Morgunblaðið - 04.10.1998, Page 43

Morgunblaðið - 04.10.1998, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ #*• MINNINGAR SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1998 43 FRÉTTIR + Sigþrúður Jó- hanna Karls- dóttir fæddist 18. október 1953. Hún lést 25. september 1998. Sigþrúður var dóttir hjónanna Karls Sigti-yggsson- ar vélstjóra og Heiðbjartar Helgu J óhannesdóttur ráðskonu, sem bú- sett voru allan sinn búskap í Innri- Njarðvík. Karl lést árið 1992. Sigþrúð- ur Jóhanna hefur verið búsett í Mataró á Spáni síðan 1975 og andaðist þar í borg. Hún giftist Þegar komið er að leiðarlokum vefst manni tunga um tönn. Oft er dauðinn eina lausnin og við fjöl- skyldan þín, Lilla mín, áttum von á því að kallið kæmi bráðlega, svo veik varst þú orðin og algjörlega ósjálf- bjarga. Lífsorkan var búin og trú- lega löngunin til að vera í máttvana líkama sem þú hafðir enga stjóm á. En samt finnst manni sárt að horfa á eftir ástvinum sem kveðja þennan heim ungir, jafnvel þótt þeir hafi þráð að fara, bara beðið. Lífskraft- inn hafðir þú nægan þegar við kynntumst fyrir 20 árum, alltaf brosandi og kát. Ég man aldrei eftir að þú skiptir skapi þótt þú hefðir oft ástæðu til, þessi létta lund var náð- argjöfin þín, hún vemdaði þig og létti þér annars oft erfiðar stundir. Þegar þú sast í hjólastólnum heima 1 stofunni hjá mömmu þinni í fyrra- sumar og hlóst dátt að einhverju gríni sem Helga systir þín var að segja, dáðist ég að þér og hugsaði sem svo; ef allir væm jafnlífsglaðir og þessi kona væm færri vandamál í Eugenio Pérez Gomez 1981 og áttu þau einn son, Car- los, f. 1. febrúar 1983. Fyrir átti Sig- þrúður dóttur af fyrra hjónabandi, Heiðbjörtu Helga- dóttur, búsetta í Hollandi og á hún tvö börn. Hálfsystk- ini Sigþrúðar sam- feðra eru:Karl Sig- tryggur, Óskar Þór og Alfheiður Björk. Alsystir Sigþrúðar er Helga Bára. títförin fór fram 28. septem- ber í Mataró. heimi hér. Þú lagðir aldrei illt til nokkurs manns, það var ekki þinn stfll. Það má segja að lífið hafi yfirleitt ekki farið um þig mjúkum höndum, það er hvorki mitt né annarra að skilja tilganginn, en það er önnur saga. Þú varst nýkomin úr erfiðu hjónabandi þegar ég kom í fjöl- skylduna þína, ákvaðst að venda þínu kvæði í kross og byrja nýtt líf, ekki á Islandi. Þú hafðir kynnst góð- um manni á Spáni, Eugenio, eða Júdin eins og þú kallaðir hann og þú sagðir mér fyrir löngu að það hefði verið ást við fyrstu sýn. Þú kunnir vel við þig á Spáni og varst fljót að tileinka þér spænskuna, eignaðist fljótt vini og varst vinsæl þar eins og hér á Islandi. Það hefur eflaust verið erfitt að fara utan með þriggja ára dóttur og hefja nýtt líf í framandi landi en þér tókst það bærilega. En þrátt fyrir að þú byggir erlendis í rúmlega tuttugu ár varstu fyrst og fremst Islendingur, þér þótti gott að koma heim og vera hér um stund og anda að þér íslensku sjávar- og fjallalofti sem er svo tært og drekka íslenskt vatn, eitt af þeim forréttind- um sem við eigum í okkar fallega landi. Þér þótti gaman að ferðast um landið þitt, ekki síst eftir að þú veiktist og fannst máttinn