Morgunblaðið - 28.07.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.07.1998, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Þróun íslandsmetsins í hástökki frá 1950 1950 Skúli Guðmundsson, KR 1,97m 1960 Jón Pétursson, KR 2,00 1961 Jón Þ. Ólafsson, ÍR 2,03 1962 Jón Þ. Ólafsson, ÍR 2,05 1963 Jón Þ. Ólafsson, ÍR 2,06 1965 Jón Þ. Ólafsson, ÍR 2,10 ] 1983 Kristján Hreinsson, UMSE 2,11 1984 Unnar Vilhjálmsson, UÍA 2,12 1988 Gunnlaugur Grettisson, ÍR 2,15 1992 Einar Kristjánsson,FH 2,16 1998 Einar Karl Hjartarsson, ÍR 2,17 Einar Karl, Hjartarsson stökk 2,17 m á meistara- móti ísíands um helgina. Javier Sotomayor frá Kúbu á heimsmetið í hástökki, stökk 2.45m 27. júlí 1993 íSalamanca á Spáni. Skúli Guðmundsson, KR, stökk 1,97m árið 1950. Hann var fyrstur til að stökkva yfir 1,90m, stökk 1, 94m árið 1944. 2000 1990 1980 1970 1960 1950 ■ ERLINGUR Kristjánsson hand- knattleiksmaður með KA virðist hreint ekki hættui’, ef marka má heimasíðu félagsins á Netinu. Þar segir að Erlingur hafi sjaldan æft betur en að undanförnu. ■ SÆMUNDUR Sigfússon hefur einnig æft á fullu með KA að undan- fórnu, en hann er eldri bróður Hall- dórs, sem verið hefur leikstjórnandi liðsins. Sæmundur lék síðast með KA í 1. deildinni árið 1984. ■ REYNIR Ólafsson vann silfur- verðlaun í 200 m hlaupi á Meistara- mótinu í frjálsum og til bronsverð- launa í 100 m hlaupi, en Reynir er í Ármanni. Hann er einnig liðtækur knattspyrnumaður og hefur var í 23, ára liði KR sem lagði ÍA í bikar- keppninni fyiT í sumar. Hann hefur enn ekki komist í lið KR í Lands- símadeildinni. ■ ROGER Black tvöfaldur Evrópu- meistari í 400 m hlaupi og silfurhafi á síðustu Ólympíuleikum í greininni verður ekki einn þriggja keppenda Breta í 400 m hlaupi á Evrópumeist- aramótinu í Búdapest í næsta mán- uði. Hann varð fjórði á breska úr- tökumótinu á sunnudaginn. ■ BLACK hafði vonað að vinna þriðju gullverðlaun sín í 400 m hlaupi á Evrópumóti, áður en hann leggur skóna á hilluna í haust. Iwan Thom- as vann 400 metra hlaupið á breska úrökumótinu á 44,50 sek., Mark Ric- hardsson varð annar á 44,62. Þriðji varð Soloman Wariso á 44,68 og Black fjórði á tímanum 44,71, en það er fyrsta sinn í sumar sem hann hleypur vegalengdina á skemmri tíma en 45 sek. ■ WARISO hafði reyndar sagt að hann ætlaði að draga sig til baka og leyfa Black að taka sæti sitt, en skipti um skoðunn. Black var valinn i sveitina í 4x400 m boðhlaupi. ■ REAL Madrid hefur tilkynnt Englandsmeisturum Arsenal að þeh' séu reiðubúnir að borga hálfan þriðja milljarð ki'óna fyrir hollenska landsliðsmanninn Dennis Berg- kamp. ■ GUUS Hiddink hinn nýráðni þjálfari Real þekkh' Bergkamp auð- vitað út og inn eftir að hafa þjálfað hollenska landsliðið á HM. ■ ARSENE Wenger stjóri Arsenal hefur brugðist ókvæða við þessum fréttum og segh' Bergkamp ekki vera til sölu fyrir nokkra upphæð. Enda kannski ekki að undra þar sem enska stórliðinu hefur gengið lítið í eigin ieikmannakaupum að undan- fórnu, þótt nægir fjármunir hafi ver- ið í boði. ■ ÞYSKI landsliðsmaðurinn Dieter Hamann gengur til liðs við enska úr- valsdeildarliðið Newcastle United í vikunni frá þýska stórliðinu Bayem Miinchen. ■ HAMANN kostar rúmar sex hundruð milljónir króna og fær rúm- ar eitt hundrað milljónir í árslaun. mEVERTON hefur fest kaup á franska miðvallarleikmanninum Oli- vier Dacourt frá Strasborg fyrir Qögur hundruð milljónir króna. ■ DACOURT er 23 ára gamall og samdi við enska liðið til