Morgunblaðið - 04.10.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.10.1998, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA DÓRA FRIÐJÓNSDÓTTIR, frabakka 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánu- daginn 5. október kl. 13.30. Halla Hauksdóttir, Þorgeir Hrafn Hauksson, Heiða Hauksdóttir, Hafþór Þorvaldsson, Harpa Hauksdóttir, Ingvar Ingvarsson, Friðjón Unnar Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Benediktsson, + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALDOR BJ0RKE, Hatlevegen 64, Norheimsund, Noregi, lést á fylkissjúkrahúsinu í Voss, Noregi, hinn 28. september. Jarðsett verður í 0ystese, Noregi, þriðjudaginn 6. október kl. 13.00. Julia Bjorke Jakob Bjorke Brit-Kari Bjorke, Margreta Bjorke Heiðar V. Viggósson, Ingrid Bjorke Nisamjan, Harald Nisamjan og barnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN PÁLSDÓTTIR kennari, Fýlshólum 3, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 7. október kl. 13.30. Páll Jóhannsson, Hólmfríður Pálsdóttir, Magnús E. Jóhannsson, Judith Taylor Jóhannsson, Gunnar Jóhannsson, Hrönn Jóhannsdóttir, Skúli Jóhannsson, Erlendur Jóhannsson, Ásta Friðjónsdóttir, Gunnhildur Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGGEIR VILHJÁLMSSON stórkaupmaður, Seljahlíð, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 6. október kl. 13.30. Sigríður Hansdóttir, Hanna María Siggeirsdóttir, Erlendur Jónsson, Vilhjálmur Geir Siggeirsson, Kristín Guðmundsdóttir, Jóna Siggeirsdóttir, Þórólfur Þórlindsson, Siggeir Siggeirsson, Auður Þórhallsdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför JÓNS ÞÓRIS JÓNSSONAR, Réttarholtsvegi 33. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild A6 á Sjúkrahúsi Fteykjavíkur og heima- hjúkrunar, Fossvogi. Guð geymi ykkur öll. Þórunn Viimundardóttir, Stefán H. Jónsson, Unnar Jónsson, Stefán Hólm Jónsson, Vilmundur Jónsson, Jórunn Jónsdóttir, Gunnar Valur Jónsson, Þórir Jónsson, Hafdfs Kristinsdóttir, Svava Guðnadóttir, Hrönn Andrésdóttir, Halberg Siggeirsson, Kristín Sigurðardóttir, Sigurbjörg Sigurðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. SIGVALDI ÞORS TEINSSON + Sigvaldi Gísli Þorsteinsson fæddist í Ljárskóga- seli í Laxárdals- hreppi í Dalasýsiu 26. desember 1920. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 28. september síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Þorsteinn Gíslason bóndi í Ljárskóga- seli, f. 25. nóvember 1873, d. 9. nóvem- ber 1940, og Alvilda María Friðrika Bogadóttir húsfreyja í Ljár- skógaseli, f. 11. mars 1887, d. 22. mars 1955. Systkini Sig- valda eru: Guðlaug (samfeðra), látin. Magnús Rögnvaldsson (sammæðra), látinn. Ingveldur, Ragnar, Bogi, Gunnar, látinn, og EIís. Sigvaldi kvæntist 3. maí 1948 eftirlifandi konu sinni, Ingi- björgu Halldórsdóttur f. 1. sept- ember 1929, dóttur hjónanna Halldórs Jóns Guðmundssonar bóksala í Reykjavík, f. 20. maí 1900, d. 21. júní 1976, og konu hans, Sigrúnar Jónsdóttur hús- freyju, f. 16. október 1892, d. 7. október 1974. Sigvaldi og Ingi- björg eignuðust sex börn. Þau eru: I) Eh'sabet, f. 22.2. 1948, maki Guðlaugur K. Karlsson, f. 11. 1. 1947. Börn þeirra eru Ingibjörg, f. 31.12. 1972, d. 27.2. 1990, Bryndís, f. 5.7. 1975, hennar maki Andri Ægisson, f. 29.6. 1973, og Sigurdís, f. 24.4. 1979. II) Erla, f. 4.5. 1950, maki Sæmundur K.B. Gíslason, f. 7.2. 1954. III) Sigrún, f. 10.2. 1958, maki Kristján G. Jóakimsson, f. 19.2. 