Morgunblaðið - 04.10.1998, Side 19

Morgunblaðið - 04.10.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 19 Rúmenskir dansar, litlar myndir og mikið fjör ELÍSABET Waage hörpuleikari og Peter Verduyn Lunel, flautuleikari frá Hollandi, leika verk eftir Bach, Bela Bartók, Yun, Bax og fleiri á hörpu- og flaututón- leikum í Norræna húsinu í dag, sunnudag kl. 17. Tónleikamir eru aðrir í röð tíu kammertónleika sem haldnir verða í Norræna húsinu á næstu mánuðum en frá Reykjavík verður haldið í tónleikaferð til þriggja borga á Norðurlöndunum og endað í Amsterdam. „Þetta er mjög fjölbreytt og skemmtileg efnisskrá. Við byrjum á sónötu eftir Bach, svo spila ég rúmenska þjóðdansa eftir Bartók og síðasta verk fyrir hlé er afar spennandi verk eftir kóreska tón- skáldið Isang Yun. Eftir hlé spilum við fyrst sónötu eftir enska tón- skáldið Bax, sem er mjög bresk tónlist ef ég má orða það svo, fal- legar melódíur og mikil flækja eins og stundum vill verða í enskum verkum. Þá er serenaða eftir Percichetti, stuttir þættir eins og litlar myndir, þar sem flautan og harpan blandast á sérstæðan hátt, og svo endum við á frönsku verki, Alla Rustica eftir Jolivet. Það er hálfgerður bændadans, ósköp ein- föld laglína og gífurlega mikið fjör,“ segir Elísabet, sem kveðst hlakka mikið til að koma heim og spila. Frá Reykjavík til Amsterdam með viðkomu í Skandinaviu Sem fyrr sagði eru tónleikamir aðrir í röð tíu kammertónleika sem haldnir verða í Norræna húsinu á næstunni en héðan er svo fór þeirra Elísabetar og Peter Verdu- yn Lunel heitið til Öslóar, þar sem þau halda tónleika í Munchsafninu, þá í Klettakirkjunni í Helsinki og Sívala turninum I Kaupmannahöfn, og enda á tónleikum í Konzertver- bau í Amsterdam. Allir munu hinir tónleikamir einnig fara þennan sama hring. Elísabet, sem er búsett í Hollandi en er þó með annan fótinn hér á landi, lagði stund á nám í pí- anó- og hörpuleik í Tónlistarskól- anum í Reykjavík og hélt árið 1982 til framhaldsnáms í Konunglega tónlistarháskólanum í Haag í PETER Verduyn Lunel flautuieikari og Elisabet Waage hörpuleikari halda tónleika í Norræna húsinu í dag, sunnudag. Hollandi. Hún tekur reglulega þátt í flutningi kammertónlistar og kemur einnig fram sem einleikari. Hún hefur einnig leikið reglulega með Sinfóníuhljómsveit Islands. Auk þess sem Elísabet hefur kom- ið fram hér á landi og í Hollandi hefur hún spilað á tónleikum á öðr- um Norðurlöndum, Þýskalandi, Frakklandi og Wales. Peter Verduyn Lunel lagði stund á nám í flautuleik í Tónlistar- háskólanum í Utrecht í Hollandi. Hann starfaði í allmörg ár sem ein- leikari hjá Kammerhljómsveitinni í Heidelberg, Brabant-hljómsveit- inni, Residentie-hljómsveitinni og Fílharmóníuhljómsveitinni í Rott- erdam. Nú starfar hann sem ein- leikari hjá Balletthljómsveit Hollands, auk þess sem hann legg- ur stund á kammertónlist og kem- ur reglulega fram sem einleikari. Hann hefur ferðast til fjölmargra landa Evrópu og til Bandaríkjanna í því skyni. Afmælissýning AFMÆLISSÝNING hefur ver- ið opnuð í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, í tilefni af því að um þessar mundir eru liðin tíu ár frá því að Myndlistarskóli Kópavogs hóf starfsemi sína. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 12-18 og stendur fram til 25. október nk. A sýningunni eru verk nem- enda frá síðustu vorönn og er yngsti málarinn fimm ára gam- all en hinir elstu á áttræðisaldri. Við opnun sýningarinnar mun formaður bæjarráðs í Kópavogi, Gunnar Birgisson, formlega taka í notkun heimasíðu Mynd- listarskólans, en slóð hennar er http/www.mmedia.is/myndlist. I fréttatilkynningu frá Mynd- listarskóla Kópavogs segir að skólinn, sem er sjálfseignar- stofnun, hafi notið mjög góðs samstarfs við bæjaryfirvöld í Kópavogi og þar með hafi verið staðfest að þjónusta á þessu sviði sé nauðsynleg í stóru og vaxandi bæjarfélagi sem vilji hag íbúanna sem bestan á öllum sviðum. Síminn okkar: 56 20 400 - 4. hæð Sérfræðingar í sérferðum með öryggi og stíl hjá I „Nýju Eddu“ Félagsdeildin okkar, sem býður þér þjónustu fagfólks til bestu lausnar á ferð þinni á bestu kjörum, byggðum á sérsamningum okkar við flugfélög og hótel um allan heim, fyrir hópa og einstaklinga - hvert sem tilefnið er: Brúðkaup, afmæli, fundir, ráðstefnur, hvataferðir, árshátíðir, söng- og tónlistarferðir, fagferðir starfshópa. Nú þegar höfum við skipulagt feröir fjölda slíkra hópa á næsta ári til Evrópulanda, Ameríku, Austurlanda, Ástralíu og allt í kringum hnöttinn. Allur heimurinn er vettvangur Heimsklúbbsins. • Getum við aðstoðað klúbbinn þinn, skólann, vinahópinn við að gera ferð ykkar í senn betri og ódýrari? • Reynsla þeirra, sem þekkja, er okkar besta auglýsing. • „Kaupið ekki köttinn í sekknum" ef þið viljið pottþétta þjónustu á bestu kjörum - og munið að panta snemma, því að í dag eru margir aðrir á ferð um heiminn. I • Fagþegafjöldi okkar hefur meira en tvöfaldast á þessu ári, gettu hvers vegna? NÝJA EDDA - og ferð þinni er borgið. FERÐASKRIFSTOFAN PRIMAf HEIMSKLUBBUR INGOLFS Austurstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavík, sími 56 20 400, fax 562 6564 Netfang: prima@heimsklubbur.is Heimasíða: hppt://www.heimsklubbur.is t það flottasta, stærsta, besta og glæsilegasta frá Sony, Panasonic og Technics.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.