arabíu í vináttulands-
leik á morgun.
„Ég fékk högg á lærið í byrjun
seinni hálfleiks og fór því ekki til
Frakklands en vonandi get ég tekið
upp þráðinn með landsliðinu í
haust,“ sagði Guðni og var greinilega
ekki kátur með gang mála. Bolton
tapaði 2:0 fyrir Chelsea en Everton
gerði jafntefli, 1:1, við Coventry.
Bolton og Everton fengu jafn mörg
stig en Bolton var með lakari marka-
tölu og féll með Barnsley og Crystal
Palace. „Það er ömuilegt að falla og
hvað þá á markamun. Við höfum
bætt okkur að undanförnu en því
miður nægði það ekki.“
Guðni var miðvörður í kerfinu 3-5-
2 en í seinni hálfleik, þegar staðan
var enn 1:0 fyrir Everton, var ákveð-
ið að breyta í 4-4-2 í þeirri von að
skora og sigra. „Stjóranum fannst að
ég ætti í erfiðleikum og tók mig út af
þegar skipt var um leikaðferð með
því hugarfari að sækja stíft til sig-
urs. Því miður gekk dæmið ekki upp
en eftir á að hyggja hefði okkur
nægt jafntefli. Við hefðum náð því ef
við hefðum spilað upp á það en alltaf
er hægt að vera vitur eftir á.“
Guðni sagði að stuðningsmenn
liðsins sættu sig illa við orðinn hlut.
„Margir lifa fvrir fótboltann og að-
dáendurnir vilja hafa lið sitt í efstu
deild. Við finnum vel fyrir því að við
höfum brugðist þessu fólki og erum
auðvitað ekki ánægðir. Þetta eru
döpur örlög fyrri félagið en við telj-
um okkur nógu góða til að vera í
efstu deild og erum staðráðnir í að
koma okkur aftur í úrvalsdeildina.“
Á sjónvarpsstöðinni Sky kom
fram í gær að vegna sölu sjónvarps-
réttar, beinna útsendinga og sölu
aðgöngumiða tapaði Bolton sem
samsvaraði um 360 millj. kr. við það
að falla. „Þetta eru miklir peningar
en við erum ekki að hugsa um fjár-
hagslegt tap þessa stundina heldur
snýst allt um vonbrigðin samfara því
að hafa ekki náð að halda sætinu.
Þetta var mikið áfall en ekki endalok
því nýr dagur kemur að loknum
þessum."
Ríkharður Daðason búinn að gera sex
mörk í átta leikjum fyrir Viking
Valinn maður
leiksins í VG
RÍKHARÐUR Daðason átti mjög
góðan leik fyrir Viking um helgina.
Hann gerði tvö mörk í 3:2 sigri á
Lilleström á útivelli og var jafn-
framt útnefndur maður leiksins í
dagblaðinu Verdens Gang. Ekki
nóg með að hann skoraði tvö heldur
lagði hann upp íyrsta markið sem
Gunnar Aase gerði. Ríkharður hef-
ur nú gert sex mörk í sjö íyrstu
leikjunum í deildinni og er næst
markahæstur ásamt tveimur öðr-
um. Mini Jakobsen hjá Rosenborg
er markahæstur með 7 mörk.
Rúnar Kristinsson var í fyrsta
sinn í byrjunarliði Lilleström á leik-
tíðinni. Honum var skipt út af í síð-
ari hálfleik. Heiðar Helguson var
ekki í liði Lilleström og Auðun
Helgason hefur ekki leikið síðustu
tvo leiki með Viking vegna meiðsla.
Viking er í þriðja sæti deildarinnar,
tveimur stigum á eftir Rosenborg
og Molde.
Óskar Hrafn Þorvaldsson og fé-
lagar í Strömgodset unnu Brann í
Bergen 1:0. Óskar Hrafn lék allan
leikinn og Ágúst Gylfason sömu-
leiðis með Brann, en hann fékk að
líta gula spjaldið í leiknum. Molde
heldur sigurgöngu sinni áfram og
nú var það Kongsvinger sem tap-
aði, 0:3. Bjarki Gunnlaugsson lék
síðustu 13 mínútur leiksins en var
ekki á meðal markaskorara.
Helgi Sigurðsson var í byrjunar-
liði Stabæk og lagði upp eina mark
leiksins sem Belsvik gerði á 77.
mínútu gegn Tromsö. Tryggvi lék
allan leikinn með Tromsö en var
lítt áberandi. Önnur úrslit voru
þau að Rosenborg burstaði
Bodö/Glimt 6:2 og Haugasund
sigraði Sogndal 4:0.
Wenger þjalf-
arí ársins
ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri ný-
bakaðra Englandsmeistai-a Arsenal, var í
gær útnefndur þjálfain ársins í ensku úr-
valsdeildinni. Það eru knattspymustjór-
amir sjálfir sem kjósa og var tilkynnt um
niðurstöðu þeirra í árlegri veislu sem þeú-
efna til. „Allir leikir í Englandi eru þess
eðlis að mjög ei-fitt er að sigra í þeim. Ég
er því mjög ánægður með þessa viður-
kenningu, en vil nota tækifærið til að
þakka öllu aðstoðarfólki mínu og auðvitað leikmönnum félagsins,
sem vora stórkostlegir. Ég lít nefnilega á þessa niðurstöðu sem við-
urkenningar til okkar sem heildar,“ sagði Wenger á Sky sjónvarps-
stöðinni í gær. Vert er að geta þess að Wenger hefur áður verið
kjörinn þjálfari ársins í Frakklandi, þegar hann var við stjórnvölinn
hjá Mónakó og í Japan, þegar hann þjólfaði Grampus Eight.
