Morgunblaðið - 25.06.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 25.06.1998, Síða 2
2 C FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1998 HM I FRAKKLANDI MORGUNBLAÐIÐ ■ RIGOBERT Song frá Kamerún varð fyrsti leikmaðurinn til að verða vikið af velli í HM tvö skipti í röð. Hann var 17 ára þegar hann fékk að sjá rauða spjaldið í HM í Bandaríkjunum 1994 og var þá yngsti leikmaðurinn sem hafði ver- ið sendur af velli í HM en síðan var honum vikið af velli í leiknum við Chile í fyrradag. ■ GIUSEPPE Bergomi frá Ítalíu kom inná sem varamaður fyrir Alessandro Nesta á 4. mínútu leiks Italíu og Austurríkis, en vai-amað- ur hefur ekki komið svo snemma inná í HM. ■ BERGOMI lék í HM 1982 á Spáni eins og Lothar Mattháus frá Þýskalandi en þeir eru einu leik- mennirnir í keppninni í Frakklandi sem voru líka með fyrir 16 árum. ■ BERGOMI lék einnig í HM í Mexíkó 1986 og á Ítalíu 1990, en hann var ekki með í Bandaríkjun- um 1994, eins og Matthaus. ■ BRASILÍA tapaði 1:0 fyrir Ar- gentínu á HM 1990 en tapaði síðan ekki í HM fyrr en á móti Noregi í fyrrakvöld. ■ ÞETTA var annar sigur Norð- manna í HM en Noregur vann Mexíkó 1:0 1994. Kjetil Rekdal gerði sigurmarkið úr vítaspymu á móti Brasihu en hann gerði líka mark Noregs á móti Mexíkó. ■ MAROKKÓ fagnaði öðrum sigri sínum í 12 leikjum á HM en 1986 vann liðið Portúgal 3:1. ■ SKOTLAND hefur átta sinnum verið með í lokakeppni HM en aldrei komist áfram úr riðlakeppn- inni. 3:0 tapið fyrir Marokkó er stærsta tap Skotlands í úrslita- keppni HM síðan liðið tapaði 4:1 fyrir Brasilíu 1982. ■ ÍTALÍA hefur leikið 19 HM-leiki í röð án taps. Liðið tapaði síðast fyrir Irlandi í riðlakeppni HM í Bandaríkjunum 1994 en í þessari tölfræði er úrslitaleikurinn við Brasiliu skráður jafntefli. Þá tap- aði Itaha í vítaspymukeppni. ■ AUSTURRÍKI skoraði undir lokin í öllum leikjum sínum í B-riðli en féll úr keppni. Toni Polster jafnaði, 1:1, á móti Kamerún, Ivica Vastic jafnaði, 1:1, á móti Chile og Andreas Herzog minnkaði mun- inn í 2:1 á móti Italíu. ■ CHILE gerði þrjú jafntefli sem nægði til að komast í 16-liða úrslit en Chile hefur ekki sigrað í leik í úrslitakeppni HM síðan 1962. Þá vann liðið Júgóslavíu 1:0 í keppni um bronsið á heimavelli. ■ KAMERÚN vann Kólumbiu 2:1 eftir framlengdan leik í HM 1990 en hefur síðan ieikið sjö leiki í úr- slitakeppninni og aldrei sigrað, tapað fjórum og gert þrjú jafntefli. ■ FIDEL Castro forseti Kúbu hef- ur sent íranska liðinu hamingju- óskir með sigurinn á Bandaríkja- mönnum í riðlakeppni heimsmeist- aramótsins. Castro segist vonast til þess að Brasilía verji heimsmeist- aratitilinn. ■ SLOBODAN Santrac þjálfari Júgóslavíu segist ætla að leggja allt í sölumar til að leggja Banda- ríkjamenn í dag til þess að forðast það að lenda í öðm sæti riðilsins og hugsanlega mæta Hollandi í 16-liða úrslitum. ■ MEÐAL þess sem Santrac ætlar að gera er að tefla fram framherj- anum Dejan Savicevic sem ekkert hefur leikið í keppninni til þessa vegna meiðsla. „Við verðum að vera með okkar sterkasta lið frá upphafi og leika sóknarleik," sagði Santrac. Reuters FRAKKAR