Morgunblaðið - 04.10.1998, Side 16
16 SUNNIJDAGUR 4. OKTÓBER 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞORSTEINN Gunnarsson og
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir í
hlutverkum sínum.
Ofanljós á
Litla sviðinu
ÆFINGAR standa nú yfír hjá
Leikfélagi Reykjavíkur á leikritinu
Ofanljós (Skylight) eftir enska leik-
ritaskáldið David Hare, í þýðingu
Árna Ibsens. Leikritið verður
frumsýnt á Litla sviði Borgarleik-
hússins fostudaginn 9. október.
Söguþráðurinn greinir frá ástar-
sambandi miðaldra manns og ungr-
ar konu sem beðið hefur skipbrot,
en lifnar við á ný, þegar maðurinn
leitar stúlkuna uppi í öi-væntingu
og þunglyndi, eftir dauða konu
sinnar.
David Hare (f. 1947) er eitt
fremsta núlifandi leikritaskáld
Bretlands og eru verk hans færð
upp um allan heim. Fyrsta verk
hans Slag var frumsýnt 1970 og ári
seinna var hann ráðinn sem leik-
skáld til Þjóðleikhússins í Lundún-
um og hefur starfað þar alla tíð síð-
an. Frá árinu 1978 hefur breska
Þjóðleikhúsið sett á svið ellefu leik-
rit Davids Hare. Fyrsta kvikmynd
Davids, Wetherby, sem hann leik-
stýrði einnig, vann Gullbjöminn á
kvikmyndahátíð Berlínar árið 1985.
Leikendur í Ofanljósi em Friðrik
Friðriksson, Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir og Þorsteinn Gunnars-
son. Hljóð annast Ólafui- Öm Thor-
oddsen, lýsingu Ögmundur Þór Jó-
hannesson, leikmynd og búninga
Stígur Steinþórsson og leikstjóri er
Kristín Jóhannesdóttir.
„Borgin
hló“ í nýju
Ljóðasafni
Helgafells
UM ÞESSAR mundir em
fjöratíu ár frá því að fyrsta
ljóðabók Matthíasar Johann-
essens,
Borgin hlój
kom út. I
tilefni af
rithöfund-
arafmæli
hans gefur
Vaka-
Helgafell
bókina út í
nýrri út-
gáfu en for-
lagið hefur
tryggt sér útgáfurétt á nýjum
og eldri verkum Matthíasar.
Borgin hló er fyrsta bókin í
nýju Ljóðasafni Helgafells
sem hleypt er af stokkunum á
55 ára afmæli bókaforlagsins
Helgafells en þar verða gefnar
út merkar nýjar og eldri ljóða-
bækur íslenskra og erlendra
skálda, segir í fréttatilkynn-
ingu frá forlaginu.
I fréttatilkynningunni segir,
að með þessari endurútgáfu á
Borgin hló megi segja að
Matthías Johannessen sé aftur
kominn „heim“. Helgafell gaf
út fyrstu bækur hans en síðar
komu bækur hans út hjá Al-
menna bókafélaginu og fleiri
forlögum. Þá annast Vaka-
Helgafell sölu á útgáfurétti á
bókum hans til erlendra útgef-
enda. Matthías er nú að leggja
lokahönd á nýtt smásagnasafn
sem væntanlegt er á markað í
haust.
Matthías
Johannessen
MVND E.FTIR AGUST GUÐMUNDSSON
?
Það er boðið tii brúðkaups og á örsmárri eyju í
ógnþrungnu Atiantshafinu á að dansa i þrjá
daga, nema ske kynni að: Brúðurin sé ekki
búin að gera upp hug sinn, breski togarinn
Goodwoman strandi og sumir deyi en aðrir
ekki, kierkarnir ærist og heimti jarðarför í brúð
kaupinu, ástin og djöfullinn kyndi undir stór-
bruna í hjörtum gestanna, brúðinni verði rænt..
Sannast þá hið fornkveðna
að enginn dansar ófuilur nema snarvitlaus sé.
(Nemo saltat sobrius nisi valde insanit.)
www.mbl.is/fasteignir
Hafnarfjarðarleikhúsið
Nýtt íslenskt leikrit í mótun
ÆFINGAR eru hafnar í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu á nýju ís-
lensku leikriti, Vírus, og er fyr-
irhugað að frumsýna í nóvem-
ber. Höfundar eru þeir Ármann
Guðmundsson, Sævar Sigur-
geirsson og Þorgeir Tryggva-
son. Þetta er samvinnuverkefni
Stoppleikliópsins og Hermóðs
og Háðvarar.
