Morgunblaðið - 04.10.1998, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 31
„Grúskið“ er orðið
að fyrirtæki, að
vísu ekki umsvifa-
miklu, en viðtökur
smyrslsins, sem
virðist hafa græð-
andi eiginleika,
hafa verið góðar.
Sama á við um
græðandi smyrsl
og vökva fyrir
hross, sem dýra-
læknar hafa
mælt með.
j
Gigtar- og bleiusmyrsl
væntanleg
Þær framleiða varasalva og
einnig hársvarðarvökva fyrir þá
sem hafa exem í hárinu. Tvö önnur
krem eru væntanleg á markað,
gigtarsmyrsl og bleiusmyrsl.
Smyrslin hafa farið í gegnum skoð-
Iun hjá Hollustuvemd, þar sem
innihaldsefni fara í gegnum eitur-
efnadeildina eins og reglur segja til
um varðandi snyrtivörur.
Ekki hafa allar tilraunir þeirra
gengið upp. „Við mölluðum saman
hársápu og það var prófað á Dað-
eyju í sumarbústaðnum og átti hún
að bíða í nokkum tíma í hárinu til
að sjá betur virknina. Síðan var
Daðey snögglega kölluð til Reykja-
víkur og náði ekki að þvo sér um
Íhárið en ætlaði að gera það þegar
hún kæmi suður,“ segir Sigríður og
Daðey bætir við: „Svo fór að efnið
náðist ekki úr hárinu og það stóð út
í allar áttir eins og ég hefði fengið
rafstraum. Það kostaði 4-5 þvotta
að ná því úr. Við sáum auðvitað að
þetta var ekki nógu góð framleiðsla
og helltum afurðinni út í náttúmna.
Grasið snarfölnaði og hefur ekki
komið síðan! Hins vegar er allt í
lagi með hárið á mér,“ bætir við
hún við hlæjandi.
Daðey kveðst vera slæm af of-
næmi og segir að því sé hún ágætis
tilraunadýr. „Ef ég fæ ofnæmi af
einhverju þá fer afurðin ekki á
markað. Ég hef þó aldrei þurft að
leita læknis vegna þessarar til-
raunastarfsemi minnar.“
Frá handþeytara
til iðnaðarvélar
Spurðar hvort fyrirtækið beri
sig segja þær svo vera. Hins vegar
megi markaðurinn stækka og því
binda þær vonir við hina erlendu
markaði. Tækin sem þær hafa not-
að og nota enn em nokkuð frum-
stæð, svo vægt sé til orða tekið. I
upphafi byijuðu þær með litla
handþeytivél til að hræra saman
kremið, síðan heimilishrærivél og
nú notast þær við litla iðnaðar-
hrærivél. Hún er orðin of lítil svo í
bígerð er að kaupa stærri og full-
komnari vél.
Gömul þvottavél gegnir aðalhlut-
verki í framleiðslu hársvarðar-
vökvans og enn eldri vél frá
O.Johnson & Kaaber, sem notuð
var til áfyllingar á kaffipokum,
gegnir nú því hlutverki að
skammta í dósir. Hún hefur þá
kosti að auðvelt er að stilla
skammtastærðina og hins vegar
getur hún fyllt þrjátíu 50 ml dósir á
mínútu. „Við urðum að kaupa nýja
hluti í hana í upphafi en erum ekki
enn komnar með nógu sjálfvirkan
búnað,“ útskýrir Daðey.
Þær era bjartsýnar á framtíðina,
sérstaklega eftir að samningamir
við erlendu samstarfsaðilana em
komnir í höfn. „Þetta hafa verið
miklar pælingar og margar
vökunætur, enda snýst hugsunin
um þetta allan sólarhringinn. Það
var bara okkar eigin bjartsýni sem
sá fyrir því að við fómm út í þetta.
Við flugum á bjartsýninni. En nú
finnst okkur við vera komnar á
græna grein,“ segja þessir bjart-
sýnu frumkvöðlar að lokum.
www.mbl.is
Veggofn TFA-10-01
> Undir- og yfirhiti
> Grill
> Ofnljós
Verð áður 24.100
Keramik helluborð TOA-36
>■ Með rofum
>- 4 hellur
>• Eftirhitunarljós
Verð áður 38.800
Veggofn TFA-60-51
>• Fjölkerfa blástursofn
>- Stafræn tölvuklukka
>■ Grill og griilmótor
Verð áður 39.800
Ofn með keramik helluborði
>- Fjölkerfa biástursofn
> Undir- og yfirhiti
> Grill og grillmótor
Verðáður 67.300
>- Einn mótor
> Sogar 260m/3 á klst.
Verð áður 7.990
Eldhúsvifta
SUÐURLANDBRAUT 16
rnmSL 108 RVK SÍMI 588 0500
Útdregin eldhúsvifta
> Tveir mótorar
>■ Sogar 420m/3 á klst.
>- Auðvelt að þrifa
Verð áður 16.200
hnnsnlló
> Innifalin er heimskeyrsla á höfuðborgarsvæðinu
sé keypt fyrir kr. 20.000 eða meira
>- Öllum tækjum fylgirtveggja ára ábyrgð
Löggiltir
Endurskoðendur Hf,
fulltrúar á íslandi fyrir
Andersen Worldwiðe SC
Við flytjum starfsemi okkar
Hlíðasmára
!
Nýtt heimilisfang
Hlíðasmári 14 í Kópavogi
Frá og með 5. október verða Löggiltir Endurskoðendur hf.
með aðsetur að Hlíðasmára 14 í Kópavogi. Nýtt símanúmer;
5803000. Nýttfaxnúmer; 580 3001, entölvupóstfangið er
óbreytt; le@le.is
Nýtt símanúmer Nýtt faxnúmer
580 3000 580 3001