notuðu varalið sitt á móti Dönum og unnu samt, 2:1. Það voru aðeins þrír úr aðalliðinu með f gær og undirstrikar það styrk franska landsliðsins, sem vann alla leikina í riðlinum. Þeir eru frá vinstri: Bernard Diomede, Youri Djorkaeff, Christian Karembeu, Emmanuel Petit, sem skoraði sigurmarkið, Patrick Viera, Robert Pires og David Trezguet. Danir áfram þrátl fýrir tap gegn varaliði Frakka DANIR tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum þrátt fyrir að hafa tap- að fyrir Frökkum, 2:1, í lokaumferðinni í C-riðli á HM í gær. Suð- ur-Afríka og Sádí-Arabía gerðu jafntefli, 2:2, og það kom sér vel fyrir Dani, sem hlutu 4 stig. Frakkar voru með fullt hús stiga, eða níu - unnu alla leikina, Suður-Afríka, sem hefði þurft að vinna Sádí-Arabíu með tveggja marka mun í gær til að komast áfram, hlaut tvö stig og Sádí-Arabía eitt stig. Danir mæta Nígeríu í 16 iiða úrslitum á sunnudag. Frakkar tefldu fram hálfgerðu varaliði í gær og hvíldu lykil- menn en samt voru þeir mun betri. Yorui Djorkaeff kom Frökkum yfir með marki úr víti í byrjun leiks. Danir svöruðu rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, einnig úr vítaspymu, sem Michael Laudrup tók. Það var síðan miðvallarleikmaður Arsenal, Emmanuel Petit, sem gerði sigur- markið með þrumuskoti rétt utan vítateigs á 56. mínútu. „Ég er sáttur við leik minna manna en ég held að við getum þó leikið enn betur. Ég er stoltur af lið- inu og við höfum þrjá góða leiki og það er mikið sjálfstraust innan liðs- ins,“ sagði Aime Jacquet, þjálfari Frakka. Bo Johansson, þjálfari Dana, sagðist yfirleitt ekki vera ánægður með tapleiki, en hann geti huggað sig við að liðið væri komið í 16 liða úrslit eins og að var stefnt. „Það er frábært að vera kominn í 16 liða úr- slit. Við reyndum allt sem við gátum til að tryggja það í þessum leik, en þurftum þess í raun ekki þar sem úrslitin í hinum leiknum voru okkur hagstæð. Ég hefði verið mjög von- svikinn ef við hefðum þurft að fara heim núna,“ sagði Johansson. Það voru aðeins þrír leikmenn í franska liðinu í gær sem léku á móti Sádí-Arabíu og sýnir það þá miklu breidd sem Frakkar ráða yfir. Það var samkvæmt gangi leiksins er Djorkaeff kom Frökkum yfir á 13. mínútu. Jes Hogh braut þá á David Trezeguet innan vítateigs og ítalski dómarinn Pierluigi Collina benti umsvifalaust á vítapunktinn. Djorkaeff skaut boltanum í vinstra hornið og var Peter Sehmeichel, sem var að setja danskt met með því að leika 103. landsleik sinn, ná- lægt því að verja spyrnuna. Michael Laudrup jafnaði þremur mínútum fyrir leikhlé og var það fyrsta markið sem Frakkar fá á sig í keppninni til þessa. Vítið var dæmt eftir að Vincent Candela keyrði Martin Jorgensen niður innan víta- teigs eftir að Danir höfðu tekið snögga aukaspyrnu. Laudrup skor- aði af öryggi úr vítinu - sendi Faien Barthez markvörð í öfugt horn. Sig- urmarkið kom síðan um miðjan síð- ari hálfleik eins og áður segir. „Þetta var erfiður leikur. Við náð- um nokkrum ágætum sóknum, en mestan hluta leiksins voram við í vörn. Við verðum að breyta því þeg- ar við mætum Nígeríu," sagði Jo- hansson. „Við þekkjum leikaðferð Nígeríumanna nokkuð vel og fáum nú tíma til að undirbúa okkur áður en við mætum þeim á sunnudag. Þeir eru sigurstranglegri fyrirfram og það gæti hjálpað okkur.