Morgunblaðið - 04.10.1998, Page 18
18 SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
-I
Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurður I. Snorrason f Listasafni Kópavogs
Hj ónaspil
„ÞAÐ ERU allavega tvö börn síð-
an við héldum síðast heila tónleika
saman,“ segir Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari við
bónda sinn, Sigurð Ingva Snorra-
son klarínettuleikara, þar sem þau
sitja andspænis blaðamanni á öðru
heimili sínu, Tónlistarskólanum í
Reykjavík. „Það þýðir níu ár, að
minnsta kosti.“ Sigurður hleypir
brúnum: „Er það virkilega?" Tón-
leikamir verða haldnir í Listasafni
Kópavogs-Gerðarsafni annað
kvöld, mánudag, og hefjast kl.
20.30.
„Þetta var orðið tímabært,“ seg-
ir Sigurður, þegar hann er spurður
hvers vegna þau hjónin hafi látið
slag standa núna. Rótin er sú að á
liðnu ári fékk hann sex mánaða
starfslaun og fór fyrir bragðið að
grúska af krafti í klarínettubók-
menntunum. „Þetta var kjörið
tækifæri til að sinna einleiknum af
meiri krafti. Eg byrjaði á því að
spila einleik með Sinfóníunni seint
á síðasta ári. Síðan hringdi Jónas
Ingimundarson, sem skipuleggur
tónleika Gerðubergs, í okkur Ónnu
Guðnýju og bauð okkur að spila
þar. Það var því ekki eftir neinu að
bíða.“
Sigurður hefur um árabil starf-
að í Sinfóníuhljómsveit Islands og
kennt við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Kveðst hann endur-
nærður eftir glímuna við einleiks-
verkin - það sé hollt og gott að
næra sig með þessum hætti annað
veifið. „Vinnan með Sinfóníunni er
bæði mikil og krefjandi, auk þess
sem maður sinnir öðrum störfum
þar fyrir utan. Það er því tilvalið
að brjóta upp hversdagsleikann
með þessum hætti. Þá er það líka
meira krefjandi að æfa fyrir tón-
leika sem þessa en kammertón-
leika, auk þess sem einleiksverkin
kalla á allt aðra tækni. Maður spil-
ar aUt öðruvísi með píanói en með
sinfóníuhljómsveit eða í kammer-
sveit.“
Efnisskrá tónleikanna er tví-
þætt; annars vegar klassísk verk
úr klarínettubókmenntunum,
Fantasiestiicke op. 73 eftir Schu-
mann, Sónata eftir Poulenc og
Sónata í f moll op. 120 nr. 1 eftir
Brahms, og hins vegar íslensk
verk, Rek eftir Þorkel Sigur-
bjömsson og Novelette eftir Atla
Heimi Sveinsson en bæði eiga
þessi tónskáld sextugsafmæli á ár-
inu.
Igegnum
nemendur
Sigurður og Anna Guðný hafa
ekki í annan tíma spilað erlendu
verkin á opinberum tónleikum en
Sigurður flutti Sehumann í keppni
í Munchen fyrir margt löngu. Því
fer þó fjarri að verkin séu þeim
framandi. Þannig er nefnilega mál
með vexti að Anna Guðný er með-
leikari við Tónlistarskólann í
Reykjavík og spilar mikið með
nemendum Sigurðar, meðal ann-
ars þessi verk. „Það má því segja
að við höfum unnið mikið saman í
þessum stykkjum í gegnum nem-
endurna. Þau hafa gerjast lengi í
okkur,“ segir Anna Guðný.
Ein af ástæðunum fyrir því að
hjónin hafa ekki leikið verk þess-
ara nieistara opinberlega áður er
sú að Sigurður hefur löngum lagt
meiri áherslu á flutning nútíma-
verka - látið aðra um klassíkina.
Það þýðir að hann gjörþekkir verk
„afmælisbarnanna“, einkum
Novelettu Atla Heimis.
