Morgunblaðið - 04.10.1998, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.10.1998, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FYRIR mörgum árum þegar ég var í boði utawfldsráðu- neytisins í ísrael hitti ég þau Amos og Britu Kaplan á samyrkju- búinu Morgunstjarnan í Galileu. Þau voru staðráðin í að búa þar alla tíð og fannst sú hugsjón sem kibbutsstefnan byggði á henta þeim í hvívetna. Nú í sumar heyrði ég aft- ur frá Amosi. Þá var hann staddur á íslandi með Steinunni eiginkonu sinni, syni hennar frá fyrra hjóna- bandi og yngri dóttur sinnar og Britu. Hann hafði þá búið í Dan- mörku í allmörg ár og sér ekki að hann langi til að flytja aftur heim. Honum hugnast ekki „amríkaniser- ingin“ í ísraelsku samfélagi, barátta veraldarhyggju gyðinga og strang- trúaðra og hann var ekki dús við það þegar nýstefnumenn komu til sög- unnar og vildu bylta ríkjandi kibbut- sakerfí. Kannski yfírgaf hann kibbutsahfið kalinn á hjarta. En honum er ekki síður mikið niðri íyrir þegar við ræðum stjómmál í ísrael. Foreldrar Amosar eru frá Rúss- landi og Póllandi og fluttu bæði til Palestínu á 3. áratugnum. Þau höfðu kynnst í Póllandi og settust að á samyrkjubúi og unnu þar alla sína tíð. Amos er yngstur þriggja barna þeirra og vandist samyrkju- búalífmu frá barnæsku og kunni því afar vel. Hann fór í herinn í þrjú ár og tók þátt í Sex daga stríðinu og barðist í Sinai. Yfírmaður hans þar var Ariel Sharon. Sá fyrir mér framtíðina á kibbutsinum Að herþjónustu lokinni hélt hann aftur heim á kibbutsinn og varð eins konar skipuleggjandi hans. Hann ferðaðist á hans vegum til Eng- lands, Bandaríkjanna og víðar en hóf fast starf við samyrkjubúið Morgunstjarnan í lok sjötta áratug- arins. Morgunstjaman var fyrsta samyrkjubúið í Galileu og var mjög þekkt. Auk íbúa var þar gistiheimili og fjölda margir útlendingar unnu þar um lengri eða skemmri tíma. Amos var einkum í að skipuleggja hvers kyns menningarstarf meðal íbúa samyrkjubúsins. Þar kynntist hann fyrri konu sinni, Britu sem var dönsk og kom að vinna þar sem sjálfboðaliði eins og fleiri. „Eg hafði alltaf séð framtíð mína á samyrkjubúinu," segir Amos.“En svo fóm að verða breytingar sem ég var ekki sáttur við. Upphaflega voru kibbutsarnir ekki hugsaðir sem trúarmiðstöð. Við vorum að byggja upp nýtt samfélag og þó trúin í sjálfu sér tengdi okkur sam- an var hún ekki það sem úrslitum réði. Það var að græða landið, rækta og vinna saman á nýjan hátt. Auðvitað höfðu menn lengi haft áhyggjur af því hvernig ætti að fást við trúarleg mál. Ben Gurion var framsýnn maður og virðist hafa áttað sig ótrúlega snemma á því að þarna gætu komið upp vandamál þó ég efist um að hann hafi gert sér grein fyrir hversu alvarleg þau yrðu síðar meir. Þó var snemma ljóst að yeshiva gyðingar- þ.e. trúaðir- fengju undanþágu frá herþjónustu. En framan af var þetta ekki ýkja fjölmennur hópur og ég held að flestir hafi virt þessa ákvörðun." Færist í vöxt að menn komi sér undan herþjón- ustu vegna trúar „Nú er þetta í rauninni orðið stór- kostlegt vandamál. Margir segjast vera trúaðir til að losna við her- skylduna og misnotkunin færist í vöxt. Ehud Barak, leiðtogi Verka- mannaílokksins nú, vill að það verði lögleitt að engir séu undanþegnir herskyldu en ég efast um að það fáist í gegn. ------------------ Þeir sem telja sig Hverfandi trúaða - hvort sem þeir mikilvægi eru trúaðir, strangtrúaðir samyrkjubúa Valdabarátta trúarhópa færist f vöxt f ísrael „Aukin hætta á innanlandsátökum “ HALEITAR hugsjónir