Morgunblaðið/Golli
EIÐUR Smári Guðjohnsen á æfingu með KR-ingum í gær.
Eiður Smári æfir
með KR-ingum
EIÐUR Smári Guðjohnsen, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, sem verið
hefur atvinnumaður hjá PSV Eind-
hoven í Hollandi síðustu ár, kom til
landsins fyrir helgi og hefur æft
með KR-ingum síðan. „Eg tel mig
geta spilað en þarf að koma mér í
æfingu,“ sagði hann við Morgun-
blaðið í gær. „Vinir mínir Þórhall-
ur Hinriksson og Andri Sigþórsson
buðu mér að koma og æfa með KR
og það hef ég gert en ekkert er
ákveðið með framhaldið."
Samningur Eiðs Smára við PSV í
Hollandi rennur út 1. júlí en hami
fékk leyfí hjá félaginu til að kanna
aðstæður annars staðar með samn-
ing í huga. Hann hefur litið getað
æft í tvö ár vegna meiðsla en lækn-
ar Rosenborg í Noregi eru að
skoða röntgenmyndir af meidda
fætinum og hafa áhuga á að fá
hann til sín. „Rætt hefur verið um
að ég fari aftur til Noregs eftir að
samningurinn við PSV rennur út
en ekkert hefur verið ákveðið í því
efni frekar en öðru,“ sagði Eiður
Smári.
I gær mætti Serbinn Eroll Kra-
sniqi á æfingu hjá KR en hann er
fyrrverandi samherji KR-ingsins
Besims Ilaxijadinis. Miðherjinn
verður hjá félaginu til reynslu í
nokkra daga.
Morgunblaðið/Ólafur
Arnar
Hrafn aftur
í Víking
ARNAR Hrafn Jóhannsson, ung-
lingalandsliðsmaður í knattspymu
sem lék með Val í fyrrasumar, er
genginn til liðs við Víkinga á nýjan
leik og leikur með þeim í sumar í 1.
deildinni - næst efstu deild Islands-
mótsins. Amar Hrafn dvaldi um
tíma í síðasta mánuði hjá danska
meistaraliðinu Brpndby og er reikn-
að með að viðræður hefjist milli hans
og félagsins síðsumars. Ekki er því
loku fyrh- það skotið að hann gerist
leikmaður danska liðsins efth-
keppnistímabhið hérlendis.
Arnar Hrafn tók þátt í 17 leikjum
með Val í efstu deildinni í fyrrasumar
og gerði þrjú mörk í deildinni. Hann
á að baki 16 leiki með unglingalands-
liði 18 ára og yngri, var meðal annars
í liðinu sem lék í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins hér á landi í fyrrasumai'.
Þá á Arnar Hrafn átta leiki að baki
með landsliði 16 ára og yngri.
Arnar Hrafn er á myndinni að of-
an, t.v., ásamt Lúkasi Kostic, þjálfara
Víkings.
Arnór
skoraði
ARNÓR Guðjohnsen skoraði mark
Örebro í 1:1 jafntefli við AIK í
sænsku úrvalsdeildinni um helgina.
Arnór kom liði sínu yfir rétt fyrir
hálfleik en AIK jafnaði þegar 13
mínútur voru til leiksloka.
Gunnlaugur Jónsson kom inn sem
varamaður á 36. mínútu. Örebro er
sem fyrr í neðsta sæti deildarinnar
með aðeins 3 stig eftir sex leiki.
Helsingborg vann Öster 3:1 á
utivelli. Stefán Þórðarson kom inn
sem varamaður hjá Öster á 54.
mínútu. Hvorki Jakob Jónharðsson
né Hilmar Björnsson voru í
leikmannahópi Helsingborgar.
Malmö tapaði á heimavelli fyrir
Trelleborg, 0:1. Sverrir Sverrisson
og Ólafur Örn Bjamason léku allan
leikinn með Malmö. Sverrir fékk að
líta gula spjaldið í leiknum.
Pétur Marteinsson og félagar
hans í Hammarby unnu Halmstad á
útivelli, 1:3. Pétur lék allan leikinn.
Óvænt úrslit urðu í Gautaborg í
grannaslag IFK Gautaborg og
Orgryt og vann síðarnefnda liðið 5:2
og Elfsburg vann Hácken 2:0.
Örgryte og Norrköping eru efst
og jöfn með 11 stig eftir fimm leiki.
Hammai-by, Frölunda og
Helsingborg koma næst með níu
stig. ------------------
■ Staðan/BIO
Njarðvík
gegn Keflavík
í 1. umferð
í gærkvöld var dregið um töflu-
röð í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik næsta keppnis-
tímabil í fyrstu umferð mætast
eftirtalin lið: Njæ-ðvík-Keflavík,
Þór;KR, Snæfell-Tindastóll,
KFÍ-Haukar, Skallagrímur-Gr-
inda\>ík og Valur-ÍA.
Gert er ráð fyrir að íslands-
mótið hefjist í byrjun október,
en ekki hefur nákvæmari dag-
setning verið ákveðin.