Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 2
2 E SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Mercedes-Benz
mazna
RtJtfcS* IR HiI -
Ræsir hf. var stofnað árlð 1942 og hefur alla tíð síðan þjónað landsmönnum dyggilega.
Innflutningur og sala nýrra bíla og varahluta hefur verið uppistaðan í starfseminni auk
viðgerðarþjónustu og sölu á notuðum bílum. Ræsir hefur haft umboð fyrir Mercedes-Benz
frá 1954 og fyrir Ma/.da frá 1990. Báðar tegundimar ern þckktar fyrir gæði og langa
endingu. Hjá Ræsi starfa nú u.þ.b. 45 starfsmenn.
Fjármálastjóri
Óskum eftír að ráða í stöðu fjármálastjóra fyrir Ræsi hf.
Starfið felst í umsjón með fjármálum, áætlanagerð, yfirumsjón með bókhaldi,
mánaðaruppgjöri og frágangi til endurskoðanda. Jafnframt tunsjón með tölvumálum
auk annarra áhugaverðra verkefna.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu menntaðir á sviði reksturs og viðskipta.
Áhersla er lögð á reynslu af sambærilegu. Viðkomandi þurfa að vera vel að sér á sviði
bókhalds, tölvu- og upplýsingatækni auk þess að hafa gott vald á ensku. Kostur er ef
þýskukunnátta er fyrir hendi. Við leitum að nákvæmum og töluglöggum aðila sem hefur
metnað til að ná góðum árangri í starfí.
Sölufulltrúi atvinnubifreiða
Óskum jafnframt eftir að ráða í starf sölufulltiúa fyrir Ræsi hf.
Starfið felst í móttöku viðskiptavina, ráðgjöf við val biffeiða og fylgihluta, tilboðsgerð
og ffágang sölusamninga. Erlend samskipti fylgja starfi og er því nauðsynlegt að
viðkomandi sé vel að sér í ensku talaðri og ritaðri auk þess að vera vanur að vinna með
aðstoð tölvu. Þýskukunnátta er kostur.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með haldbæra reynslu og/eða þekkingu af
sambærilegu. Kostur er iðnmenntun í bakgrunni s.s. bifvélavirkjun eða vélvirkjun.
Áhugaverð er framhaldsmenntun á sviði sölu- og markaðsmála. Við leitum að
kröffugum og dugmiklum einstaklingi semhefurmetnað til að ná góðum árangri í starfí.
Bifvélavirki
Starfið felst í viðhaldi og viðgerðum á vörubi freiðum, langferða- og sendibifreiðum
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu nteð ofangreinda meimtun. Áhersla er lögð á
fagmannleg vinnubrögð, nákvæmni, skipulagshæfni og góða samskiptahæfileika.
Afgreiðsla í varahlutaverslun
Starfið felst í móttöku viðskiptavina, ráðgj öf við val og kaup á varahlutum og afgreiðsla
þar að lútandi. Starfið er unnið að hluta til með aðstoð tölvu.
Hæfniskröfur eru haldbær þekking á varahlutum og kostur er reynsla af sambærilegu.
Áhersla er lögð á þægilega framkomu og þjónustulund Áhugavert er ef iðnmenntun er
jafhffamt fyrir hendi.
í boði eru
Sjálfstæð og krefjandi störf hjá traustu og rótgrónu fyrirtæki. Boðið er upp á góða
vinnuaðstöðu og góð laun íyrir rétta aðila.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí n.k. Ráðningar verða sem fyrst. Allar
umsóknir verða meðliöndlaðar sem trúnaðarmál.
Guðný Harðardóttir og Sigurður Róbertsson veita nánari upplýsingar um
ofangreind störf. Viðtalstímar eru frá kl. 10-13. Umsóknareyðubiöð eru
fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem er opin alla virka daga frá kl. 10-16.
LANDSPÍTALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
Hjúkrunarfræðingar
Geðdeild
Hjúkrunarfræðingar óskast á geðdeildir á Land-
spítalalóð og að Kleppi. Einnig vantar hjúkrun-
arfræðinga til starfa á hinar ýmsu geðdeildir.
Um er að ræða fulla vinnu eða hlutavinnu á
morgun- og kvöldvöktum.
Upplýsingar veita hjúkrunarframkvæmdastjór-
ar geðdeildar Landspítala alla virka daga frá
kl. 9 til 17, sími 560 2600.
Kvennadeild
Hjúkrunarfræðingaróskast á legudeild kvenna,
bæði í fastar stöður og til afleysinga. Deildin
er sérhæfð á sviði kvensjúkdóma og boðið er
upp á einstaklingshæfða hjúkrun.
Hjúkrunarfræðingar/ljósmæður óskast til starfa
á nýja móttökudeild kvenna. Ádeildinni verður
bráðamóttaka og veitt ýmis sérhæfð þjónusta
vegna kvensjúkdóma.
Hjúkrunardeildarstjóri óskast á vöknun kvenna-
deildar. Viðkomandi þarf að hafa a.m.k. 5 ára
starfsreynslu í hjúkrun og æskileg er menntun
og/eða reynsla á sviði svæfingahjúkrunar/gjör-
gæslu og stjórnunar. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf í byrjun ágúst nk.
Ljósmæður/hjúkrunarfræðingar óskast til
starfa á sængurkvennadeild A.
Aðstoðardeildarstjóri óskast á göngudeild
kvenna. Deildin annast aðallega mæðraeftirlit
og foreldrafræðslu. Viðkomandi þarf að hafa
a.m.k. 5 ára starfsreynslu sem Ijósmóðir og
einnig er æskileg menntun eða reynslu í stjórn-
un.
Upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurbjörns-
dóttir í síma 560 1000.
Barnaspítali
Hringsins
Hjúkrunarfræðingar óskast á vökudeild (gjör-
gæsla fyrir nýbura). í boði er námskeið/fræðsla
um hjúkrun og meðferð veikra nýbura og ein-
staklingsbundin aðlögun með reyndum hjúkr-
unarfræðingum.
Upplýsingar veitir Ragnheiður Sigurðardóttir
í síma 560 1040.
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á ung-
barnadeild. Deildin er 12 rúma deild sem ann-
ast veik börn á aldrinum 0—2 ára.
Upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurbjörns-
dóttir í síma 560 1000.
Gjörgæsludeild 1
Óskað er eftir hjúkrunarfræðingum sem hafa
áhuga og metnað í starfi og eru fúsir til að axla
ábyrgð. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
af hand- og/eða lyflæknishjúkrun. Boðinn er
aðlögunartími sem felur í sérfyrirlestra og
handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga.
Upplýsingar veitir Lovísa Baldursdóttir í síma
560 1000 og Sigrún Snorradóttir í síma
560 1370.
--------------------------------------------------------
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarféiags
og fjérmálaráðherra.
Umsóknareyðubiöð fást hjá starfsmannahaldi
Rfkisspítala, Þverholti 18 og í upplýsingum á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
V_______________________________________________________/
Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði
Læknir
Laus staða læknis við heilbrigðisstofnunina
Patreksfirði. Um er að ræða starf á heilsu-
gæslu- og sjúkrasviði sem skiptist eftir ákveðn-
um reglum. Starfið er mjög fjölbreytt og lær-
dómsríkt og hentar þeim vel sem hyggja á sér-
nám í heimilislækningum.
Heilbrigðisstofnunin er mjög vel búin tækjum
og starfsaðstaða til fyrirmyndar.
Nánari upplýsingar um starfið gefa fram-
kvæmdastjóri og yfirlæknir í síma 456 1110.