hafa nú þurft að víkja fyrir markaðsvæðingu samyrkjubúanna. Myndin er tekin á Maaleh HaHamish-samyrkjubúinu á fímmta áratugnum. Amos Kaplan er pólskrússneskur gyðingur og uppalinn á samyrkjubúi í Israel. Þar stefndi hann að því að eyða ævinni. Vegna breytinga á viðhorfí og markaðsvæðingar kibbutsanna ákvað hann að flytja með danskri konu sinni úr landi. Þau hjónin skildu síðar og hann á nú íslenska konu, Steinunni Helgadóttur. Þau hjón voru í heimsókn á Islandi fyrir nokkru og Amos skýrði út afstöðu sína til kibbutsa og pólitíkurinnar í Israel í samtali við Jóhönnu Kristjónsdóttur. Ljósmynd/Jóhanna Kristjónsdóttir. AMOS Kaplan ÖLL spjót standa nú á Benjamin Nethanyahu, for- sætisráðherra ísraels. Innbyrðis barátta gyðinga gæti reynst rflcinu hættu- legri en allir Arabar eða hvað sem þeir kalla____________ sig- segjast heldur ekki mega vinna, þeir eigi að iðka bæna- gjörð og þeir lifa á tryggingabót- um. Þar sem þessum hópum- sem eru margir, marglitir og sjálfum sér sundurþykkir hefur þetta orðið veruleg byrði á ríkinu. Auk þess er barátta milli þeirra innbyrðis og þeir virðast fátt eiga sameiginlegt nema hafa hom í síðu veraldar- hyggju (seeular) gyðinganna." „Þegar fylgst er með hversu mikil heift er milli þessara tráflokka strangtráaðra sem ýmsir hafa sína stjómmálaflokka, þá spyr maður sig hvort sé skelfi- legra, barátta gyðinga inn- byrðis eða við Araba. Mér fínnst ástandið hafa versn- — að þannig að mér sýnist í reynd að bijótist ekki út átök við Araba muni vera stóraukin hætta á eins konar borgarastyijöld meðal gyðinga sjálfra því togstreitan um völd og áhrif er orðin svo miklu tengdari tráarhópunum en var. Okk- ur sem teljum okkur secular gyðinga finnst með ólfldndum hvað orþodokts (rétttráaðir) gyðingamir hafa fært sig upp á skaftið hvert sem litið er í ísraelsku samfélagi nú um stundir. Þetta hefur beinlínis orðið til þess- af því leiðtogar landsins hafa ekki tekið á þessu og Benjamin Netanyahu for- sætisráðherra er manna ólíklegastur til að gera það- að secular gyðingar hafa flutt úr landi. Það hefur enn orðið til að efla orþodoks gyðingana. Venjulegt fólk í ísrael vill semja frið við Araba, það er engin spuming og þó við höfum kannski verið glám- skyggn framan af í gleðivímu okkar eftir stoíhun ríkisins- þá skiljum við að það er ekki hægt að halda niðri heilli þjóð - og kannski má segja að tilurð Israelsríkis hafi verið það sem sameinaði Palestínuarabana og gerði þá að þjóð. Það var ef til vill hægt framan af að hundsa þá en svo springur allt er ég hræddur um og það er ekki hægt að ímynda sér hvaða skelfingar mundu þá dynja yfir.“ Sýrlendingar eru efnahagslega sterkari en fyrr Margir hafa gagnrýnt langa her- setu ísraela á Suður Líbanon. Hvað segirðu um það mál? „Ég er þeirrar skoðunar - og þeir em fleiri sem líta svo á- að ---- færa Sýrlendingar til að mynda frá Líbanon væri brostinn grundvöllur fyrir hersetu Israela í Suður__________ Líbanon og við færam þaðan. Golanhæðirnar era langtum viðkvæmara mál. En ég hallast samt að því að fengjum við trygg- ingu fyrir friði með samningum við Sýrlendinga gætum við látið Golan- hæðirnar af hendi. Rabin var þeirr- ar skoðunar og við vitum nú hvað kom fyrir hann. Það var ekki arabískur hryðjuverkamaður sem drap hann heldur strangtráaður Venjulegt fólk vill semja frið við Araba gyðingur. Ég bjó í nágrenni við þá ógn þegar ég var að alast upp að Sýrlendingar gerðu stöðugar árásir á kibbutsinn sem ég ólst upp í. Ég tilheyri neðanjarðarbyrgja- kynslóðinni