Lausnin á 2000 vandanum
margumrædda fundin
Sögusviðið er íslenska hug-
búnaðarfyrirtækið Hugdirfska,
þar sem fundin hefur verið
lausn á 2000 vandanum marg-
umrædda. Starfsfólk Hug-
dirfsku og venslafólk þess eru
aðalsögulietjur verksins, mikið
liggur við þegar búið er að
gera jafnstórkostlega uppgötv-
un. Hugdirfskufólk er venjulegt
íslenskt fólk, sem fyrir elju sína
og dugnað hefur nú næstum
uppskorið milljarða á milljarða
ofan, heimsfrægð og alveg
hreint ágæta ímynd. En hvern-
ig tekst þeim að höndla þessa
óvæntu upphefð, alla þessa pen-
inga og nýju ímyndina?
Leikstjóri er Gunnar Helga-
son. Leikmynd hannar Magnús
Sigurðsson, María Olafsdóttir
búninga, Ásta Hafþórsdóttir sér
um gervi og lýsingu vinnur
Þorkell
SAMLESTUR á leikritinu Vírus í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Kjartan Þórisson. Leikendur
eru Björk Jakobsdóttir, Dofri
Hermannsson, Eggert Kaaber,
Erla Ruth Harðardóttir, Hinrik
Ólafsson, Jón St. Kristjánsson
og Katrín Þorkelsdóttir.
EYRARRÓS (21),
EINLÆGNI
MYNDLIST
Stöðlakot
VATNSLITIR
NIKULÁS SIGFÚSSON
Opið alla daga frá 14-18. Til 11.
október. Aðgangur ókeypis.
MARGUR leitar sér hugar-
Nýbýlavegi 30,
(Dalbrekkumegin),
sími 554 6300.
www.mira.is
hægðar frá önn dagsins með því að
munda pentskúfinn, en fáir sem
gera það af viðlíka einlægni og
læknadoktorinn Nikulás Sigfússon.
Hann er sem kunnugt er forstöðu-
maður Rannsóknarstöðvar Hjarta-
vemdar, sem er nákvæmis- og
ábyrgðarstarf sem hlýtur að rífa í
taugakerfið. Slíkir leita helst að ró-
legu tómstundastarfi, til afslöppun-
ar og hlaða upp orkustöðvamar.
En áhugi Nikulásar á myndlist
er þó engin tímabundin dægra-
stytting, því hann hefur lagt stund
á vatnslitamálun frá unga aldri,
einkum síðustu tuttugu árin. Þá er
hann tíður gestur á myndlistarsýn-
ingum á tímum er fastagestum hef-
ur fækkað ískyggilega og aðsókn
orðin til muna tilviljunarkenndari
en fyrram.
Eins og að líkum lætur, er það
landslag og náttúmstemmur sem
öðra fremur taka hug Nikulásar,
og myndefnin tengjast sennilega
fremur ferðalögum hans um landið,
en að hann leiti þau sérstaklega
uppi. Ekki er um að ræða að liggja
yfir þessum viðfangsefnum og
velta fýrir sér lögmálum myndflat-
arins, öllu fremur bera myndirnar
svip af tækifærisrissum sem var-
færnislega er unnið að, frístundir
lækna stopular.
Nikulás er sjálfskólaður, sem
kemur eðlilega fram í myndunum
en í mismiklum mæli og eitt er
áberandi sem er að hann er mun
ákveðnari í myndum afmarkaðra
myndefna en þar sem sér vítt yfir.
Hér er hann mun nær atvinnumál-
aranum um hnitmiðaða myndbygg-
ingu og yfirvegað litaval. Vil ég
einkum nefna til áréttingar mynd-
irnar, Villigróður, (4), Sólsetur við
Húnaflóa, (8), Fjörugrjót I, (12), og
Eyrarrós, (21). Allar eru þær ein-
faldar að gerð, myndefnið miðlægt
og þó skynjar maður mun meiri
átök við viðgangsefnið og litrænn
stígandinn samfelldari.
Bragi Ásgeirsson