hverfa smám saman. Þú vissir trúlega besta allra að hverju dró og þráðir að koma einu sinni enn til Islands eins og þú sagðir í fyrrasumar. Þú komst hingað, lagðii- land undir fót og heimsóttir skyldfólk þitt á Akur- eyri. Þar áttir þú góðar stundir með þínu fólki og naust útiverunnar, varst hrókur alls fagnaðar. Innst inni vissir þú að þetta yrði síðasta ferðin heim að sinni og þú varst al- veg sátt við það. Sjálfsagt má um það deila hvort guð leggur meira á fólk en það getur borið, en þú varst óvenju vel af guði gerð, barst aldrei erfiðleika þína á torg, aldrei vol né væl, þú tókst þessu mótlæti með mikilli hetjudáð svo eftir var tekið. En þú varst líka heppin að eiga jafn ágætan mann að sem Júdin. I veikindum þínum sýndi hann mikinn dugnað og væntum- þykju, vildi allt fyrir þig gera og gerði allt sem hann gat. Af Suður- Evrópubúa að vera var hann óvenju fljótur að aðlagast íslensku samfé- lagi og að skilja málið okkar sem þykir víst frekar tormelt þar suður frá. Þú hafðir gaman af að heyra hann spreyta sig á íslenskunni sem hann var gjörsamlega óhræddur við að gera. Þú gerðir góðlátlegt grín að málvillunum sem læddust inn á milli, en hann hló bara og hélt sínu strild því honum fannst mikilvægt að getað skilið og talað málið okkar. Júdin skilur íslenskuna nánast alveg og talar bana frábærlega miðað við þau fáu skipti sem hann hefur komið hingað til lands. Þetta þótti þér vænt um og þeim áhuga sem hann hefur á landi okkar og þjóð. Nú þegar ég kveð þig í síðasta sinn, kæra vinkona, vil ég þakka þér fýrir allt og allt. Það er ekki öllum gefið að brosa í gegnum tárin og færa öðrum birtu og yl. Þannig varst þú. Páll Ægir Pétursson. SIGÞRÚÐUR JÓHANNA KARLSDÓTTIR ATLISNÆR JÓNSSON + Atli Snær Jóns- son fæddist á sjúkrahúsinu á Akranesi 12. októ- ber 1996. Hann lést á Barnaspítala Hringsins 25. sept- ember siðastliðinn og fór útför hans fram frá Borgarnes- kirkju 3. október. Elsku vinur minn, Atli. Nú ert þú farinn á stærsta leikvöll sem um getur. Leikvöll þar sem allir geta leikið sér, þar sem enginn meiðir sig þó svo að hann detti, þar sem enginn sársauki er. Allt er fullt af öfum og ömmum, frændum og frænkum sem munu annast þig. Ég var nú ekki stór þegar ég hitti þig fyrst á Landspítalanum. Þú klappaðir mér oft á vangann og leist eftir mér þegar mamma mín skrapp frá. Mikið var gott að hafa þig ná- lægt með bros þitt og stjörnunar í augum þínum. Mér þótti fyrst skrít- ið að búa í sjúkrastofu sem hét „Borgarnes“ en í dag veit ég af hverju. Elsku Atli, ég heiðra þig með kveðju á Borgarnesbrúnni í hvert skipti héðan í frá þegar ég fer norður í land að heimsækja ætt- ingja mína. Ég sendi mömmu þinni, pabba og bróður mitt fallegasta bros á meðan ég skríki og hjala til þín. Þín vinkona Tinna Rós Konráðsdóttir. Mikið er nú heimurinn tómlegur án þín, Atli minn. Við hinir krakk- arnir á spítalanum litum upp til þín, því að bæði varst þú eldri en flest okkar og svo höfðu erfiðleikar þínir gert þig eldri. Þú sýnd- ir okkur alltaf að mað- ur á að takast á við erf- iðleika með jafnaðar- geði og passa sig svo á að láta