sem eyddi drjúgum hluta bernsku minnar í_ felum með- an sprengjurnar féllu. Ég vildi ekki óska neinum að þurfa að lifa við það. Sýrlendingar virðast þó ekki í neinu sérstöku skapi til að gera við okkur friðarsamning um þessar mundir. Þeir eru efnahagslega sterkari nú en áður og uppbygging- in í Líbanon hefm' gengið mun greiðar fyrir sig en menn ætluðu. Því er heldur ekki að leyna að van- trú ísraeia á Assad Sýrlandsforseta er mjög eindregin. En eitthvað hafði Rabin þó þreifað fyrir sér þar sem hann lýsti því yfir ékki löngu áður en hann var myrtur að hann væri tilbúinn að ræða við Sýrlend- inga um að afhenda Golanhæðimar. En til þess að eitthvað verði úr því þarf öðruvísi leiðtoga en við höfum nú. Ég get hvorki láð Assad né öðr- um það þó þeir séu ekki fúsir að taia við Netanyahu. Margir Israelar mundu geta hugsað sér þannig fyi’irkomulag að enginn her yrði í Golanhæðum og gæslumenn Sameinuðu þjóðanna sæju um svæðið. En áður þarf að semja og það er ekki í sjónmáli eins og við vitum.“ Netanyahu vinnur náið með Sharon „Netanyahu er að mínu mati tækifærissinni", segir hann. „Hann vill völd og áhrif því hann er metorðagjarn maður og hann vill fá allt fyrir ekkert. En margir þeirra sem studdu hann eru nú farnir að efast um að þeir hafi gert rétt í að styðja hann- og mér skilst að það eigi við um hans nánustu samstarfs- menn líka. Hann vinnur náið með Sharon, sem er óskaplegur öfgamaður í pólitík og gagnvart Palestínumönnum og almennt Aröbum. Það er hættulegt hvað hann hefur mikið samráð við Shar- on. En hann áttar sig einnig á þeirri hættu sem er því samfara að fallast á kröfur Arafats því þá munu tráar- legu flokkarnir sem styðja hann ýta honum út snarlega. Því er ekki nokkur vafi á að hann veit í rauninni ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Og þar sem hann er ekki maður hugsjóna, heldur hentistefnu virðist þetta stefna í óefni.“ Aðspurður um Ehud Barak, ypptir hann öxlum. Segir að hann sé ugglaust skynsamur maður en hann sé ekki nógu snjall sem pólitíkur. „Hann er ekki sá þungavigtarmaður sem við þurfum á að halda og Net- anyahu nýtir sér það út í æsar.“ Var mótfallinn einkavæðingu kibbutsanna Eins og fram kom fyrr í greininni bjó Amos Kaplan lengi á samyrkju- búum en hvað olli því að hann ákvað að fara um þær mundir sem hann átti að taka við forstöðustarfi á Morgunstjörnunni? Hann segir að þær skipulags- breytingar sem síðan hafi verið gerðar og miði að því að einkavæða kibbutsana falli sér ekki í geð. Alls konar aðrar breytingar á rekstri þeirra gangi þvert á hugmyndir frumherjanna. Ekki svo að skilja að hann sé í grundvallaratriðum á móti breytingum - kibbutsar verði að fylgja tímanum. En með þessari einkavæðingu hafi vegur þeirra snarminnkað. Þýðing þeirra í ísra- elsku samfélagi hafi þar af leiðandi orðið hverfandi og sú hugsjón sem kibbutsamir byggðu á, samvinna, er farin fyrir lítið. Þó sé nú að vaxa upp kynslóð sem vilji varðveita þessa arfleifð og telji hana holla og þroskandi. „Því gæti svo farið að í framtíðinni verði tvær tegundir af ^____ samyrkjubúum og það er nú verið að ræða þetta af alvöru. Ég vona að úr því verði. Samyrkjubúalífið má vafalítið gagn- rýna en mér finnst og fannst að þessi hugmynd sem þau byggja á- þar sem menn taka ábyrgð á sjálfum sér og öðrum- vera ákveðin tegund af mannrækt sem færi til spillis. Mér hefur raunar fundist að okk- ur veitti ekki af að halda í það sem ræktar manninn."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.