1958, börn þeirra eru Látinn er eftir stutta sjúkdóms- legu mágur minn og svili og vinur okkar Sigvaldi Þorsteinsson. Okk- ur er ljúft að minnast hans með nokkrum orðum. Þegar vinátta og samskipti manna hafa staðið yfír í rúm 50 ár er af mörgu að taka úr safni minninganna. Við vorum svo lánsöm að vera nágrannar í um 20 ár, húsin okkar í Asgarðinum stóðu inni í skeifunni, nánast hlið við hlið, aðeins lítill barnaleikvöllur skildi þau að. Við vorum á sama tíma að koma okkur upp heimili og ala upp börnin okkar og því voru mikil samskipti á milli fjölskyldnanna. Allir stærri og smærri viðburðir urðu tilefni til sameiningar og ekki má gleyma árlegum jólaboðum. Hjálpsemi hans í okkar garð var einstök og ófá urðu sporin hans á milli húsanna okkar þegar við köll- uðum eftir aðstoð hans, fyrir það viljum við þakka. Börnin uxu úr grasi og við hjónin urðum fyi-ri til að flytja úr Ásgarðinum okkar þar sem sagan segir að álfar og tröll ráði ríkjum. A seinni árum þegar við höfðum meiri tíma íyrir okkur sjálf, ræktuðum við fjögur enn bet- ur samskiptin. Arlegu ferðirnar austur undir Eyjafjöllin urðu ávallt tilefni til tilhlökkunar. Erfitt verð- ur að hugsa sér slíkar ferðir án hans. Sigvaldi var mikill gæfumað- ur, hann átti yndislega konu og far- sælt hjónaband, mannvænleg börn og barnaböm. Við vitum fyrir víst að skapfesta hans og traust hafa hjálpað til að skapa heimilinu í Ás- garðinum þá miklu festu og öryggi sem það var þekkt af, þetta var ekki orðspor heldur sannindi sem náðu langt út fyrir veggi þess. Þegar við hugsum til Sigvalda Gísli, f. 14.5. 1988, Ólafía, f. 9.2. 1990, og Ingibjörg, f. 12.12. 1992. IV) Þorsteinn, f. 9.6. 1960, maki Kristín Þórmundsdóttir, fædd 8.12. 1962, börn þeirra eru, Berglind Rut, f. 3.9. 1985, Sigvaldi, f. 18.5. 1988, og Hug- rún, f. 25.2. 1994. V) Bogi, f. 24.5. 1962, maki Ingunn Páls- dóttir, f. 21.11. 1963, börn Erla, f. 23.3. 1986, Helga, f. 21.8.1989, fóstursonur Páll Ingi, f. 25.7. 1985. VI) Dagbjört, f. 14.2. 1969. Sigvaldi varð stúdent frá MA 1946 og lauk síðan lögfræði- prófi frá Háskóla íslands 26. maí 1952. Sigvaldi vann ýmis störf að loknu prófí til septem- ber 1953. Hann var starfsmaður hjá íslenska vöruskiptafélaginu frá október 1953 til 1968, en það annaðist f.h. íslands fram- kvæmd viðskipta við Austur- Þýskaland þar til stjórnmála- samband komst á milli land- anna og framkvæmdastjóri fé- lagsins frá október 1956 til 1968. í nóvember 1968 gerðist hann fulltrúi hjá Verslunarráði Isiands og starfaði sem slíkur til 1985. Það ár tók hann við starfi aðstoðarframkvæmdasljóra Verslunarráðsins og gegndi þeirri stöðu þar til í ágúst 1991 er hann lét af störfum fyrir ald- urs sakir. títför Sigvalda fer fram frá Bústaðakirkju á morgun, mánu- daginn 5. október, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. minnumst við fyrst og fremst hversu traustur og hlýr vinur hann var, við líktum honum oft við klett- inn sem aldrei átti að brotna. Minn- ingin um Sigvalda verður ávallt björt í hugum okkar. Að leiðarlok- um viljum við þakka fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og kveðjum með söknuði. Elsku Ingibjörg, böm, barna- börn og aðrir ættingjar, við og dæturnar sendum innilegar samúð- arkveðjur. Júh'us og Sigríður. Elsku afi. Nú ertu farinn og það verður erfitt að kyngja þeim stóra bita. Eg man hvað var gaman að koma og gista hjá ykkur ömmu í Ásgarðinum og jafnvel sofa á milli þín og ömmu. Það var svo gaman að skoða með þér dýrabækurnar þínar. Legg ég nú bæði líf og ðnd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofiia fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr.Pét) Guð geymi þig. Þíri sonardóttir, Berglind Rut. Hann fór um haust, rétt núna, eitt fegursta haustið í norræna svalanum. Prúðbúni maðurinn, einn af þeim sem Island andaði gegnum, tryggðatröllið og ljúfling- urinn. Hann þekkti og virti vegferð sína, vann sínum sitt svo aldrei varð fullþakkað og unni sínum nán- ustu sönnum hugástum. Ferða- veðrið gat ekki skartað fegurri