Morgunblaðið - 12.07.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 E 13 5
Málara vantar
Vantar vana menn í málningarvinnu. Þurfa að
geta hafið störf sem fyrst. Mikil vinna framundan.
Nánari upplýsingar gefur Elvar í síma 561 6204
eða 898 2584. r-,
í“ 11 Elvar Ingason
Vh IM málarameistari
Lausar kennara-
og skólastjórastöður
Sjá heimasíðu Kennarasambands íslands:
www. ismennt. is/vefi r/ki/
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á mA Stapafell, olíuflutninga-
skip Olíudreifingar ehf. Nánari upplýsingar
veitir Grétar Mar í síma 550 9905.
Snyrtivöruverslun
Starfskrafta vantar allan daginn og í hlutastörf.
Léttur og skemmtilegur vinnustaður þar sem
þjónustulundin er í fyrirrúmi.
Öllum umsóknum svarað. Umsóknirsendist
til afgreiðslu Mbl. fyrirfimmtud. 16. júlí, merkt-
ar: „ E-5326".
Viðskiptasambönd
óskast til að kynna fjölmargar vörutegundir
frá Kanada og Bandaríkjunum.
Vinsamlega hafið samband við Lorne Urqu-
hart, netfang: cxna@netcom.ca eða skrifið á
heimilisfang 12 Dawn Drive, Dartmouth,
Nova Scotia, Canada B3B 1H9.
Reyndur sölumaður
óskast til markaðssetningar á nýjum auglýs-
ingamiðli á eftirsóttum markaði. Kröfurgerðar
um heiðarleika, vönduð vinnubrögð og já-
kvæðni í starfi. Þarf að hafa bíl til umráða og
geta byrjað strax. Upplýsingar í síma 898 4554
í dag, mánudag og þriðjudag.
„Au pair" USA
íslensk læknafölskylda í Bandaríkjunum leitar
að „au pair" ekki yngri en 20 ára. Okkur vant-
ar reyklausa, ábyrga og sjálfstæða mann-
eskju til að gæta barna og til léttra heimilis-
starfa. Nánari upplýsingar í síma 554 5504
eftirkl 18.00.
18-28 +
Ert þú á aldrinum 18—28+ ? Talar þú ensku?
Hefur þú gaman af ferðalögum? Hlutastarf
50—150 þúsund og fullt starf 150—300 þús-
und.
Áhugasamir leggi inn nafn og síma á af-
greiðslu Mbl. merkt: „18 — 28+".
Bifvélavirki
Óskum eftir vönum bifvélavirkja (meistara)
til starfa sem verkstjóri á verkstæði okkar sem
alira fyrst. Framtíðarstarf fyrir rétta manninn.
Bíltangi, ísafirði,
sími 456 3800 eða 456 4580.
Tækniteiknari
Tækniteiknari óskar eftir hlutastarfi eða fullri
vinnu. Hef kunnáttu í Autocad. Nánari upplýs-
ingar í síma 567 5277.
Bílstjórar og
traktorsgröfumenn
Vantar vana bílstjóra og traktorsgröfumenn
strax. Mikil vinna framundan.
Upplýsingar í símum 852 1137 og 565 3140.
Klæðning ehf.
Kælimaður
Óskum eftir að ráða vanan kælimann með víð-
tæka reynslu af viðhaldi og uppsetningu á nýj-
um kerfum. Aðeins vanur maður kemurtil
greina. Laun samningsatriði.
Umsóknirsendisttil afgreiðslu Mbl. merktar:
„Framtíðarstarf — 1000" fyrir 17. júlí.
Laugarvatn
Leikskólastjóra vantar að Leikskólanum Lind,
Laugarvatni frá 1. sept. 1998.
Upplýsingará skrifstofu Laugardalshrepps, sími
486 1199, fax 486 1191. Umsóknir berist á skrif-
stofu Laugardalshrepps fyrir 28. júlí 1998.
Vélvirki
Óskum eftir að ráða laghentan vélvirkja eða
mann með sambærilega menntun. Þarf að geta
unnið sjálfstætt. Mjög fjölbreytt verkefni. Um
framtíðarstarf er að ræða. Umsóknir sendist til
afgreiðslu Mbl. merktar: „V — 009" fyrir 17. júlí.
