Morgunblaðið - 04.10.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 29
Áttaði mig á því að
ég kæmist ekki
lengra niður og að-
eins væri ein leið
fær; upp. Ég hefði
verið algjör aumingi
ef ég hefði ekki rifið
mig upp úr þessu.
meiðslin voru. Og svo fór hann mjög
langt niður andlega. „Það er auðvelt
að vera aumur og fara í sjálfsvork-
unn. En mér fannst ég eiga rétt á
því, þetta var svo mikið áfall! Þegar
kvalirnar voru sem mestar í ilinni
og ristinni, og Þjóðhátíðin skall á (!)
- þá var ég langt niðri. Eg gat ekki
lesið, ekki horft á sjónvarp, ekki
einu sinni sofið og þá var lítið hægt
að gera. Ég hélt ég væri að verða
geðveikur og þá verður maður
hræddur við sjálfan sig.“ Ekki segir
hann þunglyndi þó hafa hrjáð sig og
hann þurfti ekki að taka töflur af
því taginu. Amma hans og Drífa
hafi hins vegar kynnst alveg nýrri
hlið á honum. „Og ég sjálfur reynd-
ar. Ég er rólegur að eðlisfari. Mjög
rólegur. Fyrstu vikurnar eftir slysið
voru allt í lagi andlega en svo
sprakk ég bara hálfpartinn. Ég rífst
aldrei og hef aldrei gert en þama
varð ég mjög pirraður. Fannst ég
algjör aumingi; hafði verið algjör-
lega frjáls maður en var allt í einu
eins og ósjálfbjarga gamalmenni
sem er fært allt í rúmið og þarf að
fá aðstoð við að fara í sturtu. Maður
er engin hetja þegar svona er
ástatt. Er eiginlega voðalega aum-
ur. En svo áttaði ég mig á því
nokkrum dögum seinna að ég kæm-
ist ekki lengra niður og aðeins væri
ein leið fær; upp. Ég hefði verið al-
gjör aumingi ef ég hefði ekki rifið
mig upp úr þessu. Ég varð að gera
það.“ Hann segist ekki gera sér al-
mennilega grein fyrir því hve lengi
honum leið svona illa andlega.
„Kannski voru þetta ekki nema ör-
fáir dagar, ég veit það ekki. En mér
fannst þetta að minnsta kosti heil
eilífð.“
Hann fór ekki á bikarúrslitaleik
ÍBV og Leifturs í lok ágúst, treysti
sér ekki til þess. „En svo varð ég
fyrsta flokks aðdáandi liðsins þegar
líða tók á sumarið," og fylgdist m.a.
með leiknum þar sem IBV tryggði
sér Islandsmeistaratitilinn annað
árið í röð, leiknum gegn KR í
Reykjavík í lokaumferðinni.
Líkamlega var Sigurvin mjög vel
á sig kominn fyrir slysið. „Fótbolt-
inn er líklega sú íþrótt þar sem
menn eru í hvað bestri æfingu; æfa
á fullu á hverjum degi þannig að ég
fór í raun úr því að vera á fullri ferð
Þessi bók veitir ómetanlegar
upplýsingar um mataræði
og bætiefni til að sporna gegn
öldrun og sjúkdómum.
FÆSTI' BÓKAVERSLUNUM
í það gera ekki neitt. Ég gat ekki
hreyft mig spönn frá rassi. Ég fór
úr því að vera bæði 1 andlegri og lík-
amlegri hæð í andlega og líkamlega
lægð á einni sekúndu!“
Þetta ástand segir hann hins veg-
ar tilheyra þátíðinni. „Nú er ég
kominn á bíl og orðinn frjáls maður
á ný að mörgu leyti. Og mikið var
hann orðinn þreyttm- á ástandinu
eins og það var. „Þegar ég varð ról-
fær hringdi ég í félaga minn, bað
hann að koma í bíó og þegar hann
spurði á hvaða mynd, tilkynnti ég
honum að mér væri alveg nákvæm-
lega sama. Ég vildi bara sjá eitt-
hvað. Staðreyndin er sú að ég þoli
ekki bandarískar klisjumyndir, en
þarna fórum við að sjá Leathal
Weapon 4 og mér fannst gaman. Ég
var orðinn svo þurfandi!"