um- gerð á eylandinu hans. Þannig er stóra brotið af þeirri mynd og ímynd sem Sigvaldi Þor- steinsson lætur mér eftir. Við urð- um samferða á kontórskútu síðustu árin hans þar. Verslunarráðið átti hann lengi í áhöfn, mest hans lífs- starf út á við. Þar tók hann marga slemmuna í þágu viðskiptalífsins, til hagsbóta fyrir samtíð sína og framtíðina. Hann nagaði aldrei blý- antana. Vinna hans og úrræði voru í alvöru um leið og hann var á sinn hógværa hátt gleðigjafi í lúkarnum. Sigvaldi hætti brauðstritinu í upphafi tölvufársins, fyrir fáum ár- um. Kominn á aldur á dagatalinu. Svona hraustur, svona lífsglaður, við hlið sinnar kæru kjarnorku- konu, í hlutverkum uppalenda yngstu íslendinganna. Hún og þau hafa ófáum komið til efna að manni og manndómi. Skyndilega er klippt á þráð. Sigvaldi er farinn eitthvert annað, eins og hendir okkur öll. Þannig er tilveran, hver og hvar sem hún er hverju sinni. Söknuður væri ekki til nema gleði væri beggja vegna við hann. Góðar minningar eins og góðar athafnir gefa lífinu liti, sem nú um sinn speglast í hinum fegurstu haustlit- um íslenskrar náttúru. Seinna og ætíð í ævispegli hans. Herbert Guðmundsson. Við andlát Sigvalda Þorsteins- sonar rifjast upp margra ára kynni. Hann var samstarfsmaður okkar, sem þessar línur ritum, hjá Verzl- unarráði íslands; fyrst á Laufás- vegi 36 (Þverá), en 1982 var skrif- stofan flutt í Hús verzlunarinnar. Sigvaldi var um rúmlega tveggja áratuga skeið lögfræðingur Verzl- unarráðsins. Hann var og um ára- bil aðstoðarframkvæmdastjóri þess. Sigvaldi var maður, sem lét lítið yfir sér. Hann lagði gott til mála, en var fremur fáorður á fundum. Hin löngu kynni mótuðu í huga okkar mynd af manni, sem vann verk sín af alúð og vandvirkni. Hann var heilráður og gott til hans að leita, en þess var oft þörf við vinnu okkar. Kom þá fram glögg- skyggni hans og þekking á mönn- um og málefnum, enda var hann víðlesinn og minnugur. Ef rætt var um daginn og veginn hafði Sigvaldi oft yfir snjallar vísur eftir ýmsa höfunda, og átti enda til að setja saman vísur sjálfur, en var þó ekkert að auglýsa hæfni sína á því sviði. - Meðal áhugamála Sig- valda var bridge-spil, og unnu þau Sigvaldi og kona hans, Ingibjörg Halldórsdóttir, marga glæsta sigra við spilaborðið. Við hyggjum, að Sigvaldi hafi verið gæfumaður, og að gæfa hans hafi verið heimilislán og traust skapgerð, sem vafalaust hefur ver- ið bæði áunnin og að erfðum feng- in. - Að lokum sendum við samúð- arkveðjur til Ingibjargar og barna, og þökkum ánægjulegt samstarf og hjálpsemi, sem eigi gleymist. Ina og Grímur. Með Sigvalda, vini mínum, er genginn grandvar dánumaður, sem ávann sér vináttu allra, sem honum kynntust. Við andlát hans hrannast upp í huga mínum gamlar minning- ar frá þeirri tíð, er við vorum sam- tíða í menntaskóla. Það eru nú nær sextíu ár síðan við kynntumst í vegavinnu vestur í Dölum. Sumarið 1941 höfðum við báðir lokið brottfararprófi, hvor úr sínum héraðsskóla. Við urðum strax einhuga um það að við skyld- um leita frekari mennta og ákváð- um að sækja um inngöngu í annan bekk Menntaskólans á Akureyri. Með þeirri skólagöngu hófst okkar sambúð, sem átti eftir að standa í sex vetur. í þeirri sambúð er mér sérstak- lega minnisstætt, að ég sá Sigvalda varla skipta skapi, enda kom mér aldrei til hugar að leita annars fé- laga til sambýlis. Auk þess að búa saman sátum við ætíð saman í kennslustundum og stundum tókst okkur að spara bókakaup með því að kaupa saman eina kennslubók í sumum fógum! Það var enda haft á orði að „Dalamennirnir" væru sam- rýndir! Eg tel það hiklaust einn af happ- drættisvinningum lífs míns að hafa fengið að eiga samleið með þeim öðlingsmanni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.