Morgunblaðið - 28.07.1998, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
+
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Hættur að stökkva
Vala Flosadóttir varð Islandsmeistari í fyrsta sinn
Mótsmetin fuku
í góðviðrinu
sem gefur mikið af stigum í tug-
þrautinni. Sem dæmi má nefna að
munurinn á að stökkva 4,70 metra
og 5,20 eru rúmlega 150 stig og það
munar um minna. Oft hef ég veriða
að fara yfír 4,70 til 4,80 á stórmóti.
Þá er ég að ná tökum á grinda-
hlaupinu á ný eftir að hafa verið í
vandræðum þar upp á síðkastið.
Þannig að mér fínnst útlitið vera gott
og ég bíð spenntur eftir stórátökun-
um sem framundan eru.“
Jón sagði ennfremur að hann
hefði stefnt að því að bæta eigið
met í 200 m hlaupi en það hefði ekki
lánast í þetta skiptið, en verið
býsna nálægt því. Annars hafi
keppnin í heild verið góð, hann hafi
fengið það út úr henni sem að var
stefnt. Síðari daginn hafi hann
keppt í 200 m hlaupi, þaðan beint í
kringlukast og loks tekið einn
sprett í 4x400 m boðhlaupi. „Kr-
inglukastið var í lagi, tæpir 49
metrar og miðað við að kasta á
íþróttaskóm er það í lagi,“ sagði
57,50 sek. og bætti ellefu ára gamalt
mótsmet í sinni eigu, um 1,12 sek.
Tími Guðrúnar í 200 m hlaupi var
24,02 sek., sem er 16/100 úr sekúndu
betra en gamla metið sem hún seþti
1994 og aðeins 21/100 frá eigin ís-
landsmeti.
Vala Flosadóttir, IR, tryggði sér
af öryggi fyrsta Islandsmeistaratitil
sinn er hún stökk yfir 4,25 metra í
stangarstökki, 25 cm hærra en
Þórey Edda Elísdóttir, FH, og
Daniela Köpernick, Þýsklandi, sem
tók þátt í mótinu sem gestur. Að-
stæður til stangarstökks voru ekki
sérlega hagstæðar, nokkur hliðar-
vindur sem gerði keppendum erfítt
fyrir. Sigurhæð Völu, 4,25 metrar,
er einnig Meistaramótsmet og vall-
armet í Laugardal, en gamla metið
átti hún sjálf, 3,81 metri, það var
þriggja ára. Vala stökk 4 metra í
annarri tilraun, 4,15 í fyrstu og 4,25 í
annarri tilraun. Síðan gerði hún
þrjár tilraunir við 4,41 metra en
tókst ekki þrátt fyrir ágætar tilraun-
ir. Þórey Edda fór yfír 3,80 í fyrstu
tilraun og fjóra metra í þriðju en
vantaði nokkuð upp á að fara yfír
4,15 metra.
Sveinn Margeirsson, UMSS, sigr-
aði í tveimur greinum, 3.000 m hindr:
unarhlaupi og 5.000 m hlaupi. í
hindnmarhlaupinu hljóp hann á
9.05,85 mín., og bætti eigið unglinga-
met um fimm sekúndur og Meistara-
mótsmetið um tæpar tvær sekúndur,
en það var orðið 36 ára gamalt.
Sveinn hafði gott forskot í 5.000 m
hlaupinu, en náði ekki að bæta metið
í því hlaupi.
Sigríður Anna Guðjónsdóttir,
HSK, stökk allra kvenpa lengst í
langstökki og þrístökki. í síðasttöldu
greininni tvíbætti hún Meistaramóts-
metið, fyrst um 5 cm, stökk 12,78
metra og loks 12,82 metra. Þá átti
hún 13 metra stökk sem var hárfínt
ógilt. Eigið Islandsmet stóðst þó allar
atlögur að þessu sinni. Eftir hörku-
keppni hennar og Sunnu Gestsdótt-
ur, IR, í langstökki vann Sigríður,
stökk 5,66 metra, þremur cm lengra
en Sunna.
Islandsmethafínn í kúluvarpi, Pét-
ur Guðmundsson, Armanni, var ör-
uggur sigurvegari í kúluvarpi og
vann einnig kringlukastið og bar þar
m.a. sigurorð af Magnúsi Aroni Hall-
grímssyni. Pétur varpaði kúlunni
18,26 metra í sjöttu tilraun, sem var
hans lengsta, en annars voru köst
hans jöfn. Kringlunni þeytti hann
54,85 metra en Magnús 54;44.
Martha Ernstsdóttir, IR, sigraði
önigglega í 5.000 metra hlaupi
kvenna eins og við mátti búast en
tíminn var e.t.v. betri en margur átti
von á. Hún hljóp á 16.34,39 mínútum
og bætti eigið Meistaramótsmet um
rétt rúmar 14 sekúndur. Gott hlaup
hjá Mörthu, sem er nýlega komin af
stað á ný eftir barnsburð. Er hún
greinilega til alls líkleg með sama
áframhaldi.