“ Óskabyrjun S-Afriku dugði ekki Suður-Afríkumenn vissu fyrir leikinn að þeir þyrftu helst að vinna Sádí-Arabíu stórt til að eiga mögu- leika á að komast áfram. Oskabyrj- un þeirra í leiknum lofaði góðu þeg- ar Shaun Bartlett kom þeim yfir á 19. mínútu. Sádar voru ekki á því að gefa eftir og í kjölfarið komu tvö mörk frá þeim og bæði úr mjög um- deildum vítaspymum. Þá var langt liðið á leikinn og von Afríkumanna um að komast áfram nánast engin þvi þeir þurftu að vinna með tveggja marka mun. Þrátt fyrir góða sóknartilburði náðu þeir að- eins að jafna leikinn í 2:2. Það gerði Bartlett úr þriðju vítaspyrnunni í leiknum á lokamínútunni. Tnoussier sendir kaldar kveðjur að skilnaði PHILIPPE Troussier, þjálfari S-Afríku, kvaddi leikmenn sína í gær eftir 2:2-jafntefli við Sádi-Arabíu með því að segja að þeir hefðu ekki lagt sig nógu hart fram í leikjum heimsmeistaramótsins - ein- faidlega ekki haft áhuga á að komast í 16 liða úrslitin. „Leikurinn við Sádi-Arabíu var mjög mikilvægur en mér fannst Ieikmenn mfnir ekki hafa áhuga á að leika saman sem heild og gera það sem þurfti til að komast áfram,“ sagði Troussier. Ilann sagðist ekki hafa neiua skýringu á áhugaleysinu en það hefði komið upp eftir að keppnin hófst. „Ástandið hefur verið svona allan síðasta mánuðinn sem við höfum verið samau. Leikmönnuin lyndir illa hverj- um við annan og ég man ekki eftir að þeir hafi sest niður við dægrastyttingu, s.s. að spila á spil, eins og algengt er hjá liðum í keppni sem þess- ari. Þeir borða saman en fara siðan hver í sina áttina, i besta falli athuga þeir hvort ég sé einhvers staðar í ná- grenninu til að fylgjast með þeim. Ef svo er ekki nota þeir fyrsta tækifæri sem býðst til að stinga af. Mér finnst ég frekar hafa verið fararstjóri fyrir hópi ferðamanna til Frakkiands en þjálfari kapp- liðs í keppni bestu knattpsyrnuliða heims.“ I Þjóðverjar funda án Berti Vogts LEIKMENN þýska landsliðsins hittust á fundi í gær til þess að efia samstöðuna og hreinsa andrúmsloftið fyrir síðasta leik riðlakeppninnar gegn Iran í dag. Þeim leik mega Þjóðverjar ekki tapa ætli þeir sér að kom- ast í 16-liða úrslit, en þýska lið- ið hefur alltaf komist upp úr fyrstu umferð heimsmeistara- keppninnar undanfarin 60 ár. Þjálfarinn Berti Vogts var ekki á fundinum sem var undir stjórn fyrirliðans Júrgens Klins- manns. „Ég tel að fundurinn hafi verið gagnlegur," sagði Olaf Thon, einn lcikmanna. „Að sjáifsögðu get ég ekki sagt hvað mönnum fór á milli, en opinská- ar umræður fóru fram um frammistöðu og samskipti manna á milli. Við vorum hrein- skilnir og víst er að við verðum að gera betur gegn Iran en í undanförnum tveimur leikjum," bætti Thon við. „Jafntefli nægir okkur til þess að komast áfram en það er ekki á vísan róið því Iranir hafa engu að tapa og þeir eru aðeins einu stigi á eftir okkur,“ sagði Thon ennfremur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.