Að borga fyrir heppnina?
Sigurvin segist ekki velta því fyr-
ir sér hvers vegna hann hafi lent í
slysinu. „Ég hef alltaf haft þá trú að
enginn maður sé heppinn og annar
óheppinn. Svona lagað jafnist bara
út. Þegar ég meiddist í fyrra skiptið
í sumar hugsaði ég með mér að
kannski væri ég nú að borga fyrir
hve heppinn ég hefði verið í fyrra-
sumar; hve vel mér hefði gengið þá.
En allt er þetta mjög lærdómsríkt.
Að hafa kynnst öllum kvarðanum;
frá toppi og niður á botn, og að vera
kominn aftur upp að miðju núna,
það er mér mjög mikilvægt. Ég get
ekki ímyndað mér að neitt mikið
verra hefði getað komið fyrir mig á
þessum tíma, nema alvöru missir og
ég komst örugglega eins nálægt
botninum og ég kem til með að
fara.“
Hann segir forráðamenn ÍBV
hafa sýnt sér mikinn stuðning í
sumar. „Þeir hafa staðið við allt sem
mér var lofað og rúmlega það! Nú
er ég hins vegar samningslaus mað-
ur og tilgangslaust að ræða fram-
hald á því.“
Hann segist, þrátt fyrir allt, hafa
verið fljótur að sætta sig við slysið.
„Ég hef aldrei hugsað sem svo, hvað
ef... Ég hafði reyndar ætlað með
Óla í land daginn áður, en hætti við
því veðrið var svo gott og það var
svo gaman. En það er tilgangslaust
að hugsa hvað hefði gerst hefði ég
farið þá. Það er eins og að deila við
dómarann í leik. Ekkert breytist...“
BERUTZ
ORÐABÆKURNAR
5«sfc
!5*nsk
islensk
*ns
j
iSJWWt«k«»
Dönsk
íslensk
íslensk
dönsk
orðnbók
isldBtUlt - dctnsU
ordbtX)
Frönsk
islensk
íslensk
fröns
orðnbók
Dktiattalre
- IlWodail
l,tantittii-itt">i0"
5.000 ítlenik upp1le«'#T»
íslensk
ensk
orðnbók
UclHndlt'tBglÍJl*
OUtíonory
íslensk
?fnsk
islensk I islensÍ
sZslk
tðab*7S«
Dentuh*UUíndls«h ÆW ‘
Itölsk
úlensfc
fslensk
íföf
orðofa
Spænsk
íslensf
ísiensk\y;;;-bov\
skob»*
sirlteiiók
DUcionotU
ciponol • f
Ulnndét •
cijjoóoI
Ódýror og góðor orðobækur fyrir skólonn,
ó skrifstofuno og í ferðologið \
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
Eins árs ábyrgð og
ryðvörn innifalin í verði,
Betri MUSSO - Betra verð
Staðalbúnaður 602 ELX: Turbo m/millikæli ♦ Sjálfskipting
ABS-hemlakerfi ♦ Loftpúði fyrir ökumann ♦ Rafstýrður millikassi
Dana Spicer hásingar ♦ Gasdemparar ♦ Diskabremsur á öllum hjölum
Álfelgur og 30“ dekk ♦ Rafmagnsrúður og rafstýrðir hliðarspeglar
Útvarp, geislaspilari og þjófavamarkerfi ♦ Viðarklætt mælaborð
Leðuráklæði á sætum ♦ Stig bretti ♦ - og margt fleira
Finndu muninn á buddunni
Umboðsmaður J.b. bílaf
Selfossi, sími 482 3893
Bílastúdíó hf.
Faxafení 14, 108 Reykjavík
sími 568 5555, fax 568 5554.
Opið kl. 10-19 mán.-föst., kl. 11-14 laugard