Morgunblaðið - 04.10.1998, Page 15

Morgunblaðið - 04.10.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 1 5 vera íslendingur. Yfirleitt þarf ég að skýra það nánar og segja sögu mína, að ég sé fæddur á Kúbu og svo framvegis. En ég er Islending- ur og er stoltur af því. Islendingar eru yndislegt fólk. Arin tvö á ís- landi voru mér mikils virði, enda fannst mér eins og ég væri elskað- ur og dáður af flestum." Er mikill munur á því að leika í Þýskalandi en á Islandi? „Það er tvennt ólíkt. A Islandi er ekki spilaður góður handbolti. I Þýskalandi er sterkasta deild heims og því mun meira krefjandi. I Þýskalandi eru allir bestu hand- knattleiksmenn heims. Eg er ánægður hjá Eisenach og þjálfar- inn Reiner Osmann er góður. Eg veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, en núna er ég sáttur og legg mig fram um að leika vel. Ef ég geri það á ég meiri möguleika á að leika áfram í Þýskalandi, þó ég verðþekki endilega hjá sama félag- inu. Eg tel mig eiga nokkur ár eft- ir, jafnvel fjögur til fimm ár til við- bótar.“ Lifír fyrir daginn í dag Hvað hyggstu gera eftir að handboltaferli þínum er lokið? „Eg veit það ekki. Eg segi eins og fólk í Ameríku, ég lifi fyrir einn dag í einu og hugsa ekki of mikið um morgundaginn. Það er erfitt fyrir mig að spá í framtíðina." Hvernig gengur að læra þýsk- una? „Það gengur ekki nægilega vel. Það eru margir Kúbumenn sem búa í sama bæ og ég í Þýskalandi og ég hef mikið samband við þá og við tölum saman á spænsku. Þegar ég er á æfingum tala ég smávegis í þýsku og síðan ensku við leik- mennina og þjálfarann. Við tölum svokallað „handboltamál“ sem allir handboltamenn skilja. Þannig að það reynir h'tið á þýskukunnáttu mína.“ Nú ert þú íslenskur ríkisborg- ari. Hefur þú hug á að koma til Is- lands og setjast að eftir handbolta- feriiinn? „Það gæti alveg eins verið. Starf mitt er að leika handbolta og ef einhver býður mér að koma til ís- lands og þjálfa eða eitthvað annað þá er ég til viðræðna um það. Eg var í námi við íþróttaháskóla á Kúbu í sex ár og veit því vel út á hvað íþróttir ganga. Þegar ég bjó í Argentínu í níu mánuði þjálfaði ég handboltalið þar. Ég get vel hugs- að mér að gerast handboltaþjálf- ari.“ Sendir peninga til Kúbu Hefur þú frétt af fjölskyldu þinni á Kúbu? „Já, ég er í góðu sambandi við fjölskyldu mína. Móðir mín var hjá mér í þrjá mánuði í Þýskalandi síð- astliðið sumar og líkaði vel. Ég hringi í fjölskylduna þrisvar í mán- uði og sendi þangað peninga, ef þörf krefur. Konan mín, Tamara Mola, fór til Kúbu í heimsókn í sumar en ég má ekki fara þangað af skiljanlegum ástæðum. Vill vera númer eitt Talið beinist að íslenska lands- liðinu. Hann segist vera ánægður að geta lagt sitt að mörkum í landsliðinu. „Það er mjög gaman að leika fyrir ísland og það gefur mér mikið. Ég er þó ekki alveg sáttur við það hve lítið ég fæ að spreyta mig með liðinu. Ég er van- ur að spila heilan leik með Eisenach, bæði í vörn og sókn. Þar á ég fast sæti í byrjunarliðinu. Með landsliðinu hef ég verið að spila sem skytta númer tvö, á eftir Patreki. Það er ekki nema hann bregðist að ég fái tækifærið. Ég er auðvitað mjög ánægður ef Patrek- ur stendur sig vel því þá er lands- liðið að leika vel. Ég vil auðvitað vera númer eitt og það er oft erfitt að bíða á bekknum eftir að fá að fara inná. Ég legg áherslu á að leika fyrir liðsheildina; reyna að opna fyrir hornamanninn og senda á línuna auk þess að skjóta sjálf- ur.“ Er Þorbjörn Jensson góður þjálfari? „Já, hann er mjög fær í sínu fagi og ég hef ekkert út á hann að setja. Hann er með allt á hreinu varðandi leikinn. Þegar illa gengur berst gagnrýnin oft að þjálfaran- um og það tel ég ekki vera sann- gjarnt. Það eru leikmennirnir sjálfir sem bregðast og fara ekki eftir því sem hann leggur upp með. I liðinu eru sex til sjö atvinnumenn sem leika í bestu deild heims og þeir eiga að hafa næga reynslu og kunnáttu sem til þarf. Ef liðið leik- ur illa ei-u það leikmennirnir sem leggja sig ekki nægilega fram.“ Er íslenska landsliðið betra núna en fyrir nokkrum árum? „Landsliðið hefur verið sterkt undanfarin ár vegna þess að í því eru mjög góðir leikmenn. Stundum finnst mér þó að leikmenn geti spil- að meira „með hjartanu“ - lagt sig meira fram. Liðið hefur ekki sýnt hvað í því býr eftir HM í Kúmamoto. Við erum með lið sem á að komast á HM í Egyptalandi á næsta ári og þangað ætlum við okkur.“ Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson ROBERT Julian Duranona skorar mark í leik gegn Dönum í Laugardalshöllinni. Verid velkomin I heimsókn í dag og kynnist ^—\ heimi vísindanna I návígi \ í dag verður opið hús á Keldum, í tilefni 50 ára afmælis stofnunarinnar. .' 1 \ Á Keldum fara fram rannsóknir í meina-, sameindaerfða-, veiru-, bakteríu-, sníkjudýra- og ónæmisfræði. Þarfara einnig fram greiningar ___— ' og eftirlit með sjúkdómum í dýrum, bóluefnis- og sermisframleiðsla. Á Keldum verður meðal annars hægt að sjá: • Rannsóknaaðstöðu og tæki • Líffærasýni úr heiibrigðum og sjúkum dýrum • Helstu sníkjudýr sem hrjá menn og dýr • Starfsemi bóiuefnadeildar • Lifandi alifiska • Hross og smádýr Erindi, 10-15 mín. verða flutt á bókasafninu kl. 14:00 Smitandi hitasótt í hrossum - Eggert Gunnarsson kl. 14:30 Kynbætur til varnar riðu - Stefanía Þorgeirsdóttir kl. 15:00 Sundmannakláði á íslandi - Karl Skírnisson kl. 15:30 Nýrnaveikismit í villtum silungi - Halla Jónsdóttir kl. 16:00 Garnaveiki á íslandi - Sigurður Sigurðarsson kl. 16:30 Rannsóknir á visnu/mæði - Guðmundur Georgsson Keldur Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum http://www.hi.is/pub/keldur/ :ARVOGUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.