Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 10

Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 10
10 E SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ X>STAS, TOPPEN I TELEMARK! Gaustablikk fjallahótel er staösett í Þelamörk, 185 km vestur af Osló. i hótelinu eru 98 herbergi, 24 íbúðir og 5 smáhýsi fylgja að auki. Við erum 960 m yfir sjávarmáli með eigin 12 km skíðasvæði sem og 85 km svæði fyrir gönguskíðabrautir. Yfirmatsveinn til Noregs Þar eð yfirmatsveinn okkar ákvað að hverfa til annarra starfa, leitum við að manni í hans stað. Sem yfirmatsveinn berð þú ábyrgð á daglegum rekstri eldhússins, alltfrá innkaupum matvæla að skipulagningu matseðla sem og umsjón með lærlingum og kokkum, fjármálum eldhúss- ins og gæðum matarins. Hjá okkurstarfa 3 kokkarog 3 lærlingaraukyfir- matsveins. í boði erfæði og húsnæði auk góðra launa fyrir réttan aðila. Við þurfum á þér að halda sem allra fyrst! Vinsamlega hringið eða sendið umsókn til: Britt Svartdal, Gaustablikk Hoyfjellshotell, N-3660 Rjukan, Norge, sími: 00 47 35 09 14 22, fax: 00 47 35 09 19 75. Flugmálastjórn Laust starf Flugmálastjórn óskar eftir að ráða byggingar- verkfræðing til starfa hjá stofnuninni. Starfið felur í sér gerð verk- og kostnaðaráætlana, skipulagningu framkvæmdaverkefna, þátttöku í hönnun, mat á umhverfisáhrifum og eftirliti með framkvæmdum. Umsækjendurskulu hafa lokið framhaldsprófi í byggingarverkfræði, hafa staðgóða þekkingu og reynslu á sviði mannvirkjagerðar og verkefnisstjórnunar og gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli. Laun samkvæmt kjarasamningi verk- og rækni- fræðinga. Umsóknum, ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skila á skrif- stofu Flugmálastjórnar eigi síðar en 24. júlí 1998. Nánari upplýsingarveitir Anna Dagný Halldórsdóttir í starfsmannahaldi Flugmála- stjórnar, sími 569 4100. Öllum umsóknum verður svarað. FJÓROUNGSSJÚKRAHÚSID A AKUREYRI Eftirtalin störf eru laus til umsóknar frá 1. september nk.: Starf símavarðar. Um er að ræða 50% starf í vaktavinnu við skiptiborð stofnunarinnar. Æskilegt er að umsækjendur hafi nokkra tungumálakunnáttu. Starf bókavarðar. Um er að ræða 40% starf við umsjón og dreifingu bókakosts fyrir sjúk- linga. Starf skrifstofumanns. Um er að ræða 50% starf við launaútreikning á skrifstofu. Umsækj- endur þurfa að hafa góða reynslu og hæfni í tölvunotkun. Við ráðningu í störfin verður lögð áhersla á hæfni til mannlegra samskipta og samstarfs. Laun eru skv. kjarasamningi STAK. Nánari upplýsingar um störfin veitir Vignir Sveinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og skulu umsóknir sendast honum fyrir 25. júlí nk. Öllum umsóknum um störfin verður svarað. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. - reyklaus vinnustaður - Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Eftirtaldar stöðureru lausartil umsóknarvið grunnskóla Hafnarfjarðar: Víðistaðaskóli: Staða bókavarðar. Æskilegt er að umsækjandi sé menntaður bókasafnsfræðingur. Upplýsingar gefur Sigurður Björgvinsson í síma 899 8530. Öldutúnsskóli: Staða námsráðgjafa (1/2 staða). Kennsla í ritvinnslu (1/2 staða). Kennsla samfélagsgreina á unglingastigi (2/3 staða). Upplýsingar gefur Viktor A Guðlaugsson í síma 566 8648. Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 24. júlí. Framkvæmdastjóri fræðslusviðs Hafnarfirði. itl LLLl n n OÉ u U jj] LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS HÁSKÓLABÓKASAFN Starfsmenn óskast Starfsmenn óskast í tvö störf við gæslu og um- sjón i Þjóðarbókhlöðu. Gert er ráð fyrir að við- komandi starfsmenn verði til skiptis á dagvakt og kvöldvakt og er hvorvakt um 8tímar. Auk þess munu starfsmennirnir skipta með sér við- veru á laugardögum. Starfsmennirnir munu hafa eftirlit meðtölvu- stýrðu hússtjórnarkerfi, sjá um símvörslu og sinna fleiri verkefnum. Laun eru skv. kjarasamningi við Starfsmanna- félag ríkisstofnana. Nánari upplýsingar veita ÓlafurGuðnason, hússtjóri, s. 525 5670, og Herdís Þorgrímsdótt- ir, starfsmannastjóri, s. 525 5701. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni, Arngrímsgötu 3,107 Reykjavík, fyrir 31. júlí. Háskóli íslands Frá tannlæknadeild Viðtannlæknadeild Háskóla íslands er laust til umsóknar 50% starf aðstoðarmanns á klínik. Áætlaður upphafstími ráðningar er 1. september nk. Vinnutími er eftir hádegi frá kl.12:00. Próffrá Námsbraut fyrir aðstoðarfólk tannlækna er æskilegt. Laun eru skv. kjara- samningi fjármálaráðherra f.h. ríkisins og Starfsmannafélags ríkisstofnana. Samkvæmt forsendum aðlögunarsamkomulags raðast starfið í launaramma B. Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí nk. Skriflegum umsóknum skal skila til starfsmannasviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað og umsækj- endum síðan greintfrá því hvernig starfinu hafi verið ráðstafað þegarsú ákvörðun liggur fyrir. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu tannlæknadeildar í síma 525-4850 og á starfs- mannasviði í síma 525 4390. Margmiðlunar- vefhönnuður Tilbúinn til starfa hjá góðu fyritæki. www.itn.is/alda~tyr HEIMILI, DAGVIST, ENDURHÆFINGARÍBÚÐ, SUNDLAUG Hópstjóri Sjálfsbjargarheimilið óskar eftir hópstjóra til starfa frá og með 1. ágúst 1998. Um er að ræða 100% starf, unnið er aðra hverja helgi og ein kvöldvakt í viku. Leitað er eftir áhugasömum og jákvæðum einstaklingi sem hefur menntun á heilbrigðis- og/eða uppeldis- sviði. Áhersla er lögð á andlega, líkamlega og félagslega umönnun, reynsla á sviði umönn- unar er nauðsynleg. Umsóknarfrestur ertil 26. júlí 1998. Umsóknum skal skilað skriflega til Guðrúnar Erlu Gunnarsdóttur, hjúkrunarforstjóra, s. 552 9133 þar sem nánari upplýsingar fást. Sjálfsbjargarheimilið er ætlað hreyfihömluðu fólki, er þarfnast aðstoð- ar og umönnunar allan sólarhringinn. íbúar eru 42 og starfsmenn um 45. Hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, sjúkraliðar, læknar, sóknarstarfsmenn og aðrir starfsmenn vinna við heimilið. Við vinnum nú sérstaklega að því að auka lífsgæði íbúa heimilisins. Boðin eru góð starfskjör og gott starfsumhverfi á vinnustað í hjarta borgarinnar. Ráðsmannshjón í Viðey Störf ráðsmannshjónanna í Viðey eru laus til umsóknar. Þau eru m.a. fólgin í almennri gæslu eyjarinnarog mannvirkja Reykjavíkurborgar í Viðey. Hjónin annast reglubundið eftirlit með ástandi húsa og annarra mannvirkja, hafa um- sjón með öllum búnaði og annast minniháttar viðhald. Þá ber að telja heyskap, sorpflutninga og þrif úti við, einnig aðstoð við fólks- og vöru- flutninga að og frá Viðeyjarstofu. Starfinu fylgir íbúð og áskilið er, að hjónin hafi lögheimili og fasta búsetu í Viðey. Þau hafa bát til umráða og fá nokkurn akstursstyrk vegna útréttinga í landi. Störf þessi gætu t.d. hentað fólki sem vant er bústörfum. Starfið hefst 1. október nk., en æskilegt er að umsækjendur geti hafið þjálfun 15. september. Umsóknarfrestur er til 31. júlí. Nánari upplýsingar gefur undirritaður. Þórir Stephensen, staðarhaldari, í síma 568 0573. WAKUREYRARBÆR Fræðslu- og frístundasvið íþrótta- og tómstundadeild óskar eftir að ráða umsjónarmenn og aðstoðarfólk til starfa í félagsmiðstöðvar. Viðkomandi þurfa að vera áhugasamir, hug- myndaríkir og framtakssamir einstaklingar sem hafa gaman af að starfa með unglingum. Æski- legt er að viðkomandi hafi uppeldismenntun eða reynslu af að starfa með unglingum eða af félagsstarfi. Störfin eru hlutastörf. Laun skv. kjarasamningi STAK og Launa- nefndar sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið eru veittar hjá íþrótta- og tómstundadeild í síma 460 1400. Upplýsingar um kaup og kjörveitirstarfs- mannadeild í síma 462 1000. Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar, Geislagötu 9, á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 7. ágúst 1998. Starfsmannastjóri. Ráðskona — Lúxemb. Flugmaður óskar eftir ólofaðri, barnlausri, ábyrgðarfullri og reyklausri 25—35 ára konu til að sjá um 13 ára gamla kanadíska dóttur hans frá sept.—júlí í Lúxemborg. Æskileg kunnátta í þýsku og frönsku. Áhugasamar vinsamlega hringið eða sendið fax í síma 00352 227190 og skiljið eftir nafn, heimilisfang og/eða síma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.