mömmu og pabba stjana í kringum sig svo manni líði bet- ur. Skemmtilegustu stundimar voru þegar við lékum okkur saman í sjúkraþjálfun hjá henni Steinunni. Við réttum hvor öðrum dót og höguðum okkur eins og sannir herramenn sem eru orðnir eins árs. Það eru fleiri stundir í minning- unni sem lifa því að við skemmtum okkur oft vel saman og gátum oft látið hjúkkumar stjana í kringum okkur og dúllast með okkur saman. Ég mun reyna að muna eftir þér alla tíð, Atli minn, því þó ég sé ung- ur að árum þá lít ég oft í átt að her- berginu þínu þegar mamma og pabbi keyra mig í vagninum fram- hjá. Ég veit að þau munu hjálpa mér að viðhalda minningunni um einn besta vin minn, hann Atla Snæ. Ljósið lýsi þér veginn, Atli minn. Þinn vinur Torfi Lárus. Líknaður mitt litla lyarta lífskraftinn þú gefúr mér. Sálarljósið sólskins bjarta sendir mér ég þakka þér. Harður er þessi heimur hingaðþúsendirmig. Baráttan í bijósti stendur berst mitt hjarta fyrir mig. Andstreymið er foreldrum mínum erfitt, óttinn um að ég ffá þeim hverfi. Megi máttur og styrkur þinn til þeirra streyma, megnir þú líf mitt um eilífð að geyma. Kveðja, Helga Einarsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRÉTAR RÓSANTSSON, Þórunnarstræti 119, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 5. október kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Dísa Sigfúsdóttir, Hreinn Grétarsson, Margrét G Heiða Grétarsdóttir, Líney Grétarsdóttir, Jóhanna Grétarsdóttir, Rósant Grétarsson, Sigmar Grétarsson, Magnúsdóttir, Jón Sveinbjörnsson, Friðrik Max Jónatansson, Sigrún R. Vilhjálmsdóttir, Hólmfriður Þórðardóttir og barnabörn. Y etrarstarfsemi Sjóminjasafns * Islands hafín SJÓMINJASAFN íslands við Vest- urgötu 8 í Hafnarfirði verður opið laugardaga og sunnudaga frá klukkan 13 til 17 frá 1. október til 31. maí og enn fremur eftir sam- komulagi við hópa. I fréttatilkynningu frá safninu segir að tekið verði á móti skóla- nemum alla virka daga eftir sam- komulagi við starfsfólk safnsins og er tekið fram að nauðsynlet sé að kennarar panti tíma með góðum fyrirvara. Nemendum standi til boða sérstök verkefni eða leiðsögn, auk þess sem boðið verði upp á myndbandasýningar. Verkefnin taki mið af þörfum hvers aldurs- hóps, en markmiðið sé að kynna skólanemum sjóminjar og veita þeim nokkra innsýn í sögu íslensks sjávarútvegs og siglinga. Viðfangs- efni séu sótt í sýningu safnsins. Síðastliðinn vetur var í safninu röð fyrirlestra fyrir almenning í samvinnu við Rannsóknarsetur í sjávarútvegssögu með tilstyrk Hafnarfjarðarhafnar, Hafnarfjarð- arbæjar og Sparisjóðs Hafnarfjarð- ar. Fyrsti íyrirlesturinn í nýrri fyr- irlestraröð var 14. september á Haf- rannsóknastofnun og talaði Vinnie Andersen sagnfræðingur frá Kaup- mannahafnarháskóla um fiskveiðar Grænlendinga á tímabilinu 1900 til 1940. Næsti fyrirlestur verður miðviku- daginn 14. október. Þá mun Hreinn Ragnarsson sagnfræðingur fjalla um sfldveiðar Norðmanna við Is- land. Fyrirlesturinn verður fluttur í Sjóminjasafni Islands og hefst ^ klukkan 20.30. Seinna í mánuðinum talar Örlygur Kristfinnsson, safn- stjóri