Morgunblaðið - 04.10.1998, Page 24

Morgunblaðið - 04.10.1998, Page 24
24 SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum er fímmtug EINSTÆÐUR ÁRANGUR HEFUR NÁÐST Nú í haust eru fimmtíu ár liðin frá því að starf- semi hófst við Tilrauna- stöð HI í meinafræði á Keldum. Eitt og annað verður gert til hátíða- brigða. Forstöðumaður á Keldum er Guðmund- ur Georgsson og Guð- mundur Guðjónsson ræddi við hann um meginhlutverk til- raunastöðvarinnar og hverjar væru áhersl- urnar í náinni framtíð. TILDRÖG þess að tilrauna- stöðin var stofnuð á sínum tíma voru þau að skæðir sjúkdómar herjuðu á búfénað. Visna, mæði og gamaveiki bárust til landsins árið 1933 með innfluttu sauðfé af karakúlkyni. Bændur lentu í vondum málum og heilu fjárstofnarnir féllu eða voru skom- ir. Bandaríski Rockerfellersjóður- inn lagði fram helming stofnkostn- aðar á móti íslenska ríkinu. Guðmundur segir að í lögum sem sett voru um stofnunina árið 1947 hafí verið knappur texti um hlutverk hennar, en hann var að „vinna að rannsóknum á búfjár- sjúkdómum og öðmm skyldum verkefnum" eins og þar stendur. I lögum sem sett vom á blað árið 1990 vom hlutimir skýrðir til muna betur. „Meginhlutverk til- raunastöðvarinnar er nokkuð margþætt. I fyrsta lagi getum við nefnt að þar skuli fara fram gmnn- rannsóknir í læknisfræði manna og dýra, en þess má geta að það hefur vakið eftirtekt erlendis hversu náið manna- og dýralæknar vinna sam- an á Keldum og er slíkt lengst af nánast óþekkt annars staðar. Þá nefnum við rannsóknir, þjónustu og ráðgjöf vegna sjúkdómsgrein- inga og sjúkdómsvama fyrir dýr í samstarfí við yfirdýralækni í þágu heilbrigðiseftirlitsins. Við getum nefnt þróun, framleiðslu og dreif- ingu á bóluefnum gegn sjúkdómum í dýmm. Þá veitir stöðin háskóla- kennurum og öðmm sérfræðingum aðstöðu til rannsókna, endur- menntunar dýralækna og miðlar upplýsingum til þeirra, elur til- raunadýr til vísindalegra rann- sókna, auk þess sem hjá okkur fara fram rannsóknir og þróunarvinna í þágu líftækni. I samræmi við þetta vinna síðan hinir mörgu sérfræð- ingar stöðvarinnar að fjölmörgum merkum rannsóknar- og þjónustu- verkefnum," segir Guðmundur. Mikill árangur. Að sögn Guðmundar var stigið stórt skref til eflingar rannsókna í lífvísindum, þ.e. líf- og læknisfræði, hérlendis með stofnun stöðvarinn- ar. „Framherjamir settu markið strax hátt og viðmiðið var að rann- sóknimar væm hlutgengar á al- þjóðamælikvarða. Rannsóknir á sauðfjársjúkdómunum sem fyrr var getið, visnu, riðu og mæði, komu stöðinni inn á kort alþjóð- legra vísinda og kenning sú sem Björn Sigurðsson, fyrsti forstöðu- maðurinn, setti fram um sérstakan flokk smitsjúkdóma, hæggenga smitsjúkdóma, og byggð var á Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Guðmundur Georgsson þeim rannsóknum, vakti mikla at- hygli og heldur velli enn í dag. Það tókst að einangra visnu- og mæði- veirur sauðfjár og var það í fyrsta sinn sem veirar af svokölluðum lentiveiruflokki vom ræktaðar, en af þeim er eyðniveiran þekktust. Guðmundur heldur áfram: „Auk þess má nefna, að allt frá upphafi hafa rannsóknir einnig beinst að samanburðarlæknisfræði, þ.e.a.s. hvað læra megi af sjúkdómum í