fjögurra ára. ■ FASTLEGA er búist við þvi að fyrir helgi verði endanlega gengið frá kaupum liðsins á skoska lands- liðsmanninum John Collins frá Mónakó. MIKILVÆGT Meistai-amót íslands sem fram fór um liðna helgi er eitt skemmtilegasta frjálsíþrótlamót sem fram hefur farið hér á landi um nokkum tíma og eflaust besta Meistaramót síðustu ára. Þrátt fyr- ir að aðeins eitt íslandsmet væri slegið var keppni jöfn og spennandi í flestum greinum og alls vora sett eliefu mótsmet. Greini- legt er að nokkur hópur ungs og efnilegs frjálsí- þróttafólk er að vaxa upp innan frjálsíþrótta- hreyfingarinnai' sem með: rátth hugarfari og þjálfun á eftir að láta meira að sér kveða þegar fram í sækh'. Allt aimai- bragur var á Meistaramótinu en t.d. fyrir tveim- ur árum þegar það var langt frá því ,að standa undir nafni og spuming vai' hvort það þjónaði tilgangi að halda því úti. Nýtt fyrirkomulag vai' reynt sem sannaði gildi sitt og þrátt fyrir ýmsa agnúa á framkvæmdmni fyrri daginn tókst að bæta það upp síðari keppnisdegi. Ljóst er að þessi breyting er tU góðs fyrir alla, mótið verður meira spennandi fyrir áhorf- endur, það gengur hratt fyrir sig og keppendur fá meira út úr því en áð- ur þai' sem áður gat verið löng bið á milli greina. Jafnfi-amt því sem veðrið var með besta móti hafa áhorfendur ekki verið fleiri á frjálsíþróttamóti hin síðari ár. Frjálsíþróttamenn hafa ekld átt því að venjast að vera- legur ijöldi drífí að á mót og taki þátt í því með hvatningarópum og lófaklappi. Öllu máli skipti að bestu frjálsíþróttamenn landsins tóku þátt, en þvf miður hefur það ekki ailtaf verið. Ekki er að efa að mest aðdráttarafl hafði keppnin í stang- arstökki kvenna þar sem Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elís- dóttir háðu snarpt einvígi, a.m.k. di'eif hóp fólks að u.þ.b. er keppni í stangarstökki hófst. Vaia hefur með glæsilegum árangri og vinsamlegri framkomu unnið hug og hjarta þjóðar sinnar uncianfarin misseri. Það er ekki daglegt brauð að hún keppi hér á iandi og því eðlilegt að hún laði að sér áhorfendur. Hún stóð líka fyllilega undh' vonum, stökk yfii' 4,25 metra sem er einn besti árangur ársins, þótt alltaf aii menn í brjósti von um aðeins betra, hverju moti. Guðrán Arnardótth- og Jón Am- ar Magnússon eru í sama flokki af- reksmanna í allra fremstu röð eins og Vala. Þau létu sitt ekki eftir liggja og voru aðsópsmikil á mót- inu, Guðrán keppti í fjóram grein- um og Jón í sex. Gríðai-legur styrk- ur þeirra kom beriega í ijós sem lof- ar góðu fyrir átökin á Evrópumeist- ai'amótinu í næsta mánuði og ekki óraunhæft að gera sér vonir um að þau verði í keppni um verðiaun þar. Mildlvægast þó er að Jón Amai', Guðrán og Vala gera sér fyliilega grein fyrh' mikilvægi þess að þau taki þátt í Meistaramótinu, þó að þátttakan skipti ekki sköpum í und- irbúningi þeirra fyrá' stórmót, heid- ur hitt að það er íþróttinni i landinu lífsnauðsynleg að þau séu á meðal keppenda. Þau era fyrirmynd fjöl- margra bama og unglinga utan vallar sem innan. Þá er ekki síður nauðsynlegt að fyrir þá sem eru nokkram skrefum á eftii' þeim að fá tækifæri til að reyna sig við þau í keppni og sækja til þeirra ráð sem þau eru óspör á að gefa. Þau muna vel þá tíð er þau voru að stíga sín fyrstu skref og hversu spennandi það var að fá að spreyta sig gegn stjömum þeirra daga. ívar Benediktsson Þau eru fyrirmynd bama og unglinga utan vallar sem innan en það er ekki hægt að bæta sig á Hvers vegna