Sfldarminjasafnsins á Siglu- firði, um uppbyggingu starfsemi safnsins. í nóvember og desember munu þau Unnur Dís Skaptadóttir og Jónas Allansson flytja erindi á sviði hafrænnar mannfræði í Sjóminjasafninu. Fyrirlestrar þess- ir, sem styrktir eru af menningar- málanefnd Hafnarfjarðar, verða nánar auglýstir síðar. Einnig eru fyrirhugaðar sýningar um helgar á ýmsum gömlum kvik- myndum, sem hafa skírskotun til hafsins á einn eða annan hátt. I fréttatilkynningunni er vakin athygli á því að í Nesstofusafni og Sjóminjasafni Islands séu nú einu sýningamar á vegum Þjóðminja- safns íslands, sem séu opnar um þessar mundir. Reyklaus að eilífu NÁMSKEIÐIÐ Reyklaus að ei- lífu hefur fengið nýjar umbúðir, nýtt form og á þvi hafa verið unnar miklar endurbætur í kjöl- far þeirrar reynslu sem fékkst með námskeiðahaldi liðins árs, segir í fréttatilkynningu. „I stað þess að vera haldið á tveimur kvöldum fær þátttak- andi nú spólunámskeið með sér heim sem hann tekur á sínum eigin tíma, þó mest 3 vikum. Að loknu námskeiðinu taka síðan við stuðningsfundir í fjórar vikur. Stuðningsfundimir era haldnir einu sinni í viku á miðvikudögum kl. 20.30 að Sogavegi 108, 2. hæð,“ segir ennfremur. Námskeiðið er til sölu alla mið- vjkudaga að Sogavegi 108, 2. hæð (íyrir ofan Garðsapótek) milli kl. 17 og 20.30. HLÍÐARHJALLI - KÓP. Vönduð og fallega innr, 2ja herb. íb. á 1. hæð með stórum svölum. Eldhús með góðri innr. og þvhús innaf. Eikarparket. Áhv. 3,5 millj. byggsj. Verð 6,9 millj. Falleg lóð. Hús í góðu standi. LAUS STRAX. 8778 HRAUNTEIGUR. Vorum að fá í sölu góða 3ja herb. íb. í kj. með sérinngang. Tvö svefnherb. Parket og flísar. Góðar innr. Hús nýl. viðgert og sérlega glæsilegt. Verð 7,2 millj. Áhv. 4 millj. hagstæð lán. Góð staðsetning. 9982 STÓRAGERÐI - LAUS. Vorum að fá í sölu 98 fm íb. á jarðhæð með sérinngang í góðu húsi. 2 svefnherbergi. Góð stofa. Frábær staðsetning. Verð 7,7 millj. LAUS STRAX. 9250 FOSSVOGUR - SKIPTI. Gott 186 fm raðhús ásamt 25,6 fm bílskúr. Húsið er fyrir ofan götu og er í góðu standi, þak og gler endurnýjað. Aðeins í skiptum fyrir íbúð í Fossvogi. Allar nánari uppl. á skrifstofu. 9234 BÚSTAÐAHVERFI. Glæsilegt og mikið endurnýjað 128 fm einbýlishús ásamt 33 fm bílskúr. 3 svefnherb. 2 stofur. Glæsil. eldhús með rauðeik í innr. Ný tæki. Parket og flísar. Suðurgarður. Hús klætt að utan. Áhv. 2,2 m. byggsj. Verð 13,9 m. 9251 ÁRBÆR - SELÁS. Mjög gott einbýlishús á einni hæð ásamt rúmg. bílskúr. 3 svefnherb. Hiti í stéttum og plani. Lóð fullfrágengin. Stærð 148 fm samtals. Verð 14,2 millj. 9249 ÁRTÚNSHOLT. Vandað og gott 200 fm einbýli sem er hæð og ris ásamt 42 fm bílskúr. Húsið er vel staðsett og gefur fallegu útsýni. 4 svefnherb. Góðar stofur, sólstofa o.fl. Parket og flísar. Góðar innr. Lóð fullb. með hita í stéttum. Allar nánari uppl. á skrifstofu. 8758 OPIÐ í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 12 - 15. Sími: 533 4040 Fax: 588 8366 Dan V.S. Wiium hdl. lcigg. fasteignasali ^^J^ASTEIGNASA^^^rmúI^H^URc^kjavíI^Tjraustj^öruggJtiónusti^^ *■ 4 www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.