dýmm um mannasjúkdóma. Má þar nefna MS, en í visnu má sjá breytingar sem bera svip af MS, og eyðni, enda veiramar skyldar. Hvað riðu varðar, er það einkum Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómurinn sem áhuginn beinist að. Fleira mætti nefna á afrekalista vísindamanna Keldna, s.s. bóluefni gegn gamaveiki í sauðfé, kýlaveiki- bróður í laxfiskum o.m.fl. Vaxtabroddarnir og framtíðin Guðmundur Georgsson hefur starfað á Keldum í 30 ár, þar af sem forstöðumaður síðustu fjögur árin. Hann segir ekki margt hafa breyst með tilkomu sinni í for- stöðumannsstólinn, heldur hafi hann lagt sitt af mörkum til að styrkja þá þróun sem í gangi hefur „Frumherjarnir settu markið strax hátt og viðmiðið var að rannsóknirnar væru hlutgengar á alþjóðamæli- kvarða. Rann- sóknir á sauð- fjársjúkdómun- um sem fyrr var getið, visnu, riðu og mæði, komu stöðinni inn á kort alþjóðlegra vísinda...“ verið síðustu árin. Umsvifin hjá stöðinni, segir Guðmundur, hafa aukist mjög. Vaxtarbroddamir hafa einkum verið í rannsóknum á sjúkdómum vatna- og sjávarfiska, rannsóknum á sníkjudýram bæði í dýmm og mönnum. Þá hefur verið mikil umfangsaukning í rannsókn- um á sviði sameindaerfðafræði og aðferðum hennar beitt við fjölþætt verkefni, sjúkdómsrannsóknir, þróun bóluefna og líftækni til vinnslu hrifefna úr fléttum. Guðmundur segist reikna með því að haldið verði áfram á sömu braut. En hvað með framtíðina og rannsóknarstörf samhliða __ stóram fyrirtækjum á borð við Islenska erfðagreiningu; liggur ekki straumur menntaðra starfskrafta einmitt þangað? Guðmundur segir tilraunastöð- ina á Keldum og íslenska erfða- greiningu hafa plumað sig prýði- lega samhliða hingað til. Hann ber lof á það starf og hugmyndir þær sem Kári Stefánsson setti fram og leiddu til stofnunar iyrirtækisins, en tekur fram að ekki megi mgla því saman við hugmyndir um mið- lægan gagnagrunn, sem sé allt annar handleggur. „Eg kenndi Kára í Háskólanum á sínum tíma,“ segir Guðmundur með bros á vör. „Sambúðin við fyrirtækið hans hef- ur þó verið áfallalaus. Við höfum misst til hans eitthvað af því fólki sem við gátum ekki fastráðið, ekki margt þó. Sérfræðingamir okkar em hér allir, enn þá að minnsta kosti. Hitt er svo annað mál, að ég ber dálítinn kvíðboga íyrir framtíð- inni végna nýliðunar sem gæti orð- ið örðug vegna samkeppni við fyr- irtæki sem getur boðið upp á betri kjör og gæti það hugsanlega komið niður á starfseminni í náinni fram- tíð.“ Eins og kom fram í upphafi þessa pistils er nú um það bil hálf öld frá því að Tilraunastöð HI í meinafræði að Keldum var stofnuð og það hefur ávallt þótt vera stórafmæli. Ymislegt er á dagskrá til hátíðabrigða. Fyrir nokkm var t.d. alþjóðleg ráðstefna þar sem bæði innlendir og erlendir vísinda- menn í fremstu röð ræsktu sig og tóku til máls. Nú um helgina, þ.e.a.s. í dag, sunnudag, verður síð- an opið hús á Keldum þar sem vís- indamennimir taka á móti gestum og gangandi og leitast við að leiða þá í allan sannleik um það starf sem þar fer fram. Síðar í vetur verður svo „starfsfólkinu gert eitt- hvað til góða“, eins og Guðmundur orðaði það á véfréttalegan máta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.