Vensl íslenskra tónlistarmanna
liggja vissulega víða. Það er eigi að
síður sjaldgæft að hjón leiki saman
á tónleikum - tvö ein. En skyldu
æfingar hafa farið fram í eldhús-
inu?
Ekki aldeilis! „Það er ekkert
auðveldara að skipuleggja æfing-
ar, þótt maður búi saman, enda er
að mörgu leyti erfiðara að vinna
heima, þar eru börn, þar er sími,“
segir Sigurður. Hann tekur aftur á
móti heilshugar undir þegar Anna
Guðný lýsir viðbrögðum þeirra eft-
ir hveija einustu æfingu: „Mikið
rosalega var þetta gaman!“
„Við ættum að gera meira að
þessu,“ Ijúka þau líka sundur ein-
um munni. Og Sigurður heldur
áfram. „Vinur okkar Osmo
Vánská, fyrrverandi aðalhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar
Islands, er alltaf að hvetja okkur
til að spila oftar saman og ef tO vill
Morgunblaðið/Ásdís
HJÓNIN Sigurður Ingvi og Anna Guðný vona að tónleikarnir annað
kvöld marki nýtt upphaf á samstarfi þeirra. „Þetta er svo rosalega
gaman!“
markar þetta nýtt upphaf á sam-
starfi okkar.“ „Það vona ég svo
sannarlega," segir Anna Guðný.
„Af nógu er að taka!“
Það verður að minnsta kosti
ekki langt að bíða næstu tónleika
hjónanna, því iyrri part næsta árs
áætla þau aðra tónleika, þar sem
meðal annars verður flutt verk
sem Askell Másson er að skrifa
sérstaklega með þau í huga.
Anna Guðný og Sigurður hlakka
mikið til að spila í Gerðarsafni. I
Kópavogi sé tónlistin leidd til önd-
vegis og það sé mikið tilhlökkunar-
efni að vígja eigi nýtt tónlistarhús
þar snemma á nýju ári. „Kópa-
vogsbúar eiga svo sannarlega skil-
ið að fá rós í hnappagatið!"
Einar
Áskell aft-
ur í Mögu-
leikhúsið
MÖGULEIKHÚSIÐ er nú að
hefja að nýju sýningar á Ein-
ari Áskel, og verður fyrsta
sýning í dag, sunnudag, kl. 14.
Leikritið var frumsýnt 1. febr-
úr sl.
Sýningin heitir Góðan dag,
Einar Askell og er byggð á
þremur bókum um Einar
Áskel, eftir sænska rithöfund-
inn Bergström, þ.e. Flýttu
þér, Einar Áskell, Svei-attan,
Einar Áskell og Góða nótt,
Einar Áskell.
Leikgerðin er eftir Pétur
Eggerz, sem jafnframt er leik-
stjóri og er unnin í samráði við
höfundinn. Höfundur leik-
myndar er Bjami Ingvarsson
og Katrín Þorvaldsdóttir sá
um búninga og brúðugerð.
Þórarinn Hjartarson þýddi
söngtextana en að öðru leyti
er leikgerðin byggð á þýðing-
um Signínar Árnadóttur á
bókunum um Einar Áskel.
Leikarar eru Skúli Gautason
og Pétur Eggerz.
Sýning á
skálum í
Galleríi Fold
NÚ stendur yfir sýning Guð-
bjargar Káradóttur á skálum í
sýningarrými Kringlunnar og
Gallerís Foldar í Kringlunni
gegnt Hagkaup.
Guðbjörg Káradóttir er
fædd áríð 1968 og stundaði
nám við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1990-94, en
fór að auki í námsferð
Ceramic Studio Késckemet í
Ungverjalandi og The School
of the Árt Institute of Chicago
í Bandaríkjunum.
Sýningin er opin á af-
greiðslutíma verslana í
Kringlunni.
O P I Ð
Laugardag kl.10,00 - 16,00
Sunnudag kl. 13,00 - 17,00
Sýnum all
I
J2&-