Morgunblaðið/Golli
JÓN Arnar Magnússon kemur í mark í 200 m hlaupl þar sem hann
var nærri íslandsmetinu, Ifkt og í stangarstökkinu.
Þátttaka í þessu móti var einn lið-
ur í æfingum hjá mér,“ sagði
Jón Arnar Magnússon, tugþrautar-
kappi úr Tindastóli. „Eg fór í nokkr-
ar greinar sem ég og Gísli [Sigurðs-
son] þjálfari vildum leggja áherslu á
og í heildina er ég ánægður með
hvernig til tókst. Sérstaklega var ég
ánægður með stangarstökkið, þar
sem ég er stöðugt að ná betri tökum
á tækninni og hættur að stökkva
mest á kröftunum, eins og áður var.
Stangarstökkið er mikilvæg grein
EITT íslandsmet var slegið og ellefu mótsmet voru sett á Meistara-
móti íslands á Laugardalsvelli um liðna helgi, en fjörug keppni var í
flestum greinum enda mótið eitt það skemmtilegasta sem fram hef-
ur farið lengi. Einar Karl Hjartarson, ÍR, náði loks langþráðu tak-
marki er hann stökk yfir 2,17 metra í hástökki og bætti um leið sex
ára gamalt ísiandsmet Einars Kristjánssonar, FH, um einn senti-
metra. Einar Karl á nú bæði íslandsmetið innanhúss og utan í há-
stökki, þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára.
VALA Flosadóttir, ÍR, undirstrikaði enn einu sinni að hún er meðal fn
hún lyfti sér yfir 4,25 metra á Laugardalsvelli á sunnudag og innsigla
armet um 44 cm. Það setti hún síðsumars 1995 e
lyft höndunum og fagnað sigri,“
sagði Jón glaðbeittur er hann kom í
mark. Jón keppti einnig í kringlu-
kasti, komst ekki á verðlaunapall,
kastaði rúma 49 metra, sem verður
að teljast gott, því hann kastaði á
íþróttaskóm, sökum þess að hann
gleymdi þartilgerðum kastskóm
heima á Sauðárkróki.
Til þess að undirstrika feykilegan
styrk sinn hljóp Jón þriðja sprett fyr-
ir UMSS í 4x400 m boðhlaupi, tók
við keflinu þriðji, 50 metrum á eftir
fremsta manni, hljóp hann uppi og
skilaði keflinu í hendur félaga síns
fyrstur. Gísli Sigurðsson, þjálfari
Jóns, segir hann hafa farið hringinn á
46,3 sekúndum, sem er frábær tími.
Arangur Jóns í 110 m grindahlaupi
og stangarstökki er Meistaramóts-
met.
Guðrún var líkt og Jón yfirburða-
mannsekja í þeim greinum sem hún
tók þátt í. Hún stakk keppendur sína
af í 100 m grindahlaupi, þó stutt væri
leiðin og hið sama átti sér stað í 200
m hlaupi og 400 m grindahlaupi.
Setti hún Meistaramótsmet í öllum
greinum, en fyrri met átti hún
einnig. Styttra grindahlaupið hljóp
Guðrún á 13,43 sek., gamla Meist-
aramótsmetið var 13,94. í 400 m
grindahlaupi mældist hún á tímanum
Jón Amar Magnússon, Tindastóli,
og Guðrún Arnardóttir, Ár-
manni, voru aðsópsmikil á mótinu
eins og við mátti búast
jvar og undirstrikuðu gíf-
Benediktsson urlegan styrk sinn.
skrifar Jón Arnar sigraði í
110 m grindahlaupi á
14,10 sek., sem er þriðji besti tími
sem hann nær á ferlinum, en Is-
landsmetið hans frá í fyrra er 13,91
sek. Sigur hans var mjög öruggur
því næstur varð Bjarni Þór Trausta-
son á 15,00. Hafi yfirburðir Jóns
verið miklir í grindahlaupinu voru
þeir enn meiri í stangarstökki þar
sem hann hóf keppni er aðrir höfðu
helst úr lestinni. Hann byrjaði á
4,60 metrum, fór yfír í fyrstu tilraun
líkt og 4,80 metra, 5 metra og 5,20
metra. Því næst reyndi hann við ís-
landsmet, 5,32 metra, sem er einum
sentimetra hærra en fjórtán ára
gamalt met Sigurðar T. Sigurðsson-
ar. Að þessu sinni reyndist sú hæð
Jóni um megn, en önnur og þriðja
tilraunin voru nokkuð góðar, lítið
vantaði upp á. Jón Arnar hjó síðan
nærri sínu eigin íslandsmeti í 200 m
hlaupi er hann kom langfystur í
mark á 21,20 sek., og var aðeins
þremur hundraðshlutum frá metinu.
„Eg hefði náð því hefði ég hefði ekki