rakar ÓLAFUR ÞÓR GliNNARSSON höfuð sitt fyrir hvern leik? Hegðun mín kjánaleg MARKVÖRÐUR ÍR-inga í efstu deild karla í knattspyrnu, Ólafur Þór Gunnarsson, hefur vakið verðskuldaða athygli í sumar fyrir góða frammistöðu í markinu. Ólafur er tvítugur, fæddur og uppalinn í Reykjavík þar sem hann býr enn og hann er ÍR-ingur í húð og hár. Hann hefur verið að nema viðskiptafræði í Flórída í Bandaríkjunum þar sem hann er á styrk og leikur knattspyrnu með skólaliðinu. Hér heima eru það ekki aðeins hæfileikar hans sem markvarðar sem hafa vakið athygli því drengurinn er ávallt með vel rakað höfuð og mikið skegg, eða hefur verið það. Skeggið vantaði í einum leik ÍR á dögunum og var Ólafur spurður hverju það sætti. „Skegg- ið var orðið heldur rytjulegt í sumar og eftir að Eftir Stefán við töpuðum 3:0 Stefánsson fýrir Fram ákvað ég að láta það fjúka. Ég er þó að safna nýju skeggi og vona að það boði lukku fyrir okkur,“ segir ðlafur. Ertu hjátrúarfullur? „Nei, það held ég ekki en þó vilja sjálfsagt margir segja að ég sé það. Ég verð að viðurkenna að líklega er hegðun mín á leikdag svolítið kjánaleg en svona er þetta. Ég tel þetta ekki hjátrú. Ég vil bara búa mig eins undir alla leiki,“ sagði Ólafur Þór spekings- legur og örlaði á brosi. Hvernig er sagan á bak við skeggið ogskallann? „Þetta byrjaði allt saman í fyrra. í hvert sinn sem ég gleymdi að raka á mér kollinn fyrir leik töpuðum við. Það var því nokkuð ljóst að hárið varð að fjúka. Þótt gengi okkar hafi verið nokkuð mis- jafnt í sumar hef ég alltaf rakað kollinn en skeggið hefur hins vegar fengið að halda sér, þar til um dag- inn.“ Þú segist vilja búa þig eins fyrir alla leiki, hvemig er þeim undir- búningi háttað? „Þegar leikið er á virkum degi vinn ég venjulega til klukkan fjög- ur og fer þá heim. Þar er búin til samloka og það er gert eftir kúnst- arinnar reglum, því áleggið verður allt að fara á brauðið í ákveðinni röð. Síðustu tvö árin hef ég alltaf farið í sömu fötin fyrir leiki, bol, Morgunblaðið/Arnaldur ÓLAFUR Þór Gunnarsson er byrjaður að safna skeggi en hárið fær að fjúka fyrir næsta leik. buxur og jakka. Fötin eru þó þveg- in reglulega," sagði markvörðurinn hlæjandi. Ferðu svo á völlinn? „Já, svo er haldið á ÍR-völlinn og þar er ég líka með allt á hreinu. Iþróttataskan verður alltaf að fá sinn stað í búningsklefanum - aðrir hlutir verða að víkja. Við fáum okkur alltaf djús, te og ristað brauð fyrir leik og það er regla hjá mér að fá mér bara eina brauð- sneið. Þegar ég er búinn með hana fer ég út á verönd með djúsglasið og hugsa um væntanlegan leik. Strákarnir koma oftast með út á verönd, nema þegar það er leiðin- legt veður, þá sleppa þeir því. Ég fer hins vegar í hvaða veðri sem er því ég breyti ekki út af venjunni." En hvað með upphitunina sjálfa, er hún hefðbundin? „Ég er alltaf kominn út á völl klukkustund fyrir leik til að hrista úr mér stressið. Ég hita aldrei upp í keppnistreyjunni því hún hangir á sínum snaga þar til rétt fyrir leikinn og eitt er það sem ég passa mig á; keppnisskórnir era aldrei pússaðir." Hvemig stóð á því að þú fórst að leika í marki? „Eigum við ekki að orða það svo að ég hafi ekki haft nægilegt út- hald til að spila úti þegar ég byij- aði í fótbolta. Ég var sex ára og var settur í markið eins og oft er gert við þá sem eru þannig í vextinum að þeir þykja ekki Kklegir til að hlaupa hratt,“ segir markvörður- inn og hlær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.