Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 4

Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 4
4 B FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 DAGLEGT LIF MORGUNBLAÐIÐ kvennalið Gróttu í knattspyrnu, „eldri‘ stelpur sem spila með til gamans en tróna húsmæður á takkaskóm sei óvart á toppi síns rið- ils. Sigurbjörg Þrast- ardóttir fékk að bera töskur og hleraði stemmninguna í liðinu. nefnist 1. deild, og okkur þótti nærtækast að spyrja um leyfi til að keppa undir merkjum Gróttu. Það var auðfengið enda hefur Grótta aldrei verið með kvennalið og ný- búið er að leggja niður karlalið fé- lagsins." Umræddar „við“ eru fyrr- verandi knattspymukempur úr ýmsum liðum, aðallega KR, Val og Breiðabliki, sem hafa af ýmsum ástæðum hætt keppni. Flestar eru á aldrinum 34-38 ára og vegna ald- urs eru þær af gárungum kallaðar Grótta/Grund með tilvísun í sam- nefnt elliheimili! „Okkur finnst þetta mjög fyndið sjálfum og höfum tekið upp þetta góða slagorð. Fyrir leiki söfnumst við saman í hring og öskrum Grótta-Grótta-Grótta-Grund!!!,“ segir Bryndís og skellihlær. Hún er opinber þjálfari liðsins en það kemur til af líkamlegu ásigkomu- lagi þar sem hún á von á barni í ágúst. Margar hðskvenna eru tveggja og þriggja barna mæður og koma oftar en ekki með gríslingana á æfingar. „Krakkarnir una sér vel í sandkassaleik í grennd við völlinn og svo mæta eiginmennirnir náttúrulega á leiki og hvetja sínar konur,“ segir Bryn- dís. Velgengnin veldur áhyggjum Öllum að óvörum er Grótta eina taplausa liðið í deildinni þegar þetta er ritað, en riðlakeppnin er nú hálfnuð. Liðið er efst í sínum riðli og ef sú verður raunin í lok móts „veldur það ákveðnum vandræðum," eins og Bryndís orðar það. „Þá kepp- um við ásamt þremur öðrum liðum í sérstökum lokaslag um laust sæti í meistaradeild. Það var aldrei ætlunin og okkur vex í augum að færast upp um deild því þá þurfum við að fara að æfa almennilega," segir Bryndís og glottir en eins og sakir standa er að- eins æft tvisvar í viku. „Einhverjir myndu eflaust kalla það gauf en þetta er okkai- stefna. Einkalífið hefur for- gang og við viljum ekki vera of bundn- ar yfir boltanum eins og við vorum meira og minna hér áður fyrr. Nú er þetta meira til gamans gert.“ Bryndís segir þó of snemmt að hafa áhyggjur af meistaradeildarsæti, þær séu ekki búnar að vinna neitt enn. „Verst þótti okkur hins vegar að vera of seinar að skrá okkur í bikar- keppnina, þá hefðum við getað lent á móti okkar gömlu félögum.“ I liðum 1. deildar eru hins vegar fremur ungar stúlkur sem gerðu að sögn grín að „gömlu“ konunum í upphafi. „Þær voru með ýmsar glósur, töldu til dæmis að við hlytum að mæta á takkaskóm sem væru löngu komnir úr tísku,“ rifjar Bryndís upp en bætir við að Grótta/Grund hafi sýnt þeim í tvo heimana. „Við vinnum á leikreynsl- unni og skynseminni. Þær reyna kannski stungusendingar eða ætla sér hreinlega að stinga vörn okkar af en við sjáum oft við slíku. Þó við séum kannski ekki í jafngóðu formi og yngri stelpurnar þá lesum við leikinn betur og fónim langt á því.“ „Læturðu stelpu sóla þig?!“ Að sögn Bryndísai- eru þjálfarar hinna liðanna hissa á seiglu Gróttu- kvenna og telja þær verðuga andstæðinga. Þær eru óneitanlega stoltar af því enda keppnisskapið þeim í blóð borið. Hins vegar gengur stundum brösu- lega að samræma þau tvö markmið sem liðið leik- ur eftir, að allar fái að / Mikið úrval efna! Flísefni frá Bandaríkjumim frá 1.045 kr. m. Flísefni frá Ítalíu frá 1.195 kr. m. Teygjuefni í buxur og kjóla frá 1.565 kr. m. Einlit dragta- og kjólaefni með fiskibeinamynstri frá 1.595 kr. m. Svart, beige, dökkbrúnt, off white og dökkblátt. ÓgUÖ -búðirnar spila og að liðið vinni hvern leik (þó svo að viðmiðið sé ekki að vinna deildina!) „í hverjum leik eru fimm varamenn og hugmynd- in er að allar komi inn á. Slíkt getur hins vegar verið varasamt ef leikurinn spilast þannig að lið okkai- er í góðu jafnvægi. Ekki það að varamennirnir séu endilega lélegri en þeir sem eru inná, heldur geta margar skiptingar truflað taktinn í leik liðsins, leik sem við kannski höfum góð tök á hvernig svo sem staðan kann að vera.“ Að sögn Bryndísar er yfirbygging liðsins í lágmarki. Þjálfari og vara- menn sjá um að fylla út leikskýrslur og svo er lærður sjúkraþjálfari í liðinu - til taks inni á velli ef eitthvað kemur upp á. Hún nefnir fleiri skondin atriði í liðsstarfinu, til dæmis eru skotæfíng- ar háðar því að markvörður mæti á æfingar en skyldumæting er óþekkt hugtak í herbúðum Gróttu. Sjálf lék Bryndís knattspyrnu frá fei-mingaraldri en hætti í meistara- flokki fyrir fjórum árum. Hún i'ifjar upp að á árum áður hafi stúlka með knött þótt tilefni athugasemda: „Abbabbabb, stelpa í fótbolta..." auk 5 gerðir - margir litir 60 dra frábeer reynsla. VkMS} Bnar \0mm ■ -\ Farestveit&Co hf Borgartúni 28 Tt S62 2901 og S62 2900 KitcHenAid Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! Isaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! AÐ JAFNAÐI mæta um 15 Gróttukonur á æfingar en liðshópurinn telur um 25 konur þegar best lætur. Hér eru í aftari röð f.v.: Brynja Guðjónsdóttir, Unnur Arnadóttir, Sigrún Sævarsdóttir, Arndís Sigurgeirsdóttir, Erna Lúðvíksdóttir, Ragnhildur Skúladóttir, Ragnheiður Víkingsdóttir, Arney Magnúsdóttir, Ragnheiður Sæmundsdóttir, Margrét Leifsdóttir, KUldur Kristjánsdóttir, Hjördís Gunnlaugsdóttir og Ásta Baldursdóttir. Með börnunum í neðri röð sitja Guðrún Inga Sívertsen og Hrefna Harðardóttir. Þær eiga samtals að baki 59 landsleiki og samtals næstum jafn mörg börn. Þær eru á besta aldri en gætu verið mæður sumra mótherja sinna í leikj- um 1. deildar. Þetta er BRYNDÍS Valsdóttir var í upphafi leiktíðar sjálfkjörin þjálfari af líffræðilegum orsökum og stýrir Gróttukonum í gamni og alvöru. IUPPHAFI vorum við nú bara að leita okkur að æf- ingaaðstöðu og fengum inni í sal Gróttu,“ segir Bryndís Valsdóttir, fyrr- verandi leikmaður með meistaraflokki Valskvenna. „Út frá því spannst hugmynd um að vera með í keppni 2. deildar, sem núna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.