Morgunblaðið - 04.10.1998, Side 17

Morgunblaðið - 04.10.1998, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 17 LISTIR Púki kennir börnum tölur FYRIRTÆKIÐ Virago sf. hefur tekið að sér útgáfu á bókum Bergljótar Arnalds, en fyrirtækið hefur áður gefið út margmiðlunar- diskinn Stafakarlarnir eftir sama höfund. Þetta er í fyrsta sinn sem fyrirtækið ræðst í bókaútgáfu en stefna þess er að stuðla að útgáfu á barnaefni sem sameinar fróðleik og skemmtun á listrænan og frum- legan hátt, segir í fréttatilkynn- ingu. Bergljót Arnalds hefur skrifað tvær barnabækur, Stafakarlana sem kennir börnum stafina og Tótu og tímann sem kennir börn- um á klukku. Þriðja bók Bergljót- ar heitir Talnapúkinn, en sú bók er væntanleg í lok október og er ætl- uð til að kenna bömum tölur og talnagildi. I kynningu segir: „Talnapúkinn er lítil, skemmtileg vera sem býr í helli í miðju jarðar. Frá hellinum liggja mörg göng, ein að hverju landi. Talnapúkinn veit ekkert skemmtilegra en að telja en þar sem hann getur ekki talið nema upp að tíu þá málar hann aðra tána á sér svarta svo hún sjáist ekki.“ Bókin Stafakarlarnir hefur verið uppseld síðustu mánuði en nú er verið að prenta hana í þriðja sinn og mun Japis dreifa henni í versl- Bergljót Arnalds anir í byrjun október. í nóvember í fyrra gaf Virago sf. út margmiðl- unardiskinn Stafakarlarnir fyrir bæði PC- og Macintoshtölvur. Stafakarlarnir á margmiðlunar- formi var eitt af fimm söluhæstu forritunum 1997, segir í tilkynn- ingu frá útgefanda. Japis dreifii- vörum fyrir Virago sf. BANDAMENN: Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Þórunn Magnea Magn- úsdóttir, Felix Bergsson, Jakob Þór Einarsson og Stefán Sturla Sigur- jónsson. Listaklúbbur Leikhúskjallarans Lesið upp úr Rafmagnsmanninum VETRARDAGSKRÁ Listaklúbbs- ins hefst kl. 20.30 á morgun, mánu- dag, með lestri Bandamanna upp Höggmynda- sýning í Ráðhúsinu NÚ stendur yfir sýning Ger- hards Könij á höggmyndum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Yfir- skrift sýningarinnar er „I merki fisksins". Gerhard vinnur aðallega með rekavið frá ströndum Is- lands, segir í fréttatilkynn- ingu. Sýningin er opin á þeim tíma sem Ráðhúsið er opið og lýkur 18. október. úr bréfasögunni Rafmagnsmannin- um eftir Svein Einarsson. Undirtit- illinn er: Nú birtir í býlunum lágu, og er bókin væntanleg hjá Orms- tungu nú í haust. Flytjendur era Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Þói’- unn Magnea Magnúsdóttir, Felix Bergsson, Jakob Þór Einarsson og Stefán Sturla Sigui’jónsson. Flutn- ingum stjórnar höfundurinn sjálf- ur. Sagan gerist á fyrstu áratugum aldarinnai'. Hún segir frá ungum bóndasyni í Skaftafellssýslu sem vill læra til rafmagns. Hann kemst utan og verður rafmagnsverkfræð- ingur í Berlín. Höfundurinn rekur feril bóndasonarins í gegnum bréf milli hans og foreldi’anna, sem fórna kotinu til að kosta námið; bernskuvina, sem hljóta margvís- leg örlög og vina sem hann eignast í Þýskalandi. D.L. Coburn "...bráðskemmtilegt, tragikómík af bestu gerð". S.A.B. Mbl. "...áminning um hvað leikhús er" 6.5. Dagur "Guðrún Ásmundsdóttir náði svo fullkomlequ valdi á persónunni að hún sendi hroll niður bakiö á manni"S.A DV. "Stjarna sýningarinnar er Erlinaur Gíslason sem átti sannkallaöan stórleik í hlutverki Wellers" 6.S. Dagur. lengi fyrir Eq á von á því að sýningin muni fulíu húsi og fyrir mína parta mæh ég með henni" S.A.B. Mbl. Uppselt var á ailar sýningar í soptomberi Fimmtudaginn 8.október kl.20.30 UPPSELT Föstudaginn 9. október kl.20.30 UPPSELT Aukasýning sunnudaginn 1 l.október kl.20.30 örfá sæti laus Laugardaginn 17.október kl.20.30 UPPSELT Fimmtudaginn 22.október kl.20.30 í sölu núna Laugardaginn 24.október kl.20.30 UPPSELT Laugardaginn 31.október kl.20.30 ísölununa Aukasýning sunnudaginn 1. nóvember kl.20.30 örfá saeti faus Ósóttar pantanir seldar daglega. \ Mi&»sali ' ---------------- ‘ n alla dagafrá kl. 12.00 -20.00 r’iíu !& /£( ** m

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.