„Au pair" — Noregi
óskasttil íslenskrarfjölskyldu m. 4 börn (2—10
ára) frá miðjum ágúst. Þarf að vera barngóð,
reyklaus og með bílpróf. Upplýsingar í síma
0047 3284 7084.
Umsóknirsendisttil afgreiðslu Mbl., merktar:
„A — 5311", fyrir 22. ágúst.
Rennismiður
óskar eftir framtíðarstarfi á stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Til greina koma einnig störf sem
tengjast starfssviði véltæknis (iðnfræðings).
Nánari upplýsingar í síma 557 7562 frá
kl. 13.00—16.00 daglega.
Knattspyrnufélag
Akureyrar, KA
Óskum eftir að ráða í eftirtalin störf fyrir KA:
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri hefuryfirumsjón með
starfsemi félagsins, markaðssetningu, ráðning-
arsamningum, fjármálum og öðrum þeim mál-
um sem starfinu tilheyra.
Leitað er að sjálfstæðum og dugmiklum ein-
staklingi með reynslu af stjórnunarstörfum
og fjármálum. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst. í boði er áhugavert og krefjandi
starf.
Umsjón eigna, húsvarsla
Óskað er eftir starfsmanni til að annast hús-
vörslu, viðhald og umsjón eigna á íþróttasvæði
félagsins.
Um er að ræða vaktavinnu. Vinnutími er frá
kl. 7.45-15.45 ogfrá kl. 15.45-23.45 virka
daga auk þriðju hverrar helgar.
Leitað er að dugmiklum og reglusömum ein-
staklingi sem á gott með að umgangast fólk.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
[ boði er áhugavert og líflegt starf.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
fyrri störf óskast sendar til KPMG Endurskoð-
unar Akureyri hf. fyrir 21. júlí nk. Með allar
umsóknir og fyrirspurnir verðurfarið sem
trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
Endurskoðun Akureyri hf.,
lerárgötu 24, sími 462 6600,
600 Akureyri.
Mælingamaður
Öflugt verktakafýrirtæki, sem starfar aðallega
við jarðvinnuframkvæmdir, óskar að ráða van-
an mælingamann nú þegar.
Upplýsingar eru gefnar í síma 893 6753.
„Au pair" Sviss
„Au pair" óskasttil Genfartil að annastfjögurra
ára stúlku á skólaaldri. Reykingar óæskilegar.
Upplýsingar í síma 553 2156, helst á morgnana
eða kvöldin.
Landslagsarkitekt
óskar eftir hlutastarfi eða einstökum verkefn-
um. Áhugasamir leggi nafn og símanúmer á
afgreiðslu Mbl. merkt: „S — 5321" fyrir 17. júlí
nk. Fullum trúnaði heitið.
Trésmiðir
Óskum eftir að ráða vana trésmiði til framtíðar-
starfa í viðhald og nýsmíði. Fjölbreytt verkefni
framundan. Umsóknirsendisttil afgreiðslu
Mbl. merktar: „Tré — 2103" fyrir 17. júlí.
TRÉSMffllR ÓSKAST
Trésmiðir óskast vanir mótauppslætti.
Ágúst Friðgeirsson
híisasmIðameistari
Goiöater
Fræðslu-
og menningarsvið
Leikskólar
Garðabæjar
Leikskólinn Hæðarból
Leikskólakennarar óskast til starfa frá og með
1. september nk. Æskilegter að umsækjendur
geti leikið á hljóðfæri og/eða búi yfirtákn-
málsþekkingu.
Upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri,
Ingibjörg Gunnarsdóttir, í síma 565 7670.
Launakjör eru samkvæmt samningum launa-
nefndar sveitarfélaga og starfsmannafélags
Garðabæjar.
Leikskólar Garðabæjar eru reyklausir
vinnustaðir.
Leikskólafulltrúi.
• •
Atvinna í boði
Rúmfatalagerinn leitar að duglegu fólki til af-
greiðslu- og lagerstarfa í verslunum sínum
á höfuðborgarsvæðinu. Viðkomandi þurfa að
vera tvítugir eða eldri, röskir og stundvísir.
Um framtíðarstörf er að ræða.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf sendist til skrifstofu
Rúmfatalagersins, Smáratorgi 1, 200 Kópavog-
ur. Umsóknareyðublöð liggja frammi í verslun-
unum. Umsóknarfrestur er til 20. júlí.
Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar gefa verslunarstjórar.