Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 7
MORGUNB LAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 E 7 !f; 455 4010-Pósth6lf:20 Staða heilsugæslulæknis Laus er til umsóknar staða heilsugæslulæknis við Heilbrigðisstofnunina Sauðárkróki. Æski- legt er að viðkomandi hafi sérfræðiviðurkenn- ingu í heimilislækningum. Umsóknarfrestur ertil 1. ágúst nk. en staðan veitist eftir nánara samkomulagi. Stofnunin skiptist í tvö svið, sjúkrasvið og heilsugæslusvið. Sjúkrasviðið starfar sam- kvæmt lögum sem almennt sjúkrahús og veitir sérfræðiþjónustu á sviði handlækninga og lyf- lækninga ásamtfarandþjónustu á ýmsum sér- sviðum læknisfræðinnar. Undirsjúkrasviðið heyrir einnig rekstur hjúkrunar- og dvalarheim- ilis. Heilsugæslusviðið veitir íbúum héraðsins heilbrigðisþjónustu í samræmi við ákvæði heil- brigðislaga umstarfsemi heilsugæslustöðva. Sex læknar starfa við stofnunina. Hér er um að ræða fjölbreytt og krefjandistarf og er vinnuaðstaða og tækjakostur á stofnun- inni mjög góður. Stofnunin hefur á að skipa góðu og samstilltu starfsfólki sem leggur metn-að sinn í að gera góða stofnun betri. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir framtakssama og metn-aðarfulla einstaklinga. Stöðunni fylgir embættisbústaður. Umsóknirskulu sendasttil Birgis Gunnarsson- ar framkvæmdastjóra á sérstökum eyðublöð- um sem fást hjá Landlæknisembættinu. Upplýsingar veitirframkvæmdastjóri í síma 455 4000. í Skagafirði búa tæplega 5.000 manns, þ.a. búa 2.700 á Sauðárkróki. Sauðárkrókur byggir á öflugu og fjölbreyttu atvinnulífi og fjölbreytni í þjónustu við íbúa héraðsins. íþrótta- og félagslíf er hér í miklum blóma. í héraðinu eru tveir framhaldsskólar, á Sauðárkróki er Fjölbrau- taskóli Norðurlands vestra með tæplega 500 nemendur og á Hólum i Hjaltadal er rekinn bændaskóli. Sauðárkrókur liggur vel við sam- göngum og eru þær góðar bæði á lofti og landi. Skagafjörður er rómaður fyrir náttúrufegurð og má segja að þar séu merkir staðir og atburðir úr Islandssögunni við hvert fótmál. —Reyklaus vinnustaður— Leikskólar Reykjavíkurborgar óska að ráða eftirtalið starfsfólk í neðangreinda leikskóla: Brekkuborg v/Hlíðarhús Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað starfsfólk í 100% stöðu og hlutastarf eftir há- degi. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Guðrún Sam- úelsdóttir, í síma 567 9380. Gullborg v/Rekagranda Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað starfsfólk. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Hjördís Hjaltadóttir, í síma 562 2455. Jörfi v/Hædargarð Starfsmaður í ræstingar. Upplýsingar gefur aðstoðarleikskólastjóri, Ásta Júlía Hreinsdóttir, í síma 553 0347. Laufskálar v/Laufrima Leikskólasérkennari eða þroskaþjálfi til að vinna með einhverfu barni frá 1. ágúst nk. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Lilja Björk Ólafsdóttir, í síma 587 1140. Vesturborg v/Hagamel Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað starfsfólk í 100% stöðu. Þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða leikskóla- kennari í 50% stuðningsstarf. Um framtíðarstörf er að ræða. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Árni Garðars- son, í síma 552 2438. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 563 5800. EILBRIGÐISSTQFNUNIN r IsAFJARÐARBÆ Hjúkrunarfræðingur — uppbyggingarstarf Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á H-l-heilsugæslustöð á Þingeyri. Auk umsjónar með hjúkrunarþjónustu á heilsugæslustöð felst í starfinu fagleg umsjón með Sjúkraskýl- inu sem er í sama húsnæði og stöðin. Æskilegt er að viðkomandi verði búsettur á Þingeyri en þar er húsnæði útvegað og góð starfskjör í boði. Búseta annars staðar í sveitarfélaginu kemur einnig til greina. Unnið er að opnun nýrrar heilsugæslustöðvar þar sem gert er ráð fyrir þjónustuíbúðum og lítilli hjúkrunardeild undir sama þaki. Greiðarsamgöngureru í héraði og regluleg og formleg samskipti fagfólks á svæðinu. Þetta er tilvalið starf fyrir hjúkrunarfræðing sem áhuga hefurá mótunarstarfi. Umsóknarfrestur er til 31. júlí nk. Nánari upplýsingar gefur Hall- grímur Kjartansson, yfirlæknir, í vs. 456 8122 og hs. 456 8188 eða framkvæmdastjóri, Guð- jón S. Brjánsson, í vs. 450 4500 og hs. 456 4660. Hjúkrunarfræðingur/ Ijósmóðir Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa með að- seturá Heilsugæslustöðinni á ísafirði. Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 31. júlí nk. Ennfremur er laus staða Ijósmóður/hjúkrunar- fræðings við Heilsugæslustöðina. Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf eftir nánara sam- komulagi. Umsóknarfrestur er til 31. júlí nk. Nánari upplýsingar veitir Guðjón S. Brjánsson, framkvæmdastjóri, í vs. 450 4500. LAUS STÖRF ÁRVÍK ÁRMÚLA 1« SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295 óskar eftir góðu fólki í eftirtalin störf: RITARI-AÐSTOÐARMAÐUR FRAMKVÆMDASTJÓRA Starfið felst í almennum ritarastörfum, enskum bréfaskriftum, o.fl. Hæfniskröfur eru góð ritvinnslu- og enskukunnátta, auk þess sem viðkomandi þarf að vera sjálfstæður í vinnubrögðum og eiga gott með að starfa með öðrum. Vinnutími erfrá kl. 8:30-17:00. LAGERMAÐUR Starfið felst í almennum lagerstörfum og vöruafgreiðslu af lager. Hæfniskröfur eru reynsla eða menntun á sviði iðnaðar. Vinnutími erfrá kl. 10:00-18:00. Ráðið verður sem fyrst í bæði störf. Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí n.k. Upplýsingar veittar á skrifstofu Liðsauka. Einnig er hægt að skoða auglýsingar og sækja um störf á http://www.lidsauki.is Fötk ogr þekking Lidsauki ® Skipholt 50c, 105 Reykjavík simi 562 1355, fax 562 3767 Netfang: www.lidsauki.is Tölvupóstur: lidsauki@knowledge.is Vegna aukinna verkefna óska Flugleiðir eftir að ráða flugvirkja til starfa, Um er að ræða framtíðarstörf í viðhaldsstöð félagsins á Keflavíkurflugvelli. Skriflegar umsóknir óskast sendar starfs- mannaþjónustu félagsins, aðalskrifstofu, eigi síðar en 24. júlí n.k. Eldri umsóknir óskast endumýjaðar. • Starfsmenn Flugleiöa eru lykillinn aö velgengni félagsins. Viö Ieitum eftir duglegum og ábyrgum starfsmönnum sem eru reiðubúnir að takast á vió krefjandi og spennandi verkefni. • Flugleiöir eru rcyklaust fyrirtæki og hlutu heilsuverölaun heilbrigðisráðuneytisins árió 1996 vegna einarörar stefnu félagsins og for- vama gagnvart reykingum. • Flugleiöir cm feröaþjónustufyrirtæki og leggja sérstaka áherslu á aö auka skilning á þörfum markaðar og viðskiptavina og þróa þjónustu sína til samræmis viö þessar þarfir. Staifsmannaþjóntista FLUGLEIÐIR Traustur tslenskur ferðafélagi LANDSPÍTALINN .../' þágu mannúðar og vísinda... Hjúkrunarfræðingar Öldrunarmatsdeild Tvær stöður hjúkrunarfræðinga eru lausar til umsóknar, allar vaktir og einnig fastar nætur- vaktir. Á deildinni eru 10 rúm þar sem bráð- sjúkum öldruðum er veitt meðferð. Starfshlut- fall samkomulag. Lungnadeild Vífilsstöðum Tværstöður hjúkrunarfræðinga og einnig af- leysingastöður vegna námsleyfa eru lausar til umsóknar, allar vaktir og fastar næturvaktir. Lungnadeildin er bráða- og greiningardeild fyrir sjúklinga með lungnasjúkdóma. Starfs- hlutfall samkomulag. Hjúkrunardeild Vífilsstöðum Ein og hálf staða hjúkrunarfræðings og einnig afleysingastöður eru lausartil umsóknar. Hjúkrunardeildin er legudeild fyrir sjúklinga með langvinna lungnasjúkdóma. Á deildunum er skipulag hjúkrunar einstak- lingshæft og unnið er að ýmsum þróunarverk- efnum í hjúkrun. Upplýsingar gefur Bjarney Tryggvadóttir í síma 560 1000 eða 560 2800. * — * Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala, Þverholti 18 og f upplýsingum á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. _______________________________________________________ REYKJALUNDUR Aðstoðarlæknar Tveir reyndir aðstoðarlæknar (deildarlæknar) óskast til starfa á Endurhæfingarmiðstöðinni Reykjalundi, annar strax eða fljótlega eftir sam- komulagi, hinn frá 1. október nk. Upplýsingar veitir yfirlæknir, símar 566 6200 og 893 8170.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.